Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 9
FRÉTTIR
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.se
Lokað í dag
Útsalan hefst á morgun
Mjódd, sími 557 5900
Erum fluttar að Álfabakka14
20% afsláttur í tilefni flutninga
Útrýmingarsala á gamla staðnum
Kr. 500,- 1.000,- 1.500,- og 2.000,-
Verið velkomnar
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 3533.
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16.
Jakkadagar
25% afsláttur
Gæði og glæsileikiSkeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Erum að taka upp
nýjar vörur frá
30%
sólskinsafsláttur af
völdum vörum
ÚTSALAN
HEFST Á
MORGUN
30-60%
AFSLÁTTUR
EKKI MISSA AF!
Kringlan - Smáralindmeðgöngufatnaður
530 1800
31.700.000
129,5 fm. 5 herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á
800 fm. lóð á einstökum stað í Garðabænum.
Reynir og Laufey taka á móti gestum
Borgarás 10 - 210 Gbæ
Opið hús í dag frá kl. 17-19
Nýbýlavegi 12, Kóp. • Sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18,
laugard. kl. 10-16
Buxnadagar
SIGURÐUR Helgi Guðjónsson, hrl.
og formaður Húseigendafélagsins,
segir að félagið fái oft fyrirspurnir
frá forsvarsmönnum húsfélaga
vegna alvarlegra brota eigenda eða
íbúa. Fólki sé
haldið í helgreip-
um ótta, það þori
ekki að fara, geti
ekki selt, þori
ekki að vera og
þori ekki að
kvarta. Dæmi
séu um líkams-
meiðingar og
þaðan af verra,
rífi fólk kjaft, og
þannig haldi of-
beldislið öðrum í gíslingu. Við þetta
eigi samt ekki að una, því ástandið
versni sé endalaust gefið eftir og
þagað. „Það borgar sig að taka
stríðið og treysta á samtakamátt-
inn,“ segir hann og leggur áherslu á
mikilvægi þess að kæra þá brot-
legu.
Lögin skýr
Samkvæmt lögum um fjöleign-
arhús getur húsfélag lagt bann við
búsetu eiganda, annarra íbúa eða
afnotahafa og dvöl þeirra í húsinu
vegna grófra eða ítrekaðra brota á
skyldum sínum gagnvart húsfélag-
inu eða eigendum, gert honum eða
þeim að flytja og krafist þess að
viðkomandi selji íbúð sína í húsinu.
Í Morgunblaðinu í gær kemur
fram í viðtali við konu, sem beitt
var miklu og langvarandi ofbeldi á
heimili sínu, að hún hafi alltaf von-
að að nágranni kæmi til hjálpar
með því að gera lögreglu viðvart,
en hvorki lögreglumaður, sem búið
hafi á næstu hæð fyrir neðan, né
aðrir nágrannar hafi brugðist við
hávaðanum.
Sigurður Helgi Guðjónsson bend-
ir á að aðkoma lögreglu að svona
málum sé fyrst og fremst á grund-
velli lögreglusamþykktarinnar sem
segi að ekki megi raska svefnró
manna. Þegar eigendur brjóti á
öðrum íbúum sé um einkaréttarmál
að ræða og því ekki lögreglumál í
sjálfu sér nema svefnró sé jafn-
framt raskað. Hins vegar sé það
ekki einkamál hins brotlega komi
lögreglan margsinnis á sólarhring í
sama hús og slasað, nauðgað og lát-
ið fólk sé borið út, því það hafi þýð-
ingu fyrir rétt allra eigenda. Samt
sem áður fjarlægist fólk nágranna
sína æ meir og það vilji ekki flækj-
ast inn í eitthvað. Firringin, sem
geri það að verkum að fólk gangi
framhjá slösuðu fólki úti á götu, sé
komin inn í húsin. Tillitssemin og
umburðarlyndið sé á undanhaldi.
Eftirgjöf og
þögn skaða
íbúa frekar
Sigurður Helgi
Guðjónsson
♦♦♦
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann í 5 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að bíta
lögreglukonu í lærið þegar verið
var að flytja hann í lögreglubíl utan
við skemmtistað í Hafnarfirði í
október sl. Lögreglukonan fékk
marblett á lærið.
Í dómnum segir, að maðurinn
hafi í sjálfu sér ekki neitað því að
hann hafi bitið konuna en telji það
ólíklegt og að það hafi þá gerst í
hita leiksins og óvart. Dómurinn
segir þó ekki varhugavert að telja
sannað að maðurinn hafi gerst sek-
ur um þessa háttsemi og vísar m.a.
til staðfasts framburðar lögreglu-
konunnar.
Maðurinn fékk skilorðsbundinn
fangelsisdóm fyrir tvær líkamsárás-
ir á síðasta ári og rauf hann það
skilorð með brotinu gegn lögreglu-
konunni.
Beit lög-
reglukonu
í lærið