Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 29
✝ Eggert Ó.Brynjólfsson
fæddist í Reykjavík
4. september 1923.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 15.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Brynjólfur
Gíslason, f. 22.8.
1884, d. 19.3. 1954
og Guðrún Hannes-
dóttir, f. 21.7. 1885,
d. 21.12. 1961.
Systkini Eggerts
eru: 1) Þorbjörn Óskar, f. 1909, d.
1910, 2) Gísli Óskar, f. 1910, d.
1934, 3) Sigurbjörg, f. 1912, d.
1925, 4) Hannes, f. 1913, d. 1913,
5) Guðmundur, f. 1915, d. 2000, 6)
Vigdís, f. 1916, d. 1996, 7) Ingvar,
f. 1918, d. 2000, og 8) Jón, f. 1920.
Hinn 12.5. 1945 kvæntist Egg-
ert Maríu J. Vil-
helmsdóttur, f. 26.6.
1926, d. 10.11. 2001.
Börn þeirra eru:
Kristín, f. 21.1.
1947, d. 9.7. 1997,
gift Birni Hafsteins-
syni, þau eiga þrjú
börn, Óttar, f. 29.12.
1949, kvæntur Elínu
A. Sigurjónsdóttur,
þau eiga þrjú börn,
og Ester, f. 11.10.
1958, gift Bjarna
Eyjólfssyni, þau
eiga þrjú börn.
Barnabarnabörnin eru níu.
Eggert ólst upp í Reykjavík,
hann var húsgagnasmiður að
mennt og starfaði síðast hjá
Gamla kompaníinu.
Útför Eggerts verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Í september 1990 fékk mamma
þær hörmulegu fréttir að afi Eggert,
þá nýorðinn 67 ára, hefði lent í um-
ferðarslysi. Hann varð fyrir bíl, slas-
aðist mjög alvarlega og barátta hans
hófst upp á líf og dauða. Ljósið virt-
ist lítið sem ekkert en von okkar um
kraftaverk hélt í neistann og fékk
hann til að loga örlítið suma daga en
minna aðra. Svona gekk þetta í
margar vikur. Litli frumburðurinn
minn sem var 3 mánaða, trúin og
vonin, gaf mér óútskýranlegan kraft
sem knúði mig áfram þegar á reyndi.
Lífsneisti afa kviknaði, ljósið stækk-
aði, birtan og krafturinn varð meiri.
Afi sigraði dauðann að þessu sinni.
Við fengum 17 ár í viðbót með þér,
dýrmæt ár sem gáfu börnunum mín-
um tækifæri til að kynnast þér.
Elsku afi minn. Ég er þakklát fyr-
ir að hafa fengið að njóta nærveru
þinnar svona lengi. Þú varst stór
hluti af lífi mínu í 37 ár en nú ertu
farinn. Hefur fengið hvíldina sem þú
þráðir undir lokin. Kominn í ljós lífs-
ins, til elskunnar þinnar, nöfnu
minnar, ömmu Maríu, og ástkæru
dóttur þinnar, mömmu Kristínar
sem við misstum langt um aldur
fram. Það var erfið þraut sem við
gengum í gegnum saman, fyrst
kvaddi mamma okkur og föðuramma
1997 og síðan móðuramma 2001.
Enn ein þrautin og í þetta sinn
hinsta kveðja til þín, afi minn. Síð-
ustu dagarnir með þér á spítalanum
voru erfiðir en mér afar dýrmætir.
Kallið var komið, þér fannst þessi
tími erfiður og sagðir mér að þú vild-
ir verða frjáls og bráðum mundi
þetta góða koma. Þegar ég spurði
þig hvað þetta góða væri sagðir þú:
„Það er eitthvað sem þú munt kom-
ast að síðar, vina mín.“ Svo brostir
þú til mín og þrýstir hönd mína og
sagðir: „Þú ert algjört yndi, hjartað
mitt, ég elska þig.“ Þessi ljúfu orð
þín til mín mun ég geyma í brjósti
mér og þau munu lýsa mér áfram um
lífsins veg og minningin um góðan
afa skín áfram skært eins og geislar
sólarinnar. Dætur mínar, Erna
Kristín og Eva María, voru lánsamar
að kynnast jafn yndislegri og góðri
manneskju eins og þér. Ég man þeg-
ar ég var í heimsókn hjá þér og
ömmu með yngri dótturina 1999. Við
vorum að velta fyrir okkur nafni á
litla gleðigjafann. Það leyndi sér
ekki stoltið í augum ömmu þegar ég
sagði henni að hún ætti að heita
María en að okkur foreldrana lang-
aði að láta barnið heita tveimur nöfn-
um. Afi skellti þá upp úr eins og hans
var von og vísa og sagði: „Já, við höf-
um stóru Maju (ömmu) og litlu Maju
(sem er undirrituð) og það gæti orðið
ruglingslegt að fá þriðju Majuna.
Amma kom þá með hugmyndina að
Evu nafninu fyrir framan. Okkur
foreldrunum leist svo vel á að það
varð fyrir valinu.
