Morgunblaðið - 30.06.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 30.06.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 33 MINNINGAR ✝ Guðlaug Einars-dóttir fæddist í Reykjavík 9. maí 1915. Hún lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvols- velli 24. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Einar Runólfsson húsa- smiður í Reykjavík, f. 19.5. 1879, d. 1.12. 1961, og Guðlaug Einarsdóttir, f. 29.11. 1880, d. 18.5. 1915. Þegar móðir hennar dó kom föðursystir henn- ar, Anna Runólfsdóttir, f. 12.7. 1886, d. 21.5. 1963, og gekk börn- unum í móðurstað og fluttist síðan með Guðlaugu í Fljótshlíðina og var hjá henni til æviloka. Systkini Guðlaugar voru: Einar, f. 1908, d. 1991, Ingólfur, f. 1910, d. 1969, og Katrín, f. 1912, d. 1994. Árið 1937 giftist Guðlaug Sæ- mundi Úlfarssyni, f. 27.8. 1905, d. 16.2. 1982. Foreldrar hans voru Guðlaug Brynjólfsdóttir og Úlfar Jónsson, bændur í Fljótsdal í Fljótshlíð. Dætur Guðlaugar og Sæmundar eru: 1) Anna Sigurveig, gift Sæmundi Árnasyni. 2) Guð- laug, gift Yngva Þorsteinssyni. 3) Ingibjörg, gift Sig- urði Sigurþórssyni. 4) Aðalheiður. 5) Ás- dís, gift Gunnlaugi Jóni Karlssyni, d. 1990,hún var gefin í fóstur til Aðalheiðar Kjartansdóttur og Magnúsar Árnason- ar í Reykjavík. 6) Elín Kristín, gift Einari Þór Árna- syni. 7) Eyrún Ósk, gift Guðfinni Guð- mannssyni. Barna- börnin eru 21. Barnabarnabörnin eru 36. Barna- barnabarnabörnin eru 6. Guðlaug ólst upp í Reykjavík. Guðlaug og Sæmundur hófu bú- skap sinn í Fljótsdal eftir að þau giftu sig, þar bjuggu þau til ársins 1946, þegar þau fluttu sig til í Fljótshlíðinni og færðu sig nær barnaskóla og keyptu Heylæk, því elstu dæturnar voru komnar á skólaaldur. Þar bjuggu þau til árs- ins 1975 en þá brugðu þau búi og fluttust á Hvolsvöll. Árið 1985 fór Guðlaug á Dvalarheimilið Kirkju- hvol og bjó þar til dauðadags. Útför Guðlaugar verður gerð frá Hlíðarendakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Í dag kveðjum við hinstu kveðju móður okkar, Guðlaugu Einarsdótt- ur. Hún kvaddi lífið í sólskini og fal- legu veðri að morgni Jónsmessu. Mamma var ávallt jákvæð, glöð og þakklát. Þakklát fyrir góða og langa ævi. Ánægð með sína stóru fjöl- skyldu; sjö dætur, tengdasyni, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Að ógleymd- um þeim börnum og unglingum sem dvöldu sumarlangt eða í annan tíma, hún hugsaði til þeirra með hlýhug. Hún var líka vel gift eins og hún sagði sjálf, enda voru foreldrar okkar einstaklega samhent í lífinu. Söknuð- ur hennar hefur verið mikill þegar pabbi dó fyrir 25 árum, en samt sá hún ávallt bjartar hliðar lífsins. Einn- ig var hún þakklát öllum sem hugs- uðu um hana og til hennar síðustu ár- in. Við fjölskyldan viljum þakka öllu því góða fólki sem annaðist hana af alúð. Hvíl í friði, móðir kær, þínar dætur. Ástkær tengdamóðir mín lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli 24. júní eftir stutt veikindi, Guðlaug var 92 ára þegar hún lést. Ég kynntist henni fyrir rúmum 20 árum er ég hóf sam- búð með Eyrúnu, dóttur hennar. Guðlaug var alveg einstök kona, allt- af hress og kát, sérskaklega blíðlynd, jákvæð og talaði alltaf vel um allt það fólk sem hún hafði kynnst á langri ævi. Það hljóta að hafa verið mikil umskipti fyrir 22 ára stúlku úr