Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 22
neytendur 22 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 21. júní - 24. júní verð nú verð áður mælie. verð Bónus ferskir kjúklingabitar................... 275 354 275 kr. kg Bónus ferskt pokasalat 200 gr .............. 198 279 990 kr. kg Bónus fljótandi þvottaefni 1,5 l ............. 298 398 199 kr. ltr Bónus skúffukaka 400 gr ..................... 198 298 495 kr. kg K.S frosin lambasvið ............................ 279 398 279 kr. kg K.S frosinn lambabógur........................ 595 699 595 kr. kg K.S frosið lambafillet............................ 2249 2998 2249 kr. kg K.f kartöflusalat 350 gr ........................ 98 159 280 kr. kg K.f hrásalat 350 gr............................... 98 159 280 kr. kg Duracell batteri aa/aaa 4 stk................ 259 398 65 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 21. júní - 23. júní verð nú verð áður mælie. verð Lamba rib eye (kjötborð) ...................... 2398 2798 2398 kr. kg FK grill lambakótilettur ......................... 1498 1994 1498 kr. kg Ali Partýskinka (soðin).......................... 1329 1712 1329 kr. kg Nautapiparsteik (kjötborð).................... 2198 2998 2198 kr. kg Nautahamb. 115gr. 2 í pk. ................... 298 358 298 lr pk. Matfugl kjúklingalæri............................ 426 609 426 kr. kg Pepsí Max 2L....................................... 98 149 49 kr. ltr. Pepsí Cola 2L ...................................... 98 149 49 kr. ltr. CS orange safi 5stk.............................. 149 170 149 kr. pk. Hagkaup Gildir 21. júní - 24. júní verð nú verð áður mælie. verð Lambafile m/fitu úr kjötborði ................ 2498 3256 2498 kr. kg Piparsteik úr kjötborði .......................... 2298 2905 2298 kr. kg Holta kjúklingalundir ............................ 1498 2304 1498 kr. kg New Orleans bbq svínarif. ..................... 1118 1398 1118 kr. kg Nautalundir innfluttar ........................... 2729 3899 2729 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 21. júní - 24. júní verð nú verð áður mælie. verð Kjötborð lambafile m/fitu ..................... 2479 3549 2479 kr. kg Gourmet lambalæri rauðvínslegið.......... 1139 1759 1139 kr. kg Borgarnes lambalæri hvítlauksmaríner... 1277 1825 1277 kr. kg SS lambalærisneiðar kryddlegnar.......... 1575 2251 1575 kr. kg Almondy m/daim 400 gr. ..................... 599 750 1497 kr. kg Coca cola 4x2 lítrar.............................. 529 769 66 kr. ltr Matfugl kjúklingabringur magnkaup....... 1759 2515 1759 kr. kg Borgarnes hótel lifrakæfa 165 gr. .......... 169 271 1024 kr. kg Bláber box 340 gr. ............................... 339 412 997 kr. kg Blaðlaukur .......................................... 159 219 159 kr. kg Þín Verslun Gildir 21. júní - 27. júní verð nú verð áður mælie. verð 1/1 Ferskur kjúklingur.......................... 440 628 440 kr. kg Úrb. bringur án skinns .......................... 1583 2261 1583 kr. kg Kjúklingalæri/leggir magnbakki............. 434 620 434 kr. kg SS Kryddl. lambalærisneiðar................. 1799 2251 1799 kr. kg SS Caj’p lambalæri hálfúrb. .................. 1499 1876 1499 kr. kg Búrfells brauðskinka reykt 202gr........... 228 285 1129 kr. kg BK ostapylsur ...................................... 850 1063 850 kr. kg BK lambaframpartsneiðar þurrkrydd. ..... 1500 1875 1500 kr. kg Pik-Nik kartöflustrá 113gr..................... 169 219 1496 kr. kg Coca Cola 1ltr ..................................... 119 153 119 kr. ltr helgartilboðin Svínarif og kartöflusalat um helgina Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Sumarbörn kvarta gjarnanyfir gestaleysi í afmælumsínum því vinir og vanda-menn virðast allir meira og minna taka upp á því að velja sumarfríið til að fljúga til útlanda eða flækjast í bústaðinn. Þá er gott að horfa á björtu hliðarnar og gleðjast yfir þeim aragrúa tæki- færa sem felast í sumrinu þegar kemur að því að gera afmælið sem eftirminnilegast. Hvers vegna ekki að slá upp veglegri garðveislu eða skipu- leggja margslunginn ratleik í Öskjuhlíðinni – nú eða grilla með bravúr í Heiðmörkinni? Þá er ýmsa þjónustu hægt að fá á sumr- in sem varla hentaði fyrir afmæli í desember. Leigja má ýmis leik- tæki og tól sem veita æstum af- mælisgestum fyrsta flokks útrás, s.s. hoppukastala, þrautabrautir, uppblásnar sundlaugar, veltigrind- ur