Morgunblaðið - 27.06.2007, Page 33

Morgunblaðið - 27.06.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 33 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8-16.30 smíði/útskurður, kl. 10-11.30 heilsu- gæsla. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, almenn handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, hádegisverður, spiladagur brids/vist, kaffi. Upplýs- ingar í síma 535-2760. Bólstaðarhlíð 43 | Farin verður ferð á Hvammstanga fimmtudaginn 12. júlí kl. 12. Selasetrið skoðað. Kaffi- hlaðborð á Gauksmýri. Ef tími vinnst til verður farið út á Vatnsnes í tengslum við Selasetrið. Skráning og greiðsla eigi síðar en þriðjudaginn 10. júlí. Allir velkomnir. Uppl. í síma 535- 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30. S. 554-1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjá- bakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | 3 daga Vestmannaeyjaferð 2.-4. júlí. Skráningarlistar og nánari ferðalýsing í Gullsmára og Gjábakka. Gist á Hótel Þórshamri. Boðið upp á skoðunarferðir um Heimaey og á sjó umhverfis Heimaey. Brottför frá Gull- smára kl. 10 og Gjábakka kl. 10.15. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hróflar fara í létta göngu kl. 10. Fundur með fararstjóra vegna Austfjarðaferðar í dag, miðvikudag, kl. 14. Dagsferð í Landmannalaugar 7. júlí, skráning hafin. Uppl. í s. 588- 2111. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin og heitt á könnunni til kl. 16. Hádegisverður kl. 11.40. Fé- lagsvist kl. 13. Viðtalstími FEBK milli kl. 13 og 14. Bobb kl. 17. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 vefnaður og ganga, kl. 11.40 há- degisverður, kl. 13 kvennabrids og púttmót á vellinum vestan félags- heimilisins. Opið verður í sumar kl. 9- 15 alla virka daga, nema miðvikudag, þá kl. 9-16. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 8.30 leggur danshópur af stað til Keflavík- ur. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi spilasalur opinn. Á morgun kl. 10-12 leiðsögn á púttvelli við Breið- holtslaug umsj. Vinnuskóli Reykjavík- ur. Strætisvagnar S4, 12 og 17. S. 575-7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 opin vinnu- stofa, kl. 10.15 ganga, kl. 12 matur, kl. 13 brids, kl. 15 kaffi. 4. júlí. Ferð að Skógum, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjar- klaustri. Hádegisverður snæddur á Skógum.Verð 2.500 kr. Skráning á skrifstofu eða í síma 587-2888. Hraunsel | Píla kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Böðun fyrir hádegi. Há- degisverður kl. 11.30. Bingó kl. 13.30, 6 umferðir spilaðar, kaffi og meðlæti í hléi. Allir velkomnir. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Blöðin liggja frammi. Hæðargarður 31 | Gönguferðir, heit- ur kaffisopi á morgnana, félagsvist. Listasmiðjan opin. Tölvusveitin hittist reglulega, hádegismatur, síðdegis- kaffi, bridshópur. Leiðbeiningar í pútti í dag kl. 17-18. Uppl. í s. 568-3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Eva hjúkrunarfr. frá heilsugæslunni kl. 10. Verslunarferð í Bónus kl. 12. Hand- verks- og bókastofa kl. 13. Kaffiveit- ingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Kl. 14 félagsvist, kaffi verðlaun. Kl. 13 ganga. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-12 aðstoð v/ böðun. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunar- ferð í Bónus í Holtagörðum. Kl. 13-14 videó/spurt og spjallað. Kl. 14.30- 15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgunstund kl. 9.30, handa- vinnustofan opin, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opna allan dag- inn, verslunarferð kl. 12.30, söngur og dans kl. 14 við undirleik Vitatorgs- bandsins, allir velkomnir. Félagsmið- stöðin er opin öllum, á hvaða aldri sem er. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 ganga (Bergþór). Kl. 14 pútt (Bergþór). Kl. 15 kubb (Bergþór). Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkj- unni og eftir samkomulagi í síma 858-7282. