Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 3
tjórn ens- við fyrir týrði eist- andi efur gang eist- ndir tjórn Pet- eik í s var með he í ðsins ka en best ví fór góða t úr- mjög nda- nn á kert klaga fer- anna laðið a at- s liðs vel á fyrir Ram- dag omst auti MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 3 Sigurþór Jónsson, kylfingur semnýverið gekk í GR, lék ágætlega á úrtökumóti fyrir sænsku Telia mótaröðina í gær þegar leikinn var fyrsti hringur. Hann lauk leik á 75 höggum, þremur höggum yfir pari og er í 12. - 16. sæti. Hann fékk fjóra skolla (+1), einn fugl (-1) og 13 pör á hringnum í gær. Sá sem lék best er á einu höggi undir pari.    Það gekk ekkieins vel hjá Erni Ævari Hjart- arsyni úr GS, en hann lék á 11 höggum yfir pari í gær og er í 58. til 67. sæti en keppendur eru 84.    Ingimundur Ingimundarson ogSigurður Ari Stefánsson skor- uðu eitt mark hver fyrir Elverum þegar liðið tapaði fyrir Fyllingen, 36:30, í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Samúel Ívar Árna- son tókst hins vegar ekki að skora.    Róbert Gunnarsson skoraði 3mörk fyrir Gummersbach í gærkvöld í leik liðsins gegn Ham- borg á útivelli í þýska handbolt- anum. Það dugði ekki til þar sem Hamborg hafði betur, 33:29.    Roman Pungartnik var marka-hæstur í liði Gummersbach með 7 mörk. Guðjón Valur Sigurðs- son leikur ekki með liðinu næstu vik- urnar en hann er að jafna sig eftir aðgerð á vinstri öxl. Sverre Jakobs- son lék hinsvegar í vörn Gummers- bach.    Snorri SteinnGuðjónsson skoraði 7 mörk og Ásgeir Örn Hall- grímsson 4 fyrir GOG í sigri liðs- ins á Skande- borg, 38:26, í dönsku úrvals- deildinni í gær. Sigurður Eggertsson skoraði eitt af mörkum Skandeborg.    Vignir Svavarsson skoraði 5mörk fyrir Skjern sem tapaði fyrir Viborg, 30:25. Hannes Jón Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Fred- ericia og Fannar Þorbjörnsson eitt þegar liðið lá fyrir Kolding, 29:25.    Sigfús Sigurðsson og félagar hansí spænska liðinu Ademar Leon sigruðu Skopje, 28:21, í Meistara- deild Evrópu í handknattleik í gær. Sigfús var ekki á meðal markaskor- ara hjá Ademar í leiknum.    Ólafur Stefánsson skoraði 3 afmörkum Ciudad Real sem hélt sigurgöngu sinni áfram í spænsku deildinni með því að sigra Aragón, 35:29. Fólk sport@mbl.is Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Spáin er í sjálfu sér eðlileg enda hafa KR, Grindavík og Snæfell verið með nokkuð heildstæðan hóp í æfingamót- unum og menn vita því hvers er að vænta af þeim. Á sama tíma hafa mörg önnur lið verið að móta sig al- veg fram á síðustu stundu og því ekki alveg ljóst hvernig þau koma til með að verða. Annars held ég að mótið verði jafn- ara en oft áður og mér sýnist að það geti verið fimm til sex lið sem blandi sér í toppbaráttuna og það er alveg á hreinu að við ætlum að vera ofar en okkur er spáð og ég held að við séum með nógu góðan hóp til þess,“ sagði Sverrir Þór um komandi leiktíð í körf- unni. Byrjaði í Stykkishólmi Hann er Keflvíkingur og lék upp alla yngri flokkana með félaginu, bæði í körfu og fótbolta, þar sem hann var í eitt ár í meistaraflokki. Svo fór hann til Stykkishólms og lék þar körfuknattleik með úrvalsdeildarlið- inu Snæfelli veturinn 1993-1994. „Ég var búinn að leika með yngri flokk- unum í Keflavík og þegar ég kláraði drengjaflokkinn hringdu forráða- menn Snæfells í mig og buðu mér að koma, fá vinnu og húsnæði og spila með þeim í úrvalsdeildinni. Þá vantaði aðalleikstjórnanda og þetta var auð- vitað gullið tækifæri fyrir mig enda var ég ekki einu sinni farinn að æfa með