Morgunblaðið - 01.08.2007, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Axel SvanKortsson fædd-
ist á Garðskaga í
Garði 7. desember
1917. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 17. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðný Gísladóttir,
húsmóðir frá Hlað-
gerðarkoti í Mos-
fellssveit, f. 14. okt.
1884, d. 21. jan.
1972, og Kort Elís-
son, sjómaður og
bóndi frá Fit undan Eyjafjöllum,
f. 8. ágúst 1883, d. 4. ágúst 1945.
Axel átti fjögur systkini. Alsystir
hans er Laufey Svala, fyrrverandi
verslunarkona hjá Kaupfélaginu í
Sandgerði, f. 20. nóv. 1920. Hálf-
bróðir hans í móðurætt var Aðal-
steinn Ingimundarson, f. 20. sept.
1907, d. 20. des. 2001. Hálfsyst-
kyni hans í föðurætt voru Óskar
þar til hann lést. 14 ára fór Axel
til sjós frá Sandgerði og þar var
hann á ýmsum bátum. Um tvítugt
fór hann í vélskólann og útskrif-
aðist hann þaðan sem vélstjóri.
Hann vann síðan sem vélstjóri á
ýmsum bátum, bæði sunnan- og
norðanlands. Um þrítugt hætti
Axel til sjós og hóf hann þá störf
sem vélstjóri í lifrarbræðslu
Garðs hf. í Sandgerði og einnig
var hann vélstjóri í frystihúsi
Garðs hf. Árið 1959 hóf Axel störf
sem verksmiðjustjóri í fiskimjöls-
verksmiðju Guðmundar Jónsson-
ar í Sandgerði og starfaði hann
þar í nokkur ár. Þegar verk-
smiðjan var seld hóf hann störf
hjá Miðneshreppi (Sandgerðisbæ)
og vann hann hjá bænum þar til
hann fór á eftirlaun. Axel var fé-
lagi í björgunarsveitinni Sigurvon
í Sandgerði og var hann um tíma
vélstjóri á björgunarbát sveitar-
innar. Þá starfaði hann um all-
langt skeið í slökkviliði Sand-
gerðis sem dælustjóri.
Axel verður jarðsunginn frá
Hvalsneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
og Elín, þau eru
bæði látin. Axel
fæddist í vitavarð-
arhúsinu á Garð-
skaga, en móðir hans
var þar ráðskona, og
faðir hans var til
sjós. Fjögurra ára
fluttist Axel með for-
eldrum sínum og
systur sinni Svölu að
Melabergi í Miðnes-
hreppi þar sem for-
eldrar hans hófu bú-
skap og þar ólst Axel
upp. 1938 fluttist
Axel ásamt foreldrum sínum til
Sandgerðis, fyrst í húsið Sigtún,
en þar lést faðir hans. Árið 1946
festi Axel kaup á húsinu Akri í
Sandgerði og þangað flutti hann
ásamt móður sinni og systur. Axel
bjó alla tíð á Akri, þar til hann
lagðist inn á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja fyrir tæpum fjórum
árum síðan og þar dvaldi hann
Mig langar til að minnast frænda
míns og vinar, Axels Svans Korts-
sonar, í nokkrum orðum. Ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
alast upp á heimili Axels að Akri í
Sandgerði, en þar bjó hann ásamt
móður minni og ömmu. Axel var
mjög dagfarsprúður maður, ekki
mjög málgefinn, en að sama skapi
mjög traustur maður. Aldrei sá ég
hann skipta skapi. Hann var sér-
staklega handlaginn og gott var að
leita til hans ef kassabíllinn eða hjól-
ið bilaði, ég tala nú ekki um þegar ég
eignaðist fyrsta bílinn minn, öllu gat
hann kippt í lag á svipstundu. Strax í
æsku bar ég óblendna virðingu fyrir
honum og hélst sú virðing alla tíð.
Axel var mjög söngelskur maður.
Hann var þó óspar á sönginn þegar
hann var búinn að fá sér aðeins í
glas. Axel átti harmonikku og spilaði
hann mikið á hana í herbergi sínu og
oft fékk ég að sitja þar inni og
hlusta. Ómuðu harmonikkulögin um
allt hús, þá var sko gaman. Síðan
hafa harmonikkulög verið mín uppá-
haldstónlist. Axel var einstakt
snyrtimenni og varð allt að vera í röð
og reglu hjá honum, öll verkfæri á
sínum stað og allt niður í smæstu
skrúfur og nagla. Allt sem hann
gerði var unnið af mikilli vandvirkni.
