Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 16
16 B SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Umhverfissvið Heilbrigðisfulltrúi - Matvælaeftirlit Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Leiðarljós Matvælaeftirlits Reykjavíkur er að tryggja sem kostur er að neysluvatn og matvæli borgarbúa séu örugg og heilnæm. Enn fremur að gætt sé þeirra meginsjónarmiða er koma fram í Staðardagskrá 21 um verndun þeirra gæða sem felast í ómenguðu neysluvatni og matvælum. Starfið felst m.a. í þjónustu við íbúa og fyrirtæki borgarinnar ásamt ábyrgð á: • Reglubundnu eftirliti með matvælum og neysluvatni. • Skráningum og skýrslugerð, sinna kvörtunum og annast fræðslu. • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfslýsingu fyrir heilbrigðisfulltrúa og samkvæmt fyrirmælum deildarstjóra. • Samstarf og samvinna við aðrar deildir Heilbrigðiseftirlits og vöktunar. Menntunar og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda eða sambærilegrar menntunar. • Hæfni í mannlegum samskiptum er afar mikilvæg sem og geta til að leiða og taka þátt í uppbyggilegu hópastarfi. • Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagningu í starfi • Réttindi til að mega starfa sem heilbrigðisfulltrúi æskileg. Launakjör fara eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar veita Óskar Í. Sigurðsson deildarstjóri Matvælaeftirlits og Árný Sigurðardóttir forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits og vöktunar hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, frá kl. 9-16 í síma 411 8500. Umsóknir skulu berast til Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar eigi síðar en 27. ágúst nk. merktar „Heilbrigðisfulltrúi - Matvælaeftirlit“. Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja því það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein að sækja um. Konur er því hvattar til þess að sækja um starfið. Reykjavík 12. ágúst 2007. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar. Umhverfissvið Reyjavíkurborgar auglýsir laust til umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá Matvælaeftirliti, Heilbrigðiseftirliti og vöktun. Næsti yfirmaður er deildarstjóri Matvælaeftirlits. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar er eitt af fagsviðum Reykjavíkurborgar og samanstendur af skrifstofum Neyslu og úrgangs og Náttúru og útivistar, Staðardagskrár 21 og Heilbrigðiseftirlits og vöktunar, sem fyrir utan Hundaeftirlit skiptist í þrjár deildir: Hollustuhætti, Mengunarvarnir og Matvælaeftirlit. Helstu verkefni Umhverfissviðs eru: heilbrigðis og mengunar- varnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar og þróunarverkefni á sviði umhverfis og samgöngumála. Styrktarfélag vangefinna Hæfingarstöðin Bjarkarás óskar eftir þroskaþjálfum, félagsliðum, stuðningsfulltrúum í 100% stöður frá og með 1. september eða eftir nánara sam- komulagi. Bjarkarás er staðsett í Stjörnu- gróf 9. Þangað sækja um 45 einstaklingar þjónustu. Meginmarkmið Bjakaráss er að veita ein- staklingsbundna og fjölbreytta þjónustu. Nánari upplýsingar veita Þórhildur Garð- arsdóttir og Valgerður Unnarsdóttir í síma 414 0540. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrktarfélagið á heimasíðu þess www.styrktarfelag.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamn- ingum. Störf þjónustufulltrúa á höfuðborgarsvæðinu laus til umsóknar Óskum eftir að ráða til starfa þjónustufulltrúa í útibú bankans á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar veitir Berglind Ingvarsdóttir á starfsmannasviði Landsbankans í síma 410 7914. Umsóknir fyllist út og sendist ásamt fylgigögnum á www.landsbanki.is fyrir 22. ágúst nk. Helstu verkefni: • Sala og þjónusta til einstaklinga • Fjármálaráðgjöf til einstaklinga • Upplýsingagjöf um vörur og þjónustu bankans Hæfniskröfur: • Háskólamenntun og/eða reynsla af bankastörfum • Frumkvæði, þjónustulund og söluhæfileikar • Markviss og sjálfstæð vinnubrögð • Færni í samskiptum og þægilegt viðmót Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins og veitir alhliða fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfs- ánægju og gott starfsumhverfi, sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta, séu lykillinn að farsælum rekstri bankans. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 38 56 2 08 /0 7 Traustur starfskraftur óskast strax til starfa í verslun okkar í Kringlunni. Um er að ræða u.þ.b. 75% vinnu, þarf að geta bætt við sig vinnu á álagstímum. Umsóknum skal skilað í verslun í Kringlunni eða til jens@jens.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.