Reykjavík að hefja búskap austur í Fljótsdal í Fljótshlíð, sem er innsti bær í hlíðinni, það var ekki bílvegur alla leið inn að Fljótsdal. En þar höfðu þau samt rafmagn úr heim- arafstöð. Rafmagn var ekki algengt á sveitabæjum þá. Fljótlega byggðu ungu hjónin sér nýtt steinhús. Þar bjuggu þau í nokkur ár og þar fædd- ust þeim fyrstu fimm dæturnar. En er komið var að því að elstu dæturnar voru komnar á barnaskólaaldur fluttu þau sig framar í Fljótshlíðina og hófu búskap á Heylæk. Þar fædd- ust svo tvær dætur í viðbót. Voru þá dæturnar orðnar sjö. Þegar Guðlaug og Sæmundur seldu Heylækinn og fluttu á Hvolsvöll 1975 starfaði Sæ- mundur í pakkhúsinu og var hans að- alstarf að afgreiða byggingarefni. Þá var hafinn mikill uppgangur í bygg- ingum á Hvolsvelli. Kynntist ég þá Sæmundi vel og áttum við oft ágætis spjall saman. Sæmundur lést 1982. Árið 1985 fluttist Guðlaug á Dvalar- heimilið Kirkjuhvol. Guðlaug hafði mjög gaman af því að ferðast. Alltaf var hún til í að fara í sumarbústað- arferðir á hina ýmsu staði með okkur Eyrúnu og börnunum ásamt fleirum af hennar afkomendum og var þá oft glatt á hjalla. Stundum var farið í úti- legu á Klaustur og gisti Guðlaug þá hjá nöfnu sinni og frænku. Enda voru þær ávallt miklar vinkonur.Guðlaug hafði mikla unun af músík og spilaði alla tíð á orgel og sá oft um undirspil, bæði á fjölskyldumótum og eins á Kirkjuhvoli við ýmis tækifæri. Nýj- asta orgelið eignaðist hún á níutíu ára afmæli sínu og var það nokkuð frábrugðið fyrsta orgelinu sem hún eignaðist ung að árum. Enda var Guðlaug mikið tækjafrík eins og barnabörnin orðuðu það, um ömmu sína. Enda átti hún ávallt auðvelt með að tileinka sér allar nýjungar. Mínar einlægu þakkir fyrir allt. Hvíl í friði. Guðfinnur Guðmannsson. Elsku amma Lauga, ég veit að þú ert nú komin á góðan stað og kveð ég þig með söknuði. Ég man svo vel eftir því þegar ég var lítill strákur og kom í heimsókn til þín og afa. Hvað það var gott að vera hjá ykkur, þegar við afi fórum saman út að keyra í holur, ekki veit ég hvor skemmti sér betur ég eða afi og þegar að það var rigning var aðalfjörið að láta pollana skvett- ast sem lengst og við skemmtum okkur konunglega. Þegar ég var að byrja í skóla fannst mér alltaf best að koma til þín, amma og lesa og skrifa því þú hafðir svo gott lag á því að láta þessi leið- inlegu heimaverkefni vera skemmti- leg. Svo var það ein jólin sem við mamma vorum hjá ykkur og ég fékk litla plastbílabraut í jólagjöf og hvað við afi lékum okkur mikið með bíla- brautina um jólin. Minning þín hvílir í mínu hjarta, elsku amma. Úlfar Þór. Elsku besta amma mín, þá er kom- ið að kveðjustund. Undanfarnir dag- ar hafa verið erfiðir, því söknuðurinn er mikill. En ég hugga mig við það að nú líður þér betur, og núna ertu kom- in til afa Sæma. Eftir öll þessi ár eruð þið aftur saman á ný. Ég á margar góðar og ómetanleg- ar minningar. Minningar sem ég mun varðveita alla mína ævi. Það var alltaf svo gaman og gott að koma í heimsókn til þín. Þú tókst allt- af á móti mér með opnum örmum, og umvafðir mig með ást og hlýju. Ég er heppin að hafa átt þig sem ömmu. Þú hafðir mikil áhrif á líf mitt. Þú fylgdist alltaf vel með því sem ég gerði, og varst alltaf að hvetja mig til að vera dugleg að teikna, því að ég væri með svo mikla hæfileika. Þú varst manneskja sem maður tekur sér til fyrirmyndar. Þú varst svo góð og heiðarleg. Það kemst eng- in nálægt því að vera jafn góð og fal- leg og þú. Elsku amma takk fyrir allt og allar góður stundirnar sem við áttum sam- an. Þú munt alltaf eiga stóran sess í hjarta mínu. Ég mun varðveita minn- ingu þína alla ævi. