Morgunblaðið - 01.08.2007, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Je minn, nú hafa þeir dottið í það einu sinni enn, Engla mín.
VEÐUR
Óánægja með kvótakerfið er vax-andi skv. nýrri skoðanakönnun
Gallup. Um 72% þjóðarinnar eru
óánægð með kerfið en einungis 15%
lýsa ánægju með það. Hinum
óánægðu hefur fjölgað verulega á
síðustu árum.
Hvað veldur?
Að hluta til máleita skýring-
arinnar í þeim
umræðum, sem
fram hafa farið
undanfarnar vik-
ur um meint brot á lögum og
reglum um kvótakerfið.
Bæði Morgunblaðið og aðrir fjöl-miðlar hafa fjallað um þau mál.
Viðbrögð, sem ritstjórn Morgun-
blaðsins hefur fengið vegna greina
Agnesar Bragadóttur, blaðamanns
Morgunblaðsins, um þennan þátt
málsins hafa verið mjög sterk, svo
vægt sé til orða tekið og komið frá
grasrótinni um allt land.
Þótt forystumenn í sjávarútvegihafi mótmælt þessum ásök-
unum er upplifun hins almenna
borgara við sjávarsíðuna sú, að rétt
sé með farið í öllum megindráttum.
Meginástæðan er þó sú, að al-menningi ofbýður, þegar
handhafar kvóta í einstökum
byggðarlögum selja kvótann, fara
með peningana og skilja byggð-
arlögin eftir í sárum og fólkið at-
vinnulaust.
Reiðin meðal almennings er vax-andi.
Kvótakerfið er komið í öngstrætiá nýjan leik.
Stjórnmálamennirnir geta ekkisetið þegjandi hjá.
STAKSTEINAR
Vaxandi óánægja
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!" "
:
*$;< """"
!
"
#$%
*!
$$; *!
#$ %"!
"$ "!
&
'!('
=2
=! =2
=! =2
#&!% ")*"+ ',
;
>
/
#'%"
" "$%
'!
-
" !'
" .
/!"!
"$ '.
=7
0$("'
"! "
$
'-" " % " "1'
"2
"!""$(."+
" "$ .
=
+ "
-" "$3
#45
"#65
"' "$(."# "74
-" "$ ",
$ "'5"
$
."0
""
""
2-" ""
""
"2 " .
82
""'99
'!""6 '
'")
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
.
-
-
.
.
.
.
. .
.
.
.
. . .
.
.
.
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
María Kristjánsdóttir | 31. júlí
Hvað hefur orðið um
þjóðarkökuna?
Það er nefnilega ekki
langt síðan að hvorki
stjórnmálamenn ís-
lenskir eða verkalýðs-
leiðtogar opnuðu ekki
munninn án þess að
tala um „réttláta skiptingu þjóð-
arkökunnar“ og urðu alveg sér-
staklega hátíðlegir í fasi þegar það
orð kom fram á varirnar. En hvar
geyma þeir „þjóðarkökuna“ núna?
Myglar hún inn í skáp eða gáfu þeir
hana í neyðarhjálp til Afríku?
Meira: mariakr.blog.is
Gestur Guðjónsson | 31. júlí
Hátt áfengisverð
hefur áhrif á lýðheilsu
Í Noregi og Svíþjóð er
farin sama leið og hér á
Fróni, aðgengi að
áfengi er takmarkað og
verðið er hátt. Því er
ekki til að dreifa í Dan-
mörku. Í því sambandi er afar
áhugavert að benda á að meðalaldur
Dana, einna Vestur-Evrópuþjóða,
fer lækkandi.
Er talið að áfengisneysla, reyk-
ingar og óhollt mataræði skýri þessa
óheillaþróun.
Meira: gesturgudjonsson.blog.is
Atli Fannar Bjarkason | 31. júlí
Ég borga 24 þúsund
kall
Ég skulda skattinum
rúman 24 þúsund
kall. (...) Pælí köllum
eins og Hreiðari Má
Sigurðssyni hjá
Kaupþingi. Hann
borgar 400.165.920 krónur í op-
inber gjöld. Það er ógeðslega mik-
ið af peningum. En iss piss, hon-
um munar ekkert um þetta. Hann
borgar einhverjar skitnar
80.033.184 krónur á mánuði þang-
að til í desember.
Meira: atlifannar.blog.is
Þorleifur Ágústsson | 31. júlí
Veit ekki vandinn
að lausnin er
löngu fundin?
