Morgunblaðið - 30.06.2007, Page 34
34 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hansína ÁstaStefánsdóttir
fæddist á Selfossi 2.
desember 1949. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands
24. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Unnur Sigur-
steinsdóttir, f. 4.7.
1932, og Stefán
Jónsson járnsmiður,
f. 19.1. 1931. Hans-
ína var elst af sex
systkinum, en hin
eru: Jón Björgvin, f.
14.9. 1951, Gísli, f. 2.2. 1953, Sig-
mundur, f. 2.2. 1953, Dóra Sjöfn, f.
27.2. 1958, og Anna Björg, f. 15.9.
1966.
Hansína giftist 14.1. 1967 Gissuri
Jensen mjólkurfræðingi á Selfossi,
f. 12.1. 1944. Foreldrar hans voru
Róbert Georg Jensen mjólkurfræð-
ingur frá Álaborg í Danmörku, f.
Hamrahlíð 1982. Hún lauk námi í
rekstrar- og viðskiptagreinum frá
Endurmenntunarstofnun Háskóla
Íslands 1993. Hansína hafði nær
lokið námi við Kennaraháskóla Ís-
lands á vormánuðum 2003, þegar
hún varð að hætta námi vegna veik-
inda.
Hansína stundaði ýmis störf á
Selfossi áður en hún hóf starf sem
starfsmaður og síðan formaður
Verslunarmannafélags Árnessýslu,
sem hún sinnti til ársins 1998. Frá
1999 til 2002 fékkst Hansína við
kennslustörf á Eyrarbakka og Sel-
fossi samhliða námi sínu við Kenn-
araháskóla Íslands.
Hansína var alla tíð virk í félags-
málum, hún sat meðal annars í mið-
stjórn Alþýðusambands Íslands um
árabil, vann ýmis trúnaðarstörf fyr-
ir Alþýðubandalagið og síðar Sam-
fylkingarfélögin og einnig að ýms-
um velferðarmálum fyrir Selfoss og
Árborg, svo sem skólanefnd o.fl.
Hansína hafði mikinn áhuga á að
bæta mannlífið á Selfossi og átti
stóran þátt í því að koma á legg
sumarhátíðinni „Sumar á Selfossi“.
Útför Hansínu verður gerð frá
Selfosskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
16.8. 1910, d. 21.5.
1987, og Jóna Giss-
urardóttir frá Vot-
múla í Sandvíkur-
hreppi, f. 22.9. 1908,
d. 25.5. 1997. Synir
Hansínu Ástu og Giss-
urar eru: 1) Stefán
Róbert lyfjafræð-
ingur, f. 10.7. 1967,
kvæntur Sigrúnu Sig-
urðardóttur fram-
haldsskólakennara, f.
9.9. 1967, börn þeirra
eru Diðrik, f. 10.11.
1988, og Ásta Lilja, f.
18.6. 1995. 2) Axel Þór húsasmíða-
meistari, f. 11.3. 1974, kvæntur Ás-
dísi Björg Ingvarsdóttur, íþrótta-
fræðingi, f. 8.9. 1975, sonur þeirra
er Gísli Þór, f. 6.5. 1995. Hansína og
Gissur hafa öll sín hjúskaparár bú-
ið á Selfossi.
Hansína lauk stúdentsprófi frá
öldungadeild Menntaskólans í
Það er miðsumar og náttúran
skartar sínu fegursta þegar ég fylgi í
hinsta sinn móður minni sem lést fyr-
ir aldur fram eftir erfið og sársauka-
full veikindi. Þó að andlát hennar hafi
verið líkn, þar sem öll lífsgæði sem
við teljum sjálfsögð voru horfin, er
söknuðurinn mikill og sár. Það hefur
verið erfitt fyrir fjölskylduna að
horfa upp á sjúkdóminn, sem dró
hana að lokum til dauða, ágerast með
hverjum degi án þess að nokkuð væri
að gert, nema að líkna og hjúkra.