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Morgunmessa í Hallgrímskirkju alla miðvikudags- morgna kl. 8. Hugleiðing, altaris- ganga. Einfaldur morgunverður í safnaðarsal eftir messuna. Háteigskirkja | Kvöld- og fyrirbænir í Háteigskirkju alla miðvikudaga kl. 18. Kristniboðssalurinn | Samkoma verður í Kristniboðssalnum Háaleitis- braut 58-60 í kvöld, 27. júní, kl. 20. „Fjötruðum boðuð lausn.“ Margrét Jóhannesdóttir talar. Fréttir frá Eþí- ópíu: Bjarni Gíslason. Kaffi eftir sam- komuna. Allir eru velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 10.30 heldur gönguhópurinn Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum. Fararstjóri er Örn Sigurgeirsson. Öllum er velkomið að koma og slást í hópinn. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldra- morgnar hvern miðvikudag í sumar, kl. 10-12.30. Gott tækifæri fyrir mömmur og börn að hittast og kynn- ast. Alltaf heitt á könnunni. dagbók Í dag er miðvikudagur 27. júní, 178. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Faðir, gjör mig nú dýrlegan hjá þér með þeirri dýrð, sem ég hafði hjá þér, áður en heimur var til. (Jh. 17, 5.) Íár eru liðin 85 ár frá stofnunHestamannafélagsins Fáks,elsta hestamannafélagslandsins. Bjarni Finnsson er formaður félagsins: „Félagið var stofnað árið 1922 til að gæta hags- muna hestamanna, m.a. með því að stuðla að lagningu góðra reiðvega,“ segir Bjarni. „Á þessum tíma var hestamennska að byrja að ná fót- festu sem íþrótt og tómstund hér á landi, og höfðu stofnendur félagsins mikinn áhuga á að efna til kappreiða. Kappreiðar Fáks sem fóru fram hverja hvítasunnu voru mikill við- burður og rak félagið veðbanka tengdan kappreiðunum. Er Fákur líklega í dag eina hestamannafélagið sem hefur leyfi til að stunda veðreið- ar, þó að slík keppni hafi fyrir löngu lagst af.“ Í dag stendur Fákur fyrir fjöl- breyttu starfi: „Barna- og unglinga- starfið er hvað fyrirferðarmest, og mjög góð aðsókn að reiðnámskeiðum Fáks fyrir unga sem aldna allan árs- ins hring. Við leggjum einnig ríka áherslu á mótshald og gæðingasýn- ingar og rekur félagið Reiðhöllina í Víðidal,“ segir Bjarni. „Eins og önn- ur hestafélög á landinu leggjum við okkur fram við að gæta hagsmuna hestamanna og eigum í uppbyggi- legum samskiptum við sveitarfélög um að hestaíþróttin þrífist vel innan höfuðborgarsvæðisins, að reiðstíg- um sé vel við haldið og ekki þrengt að starfseminni.“ Uppbygging og samstarf Bjarni segir reiðstígagerð bæði öryggis- og náttúruverndarmál: „Skipulagðar hestaferðir eru vel sóttar og sækja bæði fyrirtæki og einstaklingar í ferðir á vegum einka- aðila. Oft er um stóra hópa að ræða og þarf að gæta hvar er farið ef leið- in liggur um viðkvæmt land. Þá get- ur skipt sköpum að góðir reiðstígar séu til staðar.“ Bjarni segir starfsemi Fáks í miklum blóma og unnið að framtíð- aruppbyggingu félagsins til að svara sívaxandi vinsældum hestaíþrótta- rinnar : „Þetta er sport sem kallar bæði á mikla fyrirhöfn og kostnað, en veitir að sama skapi mikla ánægju. Vel tamið hross er einstök skepna og er ekkert frábærara en að þeysast um í náttúrunni á gæðingi,“ segir Bjarni að lokum. Heimasíða Hestamannafélagsins Fáks er á slóðinni www.fakur.is Útivist | Hestamannafélagið Fákur 85 ára í ár og starfsemin í blóma Virkt félag með langa sögu  Bjarni Finns- son fæddist í Reykjavík 1948. Hann útskrifaðist sem garðyrkju- fræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins 1968 og stundaði fram- haldsnám í Dan- mörku. Hann rak fjölskyldufyrir- tækið Blómaval í þrjá áratugi. Hann hefur setið í stjórn Fáks í fimm ár og verið formaður í þrjú ár. Bjarni er kvæntur Hildi Bald- ursdóttur verslunarmanni og eiga þau tvö börn og fjögur barnabörn. Tónlist Thorvaldsen Bar | The tiny thorvaldsen trio leikur djass á Thorvaldsen bar kl. 22. Tríóið skipa Jóhannes Þorleiksson á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Gunnar Hrafnsson á kontrabassa. Fyrirlestrar og fundir Geðhjálp | Túngata 7, Reykjavík. Fundir hjá sjálfshjálparhópi fólks með geðhvörf eru haldnir alla fimmtudaga kl. 21. Einstakl- ingar með geðhvörf eru hvattir til að mæta. Börn Elliðarárdalurinn | Í dag kl. 18 sýnir Leik- hópurinn Lotta barnaleikritið Dýrin í Hálsa- skógi í Elliðaárdalnum. Þar sem sýnt er utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja sér. Miðapantanir og upplýsingar eru í síma 699-3993 eða á www.123.is/- dyrinihalsaskogi. MJÖG heitt er nú í veðri víða um heim og ýmis góð ráð má nota til að kæla sig niður. Þessi palestínski drengur stingur sér til sunds í hitabylgjunni sem nú er í borginni Hebron á Vesturbakkanum. Kælir sig niður Reuters FRÉTTIR Allar nánari uppl. á skrifstofu Heimili fasteignasölu Síðumúla 13 • sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.