meistaraflokki í Keflavík. Ég sló til og var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar þann veturinn og það ýtti manni dálítið áfram enda hefði ég örugglega þurft nokkur ár til viðbótar til að vinna mig inn í liðið,“ segir Sverrir Þór, sem á að baki 280 leiki í efstu deild í körfunni með Snæfelli, Keflavík, Njarðvík og Tindastóli. Þrjú ár að mála á Króknum Sverrir flutti á Sauðárkrók 1997 til að leika knattspyrnu og ætlaði að vera þar í eitt sumar. „Það var nú bara ætlunin að vera þar í eitt sumar en ég endaði með því að vera þar í þrjú ár, bæði í körfunni og fótbolt- anum. Ég fór að vinna hjá málurum og fór á samning hjá þeim og lauk námi,“ segir Sverri sem starfar sem málari. Því næst lá leiðin til Grinda- víkur þar sem hann lék með liðinu í efstu deild í fótboltanum. „Þetta var eini tíminn sem ég var ekki líka í körf- unni, ég sleppti henni í eitt og hálft tímabil því það gekk ekki upp að vera í báðum greinunum. Miðað við að vera á fullu í báðum greinum mætti halda að hann væri aldrei heima hjá sér. „Það má segja að þegar ég er ekki að vinna eða á æf- ingum – þá er ég heima. Það er alveg lágmark. Ég þekki auðvitað ekkert annað, ég er búinn að vera í þessu alla ævi og fjölskyldan hefur einnig rosa- legan áhuga og tekur þátt í þessu með mér – kemur á alla leiki sem ég tek þátt í,“ sagði Sverrir. Tekur smátíma að skipta um grein Eitt það leiðinlegasta sem margir fótboltamenn gera er að hlaupa úti á veturna til að gera sig klára fyrir komandi sumar. Sverrir þarf þess ekki þar sem hann er á fullu í körf- unni, en er ekkert erfitt að skipta á milli greina? „Það tekur alltaf smátíma að skipta, sérstaklega úr körfunni í fót- boltann enda talsvert meiri hlaup um völlinn, lengri sprettir. Þegar maður kemur inn í körfuna hefur maður alltaf mjög gott úthald og þannig en það tekur smátíma að fá tilfinninguna fyrir boltanum.“ Það segir sig sjálft að Sverrir kem- ur nokkuð seint til leiks í körfunni enda fótboltatímabilið langt og skar- ast mikið við undirbúningstímabil körfunnar. „Mótið í fótboltanum byrj- ar um miðjan maí og ég er mættur til leiks svona tveimur til þremur vikum fyrir mót. Vandamálið er að maður nær stundum engum æfingaleikjum en kemur beint inn í mótið og það tek- ur alltaf smátíma að koma sér í fót- boltaform og það sama á við um körf- una á haustin, maður kemur seint til leiks þar.“ En skyldi Sverrir aldrei fá hrein- lega nóg af því að vera alveg á fullu allt árið um kring? „Jú, jú, það hefur komið nokkrum sinnum. Ég var kominn með upp í háls af fótboltanum í sumar. Mótið var langt og við vorum í rosalegri fall- baráttu, þetta tók virkilega á. Það er líka alveg spurning hvað maður gerir næsta sumar, en það er svo sem ekki í fyrsta sinn sem maður segir það og síðan hefur þetta allt breyst á vorin. Það er því best að segja sem minnst en ég er ekki frá því að maður spili bara með „old boys“ næsta sumar. Þetta er búið að vera ansi gott og ef ég ætla að halda eitthvað áfram í körf- unni þá er sjálfsagt ágætt að nota sumarið til að draga aðeins andann,“ segir Sverrir. Það er ekkert sjálfgefið að menn skipti úr Keflavík í Njarðvík eða öfugt enda mikil keppni á milli félaganna. En verða menn fyrir aðkasti við að skipta svona? „Nei, nei, ég hef ekki orðið var við nein leiðindi og ég held að fólk virði þetta. Ég er búinn að vera lengi með Keflavík og vinna mikið og þeir sem eru í kringum körfuna hjá Keflavík skilja afstöðu mína vel. Það verður ekkert mál að fara til Keflavíkur og spila þar, ég á samt ekki von á að verða vinsælasti maðurinn í húsinu