Þetta er um margt sorglegra þar
sem móðir mín var, áður en veikindin
settu strik í reikninginn, einstök
kona sem sinnti fjölskyldunni og fé-
lagsmálum, sem hún hafði brennandi
áhuga á, af mikilli alúð.
Minningarnar úr uppvexti mínum
eru óteljandi og þegar ég sit hér og
hugsa til baka eru þær flestar um-
vafðar birtu sumarsins. Eftirminni-
legar eru veiðiferðirnar sem við fór-
um inn á Landmannafrétt þar sem
dvalið var í tjöldum við Blautaver og
veitt í Ljótapolli og vötnunum í kring.
Móðir mín sinnti okkur bræðrum af-
skaplega vel og gaf okkur dýrmætt
veganesti út í lífið. Við fengum ákveð-
inn slaka í uppvextinum og fullt
traust á því sem við tókum okkur fyr-
ir hendur. Börnum okkar reyndist
hún einnig ákaflega vel og áttu þau
alltaf vísan samastað hjá ömmu sinni
og afa á Selfossi og sakna þau ömmu
sinnar mikið.
Þegar við hjónin stunduðum há-
skólanám fengum við ótakmarkaðan
stuðning og hvatningu frá henni og
föður mínum og dvaldi sonur okkar
langdvölum hjá þeim þegar við vor-
um í próflestri og hún var alltaf boðin
og búin að rétta fram hjálparhönd.
Hún sinnti eldra fólkinu líka einkar
vel og má þar nefna að hún heimsótti
og sinnti nær daglega og fram á síð-
asta dag fjölskylduvininn Diðrik sem
lést í síðastliðnum ágústmánuði á 98.
aldursári, þrátt fyrir að veikindin
væru farin að hrjá hana.
Foreldrar mínir höfðu yndi af
ferðalögum og ferðuðust gjarnan til
framandi landa og er mér einkar
minnisstæð ferð sem þau fóru fyrir
nokkrum árum til Gambíu til þess að
heimsækja munaðarlaus börn sem
þau höfðu styrkt til framfærslu og
náms. Það lýsir henni best að hún
vildi leggja sitt af mörkum til þess að
gera heiminn sem við lifum í betri.
Móðir mín var mikil hugsjóna-
manneskja og barðist af miklum
krafti fyrir hönd verkalýðshreyfing-
arinnar ásamt því að styðja jafnaðar-
stefnuna og berjast fyrir jöfnum rétti
kynjanna.
Í þessum erfiðleikum og veikind-
um sínum hefur faðir minn staðið
eins og klettur við hlið móður minnar
og ekki látið sig muna um að aka dag-
lega að loknum vinnudegi frá Selfossi
til Reykjavíkur til þess að veita henni
stuðning og félagsskap.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
vil ég þakka móður minni fyrir sam-
fylgdina og það sem hún hefur gefið
mér og fjölskyldu minni.
Stefán Róbert Gissurarson.
Í dag kveð ég elskulega tengda-
móður mína eftir erfið veikindi. Síð-
ustu mánuðir hafa verið erfiðir og
þótt ljóst væri í hvað stefndi þá er svo
erfitt að standa frammi fyrir því að
kveðja þig. Þegar ég hugsa til baka
er margs að minnast því það er óhætt
að segja að þú hafir gert marga hluti
á ekki lengri ævi. Ég var aðeins 16
ára þegar ég kom inn í fjölskyldu
ykkar og þú tókst mér opnum örmum
frá fyrsta degi, lagðir mikla áherslu á
að við myndum mennta okkur og
veittir ómetanlegan stuðning á allan
hátt.
