Morgunblaðið - 27.06.2007, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
!"#$!%
&
''
& (
)##*+ +, -+,.
/0
"'( ( ((
1
!"2%+"3%% Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Hvammstanga. Útgerðin hét Rósa
hf.,“ segir Albert Kemp, fyrrverandi
skipaskoðunarmaður Austurlands.
„Þetta var nýlegt og vel búið skip,
stór rækjubátur með frystilestar.
Kaupfélagið var að kaupa sér tap,
eins og það var kallað, það var hægt
að nýta til að fela gróða. Báturinn
NÝLEGA birtist í dagblaðinu Times
of Malta mynd af skipi sem sýnir
hermenn færa ólöglega innflytj-
endur frá Afríku úr skipinu í gúmmí-
báta. Nafnið á skipinu á myndinni er
kunnuglegt, Budafell, en það er nú
skráð eign sjávarútvegsfyrirtæk-
isins Azzopardi Fisheries á Möltu.
Og það er enn merkt Fáskrúðsfirði.
Rifjað er upp í blaðinu að í maí
voru skipverjar Búðafells staðnir að
því að láta 27 innflytjendur hírast í
þrjá sólarhringa á fleka sem notaður
er við túnfiskveiðar. Ítalskt skip
rakst loks á fólkið og bjargaði því.
Búðafell mun hafa verið selt úr
landi einhvern tíma á tíunda ára-
tugnum. Algengast er að skipt sé um
nafn í tilfellum sem þessum.
„Þetta var um 250 tonna fram-
byggður frystibátur, eiginlega lítill
frystitogari, sem kaupfélagið keypti
hingað til Fáskrúðsfjarðar upp úr
1990 af gjaldþrota útgerð á
var gerður út á línu, líklega í eitt ár,
hann var sendur til Póllands í leng-
ingu og aðrar breytingar.
Síðan var Búðafell gert út á
rækju, veiddi meira að segja við
Grænland en var loks selt til Hafn-
arfjarðar. Þar var rækjukvótinn
hirtur af því og það selt til útlanda.“
Eitthvað
gruggugt
við Búðafell
Ljósmynd/AFM Press Office
HÖFUÐBORGARBÚAR notuðu margir góða veðrið í
gær til að slaka á, væru þeir ekki svo óheppnir að þurfa
að vinna. Við Austurbæjarskóla var ekki slegið slöku
við og leikjanámskeið var í fullum gangi úti í guðs-
grænni náttúrunni. Hitinn var ósköp notalegur, fór
mest í 15,8 gráður að sögn Veðurstofunnar. Svolítið
golaði þó þegar leið á daginn og í dag er spáð nokkuð
ákveðinni norðanátt en eftir sem áður sól og svipuðum
hita. En annars staðar í Evrópu valda öfgarnar í veð-
urfarinu nú miklum usla, Bretar berjast við gríðarleg
flóð, í sunnanverðri álfunni er sólin allt of ágeng og
víða hafa verið slegin hitamet við Miðjarðarhafið.
Morgunblaðið/Ásdís
Leikjanámskeið í blíðunni
SÉRA Hjörtur Magni Jóhannsson,
prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík,
telst ekki hafa brotið siðareglur
Prestafélags Íslands að mati siða-
nefndar félagsins.
Nokkrir prestar þjóðkirkjunnar
höfðu kært séra Hjört Magna til siða-
nefndarinnar vegna ýmissa ummæla í
garð þjóðkirkjunnar og um stöðu trú-
félaga. Hjörtur Magni hafði m.a. sagt
að hér á landi væri ríkisfyrirkomulag
sem búið væri að missa allan trúverð-
ugleika meðal þjóðarinnar og jafn-
framt að sú trúarstofnun sem teldi sig
sé spjótum beint að tilgreindum ein-
staklingum og teljist þau því vart
meiðandi hvað þá varðar. „Æskilegt
hefði verið að kærendur svöruðu
harðri gagnrýni kærða á opinberum
vettvangi,“ segir m.a.
