Morgunblaðið - 23.07.2007, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Fyrir tæpum fjórum áratugum fórekki á milli mála, að algengasta
tungumálið, sem talað var að sum-
arlagi á Kili og öðrum óbyggðaveg-
um, var þýzka. Þá var undantekn-
ing að íslenzka væri töluð á
miðhálendi Íslands af þeirri ein-
földu ástæðu, að þar voru fáir Ís-
lendingar á ferð.
Nú hefur þettaauðvitað
breytzt og mikill
fjöldi Íslendinga
ferðast um há-
lendið ár hvert.
En engu að síð-
ur heldur þýzkan
velli, sem eitt al-
gengasta tungu-
mál, sem talað er í óbyggðum, sam-
kvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk á Kili um
helgina.
Þótt íslenzkum ferðamönnumhafi fjölgað hefur þýzkumæl-
andi ferðamönnum einnig fjölgað
svo mjög, að þýzkan er þar mjög út-
breitt tungumál.
Að vísu fjölgar frönskum ferða-mönnum mjög og einnig ítölsk-
um en staðreynd er að á Hveravöll-
um í gær var þýzkan og franskan
algengara tungumál en íslenzkan.
Af þessu er ljóst, að miðhálendiðheillar enn ferðamenn frá Mið-
Evrópu. Þar eru enn ferðalangar á
gangi frá þessum löndum, hjólandi
og á öðrum mismunandi far-
artækjum.
Nýjar kynslóðir frá þýzkumæl-andi löndum, Frakklandi og
Ítalíu dragast enn að Íslandi og
ferðamáti þeirra er nákvæmlega sá
sami og fyrir fjórum áratugum,
spartanskur og einfaldur.
Við eigum ekki að eyðileggjaþessi landsvæði með innrás ein-
hvers konar „menningar“.
STAKSTEINAR
Þýzkan heldur velli
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!!
:
*$;<
!
"
" #
$
%& %'
!
"
*!
$$; *!
"#
$
%
#
%
& '%( '
=2
=! =2
=! =2
"&%$ ! ) !*+, '!-
<>2?
/
.,
$ , #$ '% /
!,
!0! /
1
=
87
.,
' ! , !!
'%!,
!# !
0
'!!! 0!/ 2'
3 ' !1 ' & !!#
'
62
4' $
- / 05%*
6 2' , - !,
' !5
!0!!!
% '
, (' 0!'%
1 0
# !
7/ '88 ! '% 3
' ,') !
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C 0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Hjörtur J. Guðmundsson | 22. júlí 2007
Hryðjuverkasamtök
Al-Aqsa Martyrs’
Brigades-hryðjuverka-
samtökin eru ábyrg
fyrir tugum árása á
óbreytta borgara í Ísr-
ael á undanförnum ár-
um og þá einkum
sjálfsmorðsárása. Yfir 120 manns
hafa verið myrtir í árásum samtak-
anna frá árinu 2001.
Þetta eru s.s. aðilarnir sem
vinstri-grænir vildu ólmir að íslenzk
stjórnvöld tækju upp samstarf við
ásamt Hamas-hreyfingunni.
Meira: sveiflan.blog.is
Dögg Pálsdóttir | 21. júlí 2007
Frábærar smásögur
Í sumarfríinu á spa-inu
í Englandi um daginn
las ég einmitt þessa
bók, Aldingarðinn (e.
Ólaf Jóhann Ólafsson],
sem nýverið kom út í
kilju. Mér fannst flest-
ar sögurnar (þær eru tólf og bera
heiti almanaksmánaðanna) hreint
frábærar og endirinn á þeim sumum
kemur algerlega á óvart.
Ég las á sínum tíma Níu lykla og
fannst hún ágæt. Enda alltaf verið
hrifin af vel skrifuðum smásögum.
Meira: doggpals.blog.is
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 21. júlí
Sílamávafárið
Líffræðingurinn segir
um hvarf sílamávanna:
„Það bendir margt til
þess að einhvers staðar
hafi fundist fæða og
þeir hafi þá allir hópast
þangað, en við höfum
ekki áttað okkur á því ennþá hvar
það er.“ Margar skýringar aðrar eru
í bloggumræðunum, t.d. við blogg
Hafsteins Viðars, þar sem Skarf-
urinn heldur því fram að Gísli Mar-
teinn Baldursson hafi verið svo leið-
inlegur að sílamávurinn forðaði sér.