Við urðum strax miklir vinir og ent-
ist sú vinátta alla tíð og hefur sá vin-
skapur verið mér mikils virði. Betri
vin er vart hægt að hugsa sér. Þegar
ég var 16 ára hóf ég störf í fiski-
mjölsverksmiðjunni í Sandgerði
undir hans stjórn. Þar kynntist ég
enn betur snyrtimennskunni hjá
honum, allt varð að vera fágað og
pússað. Gólfin voru sópuð nokkrum
sinnum á dag og öll óhreinindi voru
tekin þegar þau komu í ljós. Axel var
mjög barngóður og strax hændust
dætur mínar þrjár að honum og síð-
an þeirra börn og alltaf var gaman
að koma til Svansa, eins og hann var
kallaður af vinum og vandamönnum.
Axel las mikið og alla tíð var sjórinn
honum hugleikinn og það sem hann
aðallega las snerist um sjómenn og
sjósókn. Ég held að hann hafi átt all-
flestar bækur um sjómenn, útgerð
og útgerðarmenn sem komu út í
hans tíð. Uppáhaldslesefnið hans var
bókaflokkurinn Íslensk skip og las
hann þær bækur aftur og aftur. Þeg-
ar ég kom í heimsókn til hans á
sjúkrahúsið snerist umræðan, eftir
að hann var búinn að spyrjast fyrir
um börnin og barnabörnin, um báta,
sjósókn og fiskirí. Ég er nokkuð viss
um að hann þekkti alla báta með
nafni í íslenska flotanum, hver var
útgerðarmaður þeirra og hvaða vél
var í hverjum bát. Alltaf spurði hann
mig hvort sjómannabl. Ægir væri
ekki komið og svo kom glampi í aug-
un á honum þegar ég kom með Ægi
til hans á sjúkrahúsið. Axel fékk frá-
bæra umönnun og umhyggju í D-
álmu Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja. Eins og hann sagði eitt sinn
við mig, „þær eiga mig,“ og átti hann
þá við starfsstúlkurnar í D-álmunni.
Innileg þökk til starfsfólks D-álm-
unnar. Kæri vinur og frændi, ég
kveð þig með miklum söknuði.
John Earl Kort Hill.
Elsku Svan, er við systurnar
hugsum til þín sjáum við þig fyrir
okkur sitjandi í stólnum þínum í
horninu við gluggann að lesa bók og
auðvitað var bókin tengd sjónum. Af
og til lítur þú upp úr bókinni og horf-
ir út um gluggann. Við látum hug-
ann reika aftur til bernsku. Þú varst
okkur meira en frændi. Þar sem þú
bjóst hjá ömmu og við systurnar
sem heimalingar þar varst þú ein-
faldlega órjúfanlegur hluti af okkar
lífi. Við minnumst þess þegar þú
vannst í bræðslunni í Sandgerði
hvað það var spennandi að heim-
sækja þig þangað. Þú tókst á móti
okkur þolinmóður og sýndir okkur
öll tæki og tól og útskýrðir fyrir okk-
ur hvernig þið breyttuð fiskslori í
fiskmjöl. Þú varst glettinn á hljóð-
látan og rólegan hátt og þreyttist
aldrei á að svara spurningum sem
krökkkum einum er lagið að spyrja.
Aldrei sáum við þig skipta skapi, þú
bjóst yfir einstakri hugarró og
hjartagæsku. Yndi þitt var að keyra
um á bílnum þínum sem þú hugsaðir
um eins og barnið þitt. Þú misstir
svo mikið þegar þú vegna aldurs
gast ekki lengur ekið um, en þú
tókst því með þeirri hugarró sem
einkenndi þig. Þegar þú varst veikur
og þurftir að fara á sjúkrahúsið í
Keflavík og áttir ekki afturkvæmt
heim misstir þú alla lífslöngun. Þú
vildir kveðja þennan heim en vegir
drottins eru órannsakanlegir og þú
lást á sjúkrahúsinu í fjögur ár áður
en þú fékkst hina langþráðu hvíld.
Andlát þitt bar að eins hægt og ró-
lega og þegar þú sast í stólnum þín-
um og last. Við efumst ekki um orð
Jesú „sælir eru hjartahreinir því
þeir munu Guð sjá“. Elsku Svansi,
við kverðjum þig með blendnum til-
finningum, söknuði yfir að fá ekki
aftur að sjá þig, en gleði yfir að þú
sért loksins kominn heim.
