Morgunblaðið - 24.06.2007, Side 24
stjórnmál
24 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
verða engin ný rannsóknar- eða nýtingarleyfi
gefin út varðandi orkuvinnslu á óröskuðum
svæðum og við undirstrikuðum okkar vernd-
arvilja með því að segja að verndargildi há-
hitasvæða verði rannsakað sérstaklega og
nefndum töluvert mörg svæði sem tekin verða
frá. Ég nefni til dæmis Brennisteinsfjöll vegna
þess að menn hafa ágirnst þær orkulindir sem
þar kunna að vera fyrir stóriðju á Reykjanesi.
Hins vegar sammæltumst við um það af hálfu
ríkisstjórnarinnar að við myndum ekki leggja
fram lagafrumvarp til að banna einstakar fram-
kvæmdir sem komnar eru í vinnslu. Það er ná-
kvæmlega sama stefna og formaður Vinstri
grænna gaf út í merku hádegisviðtali á Stöð 2
um hugsanlega stjórnarmyndun VG, en hann
sagði að hann myndi ekki gefa út afarkosti,
menn færu eins langt og þeir gætu og sagði því
fyrir hönd Vinstri grænna að flokkurinn myndi
ekki beita sér fyrir því að stöðva framkvæmdir
með lagasetningu. Ríkisstjórnin hefur því ná-
kvæmlega sömu stefnu hvað þetta varðar og
þessi ágæti umhverfisverndarflokkur.“
– En lagði Samfylkingin ekki til aðra leið fyrir
kosningar?
„Fagra Ísland gekk út á að gerð yrði ramma-
áætlun um nýtingu og verndun og að ekki yrði
ráðist inn á óröskuð svæði með rannsóknum eða
nýtingu áður en henni yrði lokið, og eftir hana
yrði öll nýting að lúta niðurstöðum um vernd-
arsvæði. Sömuleiðis yrði gert hlé á stóriðju-
framkvæmdum þannig að þegar og ef í þær yrði
ráðist myndu þær falla að hagsveiflu samfélags-
ins og ljóst væri að ekki yrði ráðist í stór-
framkvæmdir sem gætu skekið burðarstoðir
efnahagslífsins. Þetta felst í stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar og það er alveg ljóst að það
er enginn vilji til að hér verði aftur ráðist í svo
miklar framkvæmdir að þær valdi sama efna-
hagslega umróti og Kárahnjúkavirkjun.
Í þessu sambandi er mikilvægt að Íslend-
ingar geri sér grein fyrir að orkulindir þeirra
eru ekki ótakmarkaðar og að nýir möguleikar
eru að opnast á mjög orkufrekri stóriðju, sem er
algjörlega mengunarlaus. Eitt stærsta tækifær-
ið, sem blasir við í hátækni- og þekkingariðnaði,
er markaðurinn fyrir netþjónabú á Íslandi. For-
sendurnar fyrir því eru aðallega tvær, í fyrsta
lagi nýr sæstrengur og samgönguráðherra
ákvað á fimmtudag að hann yrði lagður og kom-
inn í notkun fyrir lok árs 2008. Hin forsenda er
sú að hér sé til orka.
Það blasir við, miðað við reynslu mína sem
iðnaðarráðherra í skamman tíma, að sókn í orku
hefur aukist gríðarlega. Ég get varla labbað út
af skrifstofunni minni þessa dagana án þess að
detta um forstjóra álfyrirtækja sem hingað
sækja til að tryggja sér orku. Því er spáð að
orka hækki erlendis, t.d. með kolefnisgjöldum
sem valda því að brennsluorka verður dýrari.
Stórfyrirtæki eru þess vegna að hasla sér völl á
Íslandi.
