Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 19 LANDIÐ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Undirskrift Árni Sigfússon og Margrét Pála Ólafsdóttir eru ánægð með samninginn sem Reykjanesbær gerði við Hjallastefnuna um rekstur Akurs. Eftir Helga Bjarnason Tjarnahverfi | Hjallastefnan ehf. mun annast rekstur leikskólans Ak- urs í Tjarnahverfi í Reykjanesbæ. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar undirrituðu samning þess efnis í fyrradag. Verið er að byggja leikskólann og tekur hann til starfa í september. Verður þetta sex deilda leikskóli fyr- ir um 140 börn þegar hann verður nýttur að fullu. Reiknað er með að tæplega 100 börn verði í leikskólan- um þegar hann tekur til starfa en Árni Sigfússon bæjarstjóri býst við að hann verði fljótt fullsettur vegna fjölgunar íbúa í nýjum hverfum bæj- arins. Aukið val Bærinn ákvað að ganga til samn- inga við Hjallastefnuna ehf. eftir könnun á þremur fyrirtækjum sem sýndu áhuga á að taka að sér rekst- urinn. Árni Sigfússon segir að bær- inn hafi góða reynslu af Hjallastefn- unni, en einn leikskóla bæjarins, Gimli, er einkarekinn og þar er unnið samkvæmt hugmyndafræði Hjalla- stefnunnar. Nefnir hann sem dæmi að hátt hlutfall leikskólakennara sé á Gimli og reiknar hann með að það verði raunin á nýja leikskólanum, Akri. „Þetta skapar aukið val í rekstr- arformi. Það er jákvætt þar sem leit- að er leiða til að bæta þjónustuna,“ segir Árni þegar hann er spurður að því hvað vinnist með því að leita til einkaaðila með rekstur leikskólans. Hann tekur fram að bærinn sé einn- ig stoltur af þeim leikskólum sem reknir eru alfarið á vegum bæjar- félagsins en einkareksturinn sé áhugaverð viðbót. Greiðslur bæjarins til einkarek- inna leikskóla eru svipaðar á hvern nemanda og í leikskólum sem bær- inn rekur sjálfur. Rekstur þeirra skóla sem eru með hátt hlutfall kennaramenntaða starfsmanna er þó dýrari enda segir bæjarstjórinn að það eigi að skila sér í enn faglegra starfi. Margrét Pála Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf., segir að vel gangi að ráða starfsfólk. Stjórnendur koma frá leikskólanum Gimli sem hefur unnið samkvæmt Hjallastefnunni og verður Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir leikskóla- stjóri. „Þetta er vel þjálfað og harðsnúið lið,“ segir Margrét Pála. Leikskólinn mun starfa eftir hug- myndafræði Hjallastefnunnar. Þannig starfa stúlkur og drengir sitt í hvoru lagi stóran hluta dagsins en æfa svo samskipti og virðingu kynjanna með reglubundnum hætti. Leikefniviður er einfaldur og um- hverfið áreitalítið. Í kynjanámskrá Hjallastefnunnar er lögð áhersla á styrkingu og eflingu félagsfærni hjá hverju barni. Fasteign hf. byggir og rekur hús- næði leikskólans fyrir hönd Reykja- nesbæjar. Hjallastefnan rekur nýjan leikskóla í Tjarnahverfi Í HNOTSKURN »Leikskólinn Akur verðuráttundi leikskólinn í Reykjanesbæ. Sex eru reknir af bænum en tveir eru reknir af einkaaðilum. »Akur er jafnframt áttundileikskólinn sem Hjalla- stefnan tekur að sér að reka. Hjallastefnan rekur einnig tvo grunnskóla. Eftir Davíð Pétursson Skorradalur | Nýr altarisdúkur var vígður í Fitjakirkju í Skorra- dal á þjóðhátíðardaginn. Dúkinn saumaði Helgi Pálmarsson, verka- maður sem er á áttræðisaldri, í harðangur og klaustur. Leiðbeinandi hans við sauma- skapinn var Halldóra Arnórsdóttir í Norðurbrún 1 í