Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 21 íþróttaskorar Íþróttakennaraskól- ans á Laugarvatni. Það munar um slíkt klapp á bakið og greinilegt að Sundlaugin er að gera rétta hluti.    Sólin hefur verið dugleg að láta sjá sig þessa dagana, sem er hið besta mál. Þar að auki eru aðrir gamlir og góðir gestir komnir á stjá:skemmtiferðaskipin. Það er alltaf sérstök sjón að sjá þessi flykki flatmaga á pollinum og app- elsínugula bátana keyra fram og tilbaka með gesti sem síðan spíg- spora um miðbæinn í forundran. Akureyrarvinurinn Maxim Gorkiy var hérna á þjóðhátíðardaginn og þar áður kom sjálf Queen Eliza- beth. Hingað norður sækja tign- arleg nöfn í formi skipa.    Blómahúsið, sem áður hýsti Blómaval og nú síðast Kaffi Rós, hefur undanfarið verið frekar hljóðlátt og lítið farið fyrir því. Það kann hinsvegar að breytast, því nú eru uppi áform um að koma fyrir keiluhöll í byggingunni. Það er reyndar vandkvæðum bundið og þarf að ganga sérstaklega frá húsinu þannig að hávaði verði ekki til ónota fyrir nágranna Blóma- hússins. Ef vel tekst til verður keiluspilið hins vegar kærkomin búbót í skemmtanaflóru bæjarins. Og nóg til af (skóla)fólki til að drepa þar tímann, fella nokkrar keilur og fá sér hamborgara og kók.    Svo á að fara að rífa gamla Hótel Akureyri. Margir sjá á eftir hús- inu, og vilja sjá það endurgert, líkt og með húsin við hliðina á því, enda um sögulega byggingu að ræða. Ekki eru heldur allir á eitt sáttir um ágæti hússins sem á að koma í staðinn. Hvort heldur sem er: nýtt hús eða nýuppgert þá er mál málanna að fara að gera eitt- hvað. Húsið setur allt of nið- urdrepandi svip á miðbæinn eins og stendur.    En já, ef asinn síðustu daga á öll- um hátíðunum er að sliga fólk, þá er hægt að henda fötum og snyrti- dóti í töskuna í snarhasti, keyra út á völl í einum grænum (en þó allt- af á löglegum hraða), skilja bílinn eftir á bílastæðinu, fara í gegnum tollinn á nóinu og svo upp, upp og út. Beint utanlandsflug frá Ak- ureyri er farið í loftið.    Með öðrum orðum þarf maður ekkert að nota rútu til að komast til Keflavíkur eða skilja þar bílinn eftir í nokkra daga með tilheyr- andi kostnaði. Allur aðgangur til útlanda frá Akureyri orðinn eins einfaldur og fljótlegur og hægt er. Og það þrælmagnaða er, að á þessu ári, vegna 70 ára afmælis Flugleiða, er utanlandsflug frá Ak- ureyri á tilboði og aðeins 5 þúsund krónum dýrara en að fljúga frá Keflavík.    Ó, hvað það verður magnað þegar lenging flugvallarins næst í gegn og hægt verður að fljúga til heitu landanna að vetri til. Skemmtiferðaskipin komin á stjá. ÚR BÆJARLÍFINU Hjálmar Stefán Brynjólfsson Jæja. Þá er sumarið komið á kreik. Það byrjaði með stæl um síðustu helgi þegar einhverjar þúsundir bílaáhugamanna héldu innreið í bæinn og máluðu hann bæði svartan og rauðan. Á göt- unum má enn sjá tugmetra löng svört spólför hér og þar. Miðbær- inn var svo í hers höndum að næt- urlagi og spýttu nokkrir rauðu þar og á tjaldstæðinu við Hamra. Um- ferðin var yfirleitt stopp eða seig- fljótandi.    Sigrún bæjarstjóri hefur sagt að hún sé óánægð með að hópur ung- menna leggi bæjarhátíðir í rúst, líkt og gerðist um helgina. Það mætti kannski athuga að skipta Bíladögunum og Þjóðhátíðardög- unum upp og sjá hvaða áhrif það hefur? Bíladagarnir gætu þá til dæmis verið fyrstu helgina í júlí…    Já og Listasumarið er líka komið á kreik. Það hófst í gær, var þá formlega sett. Í kvöld verður heit- um fimmtudögum startað og leik- inn djass eftir Art Blakey í Deigl- unni. Um helgina verður svo Jónsmessuhátíð í Kjarnaskógi, en vegna hennar hafa norðlensk börn fræðst um víkinga og miðaldafólk í sérstökum Listasmiðjum í skóg- inum. Afraksturinn verður til sýn- is á Jónsmessuhátíðinni.    99,3% gesta segjast vera ánægð eða mjög ánægð með aðstöðuna við Sundlaugina á Akureyri. Þetta kom fram í könnun á vegum 20% afs láttur af toppgr æjum fyr ir glugga þvottinn Ármúla 23 • Reykjavík Sími: 510 0000 Miðási 7 • Egilsstöðum Sími: 470 0000 Brekkustíg 39 • Njarðvík Sími: 420 0000 Grundargötu 61 • Grundarfirði Sími: 430 0000 - hrein fagmennska! GLUGGAÞVOTTASKINN/SKAFA Visa Versa gluggaþvottaskinn/skafa – 20% fljótlegra að nota þvottaskinn og gluggaþvöru í einu áhaldi. Til í tveimur stærðum. Auðvelt að festa á skaft til að framlengja. Til í tveimur stærðum. HREINIR OG GLERFÍNIR GLUGGAR Tilboðið gildir til 30. júní eða á meðan birgðir endast. GLUGGAÞVOTTASÁPA Gluggaþvottasápan sem fagmaðurinn notar. HIFLO ÞVOTTAKÚSTUR HiFlo þvottakústur – samanstendur af 10 m slöngu, bursta með stillanlegum lið, sápuskammtara og 64 umhverfisvænum sáputöflum. Hægt er að kaupa mismunandi lengdir á sköftum (fylgja ekki með). GLUGGAÞVARA Gluggaþvara með þægilegu griphandfangi. Endurbætt gúmmí sem skilur engar rákir eftir sig. Auðvelt að festa á skaft til að framlengja. Til í þremur stærðum. E N N E M M /S ÍA /N M 28 06 7 -hágæðaheimilistæki Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr.106.600 Hreinn sparnaður vi lb or ga @ ce nt ru m .is 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is Þurrkari T223 Verð frá kr. 78.540

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.