Morgunblaðið - 23.06.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Vélar & tæki
Hjólbarðar
16” dekk og felgur PCW 195/50.
Verð 55.000 þús. Til sýnis hjá
Höfðabílum, sími 577 4747.
hofdabilar.is
Höfðabílar, Fosshálsi 27
S. 577 4747.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Sigurður Jónasson.
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Snorri Bjarnason .
BMW 116i, bifhjólakennsla.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson .
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson.
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson.
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson.
Suzuki Grand Vitara.
892 0002/568 9898.
Kristófer Kristófersson.
BMW.
861 3790.
Glæsileg kennslubifreið.
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
bifhjolaskoli.is
Fellihýsi
Viking fellihýsi.
Til sölu gott Viking fellihýsi árg. 2001,
upphækkað, sólarrafhlaða, svefntjöld
og fortjald. Verð 550 þús. Á sama
stað óskast fólksbílakerra.
Sími 896 6105.
Fleetwood Utah, 12 ft.
Árg. 2004, sérlega vel með farið og
vel útbúið s.s. upphækkað, sólarsella,
markísa, reiðhj.festingar, útvarp,
sjónvarpstenging o.fl., einn eigandi.
Uppl. í síma 825 7381.
9 feta Coleman fellihýsi
með fortjaldi til sölu. Verð kr. 400
þús. Uppl. í síma 690 0907.
Hjólhýsi
Til sölu Tabbert Puccini 560 E 2,5,
árg. 2006, skráð 06 2006.
DVD+útvarp+CD, fjórir 150 w
hátalarar, sólarsella, 20 fm fortjald
frá Isabella ásamt stórum fortjalds-
hitara og tveim 11 kg gaskútum, gas-
miðstöð, hiti í gólfi, stærri vatns-
tankur. Bæði luxury og comfort pakki,
2 gaskútar með sjálfvirkum stýringum
frá framleiðanda. Fullbúið lúxushús
hlaðið aukabúnaði frá framleiðanda.
Uppl. í síma 895 0967.
Til sölu 30 fermetra frístundahús.
Tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, wc
og bað. Stærð 31 x 10 fet. 220/240 v
rafkerfi. Til afhendingar í Rvík. Verð
aðeins 1.200 þús. Upplýsingasími
893 6020 milli kl. 13 og 18.
Puccini Tabbert 540E 250, 06/2006.
Til sölu Puccini 540E 250, árg.2006.
Hjólhýsi innflutt af umboði með öllum
hugsanlegum aukabúnaði, t.d.
sólarsellu, markísu, leðurinnréttingu,
ALDI ofnhitakerfi, gólfhitakerfi, DVD,
sjónvarpi, útvarpi , 2 geymum, 2
gaskútum, mögul. beintengi við
neysluvatnskerfi, stór neysluvatns-
tankur o.fl. Uppl. í síma 898 9517/
564 4252/544 4004.
Hjólhýsi til sölu! 2007.
Hefurðu séð glæsilega Delta Euro-
liner kojuhúsið hjá okkur? Svefnpláss
fyrir 6. Verð 1.890.820 kr. Allt að
100% lán. Fortjald á hálfvirði.
Símar 587 2200 og 898 4500.
www.vagnasmidjan.is
Hjólhýsi til leigu.
Hjólhýsi með uppbúnum rúmum og
öllu tilheyrandi. Helgarleiga eða viku-
leiga. Sendum - sækjum. 6 gerðir
hjólhýsa til sýnis hjá Gistiheimilinu
Njarðvík. Geymið auglýsinguna.
Símar 421 6053 og 898 7467
Delta hjólhýsi 2007.
4400 FB aðeins 1.797 þús.
4700 TKM aðeins 1.890 þús.
4700 EB aðeins 1.790 þús.
5000 BKV aðeins 2.190 þús.
Fortjöld á hálfvirði. Allt að 100% lán
S: 587 2200 og 898 4500.
www.vagnasmidjan.is
Húsbílar
VW LT 40 húsbíll til sölu.
Árg. 1989. Full innréttaður. Heitt og
kalt vatn, gasmiðstöð, ísskápur, WC,
CD, fortjald o.fl. Verð: tilboð. Sjón er
sögu ríkari. Mjög góður bíll.
Sími 840 6646 & 565 7661.
Mercedes Benz árg. 1982. Ek. 218
þús. km. Benz 307D. Vaskur, hellu-
borð og svefnpláss fyrir 3-4. Ný topp-
lúga, rafgeymir, demparar, gjaldlaus
og skoðaður o.fl. Nánari uppl. í
s. 661 0222 eða 483 3909, Ármann.
Kerrur
Sumarútsala á kerrum.
Brenderup 1205 S – innanm.
203x116x35 cm – burðarg. 600 kg –
dekk 13“. Listaverð: 129.000.
Tilboðsverð kr. 99.500.