og svo mætti lengi telja. Leigu- verð þessara galdragripa er vissu- lega misjafnt en sem dæmi er hægt að leigja lítinn hoppukastala fyrir 7.000 krónur. Mynd af afmælis- barninu á kökuna Þá er ýmiskonar þjónustu að hafa í mat, drykk og afmæl- isskreytingum. Lengi hefur verið hægt að kaupa sérskreytta diska, glös, pappírsdúka og servíettur í stórmörkuðum, matvöruverslunum og víðar auk einfaldra kökuskreyt- inga á borð við afmæliskerti og kökukurl. Í Reykjavík er að auki rekin a.m.k. ein sérverslun, Partý- búðin, sem selur veisluvarning á borð við borðskraut, skreytingar á veislugesti, litskrúðug borðáhöld og þematengdan varning. Ýmis bakarí bjóða þess utan upp á tilbúnar kökuskreytingar og einhver þeirra taka að sér að sér- prenta myndir á marsípan, sem skreyta má afmæliskökuna með, t.d. Mosfellsbakarí og Bak- arameistarinn. Þannig getur af- mælisbarnið unga fengið mynd af uppáhalds ofurhetjunni, prinsess- unni, kvikmyndaleikaranum, bekknum sínum eða jafnvel sjálf- um sér á tertuna. Þeir sem vilja losna alfarið við kökugerð geta svo keypt kökuna sjálfa hjá bak- aranum eða sérstökum kökusk- reytingafyrirtækjum, eins og fyr- irtækinu Kökuást sem selur fullbúnar og skreyttar afmæl- istertur á heimasíðu sinni kaka.is. Loks má nefna að hægt er að sér- panta afmælisístertur hjá Kjörís og er fjöldinn allur af skreytingum í boði, allt frá stubbunum að Disn- eyprinsessunum fögru eða full- búnum fótboltavelli ef því er að skipta. Fleira er í boði s.s. poppvélar og gosvélar sem gengið geta í glýjugjörn augu í afmælisboðum og má finna tilboð um leigu á slík- um tækjum á Internetinu. Fimleikaafmæli Það er þó ekki alltaf sól og blíða á Íslandi þótt sumar sé og þegar Kári er í ham getur verið gott að kyrja afmælissönginn innandyra. Margir velja þann kost að halda barnaafmæli annars staðar en á heimili afmælisbarnsins en fjöl- margir þjónustuaðilar bjóða upp á aðstöðu til afmælishalds. Fim- leikafélagið Björk í Hafnarfirði leigir út leikfimissal með stór- skemmtilegum tækjum og tólum sem orkumiklir afmælisgestir kunna vel að meta og sömuleiðis aðstöðu til að bjóða upp á veit- ingar. Hægt er að halda barna- afmæli í Keiluhöllinni og Skauta- höllinni og eru veitingar innifaldar en borgað er fyrir hvern afmæl- isgest. Svipað fyrirkomulag er í Ævintýralandinu í Kringlunni og Veröldinni okkar í Smáralind en þar eru veislurnar haldnar í sam- vinnu við veitingastaði í þessum verslunarmiðstöðvum. En svo má ekki gleyma því heldur að gamla góða barna- afmælið, með heimagerðu skrauti, súkkulaðiköku úr ofninum hennar mömmu, hópleikjum, afmælissöng og hlátrasköllum, stendur alltaf fyrir sínu þótt oft krefjist það meiri undirbúnings en aðkeypt þjónusta. Hlutirnir þurfa ekki að kosta svo mikið til að hægt sé að njóta þeirra. Allt sem þarf er af- mælisgleði og örlítið hugmynda- flug skemmir svo ekki fyrir. Einfaldar lausnir fyrir afmælið Ljósmynd/Jón Svavarsson Glæsikræsingar Fjölmargir aðilar bjóða tertu- og borðskreytingar fyrir barnaafmælið enda börnin afar móttækileg fyrir hvers kyns litadýrð. Morgunblaðið/Golli Hoppukastalar Kraftmiklir afmælisgestir afþakka sennilega ekki að fá tækifæri til að hoppa og ærslast í garðinum í góðu veðri þegar sólin skín. Gömlu góðu leikirnir Hollinn skollinn Í grænni lautu Ein ég sit og sauma Flöskustútur Fram, fram fylking Stoppidans Bingó Þemu Kafteinn ofurbrók – veislu- gestir mæta íklæddir nær- buxum utan yfir buxurnar og með slæðu fyrir skikkju að hætti ofurhetjunnar. Prinsessuþema – gestir fá kórónur og borða bleikar prins- essukökur. Sulluafmæli – uppblásinni sundlaug er komið fyrir í garð- inum og svo fá allir að sulla – muna bara að hafa nægilega mikið af handklæðum við hönd- ina. Krefst þess að veður sé gott. Trúðaþema – allir eru skreyttir með trúðamálningu og kannski er einhver trúður í fjölskyldunni sem treystir sér til að skemmta? Hrekkjavaka – skreytt með lakkrísreimum og boðsgestir koma íklæddir skelfilegum búningum. Hentar þeim sem eiga afmæli um mánaðamót október og nóvember. Hugmynd- ir fyrir afmælið www.skerjaver.is www.skemmtilegt.is www.hoppogskopp.is www.skataland.is www.snilli.is www.sprell.is www.kaka.is www.bakarameistarinn.is www.mosfellsbakari.is www.partybudin.is www.fbjork.is www.keiluhollin.is www.skautahollin.is www.kringlan.is www.smaralind.is Hvar er þjónustuna að finna?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.