Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 47 Eftir Jón Ármann Steinsson jon@steinsson.com ERLA Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thor- steinsson, sem reka arkitektastofuna Minarc í Los Angeles, unnu aðalverðlaun alþjóða- samtaka innanhúshönnuða, IIDA, fyrir ein- býlishús sitt í Los Angeles. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Westin hótelinu í miðborg Chicago nýlega að viðstöddum 650 manns. Verðlaunahúsið, heimili Erlu og Tryggva, stendur á hæð með útsýni yfir Santa Monica. Húsið hefur vakið athygli fyrir vistvæna hönn- un og myndir af því hafa birst á forsíðum tíma- rita í Bandaríkjunum og víðar. International Interior Design Association, IIDA, eru ein stærstu samtök sinnar tegundar í heiminum. IIDA veitir árlega hönn- unarverðlaun í samvinnu við mánaðarritið Int- erior Design sem er eitt virtasta fagtímarit sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Í maíblaði Interior Design er fjallað um hús Erlu og Tryggva og þar segir: „Húsið er ekki einungis vel hannað augnayndi. Vistvæn sjón- armið ráða ferðinni við efnisval; málning, teppi og flísar eru ekki notaðar heldur eru sjálf byggingarefnin sýnileg í sinni eiginlegu mynd.“ „Markmið okkar var að gera áreynslulausa hönnun að veruleika,“ segir Erla Dögg. „Við nutum þess að vera að hanna eigið heimili og að þurfa ekki að útskýra fyrir viðskiptavini af hverju við vildum nota endurunnin dekk á skápahurðirnar í eldhúsinu. Allsstaðar þar sem því verður við komið notum við endur- unnið efni og ég las einhversstaðar að líftími gúmmís væri tvö þúsund ár. Hvílík sóun að það er einungis notað í örfá ár sem bíldekk, þegar við getum fundið aðra notkunarmöguleika.“ Í fyrsta sinn sem einbýlishús hlýtur verðlaunin IIDA veitir árlega fimm viðurkenningar fyr- ir framúrskarandi hönnun og eitt af þeim verkum hlýtur aðalverðlaun samtakanna. Þátttakan í ár var mun meiri en undanfarin ár og hönnuðir frá Japan, Tokyo og Bandaríkj- unum fengu viðurkenningu. Þetta er í fyrsta skipti sem einbýlishús vinnur aðalverðlaun IIDA fyrir innanhúshönnun. Tryggvi segir að vistvæn gildi og hagkvæm orkunýting sé sífellt mikilvægari þáttur í hönnun húsa. „Hér í Los Angeles þarf bæði að hita og kæla hús og því er grundvallaratriði að nýta náttúrulega orku þegar það er á annað borð mögulegt. Hönnunin ákvarðar rekstr- arkostnað hússins á líftíma þess. Það er að sama skapi mikilvægt að hafa umhverfissjón- armið í huga við val á byggingarefni og frá- gangi á slitflötum eins og gólfi, veggjum og innréttingum.“ Minarc hefur skapað sér orðspor fyrir nú- tímalega húsagerðarlist og þau hjónin eru með verkefni í Evrópu, Asíu, Afríku og Bandaríkj- unum. „Tilnefningin kom okkur á óvart,“ segir Tryggvi, „og við bjuggumst alls ekki við að hljóta verðlaunin. Ég varð eiginlega orðlaus þegar ég heyrði nöfnin okkar yfir hátal- arakerfið. Þessi viðurkenning hvetur mann til að halda áfram á sömu braut. Við hjónin erum þegar byrjuð að hanna næsta draumahús og það byggjum við á Íslandi.“ Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thorsteinsson fengu arkitektaverðlaun í Chicago Heimilið Húsið stendur á hæð með útsýni yfir Santa Monica. Það hefur vakið athygli fyrir vist- væna hönnun og myndir af því hafa birst á forsíðum tímarita í Bandaríkjunum og víðar. „Vel hannað augnayndi“ Morgunblaðið/Golli Farsæl Hjónin og arkitektarnir Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Thorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.