En þrátt fyrir það að þú hefðir
ávallt mikið fyrir stafni þá hafðir þú
alltaf tíma fyrir okkur, hringdir á
hverjum degi til að vita hvort ekki
væri allt í lagi hjá öllum og alltaf
hafðir þú nægan tíma til að sinna
barnabörnunum. Ef þú varst ekki
beðin um að passa þá baðstu um að fá
þau í heimsókn. Þetta var afskaplega
dýrmætt fyrir unga foreldra í há-
skólanámi, enda engin tilviljun að
elsta barnabarnið þitt tók fyrstu
skrefin sín hjá þér. Þú varst ekki lítið
stolt. Þú varst ávallt þolinmóð og já-
kvæð og ef einhver braut eitthvað þá
sagðir þú alltaf að ef ekkert væri
brotið þá væri aldrei neitt búið til.
Þolinmæði þín var takmarkalaus
þegar spurningaflóð dundi yfir þig og
þú ólst börnin upp við það að ef mað-
ur spyrði aldrei neins þá fengi maður
ekki að vita neitt. Ég er afskaplega
þakklát fyrir umhyggju þína gagn-
vart okkur og börnunum og glöð yfir
því að þú skyldir verða amma ung að
árum og fá að kynnast ömmuhlut-
verkinu því þú leystir það hlutverk
vel af hendi eins og annað sem þú
tókst þér fyrir hendur. En nú er kom-
ið að leiðarlokum og það er svo margt
sem kemur upp í hugann og mig
langar til að segja en er svo erfitt að
koma orðum að.
Með þessum orðum kveð ég þig í
hinsta sinn. Minning þín lifir í hjört-
um okkar.
Sigrún Sigurðardóttir.
Þegar ég hugsa aftur í tímann og
rifja upp allar minningarnar um
ömmu þá eru fá lýsingarorð sem ég
finn sem eiga við. Ekki vegna þess að
ég hef slæman orðaforða, eða þau séu
svona fá, heldur vegna þess að engin
þeirra eru nógu sterk til að lýsa því
hversu yndisleg hún var. Eins og þeir
sem þekkja mig vita þá átti ég til
nokkur prakkarastrik uppi í erminni
á mínum yngri árum og átti það til að
tala klukkutímunum saman án þess
að taka hlé. Aldrei reiddist hún mér
eftir prakkarastrik og alltaf var hún
tilbúin til að sitja og hlusta á mig tím-
unum saman, sama hvort það var tal-
að um skólann eða hugaróra um út-
laga og sjóræningja.
Hún gekk í gegnum erfið veikindi
og ég vissi vel að þetta myndi enda
svona.
Ég gerði mér samt aldrei grein
fyrir því að það yrði svona fljótt, hélt
alltaf að hún ætti fleiri ár eftir. Núna
þegar hún er farinn fylgir henni gíf-
urlegur söknuður og hún skildi eftir
sig stórt gap í lífi mínu og allra sem
þekktu hana sem enginn mun geta
fyllt upp í. Samt horfi ég aftur í tím-
ann með gleði til þeirra rúmu átján
ára sem ég fékk að njóta með henni.
Hún kenndi mér margt um lífið og
mun ég búa að því veganesti sem hún
gaf mér það sem eftir er. Hún var án
efa eins frábær amma og ein amma
getur verið.
Amma, ef þú getur lesið þetta þá
sakna ég þín meira en orð geta lýst.
Diðrik Stefánsson.
Hansína Ásta systir okkar er látin
og það er okkur systkinunum mjög
erfitt að kveðja hana.
Hansína barðist við erfiðan sjúk-
dóm, Alzheimer, og ljóst var hvert
stefndi. Hansína var okkur öllum
mjög kær og við kveðjum hana með
söknuði, virðingu og með þakklæti
fyrir samverustundirnar.
Við systkinin erum fædd og uppal-
in á Selfossi þegar þorpið var að
byggjast upp og samfélagið var nán-
ara en nú. Við áttum því láni að fagna
að hafa stórfjölskyldur í námunda við
okkur í uppeldinu. Föðurafi og móð-
uramma voru okkur samferða ásamt
systkinum foreldra okkar og því var
stór barnahópur tengdur okkur.
