Morgunblaðið - 21.06.2007, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Aldeilis ekki, elskurnar mínar, þetta er bara örlítið upp í mót.
VEÐUR
Blaðið birti í gær afar áhugavertviðtal, sem Þórður Snær Júl-
íusson blaðamaður átti við Helga
Magnús Gunnarsson, saksóknara
efnahagsbrota hjá embætti rík-
islögreglustjóra, og ástæða er til að
hvetja fólk til að lesa.
Í viðtali þessu segir Helgi Magnúsm.a. um aðstöðu þeirra, sem
rannsaka efna-
hagsbrot:
„Það er ekki
hægt að segja
annars vegar að
við viljum ekki
láta nægilega
mikla peninga í
þetta og hins
vegar að gagn-
rýna að við séum
ekki að standa
okkur. Þetta
helst auðvitað í hendur. Ann-
aðhvort rannsökum við brotin og
höfum þau úrræði, sem til þarf, eða
afbrotamenn geta ákveðið að fara
með fjársvikin sín yfir nokkur
landamæri til að koma í veg fyrir
að rannsóknin nái tilgangi sínum.
Mér þykir það ekki ásættanlegt.“
Saksóknarinn segir ennfremur:„Núna erum við gróflega
áætlað með 20 til 30 mál í meðferð.
Við erum með sextán og hálft
stöðugildi. Til að geta lokið öllum
þessum málum á eðlilegum hraða
þá þurfum við hins vegar meira til.
Við þurfum að hefja fleiri rann-
sóknir að eigin frumkvæði og ég tel
ekki óraunhæft að miða við tvöföld-
un á starfsmannafjölda á ekki mjög
löngum tíma. Þá þurfum við að
sækja þekkingu og menntun fyrir
fólk en slík þekking er oft sérhæfð
og bara að finna erlendis.“
Loks segir Helgi Magnús:„Það er enginn, sem gerir at-
hugasemd við það að refsa manni,
sem stelur sér kókflösku á Lauga-
veginum … Þegar hvítflibbar eiga í
hlut og það fréttist að þeir hafi jafn-
vel stungið ævitekjum verkamanns-
ins undan skatti skapast oft engin
opinber umræða um málið.“
STAKSTEINAR
Helgi Magnús
Gunnarsson
Áhugavert viðtal
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
*$;<
!
*!
$$; *!
# $ % $ &'!('
=2
=! =2
=! =2
#&% ) *+',
<2>
*
? ;
?"2
- %
'! '$ $ . ! ' ,
'/$ 0
/
- /"* $%
/ ' .
,$ '/$ 0
1 ' .
0
=7
2 ' %$ % $
,$ .3&$ 0
1 $ " 0
45 '66 '! 7 '!')
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
".
".
0"
"0 0"
0 0 0""
0"
"0 /
/
0"
"0"
/
/
0"
.
."
.
.
.
".
".
".
.
.
."
.
".
".
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Bjarni Harðarson | 19. júní
Höfðinglegar
móttökur
Hefi eytt dögunum með
okkar kære nordiske
venner á Vestnorrænni
þingmannaráðstefnu á
Húsavík. Lærdómsríkt
og skemmtilegt fyrir
nýliða og þarna í hópi
margir eftirminnilegir karakterar.
Að öðrum ólöstuðum verða þeir mér
eftirminnilegastir þjóðfrelsismað-
urinn færeyski Högni Hoydal og Jón-
atan Mosfeld foringi Grænlendinga.
Meira: bjarnihardar.blog.is
Friðrik Þór Guðmundsson | 20. júní
Siðanefnd fer vill vegar
… að því er virðist lét
nefndin froðufellandi
fyrrverandi ráðherra
rugla sig í ríminu og
telja sér trú um að um-
sjónarmaður Kastljóss
hefði gengið um með
óvildarhug í garð viðkomandi ráð-
herra, hefði viljandi farið með rang-
færslur gagngert til að gera ráð-
herrann tortryggilegan og í því skyni
látið undir höfuð leggjast að afla
grundvallarupplýsinga í viðkvæmu
máli.
Meira: lillo.blog.is
Tómas Þóroddsson | 16. júní 2007
Vinna sér inn aur
Vaknaði á Akureyri.
Betra að vakna þar en
sofna.
