Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ÁHUGI er fyrir því meðal forsvars-
manna félagasamtaka að stofnuð
verði sameiginleg hagsmunasamtök
þeirra. Eva Þengilsdóttir kannaði
þetta í lokaverkefni sínu til MPA-
gráðu í opinberri stjórnsýslu.
Frjáls félagasamtök eru stundum
kölluð „þriðji geirinn“ á móti hinu op-
inbera og einkageiranum. Félögin
sem þarna um ræðir spanna öll svið
þjóðlífsins, frá íþróttafélögum til um-
hverfisverndarsamtaka. Samtök
þeirra myndu gegna svipuðu hlut-
verki og Samtök atvinnulífsins gera í
einkageiranum, gæta hagsmuna
þeirra gagnvart stjórnvöldum og
vinna að sameiginlegum málum.
Þörf á sameiginlegum málsvara
Eva nefnir umbætur á skattalög-
gjöf sem dæmi um brýnt sameiginlegt
hagsmunamál. „Einkafyrirtækin
hefðu ekki náð fram lækkun skatta
niður í 18% ef þau hefðu ekki verið
samtaka og sammála um að slíkt væri
nauðsynlegt. Hópurinn hefur miklu
meira vægi sameinaður.“ Ýmislegt
fleira þarf að athuga í sambandi við
lagalegt umhverfi félagasamtaka. „Í
nágrannaríkjum er fólk hvatt til sjálf-
boðaliðastarfa með markvissum
hætti. T.d. getur fólk fengið hluta
kostnaðar sem það leggur út vegna
þeirra endurgreiddan,“ segir Eva.
Hún telur að frjáls félagasamtök
þurfi á sameiginlegum málsvara að
halda, ekki einungis gagnvart hinu
opinbera heldur einnig fjölmiðlum og
almenningi. „Þegar til dæmis Byrg-
ismálið kom upp þá fundu samtök
sem voru í fjáröflun um svipað leyti
fyrir því að það hafði neikvæð áhrif á
traust almennings til geirans. Það átti
við þótt þessi félög væru ekki endi-
lega að vinna á sama sviði og Byrgið.
Einstök félög voru skiljanlega treg
til þess að blanda sér í umræðuna, en í
þessu erfiða máli hefðu heildarsamtök
getað lagt áherslu á að um einangrað
tilvik væri að ræða og algjöra und-
antekningu frá því metnaðarfulla
starfi sem almennt fer fram innan
geirans.“
Sumir viðmælendur Evu létu í ljós
áhyggjur af því að ef félagasamtök
stæðu ein í baráttu við hið opinbera,
þá gæti það komið niður á þeim við
úthlutun fjármagns og aðra fyr-
irgreiðslu og sumir höfðu efasemdir
um gildi slíkra samtaka þótt flestir
hefðu verið mjög jákvæðir. „Menn
eru eðlilega hræddir við að missa
spón úr aski sínum. Samtök af þess-
um toga kosta auðvitað eitthvað og
menn eru kannski hræddir við sam-
keppni um starfsfólk og fjármuni. En
hugmyndin með svona heildar-
samtökum er að styrkja frjáls fé-
lagasamtök í samkeppni við hið op-
inbera og einkafyrirtækin um
fjármagn og hæft starfsfólk.“
Eva álítur að frjáls félagasamtök
hafi margt fleira að vinna með því að
stilla saman strengi sína. „Samtökin
gætu orðið vettvangur fyrir bætta
starfshætti. Í gegnum þau mætti
miðla þekkingu, nýjungum, hug-
myndum að fjáröflunarleiðum og svo
framvegis,“ segir hún.
Vilji fyrir stofnun
regnhlífarsamtaka
Morgunblaðið/RAX
Félagsstarf Eva Þengilsdóttir hefur komist að því að frjáls félagasamtök
hafa hag af því að stofna með sér heildarsamtök.
Í HNOTSKURN
»Sautján þúsund sjálfseign-arstofnanir og fé-
lagasamtök voru skráð í fyr-
irtækjaskrá ríkisskattstjóra í
árslok 2003. Þar eru meðal
annars talin öll húsfélög á
landinu.
»Starfsemi hinna þriggjageira þjóðlífsins skarast á
mörgum sviðum, til dæmis eru
skólar á landinu flestir reknir
af ríkinu, en sumir af einka-
fyrirtækjum og aðrir af frjáls-
um félagasamtökum.
Frjáls félagasamtök eiga sér sameiginlega hagsmuni
ÁHÖFNIN á Syn, eftirlitsflugvél
Landhelgisgæslunnar, stóð skip-
stjóra á fiskibát að meintum ólög-
legum línuveiðum inni í lokuðu
hólfi 7,8 sjómílur norðvestur af
Deild um hádegisbilið á þriðjudag.
Skyndilokun á svæðinu hafði verið
auglýst 15. júní sl. samkvæmt heim-
ild í lögum um veiðar í fiskveiði-
landhelgi Íslands og gildir hún til
29. þessa mánaðar.