en ég er alveg maður til að taka á því og hef bara gaman af því,“ sagði Sverri Þór. Á ferð og flugi  Sverrir Þór Sverrisson er kominn í Njarðvík  Málarinn er einn af fáum sem leikur körfubolta á veturna og fótbolta á sumrin Mótið verður mjög jafnt „ÞETTA er auðvitað bara spá og ég held hún sé nokkuð eðlileg miðað við undirbúningstímabilið,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, leikstjórn- andi Njarðvíkinga í körfuknattleik, um komandi tímabil. Sverrir er einn fárra sem leika á fullu í efstu deild í körfuboltanum á veturna og skiptir síðan yfir í fótboltan á sumr- in. Hann hefur komið víða við í báð- um greinum og skipti í sumar úr Keflavík í Njarðvík í körfuknatt- leiknum. Iceland Express-deild karla hefst í dag og þá tekur meðal annars Njarðvík á móti Snæfell. Víkurfréttir/Þorgils Málarinn Sverrir Þór Sverrisson, leikmaður Njarðvíkurliðsins í körfuknattleik, að störfum á heimaslóðum. Í HNOTSKURN »Sverrir Þór hefur verið áfullu bæði í körfu og fót- bolta alveg frá því hann var smápolli í Keflavík. »Hann þykir prúður leik-maður og frá árinu 2001 hefur hann aðeins fengið sjö gul spjöld í fótboltanum. „Ég hef hins vegar aldrei verið rekinn út af,“ segir hann. »Svona er þetta líka í körf-unni. „Ég hef aldrei fengið fimm villur í leik í körfunni,“ segir hann. „Jú, jú, ég er að grínast. Ég hef oft fengið fimm villur en það er þá bara rugl í dómurunum,“ segir hann hlæjandi. ENSKI kylfingurinn Paul Casey hefur titil að verja á HS-meistaramótinu í holu- keppni sem hefst í dag á Wentworth vellinum á Eng- landi. Hann stefnir að því að verða fyrsti enski kylfingur- inn sem nær að verja titilinn á þessu móti en aðeins 16 kylfingar taka þátt og sigur- vegarinn fær um 123 millj- ónir kr. í sinn hlut. Margir af sterkustu kylfingum láta sig vanta á mótið og má þar nefna Bandaríkjamennina Tiger Woods, Phil Mic- kelson, Jim Furyk og Steve Stricker Eftir- taldir kylf- ingar mætast í 1. umferð og er þeim raðað eftir styrk- leika:  Paul Casey (1.) – Jim Kelly (16.).  Retief Goosen (8.) – Angel Cabrera (9.).  Justin Rose (5.) – Hunter Mahan (12.).  Rory Sabbatini (4.) – Sören Hansen (13.).  Padraig Harrington (3.) – Anders Hansen (14.).  Henrik Stenson (6.) – Woody Austin (11.).  Niclas Fasth (7.) – Andres Romero (10.).  Ernie Els (2.) – Colin Montgomerie (15.). Rúmlega 120 milljónir kr. í boði Paul Casey FORRÁÐAMENN NBA-liðsins New York Knicks komu nokkuð á óvart í gær þegar þeir tilkynntu að búið væri að semja við fyrrverandi leikmann liðsins, Allan Houston, en hann hefur ekkert leikið vegna meiðsla undanfarin tvö ár. Houston er 36 ára gamall en hann hefur glímt við erfið meiðsli á undanförnum misserum. „Ég hef stefnt að því með markvissum hætti að koma til baka í NBA-deildina og það kom aldrei neitt annað lið til greina,“ sagði hinn 36 ára gamli bakvörður í gær þegar tilkynnt var um endurkomu hans í deildina. „Ég er með hjarta sem slær með Knicks og ég ætla að reyna að hjálpa liðinu að taka skref í átt að meistaratitlinum.“ Houston lék síðast heilt tímabil án þess að meiðast 2002-2003 en á þeim tíma skoraði hann 22,5 stig að meðaltali í leik. Hann skor- aði sigurkörfu Knicks gegn Miami Heat árið 1999 í oddaleik í 1. umferð úr- slitakeppni Austurdeildar. Meistaralið San Antonio Spurs og Cleveland Caval- iers höfðu bæði sett sig í samband við Houston en hann valdi Knicks þrátt fyrir að sárafáir hafi trú á því að liðið geti barist um meistaratitilinn á næstu leiktíð. Allan Houston á ný til Knicks Allan Houston

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.