Hafdís og Sigrún Hill.
Nú ertu farinn, kæri frændi, á
góðan stað sem þú svo lengi þráðir
að fara á og verður þín sárt saknað.
En ég á svo margar góðar minn-
ingar um þig. Þú varst mér sem afi
og tók það mig mörg ár að hætta að
kalla þig afa, því ég leit alltaf á þig
sem afa minn, eins og synir mínir
sem töluðu lengi vel um langafa á
sjúkrahúsinu. Þegar ég hugsa um
þig, elsku besti Svansi minn, þá
koma upp minningar um þig t.d.
þegar ég kom til ykkar ömmu og sat
hjá þér inni í herbergi og spurði þig
spjörunum úr, enda var ég mjög
spurult barn og alltaf gafst þú þér
tíma til að svara öllum mínum spurn-
ingum. Þegar ég var orðin of spurul
sagðir þú alltaf „ó jújú“ eða „ó nei-
nei“ og eftir spjall okkar var ég farin
að svara „ójújú“ eða „óneinei“ eins
og þú. Ég man daginn sem ég kom
til þín og spurði þig hvort frumburð-
ur minn mætti heita seinna nafni
þínu og hversu stoltur þú varst og
hvað þú varst ánægður, en sagðir
samt „já með því skilyrði að hann
verði ekki kallaður Svansi“. Ég verð
þó að viðurkenna að ég hef stolist til
að kalla hann það, því mér finnst þú
eiga svo mikið í honum og er hann
mjög stoltur af að heita Svan eins og
þú.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku besti frændi, guð geymi þig
Laufey Svala Hill.
Axel Svan Kortsson
Elsku Binna systir.
Það er svo margs að minnast að
því verður aldrei komið öllu á blað.
Það varð mikið myrkur og sorg þeg-
ar Svandís hringdi í mig og sagði
mér að mamma sín væri dáin. Ég
varð alveg máttlaus og sagði að það
gæti ekki verið, því hún talaði við
mig tveimur dögum áður og sagðist
hlakka svo til að koma í brúðkaup
dóttur okkar, og talaði um hvað hún
ætti að kaupa handa henni. Ég og
dóttir mín vorum að fara þennan
dag að skoða sal sem veislan átti að
vera í en ekkert varð úr því, við fór-
um heim og grétum.
Elsku Binna mín, þú sem varst
svo falleg og dugleg í því sem þú
varst að gera, þó þú værir hætt að
vinna. Ég man þegar við vorum að
fara með dætur okkar Unni og
Gerði í útilegu og þú varst alltaf með
gítarinn og í systrapartíum varst þú
að spila og syngja og það var alltaf
svo gaman hjá okkur. Á gamlárs-
kvöld komuð þið Rikki alltaf til okk-
ar í Grundarásinn og það var mikið
spilað og mikið sungið fram á nótt.
Brynhildur
Þorsteinsdóttir
✝ Brynhildur Þor-steinsdóttir
fæddist á Jafna-
skarði í Stafholt-
stungum í Borgar-
firði 21. apríl 1944.
Hún varð bráð-
kvödd á Arnarstapa
aðfaranótt föstu-
dagsins 20. júlí síð-
astliðins og var út-
för hennar gerð frá
Bústaðakirkju 31.
júlí.
Mér er mjög minnis-
stætt þegar við fórum
í ferðalag fjögur sam-
an ásamt Írisi Hrund,
yngstu dóttur okkar.
Við keyrðum á jepp-
um um Sprengisand
og Gæsavatnaleið og
áttum ógleymanlega
daga á fjöllum og vor-
um oft lúin eftir langa
og skemmtilega daga.
Haukur og Rikki
voru mjög góðir vinir
og brölluðu oft mikið
saman hér áður fyrr.
Elsku Rikki, Gerður, Svandís,
Óskar, Valdimar og barnabörn,
megi góður guð styrkja ykkur og
leiða í gegnum ykkar miklu sorg.
Hvíl í friði elsku systir og mág-
kona.
Guðbjörg og Haukur.
Í örfáum orðum, sem gætu verið
heil bók, langar mig til þess að
minnast góðrar vinkonu minnar,
Brynhildar, með þakklæti, virðingu
og söknuði.
