Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Kvótakerfið misheppnað  Sturla Böðvarsson, forseti Alþing- is, segir kvótakerfið hafa mistekist og kallar eftir breytingum til að við- halda byggð í sjávarplássum. » Forsíða Pókermótið stöðvað  Lögreglan í Reykjavík stöðvaði um helgina fyrsta opinbera pók- ermót sem haldið hefur verið hér- lendis. Alls voru 150 þátttakendur skráðir til leiks. » 2 Stórt útrásarverkefni  Icelandic Energy Group hefur gert samning við Lýðveldi Serba í Bosníu um samstarf á sviði vist- vænnar orku. » 8 Innflytjendahverfi  Vísar að innflytjendahverfum hafa myndast á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú hverfi skera sig úr með hærra hlutfall erlendra ríkisborgara en önnur. Ástæður þessa eru fyrst og fremst fjárhagslegar. »8 Sarkozy fær meirihluta  Flokkar sem styðja Sarkozy Frakklandsforseta fengu meirihluta í þingkosningum í gær. » 14 SKOÐANIR» Staksteinar: Hefði hún hætt? Forystugreinar: Sjávarútvegurinn í uppnámi | Baráttan gegn mansali Ljósvaki: Nágrannar gyðinganna UMRÆÐAN» Skökk samkeppnisstaða Hvers vegna má ekki byggja …? Dauðadómur heimskasta … Treysti á að Jóhanna leysi … Þetta helst … Vesturland í sókn Minjar sem ekki mega glatast Lykillinn hennar Iðunnar FASTEIGNIR» Heitast 18°C | Kaldast 10°C  Hægviðri og víða léttskýjað, en skýjað m/köflum vestanlands. Líkur á síðdegis- skúrum f. norðan. » 10 Iceland Favourite Places er nýr mynd- diskur sem inniheld- ur myndir frá yfir hundrað stöðum á landinu. » 37 MYNDDISKAR » DVD-diskur um Ísland KVIKMYNDIR» Code Name: The Cleaner fær slæma dóma. » 39 Rapphundurinn Parappa vill fanga hjarta stúlkunnar og þarf að rappa sig í gegnum þrekraun- ina. » 40 TÖLVULEIKIR» Rapparinn Parappa TÓNLEIKAR » B.Sig hélt flotta tónleika í Saltfélaginu. » 43 FÓLK» Syngja Spice Girls saman á ný? »43 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Ísland sigraði Serbíu 42:40 2. Gekk berserksgang í lögreglubíl 3. Fálkaorðan veitt á Bessastöðum 4. Eignast Angelina Jolie 14 börn? BORGARLISTAMAÐUR Reykja- víkur árið 2007 verður Ragnar Bjarnason söngvari. Ragnar, betur þekktur sem Raggi Bjarna, hefur sungið fyrir landsmenn í ára- tugi enda kallaði Vilhjálmur Vil- hjálmsson borg- arstjóri lista- manninn tímalausan þegar hann afhenti verðlaunin. Við afhend- inguna fullyrti Ragnar að öll sín tón- list væri komin úr harmónikku föður síns, en Árni Scheving, fyrrverandi liðsmaður KK-sextettsins, lék undir á umrædda harmónikku við afhend- inguna. Ragnar hóf einmitt tónlistarfer- ilinn sem trommari í hljómsveit föð- ur síns, Hljómsveit Bjarna Bö., en þá var söngvarinn á táningsaldri. Verðlaunaféð var ein milljón króna og áletraður steinn fylgdi útnefning- unni. | 16 Ragnar heiðraður Klassískur Ragnar syngur í Höfða. ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik er komið í úrslitakeppni á tí- unda stórmótinu í röð eftir sigur á Serbum, 42:40, í æsispennandi leik í troðfullri Laugardalshöllinni í gærkvöld. Serbar unnu fyrri leikinn á sínum heimavelli, 30:29, þannig að engu mátti muna, en íslenska liðið vann rimm- una með samanlagt einu marki, 71:70. Íslendingar verða ein þeirra 16 þjóða sem leika um Evrópumeistaratitilinn í Noregi í janúar á næsta ári. „Þegar ég mæti til vinnu hjá Gummersbach á ný um miðjan júlí mun ég kanna hvort einhver möguleiki sé fyrir hendi á að ég stýri landsliðinu fram yfir EM í Noregi. Ef ég ætti að svara HSÍ núna þá er klárt að svarið væri nei. Ef HSÍ gefur mér frí í þrjár til fjórar vikur þá getur vel verið að eitt- hvað minni líkur verði á að ég svari neitandi,“ sagði Alfreð Gíslason, lands- liðsþjálfari Íslands, við Morgunblaðið þegar hann var spurður um mögu- leikana á að hann héldi áfram störfum með landsliðið. Samningur hans rennur út um næstu mánaðamót. Á myndinni fagna íslensku leikmennirnir sigrinum og þakka áhorf- endum fyrir magnaðan stuðning á þjóðhátíðardaginn. Íþróttir Morgunblaðið/Golli Serbarnir sigraðir í spennuleik Íslendingar komnir í úrslitakeppni EM í handknattleik karla 2008 „VIÐ ætlum ekki að sitja með hend- ur í skauti og bíða eftir að eitthvað gerist, heldur leysa okkar mál sjálf,“ segir Jón Már Héðinsson, skóla- meistari Menntaskólans á Akureyri. Í útskriftarræðu sinni um helgina upplýsti Jón Már að skólanefnd hefði falið sér að kanna hvort rekstrarör- yggi skólans yrði betur tryggt með því að gera hann að einkaskóla með rekstrarsamning við menntamála- ráðuneytið. Í samtali við Morgunblaðið segir Jón Már skólann munu skoða módel Verslunarskóla Íslands til að sjá hvort það geti hentað MA. „Það er hins vegar alveg ljóst að við stefnum ekki að því að taka upp skólagjöld heldur fyrst og fremst leita eftir styrkjum frá fyrirtækjum til að styrkja reksturinn.“ Eftir sé að skoða hvort fyrirtæki vilji styrkja skólann með beinum framlögum. Í ræðu sinni gagnrýndi Jón Már ómarkvissar fjárveitingar stjórn- valda til skólans. Til dæmis nefndi hann að ráðstöfunarfé skólans hefði verið skert um 30% á hverju ári sl. 3 ár, en með því er átt við þær tekjur sem skólinn hefur yfirráð yfir fyrir utan fastan launakostnað, rafmagn, hita, húsaleigu o.þ.h. „MA er í harðri samkeppni um að vera í fremstu röð skóla og til þess að standa sig í þessari samkeppni þarf að vera hægt að treysta á að reglum og forsendum fjárveitinga sé ekki breytt. Við verðum að vera viss um að geta fjármagnað það nám sem við bjóðum nemendum okkar þegar þeir innritast. Með núverandi fyrirkomu- lagi er rekstrarlegt öryggi og fjár- hagslegt sjálfstæði skólans algjör- lega óviðunandi,“ segir Jón Már og bendir á að til langs tíma hafi verið saumað að bóknámsskólum. „Við þurfum að fá fé til þess að geta tekist á við nýjungar í kennsluháttum og við þurfum að fá fé til að kaupa nú- tímakennslutæki. Í fjárveitingum til skólans er lítið gert ráð fyrir þessu.“ Verður MA einkaskóli?  Skólameistari telur núverandi fyrirkomulag óviðunandi  Ætla ekki að taka upp skólagjöld heldur leita styrkja Í HNOTSKURN »Menntaskólanum á Ak-ureyri var í gær slitið í 128. sinn. »Alls voru útskrifaðir 135nýstúdentar. »Skólanefnd MA telur fjár-veitingar hins opinbera til skólans vera ómarkvissar. »Til dæmis hafi forsendurfjárveitinga skólans þrí- vegis breyst á jafnmörgum ár- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.