Hansína átti tvö heimili í sínum upp-
vexti, í föðurhúsum og hjá Halldóru
móðurömmu okkar og Diðrik sam-
býlismanni hennar. Hansína átti
góða æsku og eigum við margar
minningar frá þeim tíma sem við
vermum okkur við þegar við horfum
á eftir henni. Hún var elst og vildi
gjarnan leiðbeina okkur sem yngri
vorum og hafði skoðun á því sem við
tókum okkur fyrir hendur. Við höfum
ekki alltaf verið full þakklætis, sér-
staklega þar sem við vorum þrír
bræðurnir næstir á eftir henni, 2 og 4
árum yngri, og næsta víst að stund-
um hafi bægslagangurinn verið
nokkur. Systurnar Dóra Sjöfn og
Anna Björg eru aftar í aldursröðinni
sem nemur 9 og 17 árum. Hansína
hafði því annað hlutverk og önnur
tengsl gagnvart þeim ungum og
frumburður hennar, Stefán Róbert,
er nánast jafnaldri Önnu Bjargar.
Tengsl systranna voru mjög góð, sér-
staklega eftir að þær eignuðust sínar
fjölskyldur, enda stutt á milli og ná-
lægðin mikil. Hansína gekk snemma
að eiga eftirlifandi eiginmann sinn,
Gissur Jensen, og eignuðust þau syn-
ina Stefán Róbert og Axel Þór sem
voru hennar sólargeislar og ekki síð-
ur barnabörnin þrjú sem kveðja
ömmu sína allt of snemma. Tengda-
dætur sínar elskaði hún líka mikið.
Hansína studdi barn í Afríku, sem
hún heimsótti. Hansína og Gissur
áttu góða ævi saman og voru einstak-
lega samrýmd. Það reyndi sérstak-
lega mikið á Gissur í erfiðum veik-
indum Hansínu og þá komu
mannkostir hans glögglega í ljós í
einstakri umhyggju hans fyrir konu
sinni og þökkum við Gissuri fyrir ást-
úð hans og umönnun, sem var for-
eldum okkar mikil huggun.
Það var erfitt að sætta sig við að
Hansína Ásta skyldi svona ung fá
þennan sjúkdóm. Hún var glæsileg
kona, góð, vel gefin og umhyggju-
söm. Stórt skarð er höggvið í systk-
inahópinn en okkar huggun er að
Hansína sé horfin til betri vistar og
að þær þjáningar sem hún leið séu að
baki. Erfitt er fyrir foreldra að sjá á
eftir barni sínu og er missir foreldra
okkar því mikill. Við vottum Gissuri,
Stefáni Róbert og Axel Þór, fjöl-
skyldum þeirra og þá sérstaklega
ömmubörnunum, þeim Diðrik, Ástu
Lilju og Gísla Þór, okkar dýpstu sam-
úð og biðjum guð að varðveita þau á
erfiðum tímum. Óskum við þeim
bjartrar framtíðar með góðar minn-
ingar um ástkæra eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu í farteskinu.
Blessuð sé minning Hansínu Ástu
systur okkar.
Jón B., Gísli, Sigmundur,
Dóra Sjöfn og Anna Björg.
Ég sit við kertaljós og reyni að
koma orðum á blað, minningarnar
þjóta um hugann en erfitt að færa
þær í orð.
Mig langar að þakka þér elsku
systir fyrir allt sem þú varst mér.
10 mánaða gömul átti ég orðið
nafnbótina „móðursystir“ en þá
fæddist Stefán Róbert. Með hann ný-
fæddan tókst þú mig að þér tíma-
bundið í veikindum mömmu og var ég
ein af litlu fjöldskyldunni þinni í kjall-
aranum á Setbergi. Ég naut þeirra
forréttinda að vera mikið hjá ykkur
þar sem við Stefán erum hvort á sínu
árinu og ég svo langyngst af okkur
systkinunum, enda ósjaldan sem við
höfum frekar verið taldar mæðgur en
systur.
