Morgunblaðið - 21.06.2007, Side 25
ferðalög
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 25
Haustferð til Kína og Tíbet
Haustferð Kínaklúbbs Unnar til
Kína og Tíbet er fyrirhuguð 26.
ágúst til 16. september og er þetta
25. hópferðin sem Unnur Guðjóns-
dóttir leiðir á þessar slóðir.
Í Lhasa, höfuðborg Tíbet, verður
Potala-höllin skoðuð og farið verður
í klaustur. Þá verður farið til Beijing
í Forboðnu borgina, Hof himinsins,
Torg hins himneska friðar, Garð sól-
arinnar, Sumarhöll keisaranna og
Ming-grafarsvæðið.
Í Suður-Kína verður farið frá Gu-
ilin og siglt á Lí-fljótinu til þorpsins
Yangshou. Gestir fá m.a. að kynnast
fiskveiðum, teræktun og silkiiðn-
aðinum auk þess sem Kínamúrinn,
búddahof og söfn verða sótt heim.
Húnvetnskir göngutúrar
Skipulagðar hafa verið nokkrar
gönguferðir á næstunni í samstarfi
Ferðafélags Íslands og Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Á laugardaginn verða á dagskrá
tvær gönguferðir í tengslum við
Bjartar nætur. Brottför verður kl.
12 fyrir vana göngumenn frá Þor-
grímsstöðum á Vatnsnesi og kl. 16
frá Stöpum á Vatnsnesi fyrir aðra
áhugasama göngumenn. Endað
verður kl. 19 við Hamarsbúð, þar
sem hið árlega fjöruhlaðborð verður
haldið um kvöldið.
Fyrirhuguð er Jónsmessuganga á
vegum ferðaþjónustunnar á Hofi í
Vatnsdal á laugardagskvöld. Lagt
verður af stað kl. 21.30 og gengið á
Hnjúkinn. Þetta verður létt ganga
við allra hæfi með grillveislu.
Skíðaveisla Úrvals Útsýnar
Þeir sem ætla að skella sér á skíði
í vetur geta farið að skipuleggja því
sala á skíðaferðum hjá Úrval Útsýn
er hafin.Ítalía og Austurríki hafa
verið meðal vinsælustu áfangastaða
skíðaunnenda undanfarin ár. Ma-
donna di Campiglio er einn þekkt-
asti skíðabær Ítalíu, góðar brekkur
og aðstaða fyrir snjóbrettafólk.
Selva del Gardena er vinsælt fjalla-
þorp, Salzburger Sportwelt og
Kitzbühel/Kirchberg eru með bestu
skíðasvæðum Austurríkis.
Þrjár haustferðir Express
ferða til Spánar
Express ferðir munu í haust bjóða
upp á þrjár haustferðir til Spánar:
Gönguferðir um fjallahéruð Alic-
ante. Þær hefjast 27. september og
11. október, á miðju spænsku hausti
þegar loftslag er milt og ekki of heitt
til göngu. Gengið verður í fjóra daga
og er aldrei gengið lengur en í fimm
til sex tíma á dag.
Verð á mann í tvíbýli er 86.900 kr.
og í einbýli 104.900 kr. Innifalið í
verði er flug, akstur frá flugvelli á
hótel og í gönguferðir, gisting með
morgunverði í 4 nætur og allur mat-
ur meðan á gönguferð stendur.
Einnig bjóða Express ferðir upp á
tíu daga síðsumarsferð til Andalúsíu
á Spáni undir leiðsögn Þórarins Sig-
urbergssonar gítarleikara.
Brottför er 29. ágúst og heim-
koma 8. september. Verð á mann í
tvíbýli er 149.000 kr. og í einbýli
189.000 kr. Innifalið í verði er flug og
skattar, gisting í 10 nætur með
morgunverði á þriggja og fjögurra
stjörnu hótelum, allar rútu- og skoð-
unarferðir og íslensk fararstjórn.
Borgarferð til Valencia á Spáni
verður í október á vegum Express
ferða. Valencia er þriðja stæsta borg
Spánar með um eina milljón íbúa.
Valencia er við Miðjarðarhafið í einu
blómlegasta landbúnaðarhéraði
Spánar, þar sem lífsnautnir, menn-
ing og saga blandast saman í nútíð
og fortíð. Fararstjóri í ferðinni, sem
verður dagana 11.-15. október er
Þórarinn Sigurbergsson.
vítt og breitt
TENGLAR
.....................................................
www.simnet.is/kinaklubbur
www.fi.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
„Við erum í fyrsta lagi að einblína á
Evrópubúa, sem eru áhugasamir um
Ísland og svo ætlum við að höfða til
fyrirtækja, erlendra jafnt sem ís-
lenskra, sem vilja verðlauna starfs-
menn sína með skemmtilegum og
öðruvísi hvataferðum,“ segir Max
Rune Karlström, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Historical Ships Ltd.,
sem er að skipuleggja seglskútusigl-
ingar á sextíu metra langri lúx-
usskútu við Ísland næsta sumar.