Ég tel hins vegar bráðnauðsynlegt fyrir þró-
un hátækni- og þekkingariðnaðarins á Íslandi
að þau geti gengið að nægri orku vísri til að
þróa þessa nýju atvinnugrein. Möguleikarnir
eru miklir, og nærtækir í tíma. Í fyrsta lagi hafa
alþjóðleg fyrirtæki á borð við Microsoft og
Google leitað hófanna um að koma upp slíkri
starfsemi, að því skilyrði uppfylltu að lagður
verði nýr sæstrengur, sem er nauðsynlegur til
að koma í veg fyrir að starfsemi falli niður
vegna bilana. Jafnframt hafa þessi fyrirtæki
sagt að þau séu komin langt í ákvörðunartöku-
ferlinu og að á næstu vikum og mánuðum megi
vænta ákvörðunar. En það hafa líka komið
minni fyrirtæki, sem eiga íslenskar rætur og
hafa í bakvarðasveit sinni alþjóðlega fjárfesta
með mikla reynslu af fjárfestingum á Íslandi,
sem vilja koma hingað með starfsemi. Á borðinu
er til dæmis hugmynd um slíkt bú sem gæti
krafist 50 megavatta. Ef slíkt fyrirtæki kemur
til landsins, og brýtur ísinn, er líklegt að fleiri
komi í kjölfarið og til verði ný atvinnugrein,
orkufrek græn stóriðja. Við verðum að tryggja
að orkufrekja gömlu stóriðjunnar kæfi ekki
þennan nýgræðing í frumbernsku. Ég lít á það
sem hlutverk mitt sem iðnaðarráðherra. Ég get
ekki sinnt því með boði og bönnum heldur ein-
göngu samræðum við þá sem selja orkuna. En
það þjónar hagsmunum okkar að fá nýja at-
vinnugrein og einnig hagsmunum orkufyr-
irtækjanna að setja eggin í fleiri hreiður og
dreifa með því áhættunni. Þannig að við hljótum
að geta náð þjóðlegri samstöðu um þetta“
Og Össur er ekki hættur.
„Ef ég má tala aðeins meira um stóriðju,“
segir hann og heldur áfram. „Umhverfið er
gjörbreytt, orkuverð fer hækkandi í hinum
vestræna heimi og eftirspurn eykst. Að sama
skapi hefur mannkynið ef til vill aldrei staðið
frammi fyrir meiri umhverfisvá en hlýnun and-
Morgunblaðið/Frikki
Orkubeislun „... og því miður er orkan þess eðlis að menn nota hana ekki nema á einum stað.“
F
ærnisleg raferting (e. functional
electrical stimulation) er notuð
á taugar fólks sem hefur lamast
af völdum mænuskemmda eða
annarra sjúkdóma og hefur
ósjálfráðar hreyfingar. Tilgangurinn með
tækninni er að kalla fram nothæfar hreyf-
ingar. Kristján Tómas Ragnarsson, yfir-
læknir endurhæfingardeildar Mount Sinai-
sjúkrahússins í New York, mun fjalla um
þessa tækni í upphafsfyrirlestri sínum á al-
þjóðlegri ráðstefnu um mænuskaða á Nor-
dica hótelinu í Reykjavík sem haldin verður
dagana 28. til 30. júní næstkomandi.
„Það hefur lengi verið vitað að raf-
straumur á taugar veldur kippum í lík-
amanum og sé þetta gert á réttan hátt veld-
ur það engum skemmdum. Það var þó ekki
fyrr en upp úr 1960 að læknar fóru að nota
þessa aðferð í þeim tilgangi að framkalla
nothæfar hreyfingar. Það var læknir hérna
vestan hafs sem sýndi fyrstur fram á það að
fólk sem var lamað fyrir neðan mitti gat
staðið eftir meðferð af þessu tagi án þess að
nota spelkur,“ segir Kristján og bætir við að
undanfarin aldarfjórðung hafi orðið miklar
framfarir á þessu sviði.