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta
barn eignaðist þú þitt fyrsta barna-
barn einum mánuði síðar og ég veit
að þér fannst þú eiga jafnmikið í Sig-
urjóni mínum eins og Didda þínum.
Við áttum vel saman og alltaf hefur
ríkt traust og trúnaður okkar á milli.
Alltaf hef ég getað leitað til þín
með hvað sem er, hvort sem það var
danskan í fjölbraut eða sláturgerðin
sem við byrjuðum á saman og þú
kláraðir, þegar ég í miðju kafi skellti
mér á fæðingardeildina.
Þegar þú greindist með Alzheimer
hélt ég í einfeldni minni að það væri
ekki hægt, þetta væri sjúkdómur
sem aðeins gamalt fólk fengi.
En lífið getur stundum verið órétt-
látt og ósanngjarnt og það finnst mér
það hafa verið gagnvart þér elsku
Hansína mín.
Ég bið góðan Guð að geyma þig.
Hröð er förin
örskömm dvöl
á áningarstað.
Verum því hljóð,
hver snerting
er kveðja
í hinsta sinni.
(Birgir Sigurðsson)
Elsku mamma og pabbi, Gissur,
Stefán og fjölskylda, Axel og fjöl-
skylda, Guð styrki okkur öll.
Anna Björg.
Nú þegar dagur er lengstur kveð-
ur kær mágkona mín, Hansína Ásta
Stefánsdóttir, þennan heim. Ég kom
inn í fjölskylduna fyrir 36 árum er ég
kynntist Sigmundi bróður hennar og
tók hún mér strax sem einni af fjöl-
skyldunni. Hansína var áberandi
kona í samfélaginu er hafði sterkar
skoðanir á mönnum og málefnum.
Eftir að boðið var upp á nám í öld-
ungadeildum fór Hansína að afla sér
meiri menntunar, enda lá það vel fyr-
ir henni. Gott var að leita til hennar
er ég hóf aftur nám og reyndist hún
mér mjög vel, sem ég vil þakka. Hún
var að ljúka kennaranámi er hún
veikist og gat því ekki notið þess að
fara að kenna.
Hin síðari ár eftir að veikindi
Hansínu fóru að gera vart við sig og
að hún greinist með Alzheimer óraði
engan fyrir því hve þessi sjúkdómur
yrði henni erfiður og reyndi á fjöl-
skyldu hennar. Við sem þekktum
Hansínu sjáum núna hve þessi sjúk-
dómur hefur verið búinn að gerjast í
langan tíma áður en aðilar gerðu sér
grein fyrir því. Aðdáunarvert er hve
Gissur hefur sýnt mikla umhyggju og
ástúð í veikindum hennar enda hefur
hann vart vikið frá sjúkrabeði henn-
ar.
Hansína mín, ég vil þakka þér
samfylgdina og vona að Jónsmessub-
irtan fylgi þér.
Elsku Gissur, Unnur, Stefán, Stef-
án Róbert, Axel Þór, Sigrún, Ásdís,
Diddi, Ásta Lilja og Gísli Þór, megi
góður Guð veita ykkur styrk.
Ingileif.
Það er Jónsmessa, sunnudagur,
bjartur og fallegur dagur.
Þetta er dagurinn sem hún Hans-
ína kvaddi okkur.
Þær eru líka bjartar og góðar
minningarnar sem við eigum um
hana.
Þegar leiðir skilur langar mig að
minnast mágkonu minnar og vinkonu
með nokkrum orðum.
