Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 25 NETGREINAR Einangrun á veggi, loft, sökkul og undir plötu Takkamottur fyrir hitalögn í gólfi G Æ ÐA EINANG R U NÍS L E N S K F R AM LE IÐ S L A Góður styrkur • frábær einangrun EINANGRUNARPLAST OG TAKKAMOTTUR Afgreitt beint frá framleiðanda! Völuteigur 31, 270 Mosfellsbær, sími 561 2211, fax 561 4185, borgarplast@borgarplast.is Pöntunarsími 561 2254 Erum flutt í Mosfellsbæ Vottað gæðakerfi síðan 1993 VO TT A Ð U M H VE RFISSTJÓRN U N A R K ERFI Vottað umhverfisstjórnunarkerfi síðan 1999 Sérsmíði Fráveitubrunnar og sandföng Rotþrær, olíu- og fituskiljur Vegatálmar Jarðgerðarílát H N O T S K Ó G U R g r a fí s k h ö n n u n Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Fuerteventura 3. eða 10. júlí frá kr. 34.990 Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Fuerteventura þann 3. júlí í viku eða 10. júlí í 2 vikur. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á vinsæla sumarleyfis- stað. Verð kr. 34.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 viku. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 2 vikur. Verð kr. 44.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í 1 viku. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í 2 vikur. Þorsteinn Vilhjálmsson | 28. júní Veit þorskurinn eftir hvaða kerfi hann er veiddur? LESANDANUM kann að þykja þessi spurning undarleg en engu að síður virðist sem svarið við henni sé óljóst í hugum margra stjórnmála- manna og annarra sem tjá sig um þessi mál. Þeir éta nú hver eftir öðr- um að lélegt ástand fiskistofnanna sé fisk- veiðistjórnunarkerfinu að kenna. En auðvitað hefur þorskurinn enga hugmynd um skjöl og mannasetningar sem ákvarða hvernig mennirnir bera sig að við að veiða fisk. Meira: thorsteinnvilhjalmasson.blog.is UNGUR fiskifræðingur á Hafró, Guðmundur Þórðarson, ritar grein í Morgunblaðið þann 19. júní sl. um þróunarfræðileg áhrif veiða á eiginleika þorsks og vitnar í því sambandi í skrif höf- undar þessa pistils (JBj) um þau mál, en þau ná ein sjö ár til baka, einkum í Morg- unblaðinu, og eru þau skrif mörgum kunn. Guðmundur fjallar lauslega um ýmislegt og helst má skiljast, að eiginlega sé allt flókið varðandi þróunarbreyt- ingar þorsks og að erf- itt sé að draga nokkrar ályktanir. Hann vitnar í JBj og segir m.a.: „Af lesendabréfum Jónasar Bjarnasonar efnaverkfræðings um þróun- arfræðilegar breytingar má helst ætla, að hið alþjóðlega vísinda- samfélag sé sammála um að veiðar hafi stuðlað að „úrkynjun“ helstu þorskstofna og þá sérstaklega við Kanada.“ – Þetta er fjarri öllu lagi. JBj er fullkunnugt, að málin eru um- deild og hvergi er annað skrifað. Líf- fræði er ekki nákvæm vísindagrein og helstu kenningar hafa yfirleitt verið heiftarlega umdeildar í upp- hafi. Þróunarbreytingar eru „darw- inskar“, þ.e. sama eðlis og þróun- arbreytingar kenndar við helsta læriföður fræðigreinarinnar. Voru þær kenningar óum- deildar í upphafi? Guðmundur full- yrðir, að þorskur hafi hrunið við Kanada vegna ofveiði við óhag- stæð umhverfisskil- yrði. Vissulega voru slík skilyrði meðvirk- andi, en allir fróðustu vísindamenn um þessi mál halda því fram, að erfðabreytingar hafi verið þar að verki auk annars. Það eru marg- ar vísbendingar um það, mjög lækkaður kynþroskaald- ur, óeðlilega mikill náttúrulegur dauði og lélegir vaxtareiginleikar. Svo reynir Guðmundur að gogga í grundvöll