Morgunblaðið - 30.06.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 49
ÚTVARPSSTÖÐIN KDWB Radio
í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum
hefur boðið Paris Hilton eina millj-
ón á ári taki hún að sér að stýra
morgunþætti stöðvarinnar. Stjórn-
andi stöðvarinnar segir að starfið sé
afar þægilegt, Hilton muni einungis
þurfa að spila tónlist og kjafta við
hlustendur – og innleysa himinháan
launatékkann í lok hvers mánaðar.
Minnir þetta um margt á þau tilboð
sem rigndi yfir Kate Moss eftir að
upp komst um eiturlyfjaneyslu
hennar og virðist það af sem áður
var að ferill stórstjarna fari í vask-
inn sveigi þeir af beinu brautinni.
Hilton hefur oft verið sögð fræg
fyrir að vera fræg en taki hún að
sér starfið á KDWB Radio bætist
útvarpsmennska við ferilskrána,
sem þegar telur söngkonu, leik-
konu, raunveruleikaþáttastjörnu og
forseta þriggja fyirtækja; Paris Hil-
ton Entertainment, Paris Hilton
Enterprises og Heiress Records.
Þá hefur Hilton staðið að fram-
leiðslu á ilmvatnslínu, far-
símahulstrum, skrifað ævisögu sína
auk þess að taka um 200 þúsund
dali fyrir að koma fram við ýmis
tækifæri. Samkvæmt lista Forbes-
tímaritsins var Hilton í 56. sæti yfir
þær stórstjörnur sem öfluðu mestra
tekna á síðasta ári en talið er að
hún hafi halað inn um sjö milljónir
Bandaríkjadala. Hilton skellti sér
til Hawaii á fimmtudaginn til að
jafna sig eftir 23 daga fangelsisvist
sína, sem tók víst mjög á taug-
arnar. Hún tók hins vegar fram í
viðtali við Larry King á dögunum
að hún myndi taka að sér hlutverk í
a.m.k. tveimur kvikmyndum í sum-
ar þannig að enn lengist ferilskráin
hjá þessari frægu frægu mann-
eskju.
Ferilskráin býsna löng
Reynslunni ríkari Paris Hilton kom fram í þætti Larry King þar sem hún
lýsti reynslunni í fangelsinu.
ÓKRÝNDUR konungur goth-
rokksins, Marilyn Manson, segir frá
því í viðtali við Rolling Stone að
kvöld eitt fyrir átta árum hafi hann
ásamt leikaranum Johnny Depp
beðið eftir ragnarökum. Umrætt
kvöld var síðasta kvöld ársins 1999
þegar hinn tölvuvæddi hluti jarð-
arbúa stóð á öndinni við árþús-
undaskiptin. Félagarnir voru stadd-
ir í sunnanverðu Frakklandi og á
meðan þeir biðu eftir endalokum
jarðlegrar tilvistar sinnar drukku
þeir hið rótsterka absinth-brennivín
sem var afar vinsælt á meðal lista-
manna í Evrópu á árum áður. „Við
vorum báðir búnir undir heimsendi
en þegar hann lét ekki á sér kræla
hertum við á drykkjunni og skutum
upp nokkrum flugeldum. Síðan þá
hef ég ekki getað drukkið absinth
eða áfengi yfirleitt.“
Depp mun næst leika titilhlut-
verkið í myndinni Sweeney Todd í
leikstjórn Tim Burtons auk þess
sem hann hefur samið um að túlka
Paul Kemp í mynd sem gerð verður
eftir sögu Hunters S. Thompsons,
The Rum Diary. Þá hefur fram-
leiðslufyrirtæki hans tryggt sér rétt-
inn að sögu Alexander Litvinenkos
sem var myrtur í London í fyrra.
Héldu að
heimsendir
væri í nánd
Fríða og dýrið Enn ein sönnun þess
að hæfileikar og gáfur fara ekki
endilega alltaf saman.
BRESKI leik-
arinn Daniel
Craig hefur gefið í
skyn að hann
muni ekki leika í
fleiri myndum um
leyniþjónustu-
mann hennar há-
tignar, að næstu
mynd lokinni.
Craig var, af nán-
ast öllum, lofaður fyrir frammistöðu
sína í myndinni Casino Royale sem
var sögð marka
nýtt upphaf
myndaraðarinnar
um James Bond.
Í viðtali sagði
Craig að hann
hefði ekki áhuga á
að leika í „leyni-
þjónustumynd-
um“ það sem eftir
lifði af hans ferli
og að draumur
hans væri að geta tekið að sér eins
ólík hlutverk og mögulegt væri. Til-
kynnt var fyrir
stuttu að leik-
stjóri næstu
myndar, Bond 22,
yrði Þjóðverjinn
Marc Forster.
Forster hefur áð-
ur stýrt myndum
á borð við Finding
Neverland með
Johnny Depp og
Monster’s Ball.
Mun hann einnig koma að gerð
handritsins og nýtur þar aðstoðar
Paul Haggis sem átti handritið að
Casino Royal. Haggis þessi gerði áð-
ur garðinn frægan með handriti sínu
að Óskarsverðlaunamyndinni Crash.
Þarf enn
og aftur að
finna nýjan
Bond?
Daniel Craig
Marc Forster
Paul Haggis