Geta haldið á skriffæri
„Ef vöðvar eru rafertir í réttri röð, en
hægt er að stýra því með tölvu, geta komið
út úr því nothæfar hreyfingar. Tökum sem
dæmi fólk sem hefur hálsbrotnað og lamast
á höndum. Þá er hægt að raferta taugar í
handleggjunum með þeim árangri að fólk
getur bæði opnað og lokað hnefanum og
haldið á bolla og jafnvel skriffæri. Sömu
sögu er að segja um fætur, ef ákveðnir
vöðvar eru ertir með rafstraumi geta þeir
sem eru lamaðir fyrir neðan mitti staðið
upp, haldið stöðu og jafnvel tekið nokkur
skref. Vonir hafa lengi staðið til þess að fólk
geti jafnvel gengið eftir rafertingu en enn
sem komið er hefur ekki orðið af því.“
Að sögn Kristjáns er þessari tækni einnig
beitt á aðra sjúklinga, t.a.m. hafi læknar á
Landspítalanum nýverið notað hana á tvo
sjúklinga sem bundnir voru öndunarvél. „Í
þeim tilvikum eru rafskautin sett beint inn í
þindina þar sem taugarnar koma inn í hana
og rafertingin fer fram átta til tíu sinnum á
mínútu með þeim afleiðingum að þindin
dregst saman og fólk getur andað hjálp-
arlaust.“
Hann segir aðferðinni í einhverjum til-
vikum einnig hafa verið beitt á þvagblöðru
sjúklinga sem ekki geta haldið þvagi.
Æfingahjól skila árangri
Kristján hefur unnið með rafræna ertingu
í 25 ár og ein af þeim aðferðum sem hann
hefur tekið þátt í að þróa snýst um æfinga-
hjól. „Það fer þannig fram að sjúklingurinn
sest á æfingahjólið og rafskautin eru tengd
við húðina, þar sem þau ná niður í taug-
arnar og vöðvana. Þetta gerir það að verk-
um að fólk getur hjólað sér til heilsubótar
sem er mjög mikilvægt þar sem mænu-
skemmt fólk situr eðli málsins samkvæmt
meira en annað fólk og getur hlotið ýmsa
kvilla vegna hreyfingarleysis.“
Sjúklingarnir læra aðferðina á sjúkrahús-
inu en síðan verða þeir sér úti um æfinga-
hjól og stunda hreyfinguna heima hjá sér
eða annars staðar þar sem þeir hafa aðgang
að hjóli. „Ég veit um marga sjúklinga sem
fullyrða að þetta hafi gert þeim gott og bætt
heilsu þeirra en auðvitað er þetta ein-
staklingsbundið. Sumir hafa gagn af þessu
og aðrir ekki. Það hafa engar rannsóknir
verið gerðar á stórum hópi en við læknarnir
teljum eigi að síður að þessi aðferð sé af
hinu góða.“
Kristján segir færnislega rafertingu
ágætlega á veg komna en alltaf megi gera
betur. „Það er eins og með svo margt á sviði
vísindanna, okkur vantar meira fé til að
halda rannsóknum áfram. Hlutfallslega er
það tiltölulega lítill hópur fólks sem er með
mænuskemmdir í heiminum og þetta er
vitaskuld spurning um forgangsröðun hjá
þeim sem hafa fé undir höndum til rann-
sókna og þróunar. Hvernig kjósa þeir að
verja því? En burtséð frá því er ég sann-
færður um að við gætum bætt þessa tækni á
umtalsverðan hátt. Það er m.a. raunhæft
markmið að búnaðurinn rúmist í litlu tæki
sem hægt væri að koma fyrir inni í lík-
amanum, líkt og gangráði fyrir hjartað,
þannig að fólk þurfi ekki að hafa þetta
hangandi utan á sér.“
Alltaf á leiðinni heim
Kristján Tómas lauk kandídatsprófi í
læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1969
og sérfræðiprófi í orku- og endurhæfingar-
lækningum frá Bandaríkjunum sjö árum
síðar. Hann hefur búið í New York allar
götur frá 1970. Fyrst starfaði hann á Rusk-
stofnuninni, sem er hluti af New York-
háskóla, en frá 1986 hefur hann verið yfir-
maður á Mount Sinai-sjúkrahúsinu. Þá er
Raferting kallar fram nothæfar
hreyfingar hjá mænuskemmdum
Kristján Tómas Ragnarsson yfirlæknir í New York flytur er-
indi um færnislega rafertingu á ráðstefnu um mænuskaða sem
hefst í Reykjavík á fimmtudaginn. Orri Páll Ormarsson fékk
hann til að gera grein fyrir þessari endurhæfingartækni.
fframsækni
Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is