Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR FRÉTTIR
Elsku Guðrún okk-
ar, tengdamóðir og
amma, er farin frá
okkur. Okkur langar
að þakka fyrir þann tíma, sem við
höfum átt hana að í okkar lífi.
Það gerðist margt í lífi hennar
og fjölskyldunnar í Löngubrekk-
unni, í upphafi árs 1998. Kjartan,
elsti sonur hennar, sem var ógiftur
og barnlaus, hafði náð sér í konu.
Allt gerðist mjög hratt, hann fór að
búa með konu þessari og fljótlega
var ljóst að von var á barni. En síð-
an dundi ógæfan yfir, Kjartan
greindist með krabbamein í sept-
ember ’98, og þrátt fyrir að hann
væri mjög veikur gátum við látið
gefa okkur saman í desember, en
hann lést síðan í mars ’99 og
nokkru seinna, eða 15. apríl fædd-
ist dóttir okkar, Guðrún Edda.
Þetta hefur nú örugglega verið
heilmikið fyrir Guðrúnu og fjöl-
skylduna að meðtaka. Mér var frá-
bærlega tekið frá fyrstu stundu af
þessari dásamlegu fjölskyldu og
þau reyndust mér alveg hreint
yndisleg stoð og stytta í veikindum
Kjartans og eftir að hann lést.
Við mæðgur höfum ekki hitt
Guðrúnu og fjölskylduna mjög oft
á undanförnum árum, en þegar við
höfum hist þá hafa það verið mjög
góðar stundir. Guðrún eyddi síð-
ustu 5 árum ævi sinnar á dval-
arheimilinu Sunnuhlíð, og hafði
það greinilega mjög gott þar og
naut góðrar umönnunar starfs-
fólks. Svo hafa þau nú verið alveg
aðdáunarverð, systkini Kjartans,
hvað þau hafa verið dugleg að ann-
ast um hana og skiptast á um að
koma til hennar.
Þessi elska var víst búin að vera
Guðrún Rósa
Sigurðardóttir
✝ Guðrún RósaSigurðardóttir
fæddist í Hælavík 9.
september 1930.
Hún lést í hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð 31. maí
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Kópavogskirkju
11. júní.
mjög veik undanfarn-
ar vikur, þannig að
það var Guðs mildi að
hún fékk loksins
hvíldina. Hún er þá
örugglega komin
núna til síns ástkæra
Hjartar, og Kjartans,
og líður vel.
Hver minning dýrmæt
perla að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af
alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var
gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er
fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við mæðgur þökkum af alhug að
hafa átt að þessa yndislegu konu,
hana Guðrúnu, hún mun aldrei
hverfa úr hugum okkar. Megi góð-
ur Guð geyma hana í faðmi sínum.
Ásdís og Guðrún Edda.
Þegar ég var 26 ára gömul
kynntist ég Guðrúnu, hinni tengda-
móður minni. Er ég kom í fyrsta
skipti í Löngubrekkuna tók hún
mér eins og hún hefði alltaf þekkt
mig og bauð mig velkomna í fjöl-
skylduna. Hún var góð heim að
sækja, alltaf kaffi á könnunni og
gott meðlæti hvort sem hún eða
tengdapabbi bakaði.
Margar skemmtilegar stundir
áttum við með Guðrúnu og þegar
vel lá á henni ræddi hún allt milli
himins og jarðar, kunni frá mörgu
að segja og var vel lesin. Á þessum
tíma var hún meiri tengdamamma
en hin raunverulega tengda-
mamma, sem ég kynntist betur
seinna. Börnunum mínum var hún
hin besta amma og alltaf var til-
hlökkun á jólum og afmælum eftir
gjöfunum frá ömmu og afa í
Löngubrekku þegar þau voru
yngri.
Hjördís, yngsta dóttir mín, sagði
við fráfall Guðrúnar að það væri
sárt að missa ömmuna sem hún
þekkti best.
Ragnheiður Hrefna
Gunnarsdóttir.
Hinn 21. maí kvaddi
ég kæra vinkonu og
samstarfssystur. Fyr-
ir u.þ.b. 45 árum
kynntumst við í Ljósheimum 6, þeg-
ar við fluttum á sama tíma í nýja
blokk. Uppi á 8. hæð voru ung hjón
með 3 litlar, fallegar stúlkur. Með
okkur unga fólkinu í blokkinni tókst
strax góður vinskapur, sem hefur
haldist alla tíð síðan. Við höfum hald-
ið þeim sið að hittast á hverju ári á
þorranum og þar hefur gleðin alltaf
haft völd.