Skútufyrirtækið hefur bækistöðv-
ar sínar á eyjunni Isle of Man, mitt á
milli Dyflinnar og Liverpool, en er að
auki með skrifstofu í Finnlandi.
Ef allt gengur að óskum mun skút-
an Atlantis leggja úr höfn í Hamborg
13. maí á næsta ári og sigla þaðan til
Orkneyja, Færeyja, Seyðisfjarðar og
Akureyrar þar sem farþegar fara í
land og aka með rútu til höfuðborg-
arinnar og fljúga síðan til síns heima.
Næstu farþegar koma síðan ak-
andi til Akureyrar, þaðan sem skút-
an leggur upp í sína aðra ferð, en þá
er förinni heitið til Reykjavíkur með
viðkomu á Ísafirði og Grundarfirði.
Farnar verða nokkrar svona ferðir
fram og aftur á milli Akureyrar og
Reykjavíkur og eru svo hugmyndir
uppi um að seglskútan taki þátt í há-
tíðahöldum vegna Hátíðar hafsins í
júníbyrjun. Þá mun áhugasömum
gefast kostur á að kaupa sér þriggja
til fjögurra tíma skútusiglingu og
komast alls 140 manns í slíka sigl-
ingu í einu. Í hinar siglingarnar, sem
taka munu þrjár nætur og tvo daga,
komast 36 manns í einu, en átján
tveggja manna klefar eru um borð í
þessu lúxusfleyi, að sögn Karlst-
röms.
Einhleypar ævintýrakonur
Átta til níu manna áhöfn er um
borð sem sér um að haga seglum eft-
ir vindi eða sigla undir vélarafli, allt
eftir því hvernig vindur blæs af hafi
auk þess sem áhöfnin sér um að töfra
fram fínar veitingar fyrir gestina.
„Þetta er algjörlega ný vara sem ég
er að bjóða upp á í ferðaþjónustuflór-
unni á Íslandi og vænti þess auðvitað
að fá góð viðbrögð, en við erum að
vinna á svipaðan hátt mjög víða í
Evrópu, m.a. í Þýskalandi, Dan-
mörku, Svíþjóð, Hollandi, Belgíu, á
Frakklandi, Spáni, Bretlandi og Ír-
landi. Við siglum á næturnar og kom-
um á nýja staði á hverjum morgni. Á
meðan á siglingunni stendur óska
margir farþegar eftir því að fá að
taka þátt í vinnu um borð á meðan
aðrir kjósa að slaka á með góða bók
eða kíkja kannski á barinn,“ segir
Karlström og bætir að lokum við að
um 75% viðskiptavina fyrirtækisins
séu þýskar einhleypar konur á
aldrinum 35 til 50 ára sem eru að
sækjast í lúxus og ævintýri.
Lúxusskútusiglingar
við Íslandsstrendur
Lúxusfley Skútan býður upp á átján tveggja manna klefa og mun sigla um Íslandsstrendur næsta sumar.
Morgunblaðið/Golli
Skútueigandinn
Max Rune Karlström.
TENGLAR
.....................................................
www.historicalships.com
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Einangrun á veggi,
loft, sökkul og
undir plötu
Takkamottur fyrir
hitalögn í gólfi
G
Æ
ÐA
EINANG
R
U
NÍS
L
E
N
S
K
F R AM LE
IÐ
S
L
A
Góður styrkur • frábær einangrun
EINANGRUNARPLAST
OG TAKKAMOTTUR
Afgreitt beint frá framleiðanda!
Völuteigur 31, 270 Mosfellsbær, sími 561 2211, fax 561 4185, borgarplast@borgarplast.is
Pöntunarsími 561 2254
Erum flutt í Mosfellsbæ
Vottað gæðakerfi síðan 1993
VO
TT
A
Ð
U
M
H
VE
RFISSTJÓRN
U
N
A
R
K
ERFI
Vottað umhverfisstjórnunarkerfi síðan 1999
Sérsmíði Fráveitubrunnar
og sandföng
Rotþrær, olíu-
og fituskiljur
Vegatálmar Jarðgerðarílát
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
r
a
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n