Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
BÆJARYFIRVÖLD á Akureyri
vilja að höfuðstöðvar samtak-
anna Northern Forum verði
fluttar frá Alaska til höfuðstaðar
Norðurlands. Sigrún Björk Jak-
obsdóttir bæjarstjóri leggur í
vikunni fram boð þess efnis á
allsherjarþingi samtakanna sem
fram fer í Khanty – Mansiysk í
Rússlandi.
„Ég er viss um að það yrði
spennandi verkefni fyrir okkar
góða fólk í alþjóðasamskiptum og
aðra sérfræðinga að fá höfuð-
stöðvarnar til Akureyrar,“ sagði
Sigrún í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Lofa stuðningi
Samráð hefur verið haft við
Samband íslenskra sveitarfélaga
og utanríkisráðuneytið, sem
ásamt forseta Íslands hafa tekið
jákvætt í málið og hyggjast
styðja verkefnið með ráðum og
dáð ef hugmyndin verður að
veruleika, skv. upplýsingum frá
Akureyrarbæ.
Samtökin Northern Forum
voru stofnuð árið 1991. Megin-
markmið þeirra er að stuðla að
samvinnu héraða og sveitarfé-
laga á norðurslóðum. Akureyr-
arbær varð aðili að samtökunum
á aðalfundi þeirra í St. Péturs-
borg árið 2003.
Meginrök fyrir inngöngu voru
að styrkja Akureyri í sessi sem
miðstöð norðurslóðastarfs,
styrkja það starf sem þegar var
unnið á því sviði í bænum og að
auka þátttöku í erlendu sam-
starfi.
Höfuðstöðvar samtakanna hafa
frá upphafi verið í Anchorage í
Alaska og eru starfsmenn þar nú
fjórir til fimm. Auk þess eru
svæðisskrifstofur í Lapplandi og
í Sakha í Rússlandi en kostnaður
við þær hefur verið greiddur af
þeim fylkjum. Einn starfsmaður
í Moskvu sinnir fyrst og fremst
tengslum og þjónustu við fulltrúa
fyrirtækja, sem aðild eiga að
samtökunum.
Rök fyrir staðsetningu höfuð-
stöðva í Anchorage í Alaska hafa
fyrst og fremst verið þau að það-
an kom hugmyndin og frum-
kvæðið að stofnun samtakanna
og að öflugur stuðningur hefur
fengist frá fylkinu.
Nú hafa komið fram hugmynd-
ir um að finna höfuðstöðvum nýj-
an stað. Augu hafa beinst að Ís-
landi m.a. vegna staðsetningar
landsins og að landið hefur verið
áberandi í norðurslóðastarfi t.d.
þegar formennska Norðurslóð-
aráðsins var í höndum Íslend-
inga.
Tvær af skrifstofum ráðsins
eru á Akureyri, og þar er einnig
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
Háskólinn á Akureyri er aðili að
Háskóla norðurslóða og Rann-
sóknaþingi norðursins (Northern
Research Forum, NRF) og hefur
verið virkur í fleiri norðurslóða-
verkefnum. Í skólanum eru einn-
ig kennd norðurslóðafræði.
Með rekstri skrifstofunnar á
Akureyri gæti náðst hagræðing
vegna samrekstrar, auk þess
sem reikna má með að ýmis
rekstrarkostnaður t.d. vegna
húsnæðis og ferða gæti lækkað,
skv. upplýsingum bæjaryfir-
valda. Talið er að auðveldara geti
orðið að fá styrki og að auka
samvinnu við svæði í Evrópu.
Á þinginu í Khanty – Mans-
iysk verður einnig haldið upp á
15 ára afmæli samtakanna. Þau
urðu fimmtán ára árið 2006 en
þar sem allsherjarþingið er hald-
ið annað hvert ár er þetta form-
legt afmælisþing.
„Yrði spennandi verkefni fyrir okkar góða fólk,“ segir bæjarstjórinn
Bjóða að höfuðstöðvar North-
ern Forum verði á Akureyri
Í HNOTSKURN
»Samtökin Northern Forumvoru stofnuð 1991 en Ak-
ureyri gerðist aðili að þeim
2003.