Hjörtur hafði ekki kynnt sér úr-
skurðinn. „Í sjálfu sér þráði ég ekki
endilega heitt sýknu. Ég tjáði mig um
efni af trúarlegri köllun og niðurstaða
siðanefndar er í sjálfu sér ekki stór-
mál fyrir mig til eða frá. Ég vil bara að
gagnrýni mín fái að heyrast.“
Séra Guðmundur Karl Brynjars-
son, einn kærenda, segir úrskurðinn
koma sér á óvart. „Við vildum bara fá
fram hvort þetta væri eðlilegur mál-
flutningur og hvort hann væri við
hæfi. Eftir þessu að dæma þá virðist
siðanefnd álíta að svo sé. Mér finnst
það merkileg niðurstaða að við eigum
að fara í ritdeilur á opinberum vett-
vangi. Ég hefði talið að siðanefnd
Prestafélagsins væri merkilegri en
þetta.“ Ákveðinn sigur sé að nefndin
gagnrýni séra Hjört Magna fyrir að
nota hugtök eins og ríkiskirkju. Í úr-
skurðinum segir að það sé rangfærsla
og villandi að tala með þessum hætti
um að þjóðkirkjan sé á framfæri rík-
isins. Þar sem rangfærslan beindist
ekki að neinni persónu sérstaklega þá
taldi siðanefndin hins vegar ekki að
um brot á siðareglum væri að ræða.
hafa höndlað sannleikann yrði um leið
stórhættuleg, „ef ekki djöfulleg“.
Í úrskurði siðanefndarinnar kemur
fram að ummæli þau sem tiltekin eru í
kærunni snúi fyrst og fremst að skoð-
unum kærða á þjóðkirkjunni. Hvergi
Fríkirkjuprestur braut
ekki siðareglur presta
Hjörtur Magni
Jóhannsson
Guðmundur Karl
Brynjarsson
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð-
herra og Júlíus S. Ólafsson, for-
stjóri Ríkiskaupa, hafa undirritað
samning við Vörusjá ehf. um rekst-
ur og þróun rafræns markaðstorgs
fyrir stofnanir og fyrirtæki ríkisins.
Hörður Helgason, stjórnarformað-
ur Vörusjár, ritaði undir samning-
inn fyrir hönd Vörusjár.
Um er að ræða nýstofnað félag
um rekstur og umsjón rafræna
markaðstorgsins sem ætlað er að
leysa af hólmi eldra markaðstorg er
lokað var þann 15. maí sl. og hafði
þá verið starfrækt frá því í júní
2002. Fyrirtækin sem standa að
Vörusjá ehf. eru EC Software ehf.,
Spron, Árvakur hf. og Íslandspóst-
ur hf.
„Torgið keyrir á sérhæfðum
verslunarlausnum frá EC Software
sem þjónusta fjölda fyrirtækja, hér-
lendis og erlendis. Stefnt er að því
að sem flestir birgjar verði með
beinar tengingar við torgið sem
þýðir að rafrænar pantanir skila
sér beint í sölukerfi þeirra til af-
greiðslu.
Stefnt er að því að geta hafið
vinnu við tengingar birgja við torg-
ið föstudaginn 29. júní nk. og í
framhaldinu munu þá, til að byrja
með, opinberir kaupendur geta
keypt rammasamningsvörur um
torgið. Í framhaldinu stendur síðan
til að útvíkka vöruúrvalið hjá
rammasamningsbirgjum auk þess
sem aðrir birgjar og þjónustuaðilar
munu smám saman geta nýtt sér
þessa nýju leið til að koma sinni
vöru og þjónustu á framfæri, þegar
torgið kemst í almenna notkun,“
segir í fréttatilkynningu.
Samstarf
um mark-
aðstorg
Rafrænar pantanir
beint í sölukerfi
Morgunblaðið/Ásdís
Kampakátir Júlíus, Árni og Hörður
handsala samninginn í gær.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur
staðfest að Íslendingur hafi verið
handtekinn í Brasilíu vegna fíkni-
efnamáls, en Pétur Ásgeirsson skrif-
stofustjóri tjáir sig ekki frekar.
Þetta er þriðji Íslendingurinn sem
handtekinn er þar vegna fíkniefna-
máls. Sl. sumar var Íslendingur tek-
inn þar með 2 kg af kókaíni og hafði
ráðuneytið milligöngu um að mann-
inum yrði útvegaður lögmaður í
ágúst 2006. Á sama tíma sat annar
Íslendingur í fangelsi í Brasilíu eftir
að hafa reynt að smygla rúmum 12
kg af hassi og 4 e-töflum inn í landið.
Þrír fangels-
aðir í Brasilíu
PORTÚGALSKI
starfsmaðurinn
sem lést eftir fall
í stöðvarhúsi
Kárahnjúka-
virkjunar í
Fljótsdal síðast-
liðinn mánudag
hét Fernando
Teixera de Oli-
veira. Hann fæddist 28. september
1956. Fernando Teixera de Oliveira
hafði starfað á Íslandi frá því í sept-
ember á síðasta ári. Hann var
kvæntur og lætur eftir sig tvö upp-
komin börn.
Lést af
slysförum