umræðunnar um þróun- arbreytingar með því að vitna í ný skrif Richard Law við Háskólann í York og ræðir um nokkuð harða gagnrýni. JBj hefur skoðað það efni, sem komið hefur frá þessum fræði- manni, en kannast hreint ekki við það að hann sé að draga í efa mál- flutning um þróunarbreytingar í þorski með veiðum. Guðmundur verður að lesa betur það efni, sem hann vitnar til. Helst má ætla, að Guðmundur vilji bíta sig í kröfur um að sýni til rann- sókna séu tekin með það fyrir aug- um, að rannsaka þróunarbreytingar. Það er ekki ofmælt að segja það erf- itt. Menn hefðu semsagt átt að byrja að safna sýnum af þorski fyrir 30-40 árum. Svo vitnar hann í rannsóknir Hafró á kvörnum með það fyrir aug- um að rannsaka þróunarbreytingar og vitnar í því sambandi í DNA- rannsóknir. JBj hefur fyrirvara varðandi þetta. Í fyrsta lagi voru þau kvarnasýni ekkert tekin á sínum tíma með þessar rannsóknir í huga eða hvað? Svo eru DNA-mælingar ekki enn hæfar til þess að rannsaka þróunarbreytingar þótt þær megi nota til þess að greina undirstofna þorsks. – Svo vill JBj óska Guð- mundi velfarnaðar í rannsóknum sínum og að hann fái viðeigandi starfsaðstöðu á Hafró. Langtímaáhrif veiða á eiginleika þorsks Jónas Bjarnason svarar gagn- rýni Guðmundar Þórðarsonar á skrif Jónasar » Gagnrýninni er vísaðá bug og hann beð- inn að lesa efnið betur. Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur. NÚ er í umræðu hugsanleg landfyll- ing fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Nú hefur það komið fram í fréttum og verið haft eftir iðn- aðarráðherra að fyllingin sé bæði dýr og tæknilega erfið. Á nokkrum árum hefur Hafnarfjarðarbær látið gera stóra landfyllingu fyrir norðan Norðurgarðinn, ekki getur hún hafa verið dýr þar sem hún er sáralítið notuð. Séð á korti virðist þessi fyll- ing álíka að flatarmáli og álverslóðin. Utan hafnargarðsins í Straumi eru grynningar sem eru u.þ.b. 20 hekt- arar þar sem ekki þarf mikla fyll- ingu til að búa til land. Austan við grynningarnar er meðaldýpi um 11 metrar þannig að heildarþykkt fyll- ingar þarf að vera þar 17 metrar. Samkvæmt Jarðfræði Þorleifs Ein- arssonar á að vera jökulruðningur á botninum þarna fyrir utan, sem hægt er að dæla beint upp til að búa til land. Kostnaður við að búa til þetta land gæti orðið u.þ.b. 2000 milljónir en frá því myndi dragast það sem kostar að flytja Reykjanes- brautina og verðið á lóðinni ofan brautar sem ekki má byggja á álver. Stærstu sanddælur afkasta 5.000- 10.000 rúmmetrum á klukkutíma svo hægt er að dæla þessu landi upp á einu sumri. Aðalforstjóra ALCAN líst ekki á þetta, það getur ekki verið vegna kostnaðar, heldur þess að manninum líkar ekki að vera búinn að kaupa lóð sem svo er ekki leyfi- legt að nota. Hann treystir ekki Hafnfirðingum. Það er létt að tapa trausti en erfitt að vinna aftur, stundum ekki hægt. Ekki er leyfi- legt að leggja hömlur á atvinnufrelsi manna, stendur í stjórnarskránni. Menn úr Reykjavík, Kópavogi og öðrum nágrannasveitarfélögum Hafnarfjarðar hafa unnið við álverið frá upphafi og þess vegna er tæp- lega löglegt að Hafnfirðingar geti kosið verksmiðjuna austur í Þorláks- höfn eins og nú virðist vera að ger- ast. GESTUR GUNNARSSON, Flókagötu 8, Reykjavík. Landfylling Frá Gesti Gunnarssyni Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is                           

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.