»Aðilar að Northern Forumeru Alberta-fylki og héraðið
Yukon í Kanada, Heilongjiang-
fylki í Kína, Lappland í Finn-
landi, Akureyri, Hokkaido-
hérað í Japan, Suður-Kórea,
Alaskaríki í Bandaríkjunum og
svo ríki, borgir og sjálfstjórn-
arsvæði í Rússlandi; Chukotka,
Krasnoyarks Krai, Sakha-
lýðveldið (Jakútía), Vologda,
Khanty Masiysk, Komi, St. Pét-
ursborg og Yamal Nenet.
BIRGIR Guðmundsson flytur í dag fyr-
irlestur sem hann kallar Þegar markaðs-
væðing og arðsemiskrafa rífa hjartað úr
blaðamennskunni – Fjölþjóðlegt átak til
varnar blaðamennsku á Félagsvís-
indatorgi í Háskólanum á Akureyri.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12.00 í stofu
L201 á Sólborg.
Í erindinu fjallar Birgir um umræður
sem fram fara í fagstétt blaðamanna víða
um heim um þessar mundir og átaks-
aðgerð á vegum Evrópusambands blaða-
manna, sem ráðist verður í nú í haust und-
ir kjörorðinu Stand up for Journalism.
Birgir er lektor í fjölmiðlafræði við fé-
lagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Ak-
ureyri.
Markaðsvæðing
og arðsemiskrafa
VEL getur farið svo að
fjölskylduhátíð verði
haldin á Akureyri um
verslunarmannahelgina
á næsta ári að sögn bæj-
arstjórans, þó svo fé-
lagsskapurinn Vinir
Akureyrar hafi lýst því
yfir að hann muni ekki
standa fyrir Einni með
öllu framar að óbreyttu,
eins og greint var frá í
blaðinu í gær.
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri
sagði við Morgunblaðið í gær að skýrslur
vinnuhóps bæjarins vegna hátíðarinnar,
og fleiri aðila, yrðu teknar fyrir í bæjar-
ráði í næstu viku. „Við verðum að vega og
meta þetta en ég held að margir mögu-
leikar séu í stöðunni. Við erum komin með
batterí sem heitir Akureyrarstofa og það
er alveg spurning hvort þetta gæti orðið
hennar verkefni og þá jafnvel í samstarfi
við aðra. Við þurfum líka að leggja niður
fyrir okkur hvernig hátíð við viljum halda
og eftir hvaða fólki við sækjumst.“
Hvað verður um
Eina með öllu?
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
SKÓGRÆKT ríkisins hefur gert at-
hugasemdir við skógareyðingu þá
sem fyrirhuguð er í tengslum við
uppbyggingu nýrrar íbúðabyggðar
á Reynisvatnsási í Grafarholti. Sam-
kvæmt aðalskipulagstillögu fyrir
Reynisvatnsás er um fjórðungur
svæðisins innan Græna trefilsins
svonefnda, sem er áætlun um að
koma á samfelldu skógræktar- og
útivistarsvæði sem nær frá Esjurót-
um til Hafnarfjarðar.