Kynni okkar hófust fyrir meira en
40 árum, eða þegar þau fóru að draga
sig saman Gissur bróðir minn og
Hansína, þá var hún varla nema ung-
lingsstúlka, en fljótt sýndi sig að hún
var óvenju þroskuð og tilbúin að tak-
ast á við fullorðinsárin. Þau hófu bú-
skap í kjallaranum á Setbergi í skjóli
Dóru, ömmu Hansínu og Diðriks. Þá
varð það fljótlega að venju að kíkja
við hjá þeim í kaffisopa eftir vinnu.
Alltaf mætti manni sama góða við-
mótið og gestrisnin.
Þessi tími markaði framhaldið að
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Minningarnar eru margar, en upp
úr stendur umhyggjusemin sem var
henni eðlislæg. Hvenær sem við hitt-
umst eða heyrðumst lét hún ekki hjá
líða að spyrja frétta af okkar börnum
og barnabörnum. Fyrir þetta vil ég
þakka, þegar leiðir skilur. Einnig alla
umhyggju, sem hún sýndi foreldrum
mínum, sérstaklega þegar heilsu
þeirra fór að hraka. Þá var gott að
eiga hana að. Hansína og Gissur eiga
barnaláni að fagna. Barnabörnin 3
voru augasteinar ömmu sinnar og
stolt. Dvöldu þau oft hjá ömmu sinni
og afa.
Það er gott að minnast góðrar
manneskju, en sárt að missa kæran
vin.
Á kveðjustund þökkum við góðar
samverustundir og sendum fjöl-
skyldunni allri innilegar samúðar-
kveðjur.
Jóhanna og Svavar.
Nú ertu búin að fá hvíldina, kæra
frænka, laus við þennan skrambans
sjúkdóm eins og þú orðaðir það sjálf.
Ég man eftir þér, nánast frá því ég
man eftir sjálfri mér, enda ekki nema
6 ár á milli okkar. Ég á myndir af
okkur saman á 7 ára afmælisdaginn
minn, þá varst þú 10 mánaða gömul.
Ég er voða montin þar sem ég held á
þér. Þú ert svo falleg og fín á þessum
myndum, eins og þú varst alltaf, það
breyttist ekkert, þú varst glæsileg
kona. Bernskuárin okkar vorum við
nágrannar á Setbergi og Sólbakka.
Fyrstu árin áttir þú heima í kjallar-
anum hjá ömmu og Didda og varst
líka mikið hjá þeim langt fram eftir
aldri. Það er aðdáunarvert hvað þú
reyndist þeim báðum vel. Það var
ekki ónýtt fyrir ömmu að eiga þig að í
gigtveikinni sinni, þú varst hjá henni
og hjálpaðir henni heilu dagana, með-
an við frændsystkinin lékum okkur
og hugsuðum sjaldan um að leysa þig
af. Þá var gott fyrir þig hvað þú varst
bókhneigð og fróðleiksfús, last nán-
ast allt sem þú komst yfir. Þér gekk
alltaf vel í skóla, varst samviskusöm,
greind og dugleg og uppskarst með
hæstu einkunnum.
Hin síðari ár fórstu í kennaranám,
en varst því miður orðin of veik til að
ná að klára það alveg og njóta þess.
Sumarið 2003, þegar við vorum í
gönguferðunum okkar, var fullljóst
að þú gekkst ekki heil til skógar. Við
spáðum stundum í hvað þú værir
gleymin en hlógum svo bara, því ég
var oft ekkert betri, en þú leiðst mik-
ið fyrir þessa „gleymsku“ þína og
varðst fyrir ýmsu ómaklegu, því enga
nema þína nánustu grunaði að eitt-
hvað meira væri að en venjuleg
gleymska. Það var svo árið 2004 sem
þú varst greind með Alzheimer-sjúk-
dóm og hann var örugglega búinn að
búa um sig miklu lengur en nokkur
gerði sér grein fyrir.
Þú varst lánsöm að hafa Gissur þér
við hlið á lífsgöngunni, þið ferðuðust
Hansína Ásta
Stefánsdóttir