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín ömmustelpa Anna Þorsteinsdóttir. Elsku amma Lauga, nú hefur þú fengið hvíldina. Við sitjum eftir með söknuð í hjarta en um leið og við fell- um sorgartár þá gleðjumst við og huggum okkur við minningar um bestu ömmu í heimi. Gulla minnist margs frá árunum á Heylæk, þar fengu krakkarnir að taka þátt í öllum sveitastörfunum en einnig var nægur tími til þess að fara í búleik, leika í gamla fjósinu og fá að fara á hestbak á Nasa gamla. Það var alltaf nóg pláss í sveitinni fyrir alla og alltaf jafn vinsælt þegar amma las sögurnar um börnin í Ólátagarði. Á Hvolsveginum var enn lesið úr bókinni um börnin í Ólátagarði sem og úr öðrum góðum bókum. Þaðan eigum við allar góðar minningar. Eitt af því sem við tókum þátt í með ömmu var að færa afa morgunmat í rúmið. Amma stjanaði við hann á all- an hátt, hún rakaði til dæmis af hon- um skeggið og snyrti á honum negl- urnar. Rauðsokkur nútímans myndu sjálfsagt súpa hveljur en ömmu og afa virtist alltaf líða vel saman, þau voru svo ánægð hvort með annað. Hjá ömmu og afa var oftar en ekki hægt að fá ís eða annað góðgæti á appelsínugulu diskana sem við krakkarnir notuðum hjá þeim. Heima hjá ömmu mátti líka týna rifs- berin af trjánum og meira að segja borða þau inni. Heimili þeirra var á þessum árum aðalsamkomustaður stórfjölskyldunnar og mikið var oft glatt á hjalla, gamla orgelið var þan- ið, græni sófinn nýttur sem trampól- ín, garðurinn ævintýraland, sögu- bækur lesnar á hverju kvöldi og dótið í Tótubúð ótrúlega skemmtilegt. Oft- ar en ekki var tekið í spil og þá var al- veg merkilegt hvað maður var hepp- inn, amma tapaði næstum alltaf. Amma var gestrisin fram á síðasta dag, alltaf voru kökur eða nammi á borðum og þegar hún bauð var „Nei, takk“ ekki tekið gilt. Hún amma var sérstaklega vel með á nótunum og fylgdist alltaf vel með öllu sem var að gerast í þjóðfélaginu og ekki síður hvað var að gerast hjá öllum í fjöl- skyldunni. Það var einstaklega gam- an að koma til ömmu og heyra sögur úr hennar lífi en ekki hafði hún minni áhuga á því að heyra hvað var að ger- ast hjá okkur. Í dag kveðjum við konu sem var gull af manni, hver sem var svo hepp- inn að kynnast þér dáðist að þér og dugnaði þínum. Það var svo gott að fá tækifæri til að kveðja þig og vera bú- in að heyra þig tala um að þú værir svo sátt við guð og menn. Þú dáðist að hópnum þínum, dætrum þínum sem eru hver annarri yndislegri, barnabörnum, barnabarnabörnum og fjölskyldum þeirra. Þú skildir ekkert í því hvers vegna í ósköpunum þú fengir að lifa svona lengi, þó sökn- uðurinn sé mikill þá er samt svo góð tilfinning í hjörtum okkar. Minning- arnar lifa áfram með okkur og ef við þekkjum þig rétt þá vakir þú nú yfir hópnum þínum og dáist að honum. Þú fékkst að deyja heima í faðmi fjöl- skyldunnar eins og þú vildir, sátt við að fara og nú tekur afi á móti þér eft- ir öll þessi ár. Við biðjum algóðan guð að blessa þig og minningu þína, biðjum hann að styrkja okkur öll og gefa að nú líði þér vel. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Þínar ömmustelpur Elín, Þorbjörg og Guðlaug Yngvadætur og fjölskyldur. Við eigum margar minningar um langömmu og allar eru þær góðar. Frá því að við munum eftir okkur var hún alltaf hluti af tilveru okkar. Hún hafði mikið að gefa þeim sem í kring- um hana voru, var svo hlý og barngóð með eindæmum. Alls þessa nutum við. Þannig munum við Guðlaugu lang- ömmu og sú fallega minning um góða konu mun lifa með okkur alla tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Langömmubörnin þín í Vest- mannaeyjum, Ingvar, Þorbjörg Júlía, Árni Þór og Aðalheiður Stella. Elsku langa amma mín. Nú ertu farin á betri stað og eftir skilur þú góðar minningar um þig og allt það sem þú hefur gert. Ég gleymi því aldrei þegar ég kom í heimsókn til þín og þú áttir alltaf nammi og gos í skápnum. Ég át nammið eins og ég gat í mig látið og alltaf gastu sett meira í skálina. Þú áttir hækjur sem mér fannst svo gaman að leika mér að. Þú leyfðir mér að fara fram á gang á elliheim- ilinu og leika mér þar á þeim en sagð- ir mér samt að passa mig á stiganum, ég gæti dottið. Þar lék ég mér tím- unum saman hoppandi og skoppandi á hækjunum. Þegar ég var orðin þreytt á að vera á hækjunum sett- umst við við píanóið og þú kenndir mér nokkur létt lög, spiluðum við þau fram og aftur. Þetta voru svo góðir tímar sem lifa núna aðeins í minning- unni. Ég mun ávallt elska þig og sakna þín svo mikið. Þín Kristrún Anna Óskarsdóttir. Elsku amma Lauga, ég veit að þú ert nú komin á góðan stað og kveð ég þig með söknuði. Ég man svo vel eftir því þegar ég var lítill strákur og kom í heimsókn til þín og afa. Hvað það var gott að vera hjá ykkur, þegar við afi fórum saman út að keyra í holur. Veit ég ekki hvor skemmti sér betur ég eða afi og þegar það var rigning var aðalfjörið að láta pollana skvett- ast sem lengst og við skemmtum okkur konunglega. Þegar ég var að byrja í skóla fannst mér alltaf best að koma til þín, amma, og lesa og skrifa því þú hafðir svo gott lag á því að láta þessi leið- inlegu heimaverkefni vera skemmti- leg. Svo var það ein jólin sem við mamma vorum hjá ykkur og ég fékk litla plastbílabraut í jólagjöf og hvað við afi lékum okkur mikið með bíla- brautina um jólin. Minning þín hvílir í mínu hjarta elsku amma. Úlfar Þór Gunnarsson. Elsku langamma, ég mun alltaf hugsa um þá gömlu og góðu daga sem við áttum saman. Þegar maður kom í heimsókn til þín var manni boð- ið upp á ís eða appelsín og alltaf var til kaka. Oft reyndi maður að spila á orgelið en maður verður aldrei eins góður og þú. Ég mun ávallt hugsa um þig og muna það hvað þú varst alltaf góð. Þú sagðir líka alltaf að ég væri alveg sérstakur fyrir þér. Hvíldu í friði. Magnús Yngvi Einarsson. Jörðin Heylækur í Fljótshlíð er vel í sveit sett, grösug og víðsýnt er í all- ar áttir. Þessir kostir urðu þó ekki til þess að fimm ára telpukorn úr Reykjavík vildi ekki fara í bæinn aft- ur eftir heimsókn að Heylæk. Það var svo gaman í sveitinni. Ég fékk að verða eftir og sú sumardvöl marg- faldaðist og varð að tíu sumrum. Ekki hefðu allir nennt að taka smá- krakka inná stórt heimili en kannski hafa þau Guðlaug og Sæmundur hugsað að það munaði ekki um eina stelpu í