Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 19
LANDIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Laugarvatn | Gamla gufubaðinu á
Laugarvatni hefur verið lokað og
verið er að rífa húsin í kring um
það. Fyrirhugað er að byggja upp
nýja aðstöðu á sama grunni og opna
gufubaðið á ný í vor.
Gufubaðið á bakka Laugarvatns
er ein sögufrægasta heilsulind
landsins. Frá því snemma á síðustu
öld hafa Íslendingar sótt staðinn
heim, farið í gufubað og synt í vatn-
inu, og er staðurinn ómissandi hluti
í tilveru margra.
Hollvinasamtök Laugarvatns
hafa unnið að því að koma upp betri
aðstöðu fyrir gufubaðið. Stofnað
hefur verið félag, Gufa ehf., til að
annast uppbygginguna og samið
við Bláa lónið um að annast rekst-
urinn. Fulltrúar þessara félaga
komu saman á staðnum í tilefni
þessara tímamóta.
Smíðahúsið víkur
Verið er að rífa skúrana sem
hýstu gufubaðið og búningsklefa
þess sem og gamla smíðahúsið sem
gufubaðið hafði til afnota að hluta.
Nýja húsið verður byggt yfir
hverinn á bakka Laugarvatns og að
sögn Önnu Sverrisdóttur, fram-
kvæmdastjóra Bláa lónsins, verður
kappkostað að nýta gufuna með
sama hætti og verið hefur í gömlu
gufunni. Segir Anna að fram-
kvæmdirnar séu unnar í lifandi
náttúru. Tekið sé mið af þeim við
hönnun mannvirkja en hún tekur
fram að ýmislegt geti gerst þegar
farið verði að hreyfa við svæðinu
sem geti breytt fyrirkomulagi. Að
auki verður komið upp volgum
pottum og vaðlaugum og tengingu
við vatnið, til þess að gera staðinn
að aðlaðandi baðstað fyrir alla fjöl-
skylduna. Þá verða góðir búnings-
klefar og aðstaða til sölu veitinga
og minjagripa í húsinu.
Áætlað er að kostnaður við nýju
aðstöðuna verði yfir 200 milljónir
kr.
Baðstaður fyrir fjölskyld-
ur á grunni gufunnar
Gufan Sævar Ástráðsson og Tómas Tryggvason hafa stundað gufuna um
árabil. Þeir voru meðal þeirra sem heimsóttu hana síðasta daginn.
Byggt nýtt Gamla smíðahúsið verður rifið vegna framkvæmda við bygg-
ingu nýs gufubaðs á Laugarvatni. Húsið var flutt þangað frá Þingvöllum.
Eftir Jón Sigurðsson
Austur-Húnavatnssýsla | Bændur í
A-Húnavatnssýslu eru nú á fjöllum í
þónokkrum vindi og eru réttir fram-
undan. Sunnudag og mánudag fóru
þeir í afrétt með sín gangnahross og
trússbíla til að smala heiðalöndin en
þau eru ansi víðfeðm í þessum lands-
hluta.
Á föstudaginn kemur verður rétt-
að í Undirfellsrétt í Vatnsdal. Dag-
inn eftir verður réttað í Auðkúlurétt
og Stafnsrétt og á sunnudag verður
fé rekið til réttar í Skrapatungu.
Réttir í Austur-Húnavatnssýslu eru
þær fjárflestu á landinu og má segja
að Auðkúlurétt sé sú fjárflesta og
Undirfellsrétt er þarna ekki svo
fjarri.
Að sögn kunnugra eru dilkar
nokkuð vænir á þessu hausti þrátt
fyrir þurrka og væntanlega verður
hraustlega gengið til verks um
næstu helgi. Samkvæmt veðurspám
munu gangnamenn fá á sig suðvest-
lægar áttir með þokkalegum hlýind-
um þannig að rekstur til byggða
verður undan vindi en spurning er
hvort féð verður eins sporadrjúgt
þegar heitt er á því.
Hvað sem þessu öllu líður þá er
Finnur Björnsson í Köldukinn byrj-
aður að smala sínum heimahrossum
og var myndin tekin þegar hann reið
fram hjá bænum Kagaðarhóli.
Réttað um helgina
Víða er réttað um helgina. Á laug-
ardag verður til að mynda réttað í
Stafnsrétt í Svartárdal og Miðfjarð-
arrétt og Hrútatungurétt í Vestur-
Húnavatnssýslu. Réttað er víða í
Skagafirði á laugardag og sunnudag,
til dæmis í Staðarrétt og Skarðarétt
á laugardag og Laufskálarétt á
sunnudag.
