Morgunblaðið - 21.06.2007, Page 35

Morgunblaðið - 21.06.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 35 ✝ Ragna Magnús-dóttir fæddist í Reykjavík 15. júní 1915. Hún andaðist á Landspítalanum 7. júní sl. Foreldrar hennar voru Magnús Sig- urðsson, banka- stjóri, f. í Reykjavík 6.5. 1850, d. 27.10. 1947, og Ástríður Stephensen Magn- úsdóttir, f. 15.1. 1884, d. 25.4. 1933. Systkini Rögnu eru Elín, f. 2.7. 1909, d. 8.9. 1991, Magnús Vignir, f. 10.10. 1910, d. 4.4. 1971, Bergljót, f. 6.2. 1912, d. 25.7. 2004, María f. 12.10. 1913, d. 19.10 1994, Svava, f. 14.8. 1916, d. 11.7. 1986, Sigurð- ur, f. 27.3. 1918, d. 27.2. 1953, Ásta Sylvía, f. 10.5. 1920, d. 28.8. 1941, Jón, f. 18.6. 1922. Ragna ólst upp í Reykjavík. Að lok- inni skólagöngu vann hún um tíma við konfektgerð í Kaupmannahöfn, en flutti síðan til Reykjavíkur og starfaði þá fyrst í Skóverzlun Lárusar Lúðvíkssonar, en síðan við síma- vörslu í Landsbanka Íslands. Ragna verður jarðsungin í dag frá Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst athöfnin kl. 15. Fátt er hollara litlum dreng en að eiga móðursystur að, ég átti fjórar og nú er sú síðasta dáin rétt fyrir 92. afmælisdag sinn. Einn úr hópi níu systkina er enn á lífi, Jón Magnús- son, Jonni. Við Ragna Magnúsdóttir, Agga eins og hún var alltaf kölluð, hitt- umst fyrst þegar hún var 26 ára en ég nokkurra sekúndna og vorum vin- ir ætíð síðan, í tæp 66 ár. Alla mína æsku var Agga tíður gestur á heimili foreldra minna. Þetta var áður en reykingar urðu hættulegar og Agga drakk kaffi og reykti Camel. Og svo spáði hún í bolla, fyrir ferðalögum og fyrir góðum árangri í fyrirætlunum þess sem hún var að spá fyrir, með góðum árangri. Það glaðnaði yfir allri fjölskyld- unni þegar Agga birtist í dyrunum, uppfull af sögum af skrítnu fólki og kostulegum uppákomun úr bæjarlíf- inu. Hún var á símanum í Lands- bankanum í Austurstræti og var snillingur í að herma eftir banka- stjórum og viðskiptavinum, án þess að sjálfsögðu að ljóstra neinu upp um hvað fór á milli manna. Sérlega vel náði hún, hjá hverjum og einum við- skiptavini, öllum mögulegum æsing- arstigum spurningarinnar: „Hvað er þetta, er maðurinn aldrei við?“ Þegar ég hóf að sækja skóla í mið- bænum heimsótti ég Öggu reglulega í símaherbergi Landsbankans í löngufrímínútunum og við fengum okkur kaffi og Camel og spjölluðum saman. Vinir mínir þekktu sumir Öggu af orðspori og öfunduðu mig svolítið, held ég, að eiga slíka móð- ursystur að. Agga bjó árum saman hjá systur sinni og mági, sæmdarhjónunum El- ínu og Guðmundi Ólafs, í stóru húsi við Tjarnargötuna sem foreldrar þeirra systra, Ástríður Stephensen og Magnús Sigurðsson bankastjóri, höfðu átt. Þar hafði hún litla íbúð með útsýni yfir Tjörnina og úr gluggunum var hægt að fylgjast með skautafólkinu á vetrum, þangað til maður varð einn af því fólki sjálfur. Þegar Agga eignaðist sína fyrstu íbúð, skömmu fyrir 1960, málaði ég hana, örlítill þakklætisvottur fyrir allt sem Agga hafði gert fyrir mig. Agga var orðin stirð til gangs síð- ustu árin en andlegum styrk hélt hún fram í andlátið. Hún fylgdist til dæmis alltaf með umræðum á Al- þingi