Reykjavík. Þetta er ekki fyrsti altarisdúkurinn sem Helgi saumar, því í fyrra saumaði hann dúk fyrir Grensáskirkju og er handbragð hans rómað. Prestur við athöfnina var sr. Flóki Kristinsson og organisti Steinunn Árnadóttir. Að athöfn- inni lokinni var messukaffi á Fitj- um, en þar er haldið í þennan þjóðlega sið, enda við hæfi á þjóðhátíðardegi. Morgunblaðið/Davíð Pétursson Nýr altarisdúkur Helgi Pálmarsson, Hulda Guðmundsdóttir frá Fitjum, Steinunn Árnadóttir organisti og séra Flóki Kristinsson í Fitjakirkju. Saumaði altarisdúk fyrir Fitjakirkju SUÐURNES Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | Sögumiðstöðin í Grundarfirði var opnuð á nýjan leik á dögunum. Í Sögumiðstöðinni verð- ur rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn en auk þess er þar að finna tvo sýningarsali. Í öðrum salnum sem jafnframt er fundarsalur eru varðveittir munir og myndir úr eigu áhugaljósmyndarar- ans Bærings heitins Cecilssonar en í hinum salnum eru sögulegar minjar úr Eyrasveit og er safnið tengt nú- tímatölvutækni þar sem fletta má upp nánari upplýsingum um munina og tengingu þeirra við þjóðlífið á þeim tíma sem þeir voru í notkun. Aðalhugmyndasmiður og driffjöð- ur í uppsetningu safnsins er Ingi Hans Jónsson, þúsundþjalasmiður á Grundarfirði. Um síðustu áramót var Sögumiðstöð lokað tímabundið en frá þeim tíma hefur verið unnið að því að treysta rekstrargrundvöll starfseminnar á vegum sjálfseignar- stofnunar þeirrar sem á og rekur Sögumiðstöðina. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Eldhús Í Sögumiðstöðinni má finna andblæ löngu liðins tíma. Sögumiðstöð opnuð á nýjan leik Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Við í Sparisjóðn- um tökum á móti peningum frá sam- borgurunum. Þeim skilum við til baka í þessu formi,“ sagði Geir- mundur Kristinsson, sparisjóðs- stjóri í Keflavík, við afhendingu gjafabréfs til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Drífa Sigfúsdóttir, framkvæmda- stjóri HSS, veitti gjafabréfinu við- töku en andvirði þess, samtals 750 þúsund krónum, verður varið til kaupa á sjúklingavagni, blóðrauða- mæli, lyfja-kæliskáp og skoðunar- ljósi. Að sögn Drífu munu tækin nýtast vel á slysa- og bráðamóttöku heilbrigðisstofnunarinnar. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur lengi stutt vel við bakið á HSS og að jafnaði afhendir sjóðurinn gjafabréf til stofnunarinnar árlega, þó ekki fari það alltaf hátt. „Við þurfum öll á þessari þjónustu að halda, óháð kyni, aldri og pólitískum skoðunum. Það er mér því sönn ánægja að af- henda þér þetta,“ sagði Geirmundur um leið og hann afhenti Drífu gjafa- bréfið við athöfn á sjúkrahúsinu. Þorsteinn Erlingsson stjórnarfor- maður HSS bauð sig fram þegar Ír- is Kristjánsdóttir hjúkrunarfræð- ingur á slysadeild óskaði eftir sjálfboðaliðum til að prófa nýju tæk- in. Heilsa Þorsteins reyndist í góðu lagi. Gefa tæki á bráða- móttöku Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Mæling Íris Kristjánsdóttir prófaði nýja blóðrauðumælinn á Þorsteini Erlingssyni, stjórnarformanni HSS. Drífa Sigfúsdóttir fylgist með. Þarftu að selja / gengur illa að selja? Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 530 1800 Bjóðu m upp á árangursríka leið sem eykur líkurnar á að fasteign þín seljist hratt og á góðu verð i! Föst lág söluþóknun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.