Meira: ingolfurasgeirjohannesson.blog.is
Salvör | 22. júlí 2007
Skemmtilegasti
vegur Íslands
Núna ganga allir
Laugaveginn, göngu-
leiðina milli Land-
mannalauga og Þórs-
merkur. Ég hef einu
sinni fyrir um það bil
aldarfjórðungi gert til-
raun til að ganga þá leið. Við urðum
að snúa við aftur inn Landmanna-
laugar því við fundum ekki skálann
við Hrafntinnusker, stikurnar voru
fenntar á kaf og það var snjófok.
Jörðin var alhvít þarna. Þetta var
samt í júní. Ég man hvað ég var
hrædd á tímabili, við vorum þrjú full-
orðin og Ásta dóttir mín lítil í ferð-
inni, þau sem voru með mér fóru á
undan að leita að skálanum og ég
missti sjónar á þeim í þoku og hélt
um tíma að ég væri ein villt með ungt
barn einhvers staðar upp á hálendinu
um nótt í snjó og kulda. Einhvern
tíma langar mig til að reyna aftur við
þessa leið, það er flott markmið í líf-
inu að láta ósigra ekki buga sig held-
ur reyna aftur og læra af reynslunni.
Það gerir ekkert til þá að 25 ár líði
milli tilrauna og kannski hefur lofts-
lagshlýnunin unnið með mér, kannski
er ólíklegra núna að þurfa að snúa við
vegna snjókomu.
Það er líka önnur leið sem mig
langar til að ganga. Það er fallegasti
vegur á Íslandi og líka sá hrikaleg-
asti, það er vegurinn milli Arn-
arfjarðar og Dýrafjarðar. Ég er hissa
á því að sú leið sé ekki eins vinsæl og
Laugavegurinn, sennilega hafa bara
svo fáir uppgötvað þessa leið. Það er
hægt að keyra þessa leið á bílum, alla
vega stóran hluta hennar en ég held
að það sé ekki alltaf fært og alls ekki
fyrir óvana að fara um verstu kaflana.
Þetta er sérstaklega skemmtileg
gönguleið, umhverfið er töfrandi og
engu öðru líkt.
Vegurinn sem tengir Lok-
inhamradal er meistarastykki Elís
Kjaran ýtumanns og hvergi er eins
skrýtinn vegur á Íslandi. Ég held að
vegurinn sé höggvinn inn í surt-
arbrandslag sem er mýkra efni en
annað berg þarna. Lokinhamradalur
var á sínum tíma einn afskekktasti
dalur landsins, þar voru tveir bæir
Lokinhamrar og Hrafnabjörg. Guð-
mundur Hagalín skáld fæddist og
ólst upp á Lokinhömrum og hann hef-
ur skrifað mikið um uppvaxtarár sín.
Meira: salvor.blog.is
BLOG.IS
HVAÐ ungur nemur, gamall temur segir máltækið, en
því er þó stundum öfugt farið eins og virtist vera með
stelpuna ungu í Skerjafirði, sem sýndi þeirri eldri
hvernig á að bera sig með stíl á hlaupahjóli. Þessir far-
arskjótar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár
meðal yngra fólksins, en þeir eru ekki síður skemmti-
legir fyrir þá sem eldri eru enda er hægt að ná tölu-
verðum hraða með réttri tækni. Stígarnir í Skerjafirði
eru einmitt upplagðir í slíkar æfingar því ekki þarf að
púla upp brattar brekkur.
Morgunblaðið/Sverrir
Á stálfákum fráum fram um veg
GÖMUL og slitin dekk sem hanga í
stálkeðju eru án nokkurs vafa einn
mesti gleðigjafi æskunnar, eins og
þessi mynd ber með sér. Það fylgir
því alltaf ákveðin spenna að ýmist
standa eða sitja á dekkinu, sveifla
því fram og til baka og finna vind-
gustinn leika um vangana. Ekki
skemmir það fyrir skemmtuninni
að nokkuð langt er í það að skóla-
bjöllur fari að hringja á ný, auk
þess sem kuldaboli virðist víðs
fjarri; hann hefur í það minnsta
tekið sér dágott sumarfrí.
Morgunblaðið/Sverrir
Rólað í rjómablíðu