Landhelgisgæslan sendi kæru til
Lögreglustjórans á Vestfjörðum
sem er nú með málið til meðferðar.
Að veiðum
í lokuðu hólfi
NÝLEG úttekt
sem gerð var á
öryggismálum
hjá dagfor-
eldrum í Garða-
bæ sýnir að
ástand öryggis-
mála hjá þeim er
almennt gott.
Starfsmenn For-
varnahúss Sjóvár gerðu úttektina
að beiðni bæjarráðs Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkti að láta taka
öryggismálin út í kjölfar ákvörð-
unar sinnar um að veita starfandi
dagforeldrum í bænum aðstöð-
ustyrk sem m.a. er ætlaður til að
bæta umhverfi og aðstöðu barn-
anna sem hjá þeim dvelja. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að Garða-
bær er fyrsta sveitarfélag landsins
sem greiðir dagforeldrum aðstöð-
ustyrk.
Í kjölfar úttektarinnar verður
unninn gátlisti fyrir heimili dagfor-
eldra, slysaskráningarblað fyrir
dagforeldra og gátlisti fyrir sjúkra-
kassa auk þess sem útbúin verður
viðbragðsáætlun fyrir öll heimili
dagforeldra í Garðabæ.
Öryggi hjá
dagforeldrum
SKÁTAFÉLAGIÐ Landnemar í
Reykjavík heldur árlegt skátamót,
Landnemamót, í Viðey dagana 21.-
24. júní. Í ár minnast skátar um all-
an heim þess að 100 ár eru liðin frá
upphafi skátahreyfingarinnar og
Landnemar gera það á mótinu í
Viðey. Landnemamótið 2007 verð-
ur sett í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 21. Tjaldbúðin verður á miðri
eynni, spölkorn austan við Viðeyj-
arstofu. Von er á skátum frá mörg-
um skátafélögum í Reykjavík og á
sv-horninu, en öllum skátum á land-
inu er boðið til mótsins.
Upplýsingar um mótið er að
finna á heimasíðu Landnema,
www.landnemi.is
Landnemar
með mót í Viðey
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra heimsótti í vikunni þrjá þyrlu-
framleiðendur á flugsýningunni í
París, Eurocopter, Agusta Westland
og Sikorsky og flutti síðan ræðu á
fjölsóttum kynningarfundi þar sem
kynnt voru áform Norðmanna um
kaup á nýjum björgunarþyrlum. Þar
skýrði Björn frá því, að Íslendingar
stefndu að samstarfi við Norðmenn
um þyrlukaup.
Björn sagði við Morgunblaðið, að
tilgangur hans með þátttöku í kynn-
ingarfundinum hefði verið að stað-
festa gagnvart þeim, sem hann sóttu,
að Íslendingar væru að búa sig undir
að kaupa tvær til þrjár stórar leitar-
og björgunarþyrlur og hefðu ákveðið
að eiga samstarf við Norðmenn um
kaupin. Ákvarðanir um samstarfið
hefðu verið teknar en gengið yrði frá
samkomulagi um útfærslu þess á
næstu vikum. Af hálfu Norðmanna
talaði Terje Moland Pedersen, að-
stoðardómsmálaráðherra, sem fer
fyrir kynningarnefnd Norðmanna og
Íslendinga, en þau Geirþrúður Al-
freðsdóttir flugrekstrarstjóri og
Höskuldur Ólafsson tæknistjóri
flugdeildar Landhelgisgæslu Íslands
eru í þessari nefnd. Mun hún ræða
við helstu þyrluframleiðendur á Par-
ísarflugsýningunni; Agusta West-
land, Sikorsky, Eurocopter auk full-
trúa fleiri fyrirtækja sem líklegt er
að verði meðal tilboðsgjafa. Stefnt er
að því að útboðsgögn liggi fyrir á
næsta ári og samið verði 2009.
Kynnti
áform um
þyrlukaup
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Þyrlur Meðal þess sem ráðherra
skoðaði voru Dauphine-þyrlur.
ÚT ER komið nýtt gönguleiðarkort
um miðbæ Hafnarfjarðar. Búið er
að merkja inn markverða staði og
minjar og ber leiðin heitið Á milli
vita. Ástæðan fyrir þessu sér-
kennilega nafni er sú að staðirnir
sem vakin er athygli á eru merktir
inn á kortið með vitanum.
Í fréttatilkynningu segir að mikil
og skemmtileg saga sé tengd bygg-
ingum og svæðum í miðbæ Hafn-
arfjarðar og á kortinu er snert á
sögunni, komið inn á sögu klaust-
ursins, Flensborgarskólans, Gúttó,
Hamarsins og Lækjarins svo eitt-
hvað sér nefnt. Meiri upplýsingar
um hvern og einn stað er að finna á
www.hafnarfjordur.is Kortið er
teiknað af Kristínu Gunnarsdóttur.
Á milli vita
í Hafnarfirði