Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Gjögur hefur tekið á móti nýju skipi, Verði EA 748. Skipið kom til heimahafnar í Grindavík á þriðjudagskvöld. Það var smíðað í Póllandi og er systurskip Vest- mannaeyjar, sem kom ný til landsins fyrr á árinu. Vörður er 29 metra langur og 10,4 metra breiður og með aflvísi vélar sem heimilar skipinu veiðar upp að þremur mílum frá landi. Skipið kostar um 450 milljónir króna. Skipið stundar veiðar með trolli og landar afla sínum ferskum til sölu á mörkuðum heima og er- lendis auk þess sem eitthvað er unnið í saltfisk- verkun fyrirtækisins í Grindavík. Hinn nýi Vörð- ur leysir af hólmi 40 ára gamalt skip Vörð ÞH, sem var smíðaður 1967. Sá Vörður leysti þá af hólmi Vörð TH, sem smíðaður var 1947 og hefur því útgerðarsaga Gjögurs, sem skráð er á Greni- vík, staðið í 60 ár. Gjögur gerir áfram út togbát- inn Oddgeir EA, en áhöfnin af honum fer yfir á hinn nýja Vörð og verður Hjálmar Haraldsson skipstjóri og Már Þórhallsson verður vélstjóri. Áhöfnin af gamla Verði fer svo yfir á Oddgeir. Auk þessa gerir Gjögur út uppsjávarveiðiskipin Áskel, sem hefur verið á kolmunnaveiðum og Há- kon sem nú er norsk-íslenzku síldinni og frystir aflann um borð. Bara bjartsýnir Framkvæmdastjóri Gjögurs er Ingi Jóhann Guðmundsson. Hann segir að unnið sé að því að koma nýja skipinu á veiðar, ekki sé eftir neinu að bíða með það. Gamli Vörður verður svo líklega úr- eltur. „Við erum bara bjartsýnir á framhaldið, þrátt fyrir að ýmislegt gangi á um þessar mundir. Við teljum góðan grundvöll fyrri útgerð nýja skipsins. Gjögur hefur staðið í útgerð í 60 ár og það hvarflar ekki að okkur að gefast upp, þrátt fyrir að fyrir liggi tillaga um verulegan niður- skurð í þorskinum,“ segir Ingi Jóhann Guð- mundsson. Gjögur tekur á móti nýjum Verði EA Skipið Vörður EA er togskip, 29 metra langt, svokallaður þriggja mílna bátur. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Forystan Ingi Jóhann Guðmundsson, Guðmundur Þorbjörnsson, Njáll Þorbjörnsson, Freyr Njálsson, Hjálmar Haraldsson og Már Þórhallsson. Með þeim á myndinni er barnabarn Hjálmars. Þriðji Vörðurinn í 60 ára útgerðarsögu FISKIRANNSÓKNARSTOVAN í Færeyjum leggur til verulega fækk- un fiskidaga við Færeyjar. Lagður er til 40% niðurskurður fiskidaga fyrir helztu skipaflokka, það er línu- báta, dagróðrabáta með línu og handfæri, togara með minni vélar en 500 hestöfl. Þetta er meðal annars til að takmarka sókn í ýsu og meðafla í þorski. Ekki er lagt til að fækka fiskidögum hjá partogurum, það er togurum sem draga tveir saman eitt troll. Þeir stunda aðallega ufsaveið- ar. Þá vill færeyska Hafrannsókna- stofnunin að engar heimildir til veiða og þorski og ýsu verði gefnar fyrir utan fiskidagakerfið. Þess í stað verði leyfður 3% hámarksafli af þorski og ýsu í magni í hverjum róðri. Þetta eigi þó ekki við veiðar á Færeyja-Íslandshryggnum norðan og vestan ákveðinna marka. Lagt er til að engar veiðar í atvinnuskyni verði stundaðar á grynnra vatni en 200 metrum á Færeyjabanka. Stofn- unin vill að áfram verði í gildi reglur um friðun þorsks og ufsa á hrygning- artíma á landgrunninu. Krókaveiðar vandamál Í forsendum ráðleggingarinnar segir að samfélagið þoli ekki að eng- ar veiðar á ufsa og ýsu verði stund- aðar. Það þoli heldur ekki að þorsk- stofninn verði í viðvarandi lágmarki. Því verði Landstjórnin að leita leiða til að draga úr áhrifum aðgerða og hvetja til nýrra leiða. Stærsta ein- staka vandamálið nú sé að króka- bátaflotinn sé allt of stór og nauðsyn- legt sé að grípa til aðgerða til að minnka hann. Vilja 40% fækkun fiskidaga Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is FJÓRTÁN bílar á aldrinum 35 ára til sjötugs og þar af sjö Bjúkkar. Svona er bílabúskapur Einars Gíslasonar fornbílaáhuga- manns, sem lifir og hrærist í fé- lagsstarfi Fornbílaklúbbsins. Ein- ar er formaður ferðanefndar klúbbsins og þeir sem starfa í nefndinni sem og öðrum nefndum klúbbsins hafa í mörg horn að líta. Um 700 félagsmenn eru í klúbbn- um og næsti stórviðburður er Landsmót 2007 sem haldið verður á Selfossi