Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 18
fjármál fjölskyldunnar 18 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Straujar þú peningakortinþín reglulega fyrir rusla-kistuna? Ég þekki fullt affólki sem gerir það, jafnvel nokkrum sinnum í viku. Það fer í ísskápinn sinn og hendir mat sem það keypti fyrir nokkrum dögum. Þetta fólk gerir sömu mistökin dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár – það skipuleggur ekki innkaupin og kaupir of mikið í matinn. Fólkið hendir peningum eins og það eigi nóg af þeim en hluti af því kvartar svo sáran yfir þeim blóðpeningum sem fara í mat á þessu skeri því verðið sé svo svívirðilega hátt! Pik- köpp-línan „Maður, líttu þér svolít- ið nær“ hefur nú stundum verið notuð af minna tilefni. Nú væri daglegt matvælahamst- ur af þessu tagi skiljanlegt ef eng- ar væru sólarhringssjoppurnar eða ef afgreiðslutími verslana hefði styst verulega á síðustu árum en hvorugt er raunin. Hömlur á versl- un með mat og óáfengan drykk eru engar, allt fæst og nóg af því ólíkt því sem tíðkaðist á haftatímanum á síðustu öld og eldri kynslóðir muna enn eftir. Það er þó engu líkara en að yngri kynslóðirnar, sem fyrir helgarnar storma á milli rekka flú- orlýstra stórmarkaðanna og kúf- fylla gríðarstórar kerrurnar, búist við mjög hamlandi hamförum – eft- ir helgarnar. Magn matvælanna í körfunum virðist ekki aðeins duga fyrir vísitölufjölskyldu nútímans heldur hálft ættarmót en samt eru slíkir fagnaðir orðnir mjög fátíðir í tengslaleysi nútímans, hvað þá að þeir eigi sér stað um hverja ein- ustu helgi. Og hvað verður þá um matinn? Pakkamatur fyrir móðuharðindin Fólk byrjar á því að setja hann inn í ísskáp, ægilega ánægt með sýnilegan árangur verslunarferð- arinnar. Ísskápurinn hjá sumu fólki sem ég þekki er svo troðfullur að það er varla hægt að loka honum. Niðursuðudósirnar og pakkamat- urinn flæða þar að auki út úr skáp- unum, því það er alltaf keypt eitt- hvað nýtt í hverri ferð. Fólkið er nefnilega löngu búið að gleyma hvað það keypti í síðustu ferð, svo það kaupir nokkrar dósir af Ora- baunum og Maggi-aspassúpum til viðbótar. Nokkrir hafa ekki enn náð sér eftir að Bónus og Krónan hófu að selja lífrænt ræktuð mat- væli og finnst eins og þeir fái Sollu-tómatsósu aldrei aftur á jafn- góðu verði. Sumir sem ég þekki gætu áreiðanlega lifað góðu lífi, bara á pakkamatnum sem þeir eiga í skápunum, yfir létt móðuharð- indatímabil. En sem sagt, eftir að fólk er búið að kroppa í eitthvað af birgðunum sem það keypti fyrir ættarmótið sem aldrei varð úr byrjar það eftir helgarnar að henda mat því hann hefur einfaldlega ekki endalaust geymsluþol. Brauðið fer fyrst því græn myglan verður fljótt sýnileg. Jarðarberin hafa alveg ótrúlega stuttan geymslutíma að því er mörgum finnst. Mjólkin fýkur fljót- lega því sumir sem ég þekki telja að þeir fái matareitrun ef þeir drekka mjólkina sama daginn og hún er dagsett best fyrir. Ótrúleg- ast er samt fólkið sem þarf að henda heilli melónu sem farið er að slá í eða þriggja ára gömlum pakkamat. Ég þekki þó margt svo- leiðis fólk. Þetta er fólkið sem er ríkt en nöldrar samt sífellt yfir því að vera það ekki. Það umbreytir peningunum sínum í matvæli og geymir í skápum heimilisins. Það er eins og fólkið hafi ekki uppgötv- að að matvæli bera eiginlega nei- kvæða vexti því þau skemmast, eyðileggjast og fyrnast mjög hratt. Síðan tekur fólkið bara matarpen- ingana út úr skápunum og hendir í ruslið. Sumir eins og ekkert væri, aðrir fussa og sveia og þykjast ekk- ert skilja af hverju svona mikið af matnum fer í ruslið. Halló! Of mikil innkaup, einhver? Ég er samt nokkuð viss um að þetta sama fólk myndi aldrei tína þúsundkallana út viku fram í tímann og nota frysti- hólfin á ísskápunum til þess að geyma matvæli sem hafa lítið geymsluþol svo hann fari ekki til spillis. Það er ekki eðlilegt að kasta mat fyrir þúsundir króna í hverri viku. Það á að vera metnaður hvers heimilisrekanda að henda eins litlu af peningum í ruslið og mögulegt er – helst engum. Það er mögulegt og raunar ekki svo erfitt. Fólk öðl- ast engin lífsgæði fyrir peningana í ruslatunnunni. Það er að öllum líkindum hag- stæðara að kaupa minna en meira, jafnvel þótt farið sé í ódýrari versl- anir, því það sem ekki er notað kostar líka peninga. Magninnkaup eru ekki í öllum tilfellum þau hag- stæðustu. Það má líka alltaf nálg- ast bráðnauðsynlegar jafnt sem ónauðsynlegar nýlenduvörur í næstu búð sem er áreiðanlega ekki í miklu meira en 500-1000 m fjar- lægð frá heimilinu. Hreyfingin ger- ir öllum gott og það er ódýrara að ganga út í búð nokkrum sinnum í viku eftir mjólk og brauði en að fara á líkamsræktarstöð. 15-30 mínútna hreyfing á dag ásamt skynsamlegu mataræði getur líka gert kraftaverk fyrir heilsuna. Tal- andi um að slá þrjár flugur í einu höggi! Endar matarkistan þín í ruslatunnunni? Fólk ætti að kaupa hæfilega matarskammta þegar það kaupir í matinn því það liggja peningar í matarleifum. Nútímafólk virðist haldið margvíslegri söfnunaráráttu. Eitt af því sem það safnar er matur í skápana sína. Unnur H. Jóhannsdóttir þekkir fullt af fólki sem hendir fleiri þúsundköllum í viku – beint í ruslafötuna sína. Það er auðvitað ósköp misjafnt hversu miklum peningum fólk hendir beinlínis í viku hverri en margt smátt gerir eitt stórt. Hér er aðeins dæmi af þeim mat sem þriggja manna fjölskylda hendir, eins og þeim sem kominn er yfir síðasta söludag eða farið er að slá í. Goslaust gos fær oft fljótt að fjúka sem og salötin og kryddjurtinar sem ekki hafa mikið geymsluþol. Hér eru ekki teknar með mat- arleifar sem er hent. Verð er áætl- að meðalverð. Hvað hend- ir þú mikl- um pening- um á viku í ruslið? !/ 0/  1/   / !* / 1  !   1   !$$  1      1    1     ! #     ! "   #     1 2      #$$  !$$   %3$  $!   $!  ! $!                               úr ísskápunum sínum og henda þeim í ruslatunnuna, en það er það sem það í raun og veru gerir. Nú kann einhver að spyrja: Á fólk þá bara að hætta að kaupa í matinn? Auðvitað ekki. En það á kaupa í matinn fyrir sjálft sig eða raunverulega fjölskyldustærð, ekki ættarmótið sem svo sjaldan er haldið. Fólk á að skipuleggja inn- kaup og gera áætlanir um matseld uhj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.