Af öðrum stöðum má nefna að
réttað er í Fossrétt á Síðu á föstu-
dag, Skaftárrétt á laugardag, Fljóts-
tungurétt í Borgarfirði á laugardag
og Hraunsrétt í Aðaldal á sunnudag
og Möðruvallarétt í Eyjafirði á
sunnudag.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Bændur í göngum
og réttir undirbúnar
SUÐURNES
Keflavík | Gamli
vatnsbrunnurinn við
Brunnstíg í Keflavík
hefur verið end-
urgerður. Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, tók
hann í notkun með því
að dæla vatni fyrir
þyrst göngufólk í
sögugöngu.
Neysluvatnsmál
voru í ólestri í Keflavík
í byrjun síðustu aldar.
Samþykkt var að
Duusverslun tæki að
sér að grafa brunn á
þessum stað og hófust framkvæmdir
á árinu 1907 og einnig var gerður
vegur að honum sem síðar fékk heit-
ið Brunnstígur. Keflavíkurhreppur
keypti vatnsbólin af H.P. Duus 1917
og rak þau síðan.
Brunnur endurgerður
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Opnuð hefur verið
göngudeildarþjónusta fyrir áfengis-
og fíkniefnasjúklinga og aðstand-
endur þeirra í menningarmiðstöð
unglinga, 88-húsinu í Reykjanesbæ.
Hera Ósk Einarsdóttir, verkefna-
stjóri forvarna hjá Reykjanesbæ,
segir að fyrir frumkvæði forvarn-
arverkefnisins Lundar sem Erling-
ur Jónsson, íbúi í Reykjanesbæ,
stendur fyrir hafi verið unnið að því
að skapa möguleika á eftirmeðferð
fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga í
sveitarfélaginu. Tekist hefur sam-
starf milli Lundar, SÁÁ og Reykja-
nesbæjar um að koma upp göngu-
deildarþjónustu í 88-húsinu. Hófst
starfsemin með kynningu í fyrradag
og verður 88-húsið tekið allt undir
hana alla mánudaga í vetur.
Miðla fræðslu
Hera Ósk segir að þar verði boðið
upp á viðtöl og eftirfylgni, ekki síst
fyrir þá einstaklinga sem farið hafi í
meðferð hjá SÁÁ. Hún segir að
þetta sé mikilvæg starfsemi því
dæmin sanni að hætta sé á að menn
hætti að leggja það á sig á aka til
Reykjavíkur til að sækja þessa
þjónustu eftir að meðferð lýkur.
Tekur Hera Ósk fram að þjónustan
sé opin öllum íbúum Suðurnesja,
ekki einungis íbúum Reykjanesbæj-
ar.
Að auki verður boðið upp á
fræðslu- og upplýsingamiðlun fyrir
einstaklinga og fjölskyldur, auk
þjónustu við stofnanir og samstarfs-
aðila í vímuvörnum á Suðurnesjum.
Leitað verður eftir samvinnu við þá
fjölmörgu aðila sem starfa að vímu-
vörnum, með það að leiðarljósi að
þetta nýja verkefni gagnist sem
best og mæti þeim þörfum sem til
staðar eru í samfélaginu.
Nefnir Hera Ósk að forvarnar-
starfið í 88-húsinu sé meðal annars
hugsað sem stuðningur við foreldra
og fólk sem vinnur með börnum og
unglingum, til dæmis í tómstunda-
starfi og skólum. Þegar fólk hafi
áhyggjur af börnunum geti það leit-
að eftir ráðgjöf hjá göngudeildinni
um það hvað sé á seyði og hvernig
bregðast skuli við. Þannig sé hægt
að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða
fyrr en ella.
„Rannsóknir hafa sýnt að krakk-
arnir hér hafa staðið sig ágætlega.
Það er hins vegar alltaf einhver hóp-
ur sem leiðist út í neyslu og þá þarf
að grípa inn í þróunina sem allra
fyrst,“ segir Hera Ósk.
SÁÁ veitir þjónustu á
göngudeild í 88-húsinu
Ljósmynd/Víkurfréttir
Forvarnir Þjónusta göngudeildar SÁÁ var kynnt á fundi í 88-húsinu við
Hafnargötu. Erlingur Jónsson frá forvarnarverkefninu Lundi segir frá.
Eftirmeðferð fyrir
Suðurnesjamenn
og forvarnarstarf
Í HNOTSKURN
»Þriggja manna hópur fráLundi forvarnarverkefni,
SÁÁ og Reykjanesbæ stýrir
starfsemi göngudeildarinnar
og þróun.
»88-húsið er vímuefnalausmenningarmiðstöð ung-
linga, 16 ára og eldri, og verð-
ur húsið tekið undir starfsem-
ina alla mánudaga í vetur.
Lokað
5. september
frá 11:30 - 13:30
miðvikudaginn