um næstu helgi. Þar verður bílasýning, ökuleikni og margt annað í boði. Einar ætlaði sér ekki endilega að gerast klúbbfélagi þótt hann hefði alla tíð verið bílaáhugamaður og sérstakur áhugamaður um Bu- ick bíla. En hann þekkti flesta fé- lagsmenn í klúbbnum og þar kom að bróðir hans dró hann með sér á félagsfund og eftir það varð ekki aftur snúið. Gegnir hann nú for- mennsku í ferðanefnd. „Ég sé um að skemmta félögunum í öllum þeim ferðum og uppákomum sem klúbburinn stendur fyrir,“ segir Einar. „Við erum með allskyns uppákomur, s.s haustfagnað, þorrablót, árshátíð, grillferðir, gróðurferð, varahlutamarkaðsdag og margt annað. Sumrin fara í að skemmta sér saman með félögum í klúbbnum og fjölskyldum þeirra, því þetta er mjög fjölskylduvænt sport,“ bendir hann á. Til að gerast félagsmaður í Fornbílaklubbnum þarf ekki að eiga fornbíl, heldur skiptir áhug- inn mestu máli. Bílar 25 ára og eldri geta talist fornbílar En Ein- ar er í eldri bílum og er elsti bíll- inn hans árgerð 1936. Sá yngsti er árgerð 1972. „Minn fyrsti alvöru bíll var Buick ’53 og síðan eign- aðist ég nýrri árgerðir af þessari tegund frá sjötta áratugnum en ég keyrði líka mikið á Chevrolet ’50,“ segir hann. Einar hefur verið heillaður af Buick alla sína tíð og lýsir þessum amerísku bílum sem vel útbúnum bílum sem gjarnan eru ívið betur búnir en aðrir amerískir bílar. Í safni Einars eru m.a. Buick Electra, Riveria og blæjubjúkki frá sjötta áratugnum. Þá bíla sem eru á númerum og eru gangfærir keyrir hann jöfnum höndum og hreyfir í hverri viku. „Maður kemst ekki yfir að vera á þeim öll- um en ég er mikið á þeim einum og einum á sumri og spóka mig.“ Einn Bjúkkann tók Einar úr skúrnum um síðustu helgi í sam- eiginlegri ferð með Ferðafélagi Ís- lands og Fornbílaklúbbsins, en það var hrafnsvört Riviera 7́1, átta gata tæki með 340 hestafla vél. Segja má að bíll þessi sé töff- arabíll af hæstu gráðu og vekur hann vægast sagt athygli í um- ferðinni, hvort sem um ræðir lögg- ur í eftirlitsferð, langeyga ung- lingspilta eða aðra ökumenn á nútímablikkbeljum. Einar á líka 6́6 árgerð af Riviera en þeir voru með vinsælustu sportbílum Banda- ríkjanna síns tíma. Einar Gíslason með bílasafn á við rokkstjörnu „Kemst ekki yfir að vera á þeim öllum“ Morgunblaðið/G.Rúnar Bærilegur bílabúskapur Einar Gíslason og Buick-flotinn hans. Hann er heillaður af bíltegundinni. ODDVITAR meirihlutans í bæjar- stjórn Árborgar gera alvarlegar at- hugasemdir við fyrirkomulag og boðun auglýsts fundar Miðbæjar- félags Selfoss um skipulag miðbæjar á Selfossi, en hann á að fara fram í kvöld. Nýtt skipulag miðbæjarins á Selfossi hefur mætt mikilli andstöðu. Segja oddvitarnir að þau hafi verið kynnt sem frummælendur fundarins án þess að samráð hafi verið haft við þau. Þá hafi engum af höfundum til- lögunnar verið boðið að taka þátt í fundinum. Bæjarstjórn Árborgar hafi unnið faglega að deiliskipulagstillögu mið- bæjar Selfoss og haldið tvo opna kynningarfundi um hana. Fundar- boðendum hafi verið gerð grein fyrir því að oddvitarnir verði allir fjarver- andi í kvöld en að fulltrúar meirihlut- ans mæti fúslega til fundar um mál- efni miðbæjarins sé til hans boðað með eðlilegum fyrirvara. Undrandi á viðbrögðunum Í tilkynningu sem Miðbæjarfélag Selfoss sendi eftir að yfirlýsing odd- vitanna var birt í gær, segir að félag- ið lýsi undrun sinni á því að oddvit- arnir ætli ekki að mæta til fundarins. „Mæti þeir ekki er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist á Selfossi að pólitískir forystumenn bæjarstjórn- ar hunsi íbúafund.“ Formaður Miðbæjarfélagsins hafi boðið bæjarstjóra og öllum bæjar- fulltrúum til fundarins 18. júní með tölvupósti og símtölum. Í gær hafi verið hringt í arkitekta og höfunda skipulagsins og fyrrverandi bæjar- stjóra og þeim boðið að koma til fundarins. Í auglýsingu um fundinn sé gert ráð fyrir að oddvitum Ár- borgar gefist rúm á fundinum til að skýra mál sitt og áherslur, en þeim sé í sjálfsvald sett hvort þau nýti þann tíma. Deilt um fundarboð í Árborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.