Morgunblaðið - 27.06.2007, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Gengið gegn hraðakstri
Milli 4.000 og 5.000 manns gengu í
gær Landspítala á milli í Reykjavík
til þess að minna á hættuna af ölv-
unar- og hraðakstri. Var þátttakan
mun meiri en skipuleggjendur höfðu
vænst. Fjöldi manns tók líka þátt í
svipuðum göngum á Akureyri og á
Selfossi. »Forsíða
Aðstoða þarf byggðir
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra segir að rík-
isvaldið verði að bregðast við sam-
drætti í þorskveiðum með því að
aðstoða þær byggðir sem háðastar
eru þorskveiðum. Hagfræðistofnun
HÍ telur áhrif niðurskurðarins verða
mest á Vestfjörðum. »Forsíða
Hjörtur Magni sýknaður
Í úrskurði siðanefndar Presta-
félagsins, sem sýknaði Hjört Magna
Jóhannsson Fríkirkjuprest, kemur
fram að ummæli hans um þjóðkirkj-
una, sem tiltekin eru í kæru nokk-
urra presta, snúi fyrst og fremst að
skoðunum kærða. Hvergi sé spjót-
um beint að tilgreindum ein-
staklingum. »2
Óveður í Englandi
Gífurlegar rigningar og flóð í Mið-
og Norður-Englandi auk Wales síð-
ustu daga hafa valdið manntjóni og
þúsundir manna hafa orðið að yf-
irgefa heimili sín. »14
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Stuðningur við
Hafró | Almenningssamgöngur á
villigötum?
Staksteinar: Blaðið tekur breytingum
Viðhorf: Hlýðnir Íslendingar
Ljósvaki: Má kalla sjónvarpið …?
UMRÆÐAN»
Netlögreglan hindrar kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum
Langtímaáhrif veiða á eiginleika …
Landfylling
.
!7$ -
* !
8
/"
/"
/"
/ / / / /
/
/ /""
/ / / /"
/
,
9(5 $
/ / / / /
/ /
/ :;11<=>
$?@=1>A8$BCA:
9<A<:<:;11<=>
:DA$99=EA<
A;=$99=EA<
$FA$99=EA<
$6>$$AG=<A9>
H<B<A$9?H@A
$:=
@6=<
8@A8>$6*$>?<1<
Heitast 15°C | Kaldast 5°C
Norðaustan strekk-
ingur og bjartviðri
vestan til, en dálítil
rigning eða skúrir
austan til. » 10
Anna Jóa segir
mikla grósku í lista-
lífi Akureyrarbæjar,
ekki síst vegna
starfsemi Mynd-
listaskólans þar. »38
AF LISTUM »
Blómlegt á
Akureyri
FÓLK»
Tiger Woods sýnir
frumburðinn. »39
Í heimi reyfarans
eru engir gráir tón-
ar, allt er svart eða
hvítt. Hetjurnar al-
vondar og konurnar
hjálparvana. »40
BÆKUR»
Heimur
reyfarans
LJÓSMYNDIR»
Páll Stefánsson myndaði
í Afríku. »36
KVIKMYNDIR»
John McClaine er mætt-
ur í kvikmyndahús. »41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Lét öll laun sín renna til …
2. Aniston segir Sculfor betri …
3. Björk býður Britney til Íslands
4. Sagði kynlífið skyldu
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
MAGNI Hjaltason, litli drengurinn
sem naumlega var bjargað frá
drukknun í Sundlaug Akureyrar í
fyrradag, var við hestaheilsu og fékk
að fara heim af Fjórðungssjúkrahús-
inu í gær. Hann var dasaður en ótrú-
lega sprækur þegar Morgunblaðið
heimsótti fjölskyldu hans.
„Magni var á vappi í kringum okk-
ur en hvarf allt í einu,“ sagði Anita
Júlíusdóttir, móðir Magna. Hún seg-
ir soninn jafnan leika sér í heitu pott-
unum og busllauginni, en aldrei hafa
viljað fara ofan í sundlaugina sjálfa.