Þegar Anna var að huga að nýrri
vinnu sá ég að hún var kjörinn
starfskraftur fyrir Dún- og fiður-
hreinsunina, Vatnstíg 3, sem var fyr-
irtæki stjúpföður míns. Hún var vön
afgreiðslu og saumaskap. Þarna
vann hún í rúm 20 ár. Anna kom
mjög vel fram við viðskiptavini, var
jákvæð og þjónustufús. Hún hafði
góða nærveru og mjög góðan húmor,
sem hún smitaði út frá sér á vinnu-
staðnum. Hvítu fallegu ungbarna-
settin með blúndum, sem hún saum-
aði, voru afar vinsæl og hafði hún
vart undan að sauma þau. Við unnum
saman í nokkur ár og vinskapur okk-
Anna Bjarnadóttir
✝ Anna Bjarna-dóttir fæddist á
Suðureyri 27. apríl
1936. Hún lést á
kvennadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 12. maí síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 21. maí.
ar og tengsl slitnuðu
aldrei.
Á hverju sumri kom
hún með Magnúsi
manni sínum ásamt
vinum upp í sumarbú-
stað okkar hjóna við
Hafravatn. Þá sá ég
hvað Anna var mikið
náttúrubarn og hún
elskaði gróðurinn og
naut þess að vera inn-
an um hann og var far-
in að hlakka til að
hætta að vinna til að fá
tækifæri til að njóta
þess enn betur. Þá varð hún vör við
meinið, sem hún tókst á við með
miklu æðruleysi og var hún einstök í
þessari baráttu sinni. Hún var alltaf
jákvæð þegar við spurðum hvernig
hún hefði það. Hún sagði: „Jú, jú, ég
er alveg ágæt.“ Þetta var bara eins
og hver önnur vinna, meinti hún, en
dagarnir væru misgóðir, bara eins
og lífið sjálft. Anna átti góða stund á
70 ára afmæli sínu með fjölskyldu
sinni, þá sá ég hvað hún var stolt yfir
barnahópnum sínum og sagði, að
hann væri það dýrmætasta sem hún
ætti í lífinu.
Ég vil fyrir hönd Ljósheimahóps-
ins og samstarfsfólks Önnu í Dún- og
fiðurhreinsuninni þakka fyrir henn-
ar ljúfu og hlýju framkomu. Minning
hennar er dýrmæt og nú er allt hlýtt
og bjart hjá henni. Elsku Magnús og
fjölskylda, ég veit að söknuðurinn er
mikill og þið eigið innilegustu samúð
okkar allra. Guð geymi minningu
mætrar eiginkonu, móður og ömmu.
Súsanna Kristinsdóttir.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
utanríkisráðherra, ávarpaði fund
sendiherra erlendra ríkja á Ís-
landi, sem haldinn var í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur að Bæj-
arhálsi 1 um síðustu helgi. Um 80
manns, bæði sendiherrar búsettir
hér á landi og sendiherrar með
aðsetur erlendis, sátu fundinn
þar sem gerð var grein fyrir
stöðu orkumála hérlendis og
möguleikum til útrásar á því
sviði.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Utanríkisráðherra lagði
áherslu á vistvæna orkufram-
leiðslu Íslendinga og þann mikla
auð sem falinn er í reynslu og
þekkingu Íslendinga á sviði jarð-
hitanýtingar. Þorkell Helgason
orkumálastjóri kynnti sendiherr-
unum orkustefnu Íslands og Guð-
mundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur greindi
frá helstu verkefnum fyrirtæk-
isins, bæði hérlendis og erlendis.“
Þá var fjallað um jarð-
varmaverkefni í Evrópu, Am-
eríku og Asíu, um vetni og fram-
tíðarmöguleika á því sviði,
fjárfestingu í jarðvarma í heim-
inum og fleiri þætti sem unnið er
að nú um stundir.
Auður Frá fundi utanríkisráðherra með sendiherrum erlendra ríkja um orkumál sem haldinn var í OR.
Orkumál rædd á fundi með sendiherrum
DEILD til útgáfu vegabréfsáritana
tók til starfa í sendiráði Íslands í
Beijing 15. júní sl. Átján manna kín-
versk sendinefnd fékk fyrstu árit-
anirnar, en hún var á leið til Íslands
vegna viðræðna um fríverslun land-
anna. Jóhann Jóhannsson veitir
deildinni forstöðu í umboði dóms-
og kirkjumálaráðuneytisins. Jó-
hann er sérfróður um útlendinga-
og áritanamál vegna starfa fyrir
ráðuneytið og útlendingastofnun.
Frá því að Íslendingar hófu þátt-
töku í Schengen-samstarfinu í mars
2001 hafa allar vegabréfsáritanir
til Íslands verið gefnar út af sendi-
ráðum annarra Schengen-ríkja. Er
sendiráðið í Beijing fyrst íslenskra
sendiráða til þess að gefa út Schen-
gen-vegabréfsáritanir, segir í
fréttatilkynningu.
Schengen-áritanir gilda til ferða-
laga um allt Schengen-svæðið. Mik-
il ásókn er í slíkar áritanir og er því
gætt mikillar varkárni við útgáfu
þeirra. Samskipti Íslands og Kína
hafa aukist mikið og hratt. Nýlega
stofnuðu til dæmis 20 íslensk fyr-
irtæki með starfsstöðvar í Kína
Beijing Icelandic Business Forum.
