Morgunblaðið - 21.06.2007, Page 24

Morgunblaðið - 21.06.2007, Page 24
Það eru aðallega þrjú löndsem eru í boði hjá þeimþremur ferðskrifstofumsem haft var samband við; Heimsferðum, Express ferðum og Úrvali Útsýn. Þetta eru Austurríki, Sviss og Ítalía. Ítalía heillar flesta Hjá Úrvali Útsýn hafa viðbrögð verið mjög góð en fyrir skömmu var auglýst að byrjað væri að taka á móti bókunum. Guðrún Sigurgeirsdóttir, framleiðslustjóri hjá Úrvali Útsýn, segir að fyrsta daginn sem skíðaferð- irnar voru auglýstar hafi 300 manns skráð sig til að tryggja sér dagsetn- ingu og stað. „Það er nefnilega ár- íðandi í skíðaferðunum að vita hvar maður vill vera því staðurinn og hót- elið skiptir mjög miklu máli,“ segir Guðrún en hún segir jafnframt að flestir vilji fara í febrúar í skíðaferð- irnar þó páskarnir séu að sækja í sig veðrið og nú sé fólk einnig byrjað að bóka sig í páskaferðir. Guðrún segir að skíðaferðirnar séu í auknum mæli keyptar sem fjöl- skylduferðir þar sem foreldrar taki börnin með og jafnvel ömmur og afa því skíðamennskan virðist oft vera fjölskyldunni í blóð borin. „Við hjá Úrvali Útsýn erum með tvo staði á Ítalíu, Selva, sem sumir segja að sé besti skíðastaður í heimi eða í það minnsta sá besti í Evrópu og svo erum við með Madonna og er sá staður fyrir þá sem vilja þægilegri brekkur en Selva er aftur á móti fyrir harða kjarnann,“ segir Guðrún en hún segir jafnframt kosti Ítalíu liggja í hve skíðasvæðin eru hátt upp í fjöll- unum sem tryggi meiri snjó og jafn- framt sé ítölsk matargerð með því besta sem býðst. Sérhæfa sig í Austurríki Þyri Gunnarsdóttir, sölustjóri hjá Heimsferðum, segir að áherslan þar hafi mest verið á Austurríki en stað- urinn hafi reynst viðskiptavinum þeirra vel hingað til: „Við höfum síð- ustu árin eingöngu verið með Aust- urríki og þá er flogið til Salzborgar sem gefur möguleika á nokkrum skíðasvæðum, t.d. Flachau, Lungau og Zell am See, en allir þessir staðir eru í nágrenni við Salzborg og bjóða upp á mjög fjölskylduvæn skíðasvæði þar sem auðvelt er að finna eitthvað við allra hæfi. Það færist mjög í vöxt að krakkarnir fari í skíðaskóla á með- an foreldrarnir geta reynt sig á erf- iðari brekkunum,“ segir Þyri en hjá Heimsferðum er einnig byrjað að taka á móti bókunum í skíðaferðir vetrarins. „Skíðaferðirnar fóru í sölu nú um daginn og tökum við á móti bókunum nú þegar. Einnig verðum við með sér- staka jólaferð sem verður farin 22. desember og hún er orðin töluvert bókuð og því er greinilegt að fólk er til í að eyða jólunum á skíðum,“ segir Þyri enda virðist vera sem margir séu tilbúnir í að prófa eitthvað nýtt í skíðaferðum til að mæta snjóleysinu sem hefur hrjáð íslensk skíðasvæði undanfarin ár. Áherslan á Sviss Express ferðir bjóða nú pakkaferð- ir eftir að flug þeirra til Frie- drichshafen sló í gegn í fyrra og skera Express ferðir sig úr með því að bjóða líka ferðir til Sviss, til viðbótar við Austurríki. Lilja Hilmarsdóttir, deildarstjóri hjá Express ferðum, segir pakkaferð- ir Express ferða hafa byrjað með fluginu til Friedrichshafen; „Við byrj- uðum í fyrra að fljúga til Frie- drichshafen við Bodensee og það mæltist vel fyrir og gekk svo vel vegna þess að þetta flug opnar mögu- leika á ferðum til Sviss eða Austur- ríkis.“ Lilja ítrekar að það taki aðeins um einn og hálfan til tvo tíma að keyra til helstu skíðasvæðanna í Sviss og Austurríki frá Friedrichshafen. „Við byrjum að fljúga 22. desem- ber og fljúgum til 1. mars og viðtök- urnar hafa verið hreint ótrúlegar. Pakkaferðir með flugi, hóteli, hálfu fæði og fararstjórn er t.d. í boði til Lech sem er óvenjulegt því það er frekar dýr staður. Ischgl er líklegast heitasti staðurinn hjá okkur og er vin- sæll staður hjá þeim sem eru góðir á skíðum. Þarna koma jafnvel heims- frægir skemmtikraftar og skemmta og mesta fjörið er eiginlega á Ischgl. Davos er líka vinsæll staður þar sem svæðið stendur mjög hátt og þar skíða frægir kappar eins og Karl Bretaprins en til Lech fer nú líklega mest af fræga fólkinu. Það er líka mikið um að fólk skipu- leggi sínar eigin skíðaferðir hjá Ex- press ferðum en þá bókar fólk sjálft flugið og velur sér svo þá staði sem næstir eru og bjargar sér sjálft um gistingu.