Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 167. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Á TÓNLISTARHÁTÍÐ
GÓÐA SKAPIÐ VERÐUR AÐ VERA MEÐ Í
FÖR ÞEGAR GÓÐA VEÐRIÐ BREGST >> 43
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
SAMVINNUTRYGGINGAR
MÁLIÐ SKÝRT
AÐFERÐIN >> VIÐSKIPTI
Íslensk mjólk
og ítalskt kaffi
FRÉTTASKÝRING
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
SIÐANEFND Blaðamannafélags Ís-
lands hefur ákvarðað blaðamönnum
viðurlög í rúm 40 ár. Við stofnun árið
1965 hét nefndin Siðareglunefnd og
voru störf hennar ekki sýnileg al-
menningi fyrstu tvo áratugina. Árið
1985 fékk nefndin nafnið Siðanefnd
BÍ og var siðareglum félagsins breytt
samhliða nýrri nafngift. Mestu breyt-
ingarnar voru að brotlegum fjölmiðli
var gert að birta úrskurði nefnd-
arinnar undir vissum kringum-
stæðum og brot voru flokkuð í þrjá
flokka eftir alvarleika: ámælisverð, al-
varleg og mjög alvarleg. Í kjölfar
þessara breytinga fjölgaði kærum og
flestar hafa þær verið 13 á einu ári.
Árið 2005 hafði nefndin fjallað um 168
kærur, eða um 7,2 mál á ári frá 1985.
Víta má fréttamenn
Engin viðurlög eru við brotum á
siðareglum blaðamanna önnur en þau
sem felast í opinberri birtingu. Sam-
kvæmt 6. grein reglnanna skulu úr-
skurðirnir birtir í félagstíðindum BÍ.
Úrskurðinn skal jafnframt senda til
hins brotlega fjölmiðils með ósk um
birtingu ef um alvarlegt eða mjög al-
varlegt brot er að ræða og skal meg-
inniðurstaðan birt orðrétt. Aðrir fjöl-
miðlar fjalla oft um lyktir máls fyrir
siðanefnd auk þess sem úrskurðirnir
hafa valdið opinberum skoðanaskipt-
um og hefur Blaðamannafélagið
stundum efnt til funda í tilefni af úr-
skurðum. Þess ber þó að geta að ef
siðanefnd telur brot svo alvarlegt að
frekari ráðstafana sé þörf getur hún
borið tillögu um vítur á viðkomandi
blaðamann undir félagsfund.
Það hefur þó komið fyrir að ein-
staklingar sem telja sig hafa orðið
fyrir óvæginni umfjöllun fjölmiðils
hafi höfðað meiðyrðamál fyrir al-
mennum dómstólum í kjölfar úr-
skurðar Siðanefndar. Hafa slík mál
a.m.k. tvisvar komið til kasta Hæsta-
réttar og fallið málshefjanda í vil.
Samkvæmt úttekt Róberts H. Har-
aldssonar og Steinars Arnar Atlason-
ar, Siðanefnd Blaðamannafélags Ís-
lands 1965-2005, er algengast að 3.
grein siðareglnanna sé brotin. Þar er
mælt fyrir um að blaðamaður vandi
upplýsingaöflun, úrvinnslu og fram-
setningu sem kostur er og sýni fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum og
forðist allt, sem valdið getur saklausu
fólki eða fólki sem á um sárt að binda,
óþarfa sársauka eða vanvirðu.
Reuters
Atgangur Fjölmiðlamenn ganga
stundum hart fram í spurningum.
Opinber
birting
nægir
LISTASUMAR, sem er árleg hátíð
á Akureyri, var formlega sett í 15.
skipti í gær. Samkoma var í Lysti-
garðinum þar sem Elín Margrét
Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar
Akureyrarstofu, flutti ávarp, dúett-
inn Hundur í óskilum flutti Gunn-
arshólma eftir Jónas Hallgrímsson
og opnuð var ljóðasýningin Jónas í
Lystigarðinum. Þá flutti Arna Vals-
dóttir ljóð. Boðið var upp á græn-
meti og ávexti og þessum unga pilti
leist vel á hollustufæðið. Listasumri
lýkur að vanda 25. ágúst, á afmæl-
isdegi Akureyrar.