Var þar lýst ánægju með það skref,
sem stigið er með því að stofna árit-
anadeild í íslenska sendiráðinu.
Áritanadeild
opnuð í Beijing
Í MAÍ veitti heil-
brigðsráðuneytið
Heyrn ehf.
rekstrarleyfi
vegna sölu og
þjónustu heyrn-
artækja. Heyrn
tók til starfa 1.
júní sl. og veitir
heyrnarskertum
þjónustu. Eig-
andi Heyrnar er
Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrn-
arfræðingur sem jafnframt starfar
hjá fyrirtækinu við heyrnargrein-
ingu og hefur umsjón með úthlutun
og eftirfylgni með heyrnartækjum.
Heyrn býður heyrnartæki frá
danska framleiðandanum GN-
Resound sem er einn stærsti fram-
leiðandi heyrnartækja í heiminum.
Við heyrnargreiningu hjá Heyrn er
stuðst við nýjustu heyrnarmæling-
artæki GN-Otometrics. Heyrn-
armælingarklefinn er frá sænska
fyrirtækinu CA-Tegner. Þurfi við-
skiptavinur á skoðun háls-, nef- og
eyrnalæknis að halda að mati
heyrnarfræðings, er honum vísað
til læknis með niðurstöðu heyrn-
armælingar hafi hún verið fram-
kvæmd.
Ellisif Katrín Björnsdóttir er
menntaður heyrnarfræðingur frá
Gautarborgarháskóla og hefur
hlotið löggildingu sænskra heil-
brigðisyfirvalda. Ellisif hefur nú 5
ára starfsreynslu hér á landi við
heyrnarmælingar og ráðgjöf á sviði
heyrnartækja.
Viðskiptavinir Heyrnar fá styrk
frá Tryggingastofnun ríkisins fyrir
kaupum á heyrnartækjum eins og
hjá öðrum heyrnarstöðvum.
Heyrn ehf. er í Hlíðasmára 11,
201 Kópavogi, á jarðhæð í nýju húsi
með nægum bílastæðum. Þá hefur
fyrirtækið opnað heimasíðu,
www.heyrn.is.
Þjónusta Heyrn tók til starfa 1. júní sl. og veitir heyrnarskertum þjónustu.
Eigandi Heyrnar er Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur.
Ellisif Katrín
Björnsdóttir
Ný heyrnar-
þjónusta
KVENNAGAGNABANKINN
Kvennaslóðir er nýr vefur sem
opnaður verður í dag kl. 12 í sal
Þjóðminjasafns Íslands.
Vefurinn inniheldur upplýs-
ingar um kvensérfræðinga á ýms-
um sviðum. Markmið Kvenna-
slóða er að gera þekkingu og
hæfni kvenna sýnilega og að-
gengilega.
Í fréttatilkynningu segir að
kvennaslóðir sé vettvangur fjöl-
miðla, fyrirtækja og stjórnvalda
til þess að finna hæfar konur til
margvíslegra starfa með skjót-
virkum hætti.
Dagskrá opnunarinnar: Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra opnar vef-
inn og flytur ávarp. Margrét
Kristmannsdóttir, formaður Fé-
lags kvenna í atvinnurekstri, flyt-
ur erindi. Pallborðsumræður
verða undir stjórn Rósu Bjarkar
Brynjólfsdóttur.
Þátttakendur í pallborði verða
Valgerður Jóhannsdóttir, Karl
Blöndal, Steinunn Stefánsdóttir,
Sveinn Helgason og Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir.
Fundurinn er öllum opinn.
Nýr vefur
Kvennaslóða
opnaður ANDRÍKI hefur sent frá sér grein-
argerðina Sneið til stjórnvalda þar
sem fram kemur að landsmenn eru
að vinna fyrir hið opinbera til
fimmtudagsins 21. júní.
Í fréttatilkynningu segir að hinn
21. júní séu 47% ársins liðin, en það
er hlutfall tekna hins opinbera,
bæði ríkis og sveitarfélaga, af
vergri landsframleiðslu. Þetta hlut-
fall hafi aldrei verið hærra en síð-
ustu tvö ár.
Höft og íþyngj-
andi reglur
KYNNING á vefsíðunni oryrki.is,
sem er vefsíða sem rekin er af
hreyfihömluðum ungmennum,
verður haldin næstkomandi föstu-
dag í Hressingarskálanum kl. 20
þar sem m.a. verða tölvur uppi við
þar sem fólk getur skoðað síðuna.
Í fréttatilkynningu segir að hún
snúist um að hressa upp á ímynd ör-
yrkjans og gera hann að fyrirmynd
í samfélaginu. Það sé gert með því
að búa til „sketcha“, auglýs-
ingaspjöld o.fl.
Vefsíða rekin af
hreyfihömluð-
um unglingum