Mér finnst áhugavert að
búa á litlum stað fyrir
vestan. Ekki vegna þess
að stutt er í allar áttir.
Nei, af því að þar kemst
maður í kynni við kalla
sem kunna sko að leysa vandann.
Ef ég til dæmis fæ mér göngutúr
niður á bryggju og er svo heppinn að
hitta kall eða tvo sem eru að landa eða
gera sig klára í róður – nú þá er ekki
að spyrja að því – þeir eru með lausn-
ina á vandanum sem steðjar að í sjáv-
arútveginum. Með þetta alveg á
hreinu og eru bit á þekkingarleysi
vitringanna með diplómun á Hafró –
svo ég tali nú ekki um ekkisens vit-
leysuna í ráðherranum að hlusta á
slíkt bull sem prentað er í metravís og
kallast veiðiráðgjöf. Ja svei mér þá
segja þeir og slá sér á lær.
Nú, svo þegar ég er búinn að fá
lausn vandans í hafinu og held áfram
göngunni uppi á yfirborðinu þá getur
vel verið að ég fái mér kaffisopa í vél-
smiðju einni hér í bæ – og þar er ekki
bara verið að leysa fiskveiðivandann –
nei þar er allt leyst – yfir heitum kaffi-
bolla og meððí. Já – vegleysurnar og
kílómetrarnir suður styttast svo
skiptir tugum kílómetra – fjöll eru
boruð – firðir þveraðir – nýjasta
tækni og tól hönnuð til verksins og ég
varla kominn niður í hálfan bolla. Og
ekki þarf maður að óttast að kaffið
kólni því hitinn er slíkur í mann-
skapnum að það liggur við að allt sjóði
uppúr.
[…] Nú auðvitað held ég göngunni
áfram – dagurinn vart hálfnaður og
ég orðinn verulega spenntur – hafði
ekki hugmynd um hve auðvelt og aug-
ljóst þetta væri allt – nú, maður hefur
jú aldrei mígið í saltan sjó eða fjöruna
sopið – hvað þá að hafa fest bílinn
uppi á alvöru vestfirskri heiði um
miðjan vetur – svona maður eins og
ég „aungra manna að norðan“ eins og
einn kallinn benti mér á þegar ég
sagði honum að ég ætti engar ættir að
rekja vestur. […] Já, maður lærir
margt á því að búa í litlu samfélagi –
eitthvað svo langt frá orsök vandans
en svo nálægt lausninni. Kannski er
það bara svo að vandinn og lausnin
eiga ekki heima á sama stað – vandinn
fyrir sunnan og lausnin fyrir vestan –
og samskiptin föst á heiðinni?
Meira: tolliagustar.blog.is
BLOG.IS
Í KJÖLFAR þess að reykingabann
tók gildi á veitingastöðum hefur lög-
reglan orðið þess vör í auknum mæli
að fólk taki með sér veigar þær sem
veittar eru á öldurhúsum bæjarins
út undir bert loft.
Þetta er bagalegt því samkvæmt
3. mgr. 19. gr. áfengislaga er með
öllu bannað að áfengi sem selt er á
veitingastað sé borið þaðan út af
gestum staðarins eða öðrum.
Undantekningar geta þó verið á
þessu á sérstaklega afmörkuðum
svæðum fyrir utan skemmtistaði
hafi staðurinn fengið leyfi þar um.
Þau eru þó takmörkuð við ákveðin
svæði fyrir utan veitingastaði og eru
jafnan ekki í gildi eftir kl. 22 á kvöld-
in.
Lögreglan vekur athygli á því að
skv. lögum um veitingastaði, gisti-
staði og skemmtanahald skal lög-
reglustjóri án fyrirvara eða aðvör-
unar stöðva leyfisskylda starfsemi
þegar hún fer út fyrir mörk og skil-
mála leyfis eða brýtur gegn ákvæð-
um laga. Þá er ennfremur kveðið á
um að misbeiti leyfishafi, sem hefur
leyfi til að veita áfengi, leyfi sínu, t.d.
með því að virða ekki tímamörk
þess, varði það refsingu samkvæmt
áfengislögum.
Morgunblaðið/Ómar
Öl Ötull starfsmaður knæpu ber inn bjórkútana handa þyrstum lýðnum.
Áfengislög víða brotin
eftir reykingabann