Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.06.2007, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SHREK 3 m/ensku tali kl. 3 - 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL CODE NAME: THE CLEANER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10 SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 3 - 5:30 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI WWW.SAMBIO.IS SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTI- LEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR. SÝND M EÐ ÍSLENS KU OG ENS KU TALI Listmálarinn Gunnar ÖrnGunnarson tók sig upp fyrirum tveimur áratugum og flutti af höfuðborgarsvæðinu og út í sveit – nánar tiltekið á jörðina Kamb í Rangárvallasýslu, nálægt Þjórsárbökkum. Þvert á spár sumra um að hann væri með slíkri einangrun að fremja „listrænt sjálfsmorð“ hefur Gunnar Örn blómstrað þar á ýmsan hátt sem listamaður. Hann lét ekki staðar numið þegar hann var valinn fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæring- inn 1988.    Á Kambi hefur hann ræktaðgarðinn sinn í fleiri en einum skilningi; komið upp fallegum trjá- reit í hlaðvarpanum, ræktað sjálfan sig og málverkið. Þar nýtur hann góðrar vinnuaðstöðu og návistar við alltumlykjandi náttúruna. Hann á í samstarfi við Gallerí Stalke í Kaupmannahöfn og hefur frá árinu 1998 stofnað til nýrra alþjóðlegra tengsla með rekstri Gallerís Kambs þar sem boðið er upp á gott úrval af alþjóðlegri sem innlendri myndlist. Af þessu má draga þá ályktun að sveitin þarf ekki að fela í sér menn- ingarlega einangrun – raunar er af- ar mikilvægt fyrir menninguna að til séu valkostir utan „miðjunnar“, þ.e. höfuðborgarsvæðisins.    Galleríið hefur lengst af verið ílitlu bárujárnshúsi sem reist var 1930. Þar hefur Gunnar Örn unnið óeigingjarnt starf í þágu list- arinnar og boðið listamönnum að sýna á vorin og haustin. Ekki má gleyma að slíku sýning- arhaldi getur fylgt töluvert um- stang. Fyrir utan flutning verka og uppsetningu sýningarinnar sjálfrar þarf að kynna sýningar, gefa út boðskort, halda opnanir og sitja yf- ir sýningum. Þá þurfa erlendir listamenn gistingu og aðstoð af ýmsu tagi. Gallerí Kambur er rekið alfarið á kostnað Gunnars Arnar. Meðal íslenskra listamanna sem þar hafa sýnt má nefna Helga Þor- gils Friðjónsson, Guðmund Ingólfs- son, Þórð G. Valdimarsson (Kíkó Korriró) og Ólaf Elíasson. Í samvinnu við Gallerí Stalke hafa einnig verið haldnar sýningar þekktra erlendra listamanna, svo sem Williams Anastasi og Laurence Weiner frá Bandaríkjunum, Alberts og Lone Mertz og Anne Bennike frá Danmörku.    Um þessar mundir reisir GalleríStalke sýningarhús á Kambi, 2x2 m að flatarmáli, þ.e. á stærð við ýmsar höggmyndir. Athygli vekur að veggir innanhúss verða svartir og er því um svonefndan „svartan kassa“ (eða „black cube“) að ræða, eins konar andsvar við hinum fræga „hvíta kassa“ eins og ákveðnum tegundum sýning- arrýma hefur verið lýst. Óhætt er að segja að Gallerí Kambur bjóði upp á spennandi möguleika í sýningarhaldi. Húsakynnin hafa nýlega verið stækkuð, þar er nú einnig hægt að sýna í björtum og rúmgóðum sal. Kynning á ungum listamönnum á sér stað í kaffistofunni í sama húsi. Ónefnd er sjálf jörðin – sýningar undir berum himni. Á Kambi standa nú þegar útiverk eftir Ívar Valgarðsson, Ólaf Elíasson og Sól- veigu Eggertsdóttur. Víðsýnt er frá Kambi og mynda verkin samspil við ávalar hæðir, himin, fjöll, vötn og fljót. Yfir þessu öllu trónir fell nokkurt – sjálfur Kamburinn. Alþjóðlegt gallerí í íslenskri sveit » Af þessu má dragaþá ályktun að sveitin þarf ekki að fela í sér menningarlega ein- angrun … Kambur Eldra galleríið á Kambi í Rangárvallasýslu sýndarmálað af Lone Mertz í tilefni af sýningu árið 2001. Fjöldi listamanna hefur nú sýnt þar. annajoa@simet.is AF LISTUM Anna Jóa HLJÓMSVEITIN Amiina heldur út- gáfutónleika vegna fyrstu plötu sinnar, Kurr, í kvöld í Iðnó. Kurr kom út í síðustu viku og hefur fengið prýðisgóðar viðtökur. Gagnrýnandi Guardian Live gaf plötunni fimm stjörnur og hrifning hans á sér engin takmörk. Hann segir Amiinu framleiða skrýtið, fal- legt og þægilegt hljóð sem geri áheyrandann afar varkáran, eins og hann hafi töfrað feimnu ver- urnar út úr skóginum og allir þurfi að vera fullkomlega kyrrir til að fæla þær ekki í burtu. Guardian Unlimited gefur plöt- unni fjórar af fimm stjörnum og segir Kurr mikla hugljómun. Yoko Ono valdi líka lag Amiinu „Seoul“ á lista yfir þau átta lög sem hún myndi taka með sér á eyðieyju í BBC Radio 1 útvarpsþættinum De- sert Island Discs. Iðnó verður opnað kl. 20 í kvöld og Amiina-stúlkur stíga á svið kl. 21. Forsala aðgöngumiða er á midi- .is, í 12 tónum og Smekkleysu plötubúð. Miðaverð er kr. 1.700. Amiina Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Kurr, fær góða dóma. Útgáfutónleikar Amiinu ÞÝSKI kvikmyndaleikstjórinn Marc Forster hefur verið valinn til að leik- stýra 22. myndinni um njósnara hennar hátignar, James Bond. For- ster hefur leikstýrt myndum á borð við Monster’s Ball, Finding Never- land og Stranger Than Fiction og er nú að leggja lokahönd á mynd eftir bókinni Flugdrekahlauparanum. Flestar þessar myndir hljóta að telj- ast ansi ólíkar Bond-myndunum enda engin þeirra hasarmynd, en hins veg- ar hafa þær allar fengið rífandi dóma. Forster segist sjálfur alltaf hafa verið aðdáandi Bond-myndanna. „Ég hef alltaf dregist að mis- munandi og fjöl- breyttum sögum. Sú nýja stefna sem persóna Bond hefur tekið veitir leikstjórum seríunnar marga nýja og spennandi möguleika.“ Forster leikstýrir Bond Marc Forster

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.