Fékk mér lúku af
kandís í morgunmat og
burstaði svo vel tenn-
urnar. Keyrði inn
fjörðinn og rukkaði Moggann hjá
bændum, það gekk mjög vel og sér-
staklega vel hjá þeim sem voru
áskrifendur að Mogganum.
Fékk það út að áskrifendur Mogg-
ans eru mjög gestrisið fólk og það er
vingjarnlegri og kurteisara en annað
fólk. Fékk m.a. hótun um að á mig
yrði sigað löggu ef ég ekki hypjaði
mig úr Eyjafirði, frá einum sem ekki
var áskrifandi.
Á einum bænum var mér boðið inn
í kaffi og pönnukökur, það er alveg
ótrúlegt hvað ég get borðað mikið af
pönnukökum þegar ég byrja.
Húsfreyjan hafði vart undan að
baka ofan í mig og hikstandi kenndi
ég heimilisfólkinu svo á tölvu.
Meira: tommi.blog.is
Ólína Þorvarðardóttir | 19. júní 2007
Komin úr söngferðinni
– og fer nú beint í
hundana!
Jæja, þá er ég komin
úr stórkostlegu söng-
ferðalagi með Sunnu-
kórnum á Ísafirði til
Eystrasaltslanda.
Fyrsti viðkomustaður
var Finnland – sungum
þar undir Síbelíusarminnismerkinu
(sjá mynd), líka á Esplanaden, og
svo var það hápunkturinn: Sjálf
Klettakirkjan. Það var mikil upp-
lifun … og margt sem fór úrskeiðis,
bæði fyrir tónleikana og meðan á
þeim stóð.
Til dæmis tókst mér, fyrir ótrú-
lega slysni sem of langt mál yrði að
rekja hér, að brenna hnefastórt gat á
kórbúninginn minn kvöldið fyrir tón-
leikana í Klettakirkjunni. Ég á það
hjálpsamri kórsystur að þakka,
henni Hrafnhildi, að þessu varð
bjargað. Hún er nefnilega völundur í
höndum, og þrátt fyrir að hótelið
gæti einungis útvegað okkur ónýta
saumavél, sem að sjálfsögðu bilaði á
meðan verið var að reyna að gera við
skemmdina þarna á síðustu stundu,
þá tókst henni að sauma treyjuna
upp með sínum fimu fingrum. Og nú
er treyjan betri ef eitthvað er. Enda
sáu allir – þegar viðgerðinni var lok-
ið – að svona styttri treyjur væru
eiginlega bara klæðilegri á okkur
konunum. Þannig að óhappið hefur
sennilega skapað nýjan „trend“ fyrir
kórbúninga Sunnukórsins í framtíð-
inni
Jæja, en tónleikarnir tókust vel.
Þeir voru vel sóttir og viðtökur
áheyrenda frábærar í lokin, mörg
uppklöpp og endaði með því að sal-
urinn reis á fætur fyrir okkur. Jamm
– ekkert minna. Sanngirninnar
vegna skal þess getið að við höfðum
fyrirtaks klapplið með í för þar sem
makar okkar voru annars vegar.
Þeir tóku að sér hlutverk kynning-
arfulltrúa og aðdáenda með öllu sem
því tilheyrir – klöppuðu mest og
hæst og sköpuðu stemningu hvar
sem við komum. Nú skil ég betur en
nokkru sinni gildi þess fyrir fótbolta-
liðin að hafa góða aðdáendaklúbba
En kórinn sjálfur átti auðvitað
sinn hlut í þessu – og þá ekki síst
stjórnandinn okkar, hún Ingunn Ósk
Sturludóttir. Hún er sjálf messó-
sópran söngkona með djúpa og
þróttmikla rödd – og það gerði auð-
vitað útslagið þegar hún tók lagið
með okkur. Sérstaklega var áhrifa-
mikið þegar hún söng Ave Maríu eft-
ir Sigvalda Kaldalóns. Það eru engar
ýkjur að fólk tárfelldi undir söng
hennar, og eftir það áttum við hvert
bein í áheyrendum. Þá spillti ekki
fyrir að undirleikari kórsins, Sigríð-
ur Ragnarsdóttir, er snillingur á
hljóðfærið
Meira: olinathorv.blog.is
BLOG.IS
Taktu þátt og safnaðu
stimplum hjá Olís.
Glæsilegir vinningar í boði!
Við höldum með þér!