Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 17
LANDIÐ
Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson, þýðandi Allir velk
omnir!
Skiptir stærðin máli?
Hvers mikilvæg er örtækni fyrir framþróun á sviði tækni, heilsu og gervimeðvitundar?
Dr. Sveinn Ólafsson og dr. Már Másson frá Háskóla Íslands
ætla að ræða málið.
Þriðja Vísindakaffið í KVÖLD 26.sept.
- vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við – á mannamáli
Kaffistofa Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi frá kl. 20.00 – 21.30
Selfoss | Leikfélag Selfoss verður
um helgina með tvær aukasýning-
ar á gamanleiknum Hnerranum.
Sýningarnar eru til styrktar vænt-
anlegri leikferð leikfélagsins til
Litháens í næsta mánuði.
Gamanverkið Hnerrinn er safn
einþáttunga og smásagna eftir
Anton Chekov. Hnerrinn er 66.
verk Leikfélags Selfoss, en félagið
hefur starfað óslitið frá árinu 1958
og hefur alla tíð verið einn af
máttarstólpum menningarstarf-
semi í sveitarfélaginu. Hörður Sig-
urðarson leikstýrir en hann þýddi
enska leikgerð Michaels Frayns og
er þetta frumflutningur á henni
hér á landi.
Sýningarnar verða á föstudag og
laugardag, báða dagana kl. 20.30.
Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sig-
tún á Selfossi.
Tvær auka-
sýningar á
Hnerranum
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Svissneska pósthjólið,
sem framleitt var árið 1964, hefur
reynst svissneska farfuglinum Josef
Niederberger hinn þarfasti þjónn í
þau 23 ár sem hann hefur ferðast um
á hjólinu hér á landi. Josef tók það
sérstaklega fram að aldrei hefði
sprungið hjá honum dekk á hjólinu
öll þessi sumur á Íslandi, né orðið
loftlaust.
Hjólið fer á safn
Nú er komið að því að bæði Josef
og hjólið hvíli sig, hann verður sjö-
tugur á næsta ári og hjólið 44 ára.
Suzuki-húsbíllinn frá Skúla bónda
Ragnarssyni á Ytra-Álandi leysir
hjólið af hólmi og bíður eftir Josef
næsta vor. Öllu er haganlega fyrir
komið í bílnum og nóg pláss bæði til
að elda og sofa, að sögn Josefs, sem
kann Skúla góðvini sínum bestu
þakkir.
Josef á ekki bíl í heimalandi sínu
og segist heldur vilja nota peningana
til Íslandsferðanna en þetta er tutt-
ugasta og fjórða sumar hans hér á
landi. Josef er umhugað um hreint
og ómengað umhverfi og er ánægður
með það að hafa ekki mengað and-
rúmsloftið með útblæstri frá bíl í heil
23 ár og getur hann því með góðri
samvisku ekið um á litla húsbílnum
sínum næstu sumur.
Hjólið góða er nú á leiðinni til
Seyðisfjarðar, á Tækniminjasafn
Austurlands, og fær þar væntanlega
virðingarsess. Sjálfur er Josef þessa
dagana á leið í heimabyggð sína,
smábæinn Wolfisberg í Sviss.
Málar og teiknar
Auk þess að njóta náttúrunnar
notar Josef tímann til að mála og
teikna það sem fyrir augu ber, dýr
og jurtir, og fyllir dagbókina með
teikningum og athugasemdum.
Hann segir gestrisni Íslendinga
alveg einstaka og kann öllum hjart-
ans þakkir fyrir. Vetur gengur brátt
í garð en það vorar alltaf aftur og hér
á Þórshöfn vita menn að sumarið er í
nánd þegar hinn fagurrauði H-201,
Suzuki-húsbíllinn hans Josefs, sést
aftur við tjaldsvæðið.
Farfuglinn Josef skiptir um
fararskjóta í Íslandsferðum
Gamla svissneska
pósthjólið fer á
Tækniminjasafnið
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Skipti Framan við Josef Niederberger stendur reiðhjólið sem hann hefur
notað í Íslandsferðum í meira en tvo áratugi. Á bak við sést í nýja farar-
tækið, lítinn rauðan Suzuki, sem tekur við hlutverkinu að ári.
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Grindavík | Nýtt 25 radda pípuorgel
verður tekið í notkun í Grindavík-
urkirkju við hátíðarguðsþjónustu
næstkomandi sunnudag. Gera þurfti
breytingar á kirkjunni til að koma
nýja orgelinu fyrir.
