Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 B 33 Kaffiheimur er framsækið fyrirtæki í rekstri kaffibara sem starfar undir merkjum Te & Kaffi. Kaffiheimur leggur metnað sinn í að vera með stílhreina kaffibari þar sem áhugi á te og kaffi fær að dafna. Núna vantar gott, áhuga- samt fólk í vinnu í fullt starf. Starfsstöðvar í Kópavogi og í Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Laufey í síma 864 9661. Einnig er hægt að senda inn umsókn á laufey@kaffiheimur.is. Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga sem hefur áhuga á þróun og eflingu starfs fyrir börn og unglinga á vettvangi frítímans Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Bæjarhálsi 1 Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is Helstu verkefni frístundamiðstöðvar- innar Tónabæjar eru: Yfirumsjón með öllu barna- og unglingastarfi ÍTR á þjónustusvæði Tónabæjar • 3 félagsmiðstöðvar: Tónabær, Bústaðir og Þróttheimar • 8 frístundaheimili • Annað félags- og tómstundastarf fyrir börn og unglinga í hverfinu • Forvarnarstarf • Hverfasamstarf og þverfaglegt samstarf við aðrar stofnanir Helstu verkefni forstöðumanns: Að vera leiðandi á sviði frítímaþjónustu og skapa jákvæða umgjörð fyrir borgarbúa til frístundaiðkunar Ábyrgð á starfsemi sem heyrir undir Tónabæ Yfirumsjón með frítímastarfi fatlaðra barna á vegum ÍTR Fjármála- og starfsmannastjórnun Skipulagning og áætlanagerð Menntunar– og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi Stjórnunarreynsla Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar Reynsla af tómstundastarfi æskileg Tungumálakunnátta Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Nánari upp- lýsingar veitir Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri tóm- stundamála ÍTR, sími 411 5000, netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, starfsmannastjóri ÍTR, netfang: ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is STAÐA FORSTÖÐUMANNS FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐVARINNAR TÓNABÆJAR ER LAUS TIL UMSÓKNAR Umsóknarfrestur er til 27. ágúst 2007 Umsóknum skal skilað rafrænt á itr@itr.is eða til Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur, B æjarhálsi 1, 110 Reykjavík, merkt forstöðumaður – Tóna bær Þroskaþjálfafélag Íslands óskar að ráða í 50% starf á skrifstofu félagsins. Umsóknir berist félaginu í Borgartúni 6, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. september nk. Nánari upplýsingar veitir Salóme Þórisdóttir í síma 564 0225 eða 894 0225. Skrifstofustarf Heildverslun óskar eftir að ráða starfs- mann til almennra og fjölbreyttra skrifstofustarfa, sem allra fyrst. Vinnutími 08.30-17.00. Leitum eftir einstaklingi með:  Stúdentspróf eða sambærilega menntun.  Þekkingu á viðskiptahugbúnaði. Umsókn skal skilað á augl.deild Mbl. eða á box@mbl.is, fyrir fimmtudaginn 16. ágúst, merkt: „20415“. Kerfisfræðingur Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða kerfisfræðing. Starfið felst í vinnu við tölvukerfi skólans sem þjónustar bæði kennslu og rann- sóknastarf. Starfsmaðurinn verður hluti af 4-5 manna teymi sem starfar við rekstur tölvukerfis og tilheyrir rekstrarsviði skólans. Næsti yfir- maður er kerfisstjóri. Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Æskilegt er að viðkomandi hafi háskóla- menntun í tölvufræði eða kerfisfræði. Mikil- vægir eiginleikar í starfinu eru sjálfstæði, frumkvæði, þjónustulund og vilji til samstarfs. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Nánari upplýsingar um starfið veita Þorvaldur T. Jónsson rekstrarstjóri eða Guðjón Helgi Þor- valdsson kerfisstjóri í síma 433 5000 eða tölvu- pósti thorvaldur@lbhi.is / gudjon@lbhi.is. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk. Umsóknir sendist til rekstrarstjóra Landbúnaðarháskóla Íslands, 311 Hvanneyri. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði. Landbúnaðarháskóli Íslands er nýr háskóli er byggir á grunni þriggja stofnana, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Garðyrkjuskólans á Reykjum. Skólinn er í örri þróun og býður upp á fjölbreytt nám á sviði náttúrufræða, umhverfismála og skipulagsfræða, auk hefðbundinna landbúnaðargreina. Landbúnaðarháskóli Íslands -Háskóli í hörkusókn- Áhugaverð störf Leikskólinn Hulduberg óskar eftir deildarstjóra, leik- skólakennurum og starfsmönnum til starfa sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er eftir metnaðarfullri námskrá, meginmark- mið er að rækta tengsl barnsins við náttúruna og umhverfið. Hulduberg er sjö deilda leikskóli og þar dvelja um 160 börn yfir daginn. Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kjör annarra starfsmanna eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar. Í samræmi við jafnréttisstefnu Mosfellsbæjar eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um störfin veita: Þuríður Stefánsdóttir leikskólastjóri og Guðrún Viktorsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í símum 586 8170 og 867 0727. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Mosfellsbæjar: www.mos.is/Stjórnsýsla Fræðslu- og menningarsvið HB Grandi á Akranesi Forstjóri HB Granda segir að sjávarútvegs- fyrirtækið ætli sér að reisa nýtt fiskiðjuver á Akranesi þar sem aflamark félagsins í þorski muni dragast saman á næsta fisk- veiðiári þannig að bein sókn í þorsk verði ómöguleg. Aðspurður segir hann að engin ákvörðun hafi verið tekin um framtíð at- hafnasvæðis fyrirtækisins í Reykjavík. HB Grandi sendi Faxaflóahöfnum erindi í dag þar sem óskað er eftir því að þær flýti uppbyggingu á landfyllingu og hafnargarði á Akranesi svo fyrirtækið geti hafist handa við uppbyggingu nýs hús síðla árs 2009. Hann segir flutninginn vera í takt við þá stefnu Faxaflóahafna sf. um að megin fiskveiðihöfn Faxaflóahafna verði á Akra- nesi. Eggert segir að það liggi ekki fyrir hversu margir muni koma til með að starfa í nýja fiskiðjuverinu. Þá sé óljóst hvernig málin muni þróast á næstu tveimur árum. Í dag starfa um 180 starfsmenn við botnfisk- svinnslu í Reykjavík og á Akranesi. Hann segist þó ekki eiga von á því að á þessu tímabili verði gripið til fjöldauppsagna. Ákvörðun HB Granda um að flytjast brott frá Reykjavík hefur talsverða þýðingu fyrir framtíð Reykjavíkur sem sjávarpláss. Egg- ert segir að litið sé á starfsemi Faxaflóa- hafna, þ.e. svæðið á milli Reykjavíkur og Akraness, sem eitt atvinnusvæði í dag. „Akranes hefur verið kynnt sem megin fiskihöfnin. Þannig að ég held að þetta passi mjög vel við stefnu hafnanna í því samhengi,“ segir Eggert og bætir við að tækifærin til frekari uppbyggingar séu mjög góð á Akranesi. 20 þúsund börn fá frístundakort Innleiðing svonefnds frístundakorts í Reykjavík hefst þann 1. september næst- komandi. Öll börn á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Reykjavík eða tæplega 20 þúsund börn eiga rétt á styrk til þátttöku í íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi við innleiðingu kortsins. Meginmarkmið frístundakortsins er að veita öllum reykvískum ungmennum á aldrinum 6-18 ára tækifæri til að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efna- hag eða félagslegum aðstæðum. Með frístundakortinu má greiða að hluta eða að öllu leyti fyrir íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og ná- grannasveitarfélögunum. Frístundakortið stuðlar að jöfnuði í samfélaginu og fjöl- breytileika í tómstundastarfi. Indverskt sendiráð á Íslandi Ríkisstjórn Indlands samþykkti í gær að opna sendiráð í fjórum löndum, þar á með- al á Íslandi. Indverskir fjölmiðlar hafa eftir P. R. Dasmunsi, ráðherra upplýsingamála, að þessi ákvörðun hafi verið tekin til að gæta pólitískra og efnahagslegra hags- muna Indlands. Indverjar munu einnig opna sendiráð í Gvatemala, Níger og Malí. Þá verður opn- uð ræðismannsskrifstofa í Guangzhou í Kína. Gert er ráð fyrir að sendiráðin verði opnuð á þessu fjárhagsári. Íslendingar opnuðu sendiráð í Nýju-Delhi í mars á síðasta ári. Morgunblaðið/Alfons Finnsson ÞETTA HELST …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.