Þessari glæsilegu konu kynntist
ég þegar hún tók við starfi mínu hjá
Snyrtivörum hf. 1979, þegar ég
hafði eignast eldri son minn. Það
ber vott um samviskusemi og ná-
kvæmni Brynhildar, að hún fékk
mig til þess að segja allt er starfinu
var viðkomandi inn á segulband. Við
töluðum oft um að það væri gaman
að hlusta á þessar upptökur, en svo
varð ekki, en minningin er skemmti-
leg. Þá strax öðlaðist ég mikla virð-
ingu fyrir þessari konu sem bar með
sér mikinn kærleik og útgeislun.
Seinna störfuðum við saman í stjórn
Félags íslenskra snyrtifræðinga,
það var skemmtilegur tími, við
ásamt mörgum öðrum stóðum fyrir
margskonar uppákomum, svo sem
sýningum á Hótel Sögu, í nafni fé-
lagsins, svo ekki sé talað um „snyrti-
pinnaferðirnar“ til Parísar, þar sem
öll helstu tísku- og snyrtihús Par-
ísar voru heimsótt. Brynhildur var
alltaf hrókur alls fagnaðar, og þegar
hún tók upp gítarinn fékk hún alla
til þess að taka undir og syngja með,
meira að segja undirritaða. Eftir-
minnilegar stundir áttum við á Arn-
arstapa. Brynhildur og Rikki buðu
mér nokkrum sinnum þangað, og
stundum kom ég óboðin, þetta var
þeirra annað heimili, fallegt rautt
hús í miðju kríuvarpinu á Arnar-
stapa. Þar, sem og í Tungubakkan-
um, naut ég þeirra einstöku gest-
risni og hlýju.
Brynhildur fylgdist alltaf með
drengjunum mínum og spurði alltaf
um þá og lét sér annt um velferð
þeirra, sem þeir á þessari stundu
minnast. Það var gott að heimsækja
Brynhildi og Rikka, það er gott að
vera gestur og skynja kærleik og
hlýju á milli og hjá gestgjöfum sín-
um. Þannig var upplifunin fyrir mig
og kenndi mér margt. Elsku Rikki
minn, sem hún var svo skotin í, ég
veit það, hún var vinkona mín. Gerð-
ur, Svandís, tengdasynir og barna-
börn, sem hún talaði alltaf um og
var svo innilega stolt af, Guð gefi
ykkur styrk og æðruleysi til þess að
takast á við það stóra skarð sem hef-
ur myndast í tilveru ykkar. Nú hef-
ur bæst við enn ein falleg stjarna í
himinhvolfið. Hún sagði alltaf við
mig, þegar við kvöddumst: „Guð
veri með þér og þínum, Maja mín.“
Ég tek mér hennar orð í munn, Guð
veri með þér og þínum, Brynhildur
mín.
María Kristmanns.
✝
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem
hafa sýnt okkur samúð, hlýhug og stuðning við
fráfall og jarðarför okkar hjartkæra,
EINARS ODDS KRISTJÁNSSONAR
alþingismanns,
Sólbakka, Flateyri,
og heiðrað minningu hans á margvíslegan hátt.
Sigrún Gerða Gísladóttir,
Brynhildur Einarsdóttir, Illugi Gunnarsson,
Kristján Torfi Einarsson, Dagný Arnalds,
Einar Arnalds Kristjánsson,
Teitur Björn Einarsson,
Jóhanna G. Kristjánsdóttir,
Kristján Erlingsson,
Vigdís Erlingsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
EDDU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Sléttuvegi 17,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deildum
A-7 og B-7 á Landspítalanum í Fossvogi og á
líknardeildinni í Kópavogi fyrir góða umönnun.
Guðjón Sigurðsson, Jóhannes Sigurðsson og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skógarbæ,
Árskógum 2,
Reykjavík,
áður Grýtubakka 4,
sem lést sunnudaginn 29. júlí á Skógarbæ, verður
jarðsungin frá Seljakirkju, fimmtudaginn 2. ágúst kl. 15.00.
Ómar Heiðberg Ólafsson, Kristín Þórarinsdóttir,
Bragi Hjörtur Ólafsson,
Guðmundur Kristinn Ólafsson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
S. Stefán Ólafsson, Jóhanna J. Guðbrandsdóttir,
Olga Ólafsdóttir, Sigurður Jónsson,
Sólveig Ólafsdóttir, Trausti Hermannsson,
Sigurlín Ólafsdóttir, Ólafur Valur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.