Grindavíkurkirkja er 25 ára um
þessar mundir. Haldið er upp á það
með hátíðarguðsþjónustu sem hefst
klukkan 14 á sunnudag og vígslu nýs
orgels sem Björgvin Tómasson org-
elsmiður á Stokkseyri hefur smíðað.
Eftir messu, á meðan kirkjugestir
njóta kaffiveitinga, munu Hörður
Áskelsson og Björn Steinar Sól-
bergsson organistar leika á nýja org-
elið.
Þegar kirkjan var tekin í notkun
var flutt þangað pípuorgel úr gömlu
kirkjunni. Elínborg Gísladóttir
sóknarprestur segir að lengi hafi
verið til umræðu að fá nýtt hljóðfæri
en það hafi tekið sinn tíma. Hljóð-
færi af þessari stærð er mikil fjár-
festing fyrir söfnuðinn. Elínborg
segir að söfnun fyrir orgelinu hafi
gengið vel en tekur fram að henni sé
ekki lokið.
Elínborg kom sem afleysinga-
prestur til Grindavíkur fyrir rúmu
ári í leyfi Jónu Kristínar Þorvalds-
dóttur og hefur nú verið ráðin sókn-
arprestur.
„Mér líkar mjög vel, Grindavík er
góður staður og ég er þakklát fyrir
að fá tækifæri til að þjóna hér,“ segir
Elínborg. Hún segir að mannlíf sé
gott í Grindavík. Þar sé enn and-
rúmsloft sveitar og sjávarpláss um
leið og uppbyggingarandi. Hún segir
að líflegir straumar fylgi uppbygg-
ingunni en um leið sé þar samkennd
sem fylgi minni samfélögum og íbú-
arnir eigi greiðan aðgang að kirkj-
unni. Þá sé fólk tilbúið til að leggja
kirkjunni sinni lið þegar á þurfi að
halda.
Elínborg er Skagfirðingur í húð og
hár. Hún er lærður lyfjatæknir og
vann í apótekum í áratug. Hún var
komin yfir þrítugt þegar hún hóf
nám í guðfræði við Háskóla Íslands.
„Ég þarf alltaf að fara svo langar
leiðir í lífinu. Þegar ég byrjaði í guð-
fræðinni fann ég fljótt að það er leið-
in sem ég átti að fara og er nákvæm-
lega á réttum stað í þessu starfi,“
segir Elínborg.
Hún vígðist til Ólafsfjarðarpresta-
kalls fyrir sex árum og var síðan um
tíma prestur í Grafarvogi. Áður hafði
hún meðal annars starfað hjá
Kvennaathvarfinu í Reykjavík og
SÁÁ. „Það hefur alltaf átt vel við mig
að vinna með fólki,“ segir hún.
Nýtt 25 radda orgel tekið í
notkun í Grindavíkurkirkju
Ljósmynd/Hjörtur Hjartarson
Hljóðfæri Nýja pípuorgelið stendur fyrir miðri Grindavíkurkirkju og setur
svip á kirkjuna. Friðrik Vignir Stefánsson organisti stendur við það.
„ÞESSU fylgir svolítil eftirsjá, það
er tómlegt á verkstæðinu þegar org-
elið er farið. En um leið er það léttir
að ljúka slíku verki,“ segir Björgvin
Tómasson, orgelsmiður á Stokks-
eyri, um orgelið fyrir Grindavík-
urkirkju sem hann hefur unnið að
ásamt starfsmönnum sínum í vel á
annað ár og hefur nú lokið við að
smíða og setja upp í kirkjunni.
Hann segist hafa fundið meira
fyrir eftirsjá þegar hann afhenti
fyrstu orgelin en nú. Orgelið í
Grindavíkurkirkju er opus 29 hjá
Björgvini, 29. hljóðfærið sem hann
smíðar. Þótt orgelið sé þriðja
stærsta orgelið sem hann hefur
smíðað tekur hann fram að það sé í
raun lítið í samanburði við stór
pípuorgel erlendis. Orgelið er 25
radda, sem Björgvin telur viðeig-
andi á 25 ára vígsluafmæli kirkj-
unnar, og í því eru 1.502 pípur.
„Það er mjög myndarlega að
verki staðið hjá Grindvíkingum,“
segir Björgvin um verkefnið.
Stækka þurfi orgelstúkuna í
Grindavíkurkirkju til að koma nýja
orgelinu fyrir og lyfta þakinu þar
fyrir ofan. Telur hann að breyting-
arnar hafi tekist vel. Orgelið stend-
ur fyrir miðri kirkju og nýtur sín
vel.
1.502 pípur
eru í nýja
orgelinu