í sjónvarpinu og hafði mjög ákveðnar skoðanir á framgöngu ein- stakra þingmanna. Eftir þingkosn- ingar nú í vor upplýsti hún mig sím- leiðis um gang stjórnarmyndunar þar sem ég er staddur í útlöndum. Agga átti stóran hóp góðra vin- kvenna, og þegar ég var strákur fékk ég stundum að fljóta með þegar hún heimsótti vinkonurnar. Þær eru flestar farnar yfir móðuna miklu og undir lokin held ég að Öggu hafi ver- ið farið að langa að fylgja þeim eftir. Agga passaði mig oft þegar ég var krakki og sagði mér seinna sögur af ferðum okkar. Einu sinni fórum við á Hressó, og það lá svo vel á mér að ég fór að syngja hástöfum, Heims um ból. Sem var út af fyrir sig allt í lagi, ef þetta hefði ekki átt sér stað í miðjum júlí. Agga reyndi að sussa á mig en aðrir gestir báðu hana endi- lega að leyfa barninu að syngja áfram. Nú þegar Agga er dáin finnst mér eins og hluti bernsku minnar hafi horfið með henni. Ég mun ætíð minnast hennar með ástúð og þakk- læti. Eggert Briem. Kveiktu á kertinu til að það logi hjá mér svo að allir hafi ljós sem eru hræddir við myrkrið (R.M.) Þessar línur eru teknar úr ljóði eftir Rögnu Magnúsdóttur og komu mér í hug er ég frétti lát hennar, en hún lést á Landspítala hinn 7. júní sl., nokkrum dögum fyrir 92. afmæl- isdaginn. Ragna var Reykjavíkurbarn, sem ólst upp umhverfis Tjörnina, fyrst í Þingholtunum og síðar við Tjarnar- götuna. Hún gekk á kvennaskóla í Danmörku eftir skólann hér heima, en eftir heimkomuna hóf hún störf við Landsbanka Íslands og vann þar allan sinn starfsaldur. Árið 1960 fluttum við móðir mín, Bergþóra Einarsdóttir, af Nesinu á KR-svæðið í vesturbæ Reykjavíkur að Hagamel, og í það sama hús flutt- ist Ragna Magnúsdóttir fimm árum síðar ásamt föðursystur sinni, Ingi- björgu Sigurðardóttur, kunnum og vinsælum barnakennara við Miðbæj- arskólann í Reykjavík. Nokkrum ár- um seinna, eftir að Ingibjörg lést, fluttist til Rögnu María Briem, syst- ir hennar, og bjuggu þær saman upp frá því, uns María lést fyrir allmörg- um árum. Allar voru þær, systurnar Ragna og María og Ingibjörg, föðursystir þeirra, hinir skemmtilegustu ná- grannar, og myndaðist snemma vin- átta móður minnar og þeirra allra. Það var gaman að takast á við Ingi- björgu í heimspekilegum umræðum yfir morgunkaffinu og rökræður drógust oft á langinn, svo að und- irritaður gleymdi hvað tímanum leið og kom of seint í tíma í skólanum. Árið 1996, þegar Ragna hafði einn um áttrætt, kom yfir hana andi skáldsins og hún tókst á við ljóð- listina með einstökum árangri. Hún las fram ljóð við hin ýmsu tækifæri og ég fékk það hlutverk að vera sér- legur ritari hennar og mátti stund- um hafa mig allan við til að fylgja skáldinu eftir, sem las ljóðin fram svo hratt sem væri jökulsá að ryðja sig. Þegar ljóðabók Rögnu, Kaup- mannahöfn, kom út á forlagi EGÞ 15. júní 2003, á 88. afmælisdegi hennar, var bókinni fylgt úr hlaði með eft- irfarandi orðum: „Í bókinni Kaup- mannahöfn birtist í fyrsta sinn á prenti safn ljóða eftir Rögnu Magn- úsdóttur, sem eru samin af margvís- legu tilefni við vængjaðan innblástur á baki reiðskjótans Pegasusar um ljóðlöndin miklu í fylgd Bakkynj- anna og fylgiliðs þeirra í hinum guð- dómlega gleðileik. Umfjöllunarefni litbrigði mannlífsins með ívafi af pólitík Íslandsmannsins í samskipt- um sínum við land og náttúru og meðferð hans á þeim sameiginlega arfi okkar allra.