hópinn. Þau áttu barnaláni að fagna, sjö dætur. Eina þeirra höfðu foreldrar mínir að láni svo ég deildi í raun systur með systrunum frá Hey- læk og leið strax einsog einni úr hópnum. Þar áttu stelpurnar vissu- lega hlut að máli en ekki síst Lauga, sem var mér alltaf einsog önnur mamma. Guðlaug Einarsdóttir var fædd og uppalin í Reykjavík. Á kreppuárun- um lá leið fólks suður en þó kom fyrir að kaupakonurnar að sunnan yrðu eftir í sveitinni. Guðlaug hitti ástina sína fyrir austan, Sæmund Úlfars- son, og sá kærleikur entist meðan bæði lifðu. Þetta var ást af bestu sort; gagnkvæmur húmor, væntumþykja og umburðarlyndi. Þau hófu búskap í Fljótsdal og þar fæddust fimm elstu dæturnar. Það hljóta að hafa verið mikil viðbrigði frá bernskuheimilinu á Lindargötunni að setjast að á lítilli jörð úr alfaraleið. Störf sveitakvenna eru fjölbreytt en erfið og taka aldrei enda. Orða- sambandið „að tylla sér“ á vel við þær. Ég man ekki eftir að Lauga settist, hún tyllti sér, hvíldi olnbog- ann á borðbrúninni, fleygði sér smá- stund síðdegis þegar höfuðverkurinn var slæmur, en ég vissi aldrei hvar hún svaf á nóttunni. Kannski svaf hún ekki neitt. Samt var hún alltaf jafn léttstíg, kvik í hreyfingum og snör í snúningum hvort heldur þurfti að reka kýr eða vippa sér uppá koll eftir kindabyssunni, sem var vendi- lega falin í brúnum bréfpoka hjá brennivíninu efst í eldhússkápnum. Þangað sótti enginn neitt nema Lauga. Heimurinn væri tvímæla- laust betri ef fleiri vopn væru geymd í hirslum kvenna. Öll verk Guðlaugar voru samt laus við asa, þeim fylgdi ró og festa. Og þótt búið nyti dyggrar aðstoðar dætranna hafði ég alltaf á tilfinningunni að kúnum liði aldrei betur en þegar Lauga fór í fjósið. Í Guðlaugu runnu þær í eitt, sveitakonan og borgarstúlkan sem alla tíð blundaði undir niðri, amma hans Álfgríms í Brekkukoti og Aust- urstrætisdóttirin. Þær spiluðu á org- elið eftir að húsfreyjuamstri linnti, dáðust að fallegri flík eða handverki, og fylgdust vel með öllu innan fjöl- skyldu og utan, til dæmis pólitíkinni. Þar bar einn maður höfuð og herðar yfir hina; einhvern tíma meðan Vig- dís var forseti kom til tals hver gæti tekið við af henni. Ja, ég veit hvern ég vil sjá, sagði Lauga, Ólaf Ragnar Grímsson. Þetta var löngu áður en nafn hans var nefnt í almennri um- ræðu um forsetaval. Guðlaug Einarsdóttir var einstak- lega hlý manneskja, glaðlynd og já- kvæð. Kankvíst bros hennar náði ekki bara til augnanna heldur fyllti herbergið löngu eftir að hún gekk út, bros sem varðveitist vel í endurminn- ingunni. Hjá henni var gott að vera og lán mitt að fá að dvelja hjá svona góðu fólki öll þessi sumur á Heylæk. Ég sendi dætrunum og fjölskyld- um þeirra mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Guðrún Magnúsdóttir. Guðlaug Einarsdóttir Hjartkær sonur okkar, bróðir og mágur, GUNNAR LEÓ LEOSSON tónlistarmaður, Þjórsárgötu 3, Reykjavík, lést 20. júní. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir sendum við þeim sem stutt hafa okkur með hlýhug og ýmislegri aðstoð á þessum erfiðu tímamótum. Blóm og kransar afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Stef, Laufásvegi 40. Leo(nardus) J. W. Ingason, Guðrún Karlsdóttir, Karlotta María Leosdóttir, Hugues Pons.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.