„Þarna er í uppsiglingu töluverð
skógareyðing,“ segir Hallgrímur
Indriðason, skipulagsfulltrúi hjá
Skógrækt ríkisins. Segir hann um
að ræða 2,5 hektara lands á ásnum
með um 2.300 trjáplöntum á hekt-
ara, samtals um 5.750 trjáplöntur
sem flestar séu á bilinu 2,5-3 m há-
ar, en um er að ræða furutré, birki
og greni. „Þetta er mjög fallegur
ungur skógur, sem Reykjavíkur-
borg lét góðursetja fyrir um 15 ár-
um. Skógurinn var gróðursettur af
Vinnuskólanum og unnu krakkarnir
hörðum höndum að þessu í mörg
ár.“
Að sögn Hallgríms lutu athuga-
semdir Skógrækt ríkisins fyrst og
fremst að því að nánari upplýsingar
og útfærslu vantaði um þær mót-
vægisaðgerðir sem borgin hygðist
fara í vegna þeirra trjáa á græna
treflinum sem víkja þurfa fyrir nýju
hverfi samkvæmt aðalskipulagstil-
lögu um svæðið. „Við bentum á að
hluti af mótvægisaðgerðunum gæti
verið fólginn í því að leiðrétta aug-
sýnilega annmarka í skipulaginu
þannig að gerðar yrðu ákveðnar
hönnunarbreytingar á hverfinu sem
myndu þyrma skóginum og gera
hverfið miklu skemmtilegra fyrir
framtíðaríbúa,“ segir Hallgrímur og
bendir á að íbúar hverfisins gætu þá
notað skóginn sem útivistarsvæði.
Afstaða borgarinnar
veldur vonbrigðum
„Þessu hefur verið hafnað með
þeim rökum að borgarskipulagið
efast um umsagnarrétt Skógræktar
ríkisins og aðkomu okkar að þessum
skipulagsmálum. Það finnst okkur
óásættanlegt og höfum þegar veitt
andsvör, enda höfum við lögvarinna
hagsmuna að gæta í þessu máli,“
segir Hallgrímur og bendir á að í 6.
grein laga um skógrækt nr. 3/1955
sé skýrt kveðið á um að óheimilt sé
að fella skóg á Íslandi nema með
leyfi skógræktarstjóra ríkisins og í
skipulags- og byggingarlögum sé
gert ráð fyrir aðkomu hagsmuna-
aðila að skipulagsmálum.
„Það er óhætt að segja að þessi
afstaða Reykjavíkurborgar veldur
vonbrigðum,“ segir Hallgrímur og
bendir á að Reykjavíkurborg hafi í
deilum sínum við Kópavogsbæ
vegna eyðingar trjáplantna í Heið-
mörk beitt skógræktarlögum trján-
um í hag ólíkt því sem nú sé gert.
Eftir því sem blaðamaður kemst
næst hefur skipulags- og bygging-
arsvið Reykjavíkurborgar lýst því
yfir að það sé reiðubúið að ræða við
Skógrækt ríkisins um aðkomu
Skógræktarinnar og umsagnarrétt
að skipulagsáætlunum í Reykjavík.
Í þessu samhengi má nefna að fyr-
irhugaður er fundur Skógræktar
ríkisins og Skógræktarfélags
Reykjavíkur með fulltrúum Reykja-
víkurborgar um ágreiningsefni
þessara aðila 2. október nk.
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um 20. september sl. deiliskipulag
íbúðabyggðar á Reynisvatnsási í
Grafarholti og verður málið að öll-
um líkindum tekið fyrir á fundi
borgarstjórnar 2. október nk. Sam-
kvæmt tillögu að deiliskipulagi fyrir
þessa nýju byggð við Reynisvatns-
ás, sem samþykkt var í skipulags-
ráði 19. september sl., er gert ráð
fyrir samtals 106 íbúðum, í einbýlis-
húsum, raðhúsum og parhúsum.
Ætlaðar eru 58 lóðir undir einbýlis-
hús með 58 íbúðum, samtals 8 lóð-
um undir raðhús með 44 íbúðum og
alls 2 lóðir undir parhús með 4 íbúð-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
framkvæmdasviði borgarinnar er
gert ráð fyrir að lóðirnar á Reyn-
isvatnsási verði auglýstar 4.–6.
október nk.
Segja töluverða
skógareyðingu
í uppsiglingu
Ráðgert að 5.750 tré verði látin víkja
fyrir nýju íbúðahverfi á Reynisvatnsási
Morgunblaðið/Frikki
Tré Skógurinn sem um ræðir á Reynisvatnsásnum var gróðursettur fyrir Reykjavíkurborg fyrir um 15 árum.
) * & & * + ,
-*.&*
)**+ ,-./
+01
*
2