“ Síðustu æviárin bjó Ragna ein með fuglunum sínum og hlýddi með þeim á valin verk tónbók- menntanna, einkum píanóverk eftir Chopin, sem frú Ástríður, móðir Rögnu, lék svo fallega fyrir börnin sín á bernskuheimilinu forðum. Sólin skín og við heyrum fuglana syngja fuglana, og það er sumar þeir syngja, og blómin í öllum sínum litum syngja þar er gleðin og söngurinn, tónlistin og tónarnir syngja alls staðar er gleðin Ef við hefðum ekki sönginn fuglanna væri tónlistin ekki til (Það er sumar – R.M.) Blessuð sé minning Rögnu Magn- úsdóttur. Einar G. Ragna Magnúsdóttir Aldrei þessu vant var ég í útlöndum þeg- ar góðvinur mætur og knár félagi var kvadd- ur. Þessum aldna ágætismanni hefði ég svo sannarlega viljað fylgja síð- asta spölinn, slík var fylgd hans við sameiginlegar hugsjónir og vinfengi hans veitult. Ingólfur í Krossgerði var heill í lund og hollráður félagi, hann gagn- rýndi ótæpilega það sem honum þótti miður fara hjá sínum mönnum, en af góðri réttsýni, þrátt fyrir að ekki væri verið að skafa utan af hlutunum, en hann kunni líka vel að meta það sem betur hafði gengið. Ég kynntist Ingólfi árla á minni stjórnmálagöngu og mat því meir farsæla fylgd hans og málafylgju eftir því sem kynnin urðu meiri. Lífsstarf hans var búskap helgað þar sem ærin önn sat í fyr- irrúmi alla tíð og varðandi það. Hann var bráðgreindur og glöggskyggn, vel lesinn og fróður, málhagur og hafði yndi af ljóðum, sjálfur setti hann saman snjallar stökur og bráð- góða bragi, sem hann eitt sinn sýndi mér nokkuð af heima hjá þeim Hrefnu í góðu tómi. Hann gat greini- lega verið hvort tveggja, hittinn og hnyttinn og ég hafði verulega gaman af að hlusta á hann flytja þetta, eins og hálffeiminn og hló gjarnan við. Margt var þarna ljómandi skemmti- lega ort og málfarið tært og ómeng- Ingólfur Árnason ✝ Ingólfur Árna-son fæddist í Krossgerði á Beru- fjarðarströnd 19. júní 1916. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 24. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Heydalakirkju 2. júní. að, stundum kveðið fast að orði, lund hans enda heit og ekki farið í felur með skoðanir á mönnum og málefnum. En glettnin ávallt skammt undan svo sem öll önnur orðræða hans. Ingólfur var einn þeirra er báru lífssýn hins sanna sósíalisma innra með sér, sam- hjálp réttlætis og jafn- aðar átti þar öruggan talsmann. Trúr fylgdi hann sannfæringu sinni og lagði þar lið sem hann megn- aði. Ógleymanleg verður mér ferð okkar um sveitina hans á kosninga- vori, í fylgd hans var gott að vera, víða farið og vel tekið, margt skrafað og skeggrætt við fólkið á bæjunum, jafnt í eldhúsi sem stofu. Um fylgi ekki spurt né eftir leitað, en innsýn góða fékk ég í líf og áhugamál fólks- ins og ýmsar ágætar ábendingar um leið. Ingólfur skaut ýmsu skemmti- legu og áhugaverðu inn í umræðuna og spurði fylgdarmann sinn óspart út úr um ýmislegt sem gott var að mega ræða og fá hlýtt á viðbrögð