Lyfta.is, s. 421 4037,
Njarðarbraut 3, Reykjanesbæ.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
KIRKJUSTARF
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Grafarkirkja, Höfðaströnd, Skagafjarðarsýslu.
Helgistund í
Grafarkirkju
á Jónsmessu
Frá Hofsóss- og Hólaprestakalli.
Hin árlega helgistund í Graf-
arkirkju á Höfðaströnd verður að
kvöldi sunnudagsins 24. júní og
hefst stundin kl. 20. Kirkjukór
Hofsóss syngur fallega kvöld-
sálma undir stjórn Önnu Krist-
ínar Jónsdóttur. Sr. Gunnar Jó-
hannesson leiðir stundina og
flytur hugleiðingu. Grafarkirkja
er eina varðveitta stafkirkja
landsins. Hún er meðal elstu
guðshúsa á landinu og telst jafn-
framt til elstu húsa sem enn
standa á Íslandi. Grafarkirkja var
að líkindum reist af Gísla Þor-
lákssyni Hólabiskupi (1657-1684).
Hallgrímur Pétursson Pass-
íusálmaskáld fæddist að Gröf árið
1614. Allir, nær og fjær, eru
hjartanlega velkomnir til góðrar
og kyrrlátrar stundar í kvöldsól-
inni. Að venju verður boðið upp á
kaffisopa og meðlæti undir
kirkjuveggnum að athöfn lokinni.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
Ensk messa er á morgun, 24. júní,
kl. 14. Prestur verður sr. Bjarni
Þór Bjarnason. Organisti verður
Björn Steinar Sólbergsson og
Guðrún Finnbjarnardóttir mun
leiða safnaðarsöng. Messukaffi.
Enskar messur eru haldnar síð-
asta sunnudag hvers mánaðar í
kirkjunni.
Service in English: Service in
English on the fourth Sunday af-
ter Trinity at Hallgrímskirkja.
June 24th at 2 pm. Holy Comm-
union. Preacher and Celebrant:
The Revd Bjarni Þór Bjarnason.
Organist: Björn Steinar Sólbergs-
son. Leading Singer: Guðrún
Finnbjarnardóttir.
Kvöldguðsþjónusta
í Laugarneskirkju
Síðasta guðsþjónustan í Laug-
arneskirkju fyrir sumarleyfi safn-
aðarins verður á Jónsmessukvöld,
sunnudagskvöldið 24. júní, kl. 20.
Sigurbjörn Þorkelsson fram-
kvæmdastjóri og meðhjálpari
Laugarneskirkju mun leiða guðs-
þjónustuna, prédika og flytja
bænir og Sólveig María Þorláks-
dóttir og María Vilhjálmsdóttir
lesa ritningartexta dagsins. Reyn-
ir Jónasson leikur fimlega á org-
elið undir almennan sálmasöng
sem kór kirkjunnar mun leiða af
krafti.
Að lokinni guðsþjónustunni
mun Gunnhildur Einarsdóttir
kirkjuvörður bjóða upp á hress-
ingu í safnaðarheimilinu áður en
haldið verður út í hina albjörtu
Íslensku sumarnótt.
Öllum er velkomið að koma og
njóta þess að íhuga lífið, fegurð
þess og tilgang og biðja á kyrr-
látri stund í Laugarneskirkju á
Jónsmessukvöld.
Sr. Hildur Eir Bolladóttir mun
sinna prestsþjónustu og verður
með viðtalstíma allt fram til
föstudagsins 6. júlí og sr. Bjarni
Karlsson kemur svo aftur til
starfa að loknu námsleyfi þriðju-
daginn 17. júlí.
Helgihald í Kolaport-
inu
Sunnudaginn 24. júní kl. 14 er
helgihald í Kolaportinu í Kaffi
Porti. Þorvaldur Halldórsson
leikur létta tónlist í bland við
sálma frá kl. 13.30 á meðan fyr-
irbænum er safnað. Sr. Þorvaldur
Víðisson leiðir stundina ásamt
Margréti Scheving. Stud. theol.
Stefán Einar og stud. theol Guð-
laug Helga þjóna einnig í athöfn-
inni ásamt hugsanlega fleiri guð-
fræðinemum. Í Kolaportinu hefur
á þessum stundum jafnan skapast
sérstakt andrými nærveru og
samfélags, þótt erillinn sé mikill í
Kolaportinu. Í bland við kaffisopa
og veitingar frá Kaffi Porti biðj-
um við saman og syngjum, heyr-
um hugleiðingu og heilagt orð.
Verið öll hjartanlega velkomin í
helgihald í Kolaportinu.
Kópavogskirkja
sumarferð 24. júní
Sumarferð Kópavogskirkju verð-
ur farin sunnudaginn 24. júní.