-fös. frá kl. 9-17 Sími 530 6500 Síðumúla 13 Vesturholt - Hafnarfirði - einbýli Glæsilegt 213,8 fm einbýlishús á þrem- ur hæðum með innbyggðum bílskúr í pýramídastíl teiknað af Vífli Magnús- syni. Húsið stendur innst i botlanga í suðurhlíðum á holtinu í Hafnarfirði, rétt við golfvöllinn. Í húsinu eru 3 herbergi á aðalhæðinni auk 2ja herbergja íbúðar í kjallara með sérinngangi. Suðurás – raðhús Glæsilegt raðhús á einni hæð með inn- byggðum bílskúr. Rúmgott svefnher- bergi með skápum. Gott barnaher- bergi. Þvottahús. Baðherbergi með flís- um á gólfi og veggjum, innréttingu, sturtuklefa og þakglugga. Björt stofa og stúdíóeldhús með útgengi á verönd. Stanislav teiknaði veröndina fyrir framan og aftan húsið. Allt gólfefni er parket. Bílskúrinn er flísalagður með millilofti. Breiðavík - 2ja herbergja Nýleg fullbúin og vandlega innréttuð 2ja herbergja 68 fm íbúð með sérinn- gangi að norðanverðu og afgirtan sér- garð að sunnanverðu. Vandaðar inn- réttingar og gólfefni. Verð 19,5 millj. Áhv. 17,3 millj. frá Glitni. Brattakinn - Hafnarfirði - einbýli Gott 160 fm einbýlishús með 30 fm sérstandandi bílskúr. Nýleg gólfefni og innréttingar, nýlegar raf-, vatns- og skólplagnir. Skjólgóður bakgarður í suður, timburverönd. Gott sérbýli á rólegum fjölskyldustað. Áhvílandi 24,0 millj. frá KB með 4,15% vöxtum. Hólmgarður - stór efri sérhæð við Fossvoginn Falleg mikið endurbætt 140 fm efri sérhæð. Stór garður í góðri rækt. Hellulagðar upphitaðar stéttir og suður- svalir með góðu útsýni. Þrjú stór svefnherbergi, tvær stofur og tvö bað- herbergi. Góð eign á rólegum og vin- sælum stað. Verð 36,0 millj. Sandavað - 4ra herbergja Sérlega vönduð um 100 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Glæsileg gólfefni og vandaðar innréttingar. Þrjú rúm- góð herbergi og björt stofa með fallegu út- sýni. Stórar svalir. Stæði í bílageymslu fylgir. Verð 27 millj. Bogi Pétursson lögg. fasteignasali ÍSMÓT 2007, Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gull- smiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins, fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1. og 2. septem- ber. Í fréttatilkynningu segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sameiginlegt mót þessara greina er haldið og verður það án efa stærsta mót sinn- ar tegundar hér á landi á þessu sviði. Meðal keppnisgreina er hár- snyrting, litun, klipping, snyrting, förðun, skartgripasmíði, klæð- skurður, kjólasaumur, auglýsinga- og iðnaðarljósmyndun og portrett- myndataka svo dæmi séu tekin. Einnig verður hönnunar- og tísku- sýning, fyrirlestrar, námskeið og sýningar. Samhliða mótinu verður haldin sölusýning þar sem fyrirtækjum, félögum og stofnunum er boðið að kynna vörur sínar og þjónustu. Boðið verður upp á fræðslu og fyr- irlestra á ÍSMÓTI og m.a. munu er- lendir sérfræðingar í hárgreiðslu, Joakim Ross, Michael Cole og Rudy Mostada, halda fyrirlestra og sýn- ingar. Að ÍSMÓTI 2007 standa Samtök iðnaðarins, Meistarafélag í hár- greiðslu, Félag íslenskra snyrti- fræðinga, Klæðskera- og kjóla- meistarafélagið, Félag íslenskra gullsmiða og Ljósmyndarafélag Ís- lands. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.si.is/ismot. Meistaramót iðngreina í haust GÖNGUFERÐ á Helgafell í Mos- fellsbæ verður laugardaginn 30. júní og verður lagt af stað frá Ásum norðan við fjallið kl. 10. Meðal annars verða skoðuð stríðsmannvirki og gömul gull- náma. Gangan tekur um tvær til þrjár klukkustundir. Leiðsögu- maður verður Magnús Guðmunds- son sagnfræðingur. Allir eru velkomnir, ekkert þátt- tökugjald. Laugardagsganga á Helgafell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.