fólks. Hún Hrefna beið okkar svo með dýr- indiskvöldverð að loknum heimsókn- um, hana var alltaf jafngott að finna og fá tækifæri til þess að spjalla við þessa greindarkonu sem spurði okk- ur allspozk um árangur en Ingólfur bar sig mjög vel og kímdi þó. Og nú eru þau hjón bæði horfin af vettvangi lífsins og kynnin góð þökk- uð við leiðarlok. Þar fór gott fólk og farsælt, gjöfult samferðafólki sínu, trútt sínu lífshlutverki. Við andlát góðvinar svífa margar kærar minn- ingamyndir fyrir hugarsjónum og verma munans inni í einlægri þökk. Blessuð sé björt minning. Helgi Seljan. Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ÞRÚÐAR VAGNSDÓTTUR, Skagfirðingabraut 49, Sauðárkróki. Þorvaldur L. Hreinsson, Lisbeth Hreinsson, Birgir Örn Hreinsson, Valbjörg Pálmarsdóttir, Auður Sigríður Hreinsdóttir, Bjarni Már Bjarnason, Halldís Hulda Hreinsdóttir, Friðrik Hreinn Hreinsson, Ástrós Guðmundsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS SIGURBJARNAR KARLSSONAR, Bræðratungu 34, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Land- spítalans, Landakoti, fyrir einstaka alúð og hlýju. Karl Emil Gunnarsson, Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, Helga Gunnarsdóttir, Jón Hermannsson, Kristjana Dögg Gunnarsdóttir, Haraldur Haraldsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓHANNS S. ÓLAFSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóri, Sléttuvegi 17, Reykjavík. Björn Jóhannsson, Inga Ívarsdóttir, Lovísa Helga Jóhannsdóttir, Þórarinn Ragnarsson, Halldór Jóhannsson, Nína Björg Ragnarsdóttir, Ólafur Jóhannsson, Álfheiður Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lífshlaupi þessa atorkumanns verða ekki gerð skil í þessari stuttu kveðju. En svo sannarlega lyfti hann grettis- taki við rafvæðingu Vestmannaeyja á sínum tíma. Þá ber að þakka framlag hans og samstarf á sviði raforkumála og í samtökum rafveitna. Þar var starf Garðars ómetanlegt. Auk þess að vera rafveitustjóri í Vestmannaeyj- um um 40 ára skeið sat hann í stjórn samtaka raforkufyrirtækja, Sam- bands íslenskra rafveitna, SÍR, eins og þau hétu þá. Garðar var greindur maður, víð- Garðar Sigurjónsson ✝ Garðar Sig-urjónsson fædd- ist á Borg í Vest- mannaeyjum 22. október 1918. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum 3. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 9. júní. lesinn og vel að sér um menn og málefni, hvort heldur var á inn- lendum eða erlendum vettvangi. Auk þess var hann minnugur svo að af bar. Ég þakka ómetan- legar samverustundir okkar þar sem verk- efni af ýmsum toga voru brotin til mergj- ar. Því að hann kunni líka þá dýru list að skilja kjarnann frá hisminu. Garðar var maður óvenjuskýr í hugsun. Frásögn hans og framsetn- ing var beinskeytt og tæpitungulaus. Langar ræður og orðaflaumur var honum hins vegar ekki að skapi. En þótt hann væri afburðatækni- maður unni hann listum ekki síður. Þar sýndi hann sínar bestu hliðar, tryggð og einlægni, traust og vin- áttu. Við Ragna kveðjum góðan vin og færum Kristínu, Þóri og fjölskyldu hlýjar kveðjur. Aðalsteinn Guðjohnsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.