“ Mismunandi áherslur Það er því ljóst að íslensku ferð- skrifstofurnar eru með mismunandi áherslur. Flestir áfangastaðirnir eru í Austurríki en Sviss og Ítalía eru öllu óhefðbundnari áfangastaðir sem hafa verið að sækja í sig veðrið. Fyrir þá sem geta svo ekki beðið til vetrarins má athuga möguleika á skíðaferðum yfir sumartímann en margir af þessum skíðastöðum hafa opnar brekkur yfir hásumarið. Skíðaferðir eru meðal vinsælustu sérferða hjá íslenskum ferðaskrif- stofum enda sannkölluð himnasending fyrir skíða- áhugafólk að komast í þekktustu brekkur Evr- ópu úr grámanum sem oft er á Íslandi á veturna. Ingvar Örn Ingvarsson forvitnaðist um skíðaferð- irnar næsta vetur. Þegar farið að bóka í skíðaferðir ferðalög 24 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Það eru ekki öll sumarfrí eins og stundum getur verið skemmtilegt að gera eitthvað óvenjulegt eins og til dæmis að skella sér á skíði um hásumar – njóta ferska loftsins en jafnframt hlýjunnar þegar af skíðunum er komið á nokkrum af þekktari skíðastöðum heimsins. Þeir staðir, fyrir þá sem vilja skipuleggja sínar eigin ferðir, sem hafa verið hvað vinsælastir yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst hafa verið eftirfarandi:  Tignes í Frakklandi en staðurinn er þekktur fyrir stíflu sem þar er og varð bygging hennar eftir seinni heimstyrjöldina til þess að gamla þorpið Tignes fór undir vatn. Skíðasvæðið var þá flutt of- ar í fjöllinn sem tryggir meiri snjó og þar með betra skíða- færi.  Les Deux Alpes einnig í Frakklandi en þar er þorp í 1650 metra hæð og liggja skíðalyfturnar upp í 3600 metra hæð á þessu öðru elsta skíðasvæðis Frakklands.  Zermatt í Sviss hefur líka verið vinsæll staður yfir sumartímann en Zermatt er staðsett við hið fræga fjall Matterhorn í þýskumælandi hluta Sviss.  Elbrus-fjall í Kákasus-héraði Rússlands gæti líka vel boðið upp á nýstárlega skíða- reynslu fyrir þá sem eru örlítið djarfari en fjallið sem er 5.642 metra hátt býður upp á gott skíðasvæði með stólalyftum og einnig er boðið upp á vélsleðaferðir til að komast á skíðasvæðin. Það er því ljóst að nóg er af spenn- andi skíðasvæðum og þá má líka at- huga enn fjarlægari staði eins og Bandaríkin og Nýja-Sjáland. Íslensku ferðaskrifstofurnar þrjár sem rætt var við bjóða 12 áfangastaði.  Á Ítalíu er boðið upp á ferðir til Selva di Val Gardena í Dólómítafjöllunum sem er um 70 kílómetra frá borginni Trento. Madonna di Campiglio er smábær í Ítalíu með einungis 700 íbúum en staðurinn er frægur fyrir skíðasvæði sitt.  Í Austurríki standa margir skíðastaðir til boða enda bjóða allar ferðaskrifstofurnar ferðir til Aust- urríkis. Þar má helst nefna eftirfarandi staði: Flachau er lítið þorp með mjög vel þróað skíðasvæði og er staðurinn meðal annars þekktur fyrir skíðakappann Herman Maier sem er uppalinn á svæðinu. Wagrain hefur hvorki meira né minna en 350 skíðabrekkum á að skipa og er vinsæll áfangastaður Norðurlandabúa. Alpendorf er vinsælt skíðasvæði aðeins 55 kílómetra frá Salzburg og er staðurinn ekki síður þekkt- ur fyrir að vera heimbær formúlu 1-kappans Ralfs Schumacher. Kitzbühel er sérlega fallegur miðaldabær í Týról sem býður upp á fjölbreytt skíðasvæði með tengingu við Kirchberg og eru hæstu skíðabrekkurnar í 2.000 metra hæð. Ischgl sem er líka í Týról er hluti af stærsta skíðasvæðinu í Ölpunum og er staðurinn einna þekktastur fyrir fjölbreytt og líflegt næturlíf og tilheyrandi eftir-skíðapartí. Lech er einn fínasti skíðastaðurinn í Ölpunum og þar er hægt að gista á lúxushótelum en einnig er svæðið þekkt fyrir sínar óafmörkuðu brekkur sem þykja vera afbragð. Í Zell am See var fyrsta skíðamótið haldið árið 1906 og því er löng hefð fyrir skíða- íþróttinni á svæðinu sem er ævafornt þorp frá tímum Rómverja.  Þeir staðir sem í boði eru í Sviss eru aðeins tveir, Flims/Laax svæðið og Da- vos. Flims/Laax er með skíðasvæði frá 1.100 metra hæð og upp í rúma 3.000 metra og er talsvert af ótroðnum brekkum í boði fyrir þá sem það vilja. Davos er mjög gamalt vetraríþróttasvæði sem hefur í gegnum rúmlega hundrað ár dregið til sín marga fræga gesti þrátt fyrir að vera fremur staður fyrir þá sem vilja láta lítið á sér bera. Davos er í 1.560 metra hæð. Tólf áfangastaðir Skíði á sumrin www.heimsferdir.is www.expressferdir.is www.urvalutsyn.is Vinsælt Flestir áfangastaðirnir eru í Austurríki en í Sviss og á Ítalíu eru öllu óhefðbundnari áfangastaðir sem hafa verið að sækja í sig veðrið. ingvarorn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.