Lagt verður af stað að lokinni
helgistund sem hefst í kirkjunni
kl. 11. Að þessu sinni er ferðinni
heitið austur í Rangárþing, ekið
verður um Landveg og ráðgert er
að koma m.a. við í Skarði, í Galta-
læk og á Leirubakka. Þá verður
farið um Þingskálaveg og áhuga-
verðir staðir skoðaðir. Gert er
ráð fyrir að komið verði til baka
á milli kl. 18 og 19. Þátttakendur
í ferðinni eru hvattir til að hafa
með sér nesti. Fararstjóri verður
Guðmundur Guðbrandsson. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Miðnæturmessa
við Vídalínskirkju
Í nóttlausri veröld Jónsmessunnar
heldur Garðasókn sérstaka mið-
nætur-Jónsmessu. Ef veður leyfir
hefst athöfnin úti kl. 23 á sunnu-
dagskvöld milli Tónlistarskóla
Garðabæjar og Hofsstaðarúst-
anna, en þar er góð aðstaða til
samkomuhalds.
Jónsmessan er fæðingarhátíð
Jóhannesar skírara. Samkvæmt
Nýja testamentinu fæddist Jó-
hannes skírari um það bil sex
mánuðum á undan Jesú, en Jón
og Jóhannes eru tvö afbrigði
sama nafns á íslensku. Enginn
annar dýrlingur á fæðingardag
sinn fyrir messudag.
Margskonar hjátrú tengist
Jónsmessunni, en við munum auk
fæðingar Jóhannesar minnast
skírnarinnar og skírnar Jesú, sem
hann þáði af Jóhannesi frænda
sínum skírara í ánni Jórdan forð-
um daga. Eins og áður sagði hefst
athöfnin úti, en síðan verður
gengið yfir í Vídalínskirkju. Þar
verður kvöldmáltíðarsakrament-
isins neytt.
Félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða almennan safnaðarsöng. Jó-
hann Baldvinsson organisti sér
um undirleik, en sr. Friðrik J.
Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga
djákni annast þjónustuna. Allir
velkomnir. Sjá einnig á heimasíðu
kirkjunnar, www.gardasokn.is
Jónsmessu- og lækn-
ingamessa í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
Kvöldmessa verður kl. 20. Þema
kvöldsins eru lækningar Krists og
sú heilun sem trúin er. Sérstakur
gestur er Heiða Árnadóttir sópr-
ansöngkona, en almennan safn-
aðarsöng leiða Aðalheiður Þor-
steinsdóttir organisti og Erla
Berglind Einarsdóttir söngkona.
Lesarar eru þær Friðbjörg Ósk-
arsdóttir og Guðný Helga Krist-
jánsdóttir frá Kærleikssetrinu.
Ása Björk Ólafsdóttir Fríkirkju-
prestur leiðir messuna og hug-
leiðir um þemu dagsins, en Nanda
María kirkjuvörður er henni til
aðstoðar. Altarisganga og smurn-
ing.
Keflavíkurkirkja 1915:
Ganga, guðsþjónusta
og gamaldags kruðerí!
Ýmislegt virðist hafa gengið á við
byggingu Keflavíkurkirkju og
margir komu að því verkefni. Áð-
ur bjartsýnir íbúar fylltust von-
leysi eftir margvíslegar hrakfari-
rog kaupmenn hlupu undir
bagga. Sagt verður frá þessum
stórhuga framkvæmdum og ýmsu
öðru í gönguferð sem farin verð-
ur sunnudaginn 24. júní kl 18.
Gengið verður um gamla bæinn
og farið yfir sögu kirkjunnar í
Keflavík á ofanverðri 19. öld.
Byrjað verður á kirkjutröppum
Keflavíkurkirkju kl 18. Gangan
endar við Keflavíkurkirkju þar
sem sungin verður messa að þeim
hætti sem var í árdaga kirkj-
unnar. Þjóðlegar veitingar verða
í boði að messu lokinni.
Leiðsögumaður Rannveig L.
Garðarsdóttir. Organisti er Há-
kon Leifsson, forsöngvari er
Bjartmar Sigurðsson og prestur
er sr. Skúli S. Ólafsson
KK- og Ellen í
æðruleysismessu
Á sunnudaginn nk. þannn 24. júní
kl 20 verður æðruleysismessa í
Dómkirkjunni í Reykjavík. Þau
systkinin KK og Ellen Kristjáns-
dóttir munu flytja eigin lög og
texta, en jafnframt leiða almenn-
an sálmasöng.
Þau Anna Sigríður Pálsdóttir,
Hjálmar Jónsson, Jakob Ágúst
Hjálmarsson og Karl V. Matthías-
son munu þjóna ásamt því sem
einn úr hópi kirkjugesta mun
deila reynslu sinni með við-
stöddum.
Það er upplagt að mæta í æðru-
leysismessu á hásumri og upp-
byggjast í gleði, von og þakklæti,
en æðruleysismessurnar hafa ein-
mitt einkennst af því hversu þær
hafa verið einlægar og fullar af
gefandi gleði. Allir eru hjart-
anlega velkomnir í æðruleys-
ismessurnar í Dómkirkjunni.