List í Lysti-
garðinum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FJÖLMENNUR borgarafundur í
Vogum á Vatnsleysuströnd sam-
þykkti í gærkvöldi með miklum
meirihluta beiðni forseta bæjar-
stjórnar um að veita bæjarstjórninni
umboð til að hefja formlegar viðræð-
ur við álfyrirtækið Alcan um bygg-
ingu álvers á Keilisnesi. Um 140
manns mættu á fundinn og var fullt
út úr dyrum. Alls tóku um þrjátíu
fundargestir til máls í umræðum að
lokinni framsögu Róberts Ragnars-
sonar bæjarstjóra.
Eins og við var að búast skiptust
sjónarmið fundargesta algjörlega í
tvö horn, með og á móti byggingu ál-
vers. Þeir sem fögnuðu áhuga Alcan,
og töluðu með álveri, nefndu mikil-
vægi þess að huga að atvinnuupp-
byggingu í sveitarfélaginu og skapa
því auknar tekjur, sem svo aftur
myndu koma íbúum til góða í formi
betri þjónustu.
Tekjur sveitarfélagsins gætu
aukist um 300-400 milljónir
Í framsögu bæjarstjóra kom fram
að sennilega mætti reikna með að ál-
ver á Keilisnesi myndi lauslega áætl-
að skapa um 300-400 störf og að ekki
væri óvarlegt að áætla að tekjur
sveitarfélagsins gætu aukist um 300-
400 milljónir króna á ári. Benti hann
á að skatttekjur sveitarfélagsins
væru í dag í kringum 400 milljónir
kr. og þar af kæmi um helmingurinn
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Allnokkrir fundarmanna voru þó
eindregið á móti því að álver yrði
reist, og voru rök þeirra þau að halda
bæri bæjarfélaginu í núverandi
stærð og sem þeirri náttúruperlu
sem það væri. Bentu þeir á að ekki
væri atvinnuleysi í Vogum nú um
stundir og sögðust ekki sjá tilgang-
inn með að fjölga störfum sem að öll-
um líkindum yrðu mönnuð með er-
lendu vinnuafli.
Bæjarstjórnin fékk um-
boð til viðræðna við Alcan
Skiptar skoðanir um álver á Keilisnesi á fjölmennum borgarafundi í Vogum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þröng á þingi Fjölmenni var á borgarafundi í Vogum í gær þar sem rætt var um hugsanlegt álver á Keilisnesi.
Í HNOTSKURN
»Stór hluti Keilisness hefurverið skilgreindur sem iðn-
aðarsvæði um árabil.
» Í tillögu að nýju aðalskipu-lagi er lagt til að skilgreint
iðnaðarsvæði verði 150 hektar-
ar í stað 750 eins og er í núgild-
andi aðalskipulagi frá 1994.
» Íbúar Hafnarfjarðar höfn-uðu í kosningu í mars sl.
deiliskipulagstillögu sem fól í
sér stækkun álvers Alcan í
Straumsvík.
um framtíð fyrirtækisins á Íslandi.
Meðal annars var rætt um hugsan-
lega stækkun álversins í Straumsvík
með landfyllingu sem Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, hef-
ur lýst áhuga á. Össur sagði við fjöl-
miðlamenn eftir fundinn að hann
teldi framkvæmdina vart ráðlega
sökum tæknilegra vandamála og
kostnaðar. | Miðopna
LANDSVIRKJUN mun á næstu
dögum skoða hvort til greina kemur
að framlengja viljayfirlýsingu sem
gerð var í fyrra um gerð raforku-
samnings til stækkunar álversins í
Straumsvík. Að óbreyttu fellur hún
úr gildi 30. júní nk.
Ráðamenn frá móðurfélagi Alcan
á Íslandi funduðu í gær með Össuri
Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra
Skoðað hvort framleng-
ing kemur til greina