Virtist heil eilífð
Magni hefur einhverra hluta
vegna tekið af sér armkútana, lík-
lega tekið á sprett á bakkanum og
runnið til. Hann lenti í lauginni og
náði ekki til botns. Svo heppilega
vildi til að fólk, þaulæft í björgunar-
störfum, var nýkomið ofan í laugina,
sá drenginn og blés í hann lífi.
„Þetta er algjört kraftaverk. Hann
var alveg lífvana á bakkanum; það
var hryllileg sjón og alveg stimpluð í
mig,“ sagði Anita í gær. „Það var erf-
itt að horfa á fólkið hamast við að
lífga barnið við; nokkrar sekúndur
virtust sem eilífð,“ sagði hún.
Það fyrsta sem Magni bað
mömmu sína um í gærmorgun þegar
hann vaknaði, og sá að klukkan var
orðin sjö, var að senda sms á leik-
skólann og tilkynna að hann kæmist
ekki þangað! | 18
„Þetta er kraftaverk“
Drengurinn sem var nærri drukknaður á Akureyri er kominn heim til sín
Vildi byrja á því í gærmorgun að láta vita að hann kæmist ekki í leikskólann
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glatt á hjalla Magni Hjaltason, lengst til vinstri, var skiljanlega dasaður en samt ótrúlega hress eftir að hann kom
heim til sín af sjúkrahúsinu í gær. Eldri bræður hans, Torfi og Gestur, tóku Magna að sjálfsögðu fagnandi.
NÚ standa yfir byggingaframkvæmdir við
Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi. Íbúðirnar 26
sem nú er byrjað á verða í þriggja hæða fjölbýlis-
húsi, en Íslenskir aðalverktakar (ÍAV), sem sjá
um framkvæmdina, hyggjast reisa þrjú fjölbýlis-
hús við Hrólfsskálamelinn með um 80 íbúðum.
Þegar er farið að selja íbúðirnar en stefnt er að
því að þær verði með þeim glæsilegustu á mark-
aði.
Lágmarksverð á íbúð er á bilinu 42,1 til 132
milljónir kr. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar 21.
nóvember á næsta ári.
Meðal fermetraverð verður tæplega 500 þús-
und kr., sé miðað við lágmarksverð, og segir Eyj-
ólfur Gunnarsson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðsdeildar ÍAV, íbúðirnar einstaklega íburð-
armiklar. „Lítið hefur verið byggt á Seltjarn-
arnesinu í langan tíma og við stefnum á að gæða-
stig íbúðanna verði með því hæsta sem þekkist á
markaðnum.“ Hann segir marga hafa sýnt íbúð-
unum áhuga. Sérstaklega áhugasamir séu margir
á Seltjarnarnesinu sjálfu sem eru í sérbýli og vilja
minnka við sig. „Síðan er Seltjarnarnesið einfald-
lega eftirsóknarverður staður til að búa á,“ segir
Eyjólfur.
Glæsiíbúðir rísa á Nesinu
Lúxus Þegar er farið að selja hluta þeirra íbúða
sem ÍAV hyggjast reisa á Hrólfsskálamel.
Margir hafa sýnt íbúðunum áhuga Meðal fermetraverð
tæplega 500 þúsund kr. Gæði í hæsta flokki
SÉRSVEITARMENN á vakt hjá lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins þurftu í gærkvöldi að grípa til
táragass til að yfirbuga 16 ára ungling sem ógnaði
fólki í heimahúsi með hnífi.
Lögreglunni barst tilkynning um drenginn á
tólfta tímanum í gærkvöldi en eins og venjan er
þegar vopnaðir einstaklingar eiga í hlut fóru sér-
sveitarmenn á vettvang. Lét drengurinn sér ekki
segjast og sóttu því sérsveitarmenn að honum
með táragasi og úðuðu framan í hann.
Drengurinn hefur margoft komið við sögu lög-
reglu en ekki liggur fyrir hvað olli því að hann hóf
að veifa hnífnum. Þegar rætt var við lögreglu í
gærkvöldi var verið að skola úr augum drengsins
á slysadeild en því næst stóð til að fara með hann á
lögreglustöð.
Sérsveitarmenn
yfirbuguðu
16 ára dreng
með táragasi