Morgunblaðið - 21.06.2007, Side 20

Morgunblaðið - 21.06.2007, Side 20
V ið Waldorfsskólann í Lækjarbotnum iðar allt af lífi þessa dagana. Krakkar af öllum stærðum og gerðum gera þar líkamskúnstir af miklum móð, hvort heldur þeir ganga á höndum, henda keilur á lofti, sveifla sér með tilþrifum, hjóla á einhjóli, dansa á línu eða standa ofan á hverju öðru með stæl. Börnin eru þátttakendur í sirk- usnámskeiði undir leiðsögn þriggja finnskra sirkuskennara frá Cirkus Cirkör í Svíþjóð. „Í síðustu viku vorum við með krakka á aldrinum 12–16 ára en þessa vikuna eru þeir yngri eða 8–11 ára,“ segir Sólveig Þorbergsdóttir, kennari við Waldorfsskólann. „Það er talsvert algengt að Waldorfs- skólar víða um heim hafi sirkus- kennslu. Við ákváðum hins vegar að vera með hana á sumrin svo fleiri krakkar en bara okkar nemendur gætu fengið að njóta þess að komast út úr bænum og reyna sig á sirkus- kúnstum í náttúrulegu umhverfi.“ Sólveig segir sirkuslistirnar gera krökkunum gott. „Þetta styrkir svo jafnvægið hjá þeim. Krakkar í dag eru mun minna í leikjum en áður og margir krakkar geta varla staðið á höndum eða farið í kollhnís svo þau hafa mjög gott af þessu. Við trúum því líka að þetta hafi sterkari áhrif á börnin en bara líkamleg og höfum fundið fyrir því – þetta eykur jafn- vægið í sálinni líka. Þú getur líka rétt ímyndað þér, þegar maður er að sveifla sér í rólu og snýr á haus hvort það sé ekki stórkostlegt að hafa all- an himininn fyrir ofan sig.“ Og þó að einn og einn marblettur láti á sér kræla kippir unga fólkið sér lítið upp við það. „Auðvitað koma alltaf einhverjar skrámur. Í síðustu viku fékk t.d. einn glóðarauga þegar hann rak hnéð í augað á sér. Annars höfum við ekki lent í stórum slysum enda gera krakkarnir ekkert sem þau þora ekki sjálf. Óttaleysi er al- gert skilyrði fyrir því að geta, þann- ig að þau þekkja sín takmörk sjálf.“ Hægri og vinstri líka Meðal sirkuslistamanna í Lækj- arbotnum þessa vikuna eru Sunneva Sól, Guðrún Ísafold, Karl Jóhann, Hrafnkell og Daníel Tryggvi sem eru að vonum kát með nýfengna kunnáttu. „Mér finnst skemmtileg- ast á einhjóli,“ segir Hrafnkell og undir það tekur Karl sem finnst þó ekki síðra að joggla með bolta og kylfur. Guðrún nýtur sín hins vegar best í línudansinum, Sunneva í ról- unni en Daníel tekur trampólínið fram yfir annað. Þau eiga einfalt svar við því hvað geri þessar kúnstir svona skemmti- legar. „Það er svo gaman að geta gert þessar kúnstir,“ segir Karl og Sunneva kinkar kolli. „Annars er það ekkert gaman.“ Hópurinn svarar bæði já og nei þegar hann er spurður hvort það taki langan tíma að læra sirkuslist- irnar. „Sumir eru lengi en aðrir fljót- ir – það er bara misjafnt,“ segir Guð- rún diplómatísk og Sunneva kemur með ítarlegri skýringu. „Maður er kannski fljótari ef maður hefur verið í fimleikum áður, því þá er maður betri í alls konar listum, eins og á dýnu og í handahlaupum.“ Sum þeirra hafa farið áður á sirk- usnámskeið en þau sem eru í fyrsta skipti í ár geta vel hugsað sér að fara aftur. Og það skiptir engu þótt kenn- ararnir tali ekki íslensku því þá bregða krakkarnir sér bara í kenn- arahlutverkið. „Við erum að kenna þeim að segja nokkur orð á íslensku, eins og handstaða og kollhnís og upp og niður. Og hægri og vinstri líka.“ Morgunblaðið/Kristinn Glaðbeitt Styrkur og jafnvægi er lykilatriði þegar byggja á mennskan píramída. Krakkarnir eru enda einbeitt að sjá þegar kemur að því að stilla sér upp ásamt leiðbeinanda sínum. Vandasamt Það krefst heilmikillar samhæfingar að henda þrjá bolti á lofti en æfingin skapar meistarann. Tilþrif Ekkert hik var á krökkunum þegar þau fóru á hvolf í rólunni. Með allan himininn fyrir ofan sig Einhjól, keilur og línudans eru meðal verkefna ungra sirkuslistamanna í Lækjarbotnum. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir sá mennskan píramída og tilþrif í rólu í íslenskri sól á dögunum. ben@mbl.is |fimmtudagur|21. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.