Ekki vantaði hlýjuna og umhyggj-
una til okkar barna-barnanna og
barna-barna-barnanna. Þú varst svo
barngóður og skilningsríkur, næmur
á líðan okkar og tilfinningar. Þú
varðveittir barnið í sjálfum þér og
birtist það í þolinmæði, frásagnar-
gleði, kátínu og natni við að dunda
með okkur og síðar barna-barna-
börnunum hvort sem það var að
skoða bók, segja sögur, byggja úr
kubbum, spila eða fíflast úti í garði.
Þvílíkur sykurmoli! Elsku afi, takk
fyrir allt og knúsaðu mömmu og skil-
aðu kveðju til allra látinna ástvina.
Guð blessi ykkur.
María Björnsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri afi.
Þú varst einstakur maður sem við
getum öll lært af. Þú varst góður og
blíður við alla, jákvæður og hress
þrátt fyrir mótlæti og fékkst fólk til
þess að hlæja.
Ég álít mig heppna að hafa fengið
ásamt unnusta mínum, Friðriki, að
búa hjá þér. Við munum ávallt minn-
ast þessa tíma, okkar fyrstu sambúð-
ar með miklum hlýhug. Eins og
kvöldsins sem við kveiktum í arnin-
um og fengum okkur kakó saman,
sagnanna þinna um bernskubrek þín
og ferðalaganna og aðfangadags-
kvöldsins sem ég og Friðrik trúlof-
uðum okkur og þú varst fyrstur til að
fá fréttirnar og óska okkur til ham-
ingju. Okkur leið afskaplega vel hjá
þér enda opnaðir þú heimilið þitt og
hjarta fyrir okkur með mikilli hlýju.
Nú stendur eftir stórt gat í hjarta
okkar sem aðeins þú gast fyllt, en við
getum hlýjað okkur við minningarn-
ar og þakkað fyrir að hafa átt þann
stutta tíma sem okkur var gefinn
saman á litla hamingjuheimilinu á
Sogavegi. Við kveðjum þig með mikl-
um söknuði.
Sóley og Friðrik.
Eggert Ó.
Brynjólfsson
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LILLÝ KRISTJÁNSSON,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
27. september kl. 11.00.
Karl Harrý Sigurðsson, Hrönn Helgadóttir,
Ari Guðmundsson, Fríður Sigurðardóttir,
Kristjana G. Guðmundsdóttir, Jonathan Motzfeldt,
Guðrún Guðmundsdótttir, Guðmundur E. Hallsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
GUÐRÚN JÓHANNA ANDRÉSDÓTTIR
Norðdahl
frá Hamri,
lést fimmtudaginn 20. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í
Reykjavík. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
26. september kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Hreggviður Norðdahl, Svava H. Guðmundsdóttir,
Svala Norðdahl,
Hrönn Norðdahl, Elís Rúnar Víglundsson,
Magnús M. Norðdahl, Elín Jónasdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkin.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
DÓRA SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Grund,
Hringbraut 50,
áður Hólmgarði 17,
lést mánudaginn 24. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Svanhildur Magnúsdóttir,
Hilmar Magnússon,
Ólöf Magnúsdóttir, Þórarinn Haraldsson,
Málhildur Þ. Angantýsdóttir,
Sigurður Angantýsson,
ömmu, langömmu og langalangömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ÍVARSDÓTTIR,
andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti
laugardaginn 22. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Sverrir Sighvatsson, Kristín Þórðardóttir,
Haukur Sighvatsson, Valgerður Sigurðardóttir,
Svanlaug Sighvatsdóttir,
Erla Sighvatsdóttir, Sævar Hallgrímsson,
Sigurður Sighvatsson, Þóra Helgadóttir,
Hilmar Sighvatsson, Bryndís Hreinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri
GUÐBJARTUR GUÐMUNDSSON,
Árskógum 6,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 18. september, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
27. september kl. 13:00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir
sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Linda Guðbjartsdóttir, Magnús Ársælsson,
Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir, Erlendur Magnússon,
Pétur Guðbjartsson, Birna Margrét Guðjónsdóttir,
Jónina Guðbjartsdóttir, Kolbeinn Ágústsson,
börn og barnabörn,
Anna Kristín Linnet.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HANNES R. ÞÓRARINSSON
læknir,
Sóleyjargötu 27,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 13. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jón Gunnar Hannesson,
Ástríður Hannesdóttir,
Þórarinn Hannesson,
Sigurður Hannesson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
GUÐRÚN ARNFINNSDÓTTIR,
Borgarheiði 4h,
Hveragerði,
andaðist laugardaginn 8. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks deildar 11E á
Landspítalanum við Hringbraut.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningargjafasjóð
Landspítalans.
Helgi Kristmundsson,
Katrín Helgadóttir, Haraldur Leifsson,
Þröstur Helgason
og barnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR G. HALLDÓRSSON
rafmagnsverkfræðingur,
áður til heimilis
að Mávanesi 11,
Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð mánudaginn
24. september.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtudaginn
4. október kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins.
Magnús Sigurðsson, Kristrún B. Jónsdóttir,
Halldór Sigurðsson, Helga Gunnarsdóttir,
Sigrún Sigurðardóttir, Þorvaldur Þorvaldsson,
Svava Sigurðardóttir, Þorsteinn Ragnarsson,
Lilja Hreinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.