Morgunblaðið - 16.10.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.10.2007, Qupperneq 19
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 19 91, 105 og 130 hö. ÓDÝRIR OG GÓÐIR DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 568 6411 WWW.RAFVORUR.IS · RAFVORUR@RAFVORUR.IS  Skyndibitakeðjur með hreinlætis- vandamál  Borgin hyggst selja hlut sinn í REI  Innbrotum fækkar ár frá ári  Morð íVesturbænum  Ein af hverjum sex konum missir fóstur  DV særir Dorrit - kemur þér við 7.000 óþörf útköll lögreglunnar Leigubílstjórar lærðu samningatækni FBI Lúxus fyrir 50 milljónir plús Stöð 2 og Sena í stríð við Torrent.is Helgi Rafn Idol- stjarna semur óperu Alþjóðleg rallkeppni á Íslandi Hvaða blað lestu í dag? Sláturtíðin setur mark sitt á haustið eins og venja er til og drekkhlaðnir bílar af sauðfé koma víða að til Húsavíkur enda gríðarlegum fjölda fjár slátrað hjá Norðlenska. Færri og færri bændur vinna að slátruninni og hafa út- lendingar haslað sér þar völl eins og í mörgum öðrum störfum. Ýmsar framfarir hafa orðið hvað varðar förgun úrgangs og ber þar að nefna að öllu gori er nú ekið með haugsugu upp á Hólasand til uppgræðslu í stað þess að keyra það í gryfjur og líklega verður grasið þar grænt næsta sumar ef að líkum lætur. Þá er öllum beinum brennt í kjötvinnslunni sem áður voru grafin og því hafa hrafnar og máfar minna nýmeti á þessu hausti en oft áður.    Sláturgerð er mikil hjá fólki enda reiknast margar mál- tíðir úr hverju slátri fyrir venjulega fjölskyldu. Auðvitað er sláturgerðin fyrirhöfn, en flestir segja að þetta sé engin vinna miðað við það sem áður var þegar fólk sat og brytj- aði mör, hreinsaði garnir og kalónaði vambir, sneið og saumaði. Nú eru bara gervikeppir sem fljótlegt er að setja í og mörinn getur komið brytjaður og þá er sláturgerðin ekki svo tímafrek. Kjötvinna er líka mikil á sumum bæjum þar sem margt er í heimili og sums staðar er farið að rjúka úr reykhúsum enda komið fram yfir miðjan október. Kjöt af veturgömlu og fullorðnu er mikið notað í hangikjötið en fáir nýta mjög fullorðna hrúta til kjöts þó enn sé til fólk sem ekki vill missa af því að eiga hið svokallaða hrútabragð í kistunni.    Kýr eru víðast hvar að koma á gjöf enda grænfóðursakrar að mestu búnir nema á einstöku bæjum. Tíðarfarið var heldur blautt í september, svo blautt að kýr í mikilli nyt drógu júgrin eftir jörðinni en það er ekki talið gott fyrir júgurheilsuna. Oft hafa samt verið verri haust og meiri hret, en Þingeyingar eru búnir að draga fé úr fönn og vet- urinn búinn að sýna það að hann er ennþá til. Því fylgir alltaf nokkur eftirsjá að hætta útivist kúnna. Vel fóðraðar kýr eru gangandi auglýsing fyrir mjólkuriðnaðinn þó svo að þær séu misjafnlega skrautlegar eftir bæjum en sam- kvæmt skýrslum ráðunautaþjónustunnar á svæðinu virð- ist sem sumir kúalitir séu á undanhaldi. Má þar nefna svartskjöldóttar kýr og sægráar, einnig gráar sem nú eru einungis um það bil 1% af kúastofninum.    Mannlífið er að taka á sig mynd vetrarins og eru kórarnir farnir að æfa eins og venja er til auk þess sem tónleikar með alls konar músík bjóðast flestar helgar í félagsheimil- um og kirkjum. Á undanförnum árum hefur tónlistarstarf aukist mjög í héraðinu enda segir skólastjóri tónlistarskól- ans í Aðaldal að með söngnum fari heilinn að framleiða gleðiefni og því sé þetta starf mjög gefandi fyrir alla. Ýmsir fundir eru einnig byrjaðir sem haldnir eru á haustin og því er ljóst að mikið er um að vera og eins gott að tíðarfarið verði til friðs enda þarf félagslífið á því að halda. Á þessu hausti snúa músaholurnar í margar áttir, þannig að búast má við umhleypingum og það heyrist líka víða í hrafninum sem talar sínu máli og tjáir sig um kom- andi vetur. LAXAMÝRI Atli Vigfússon fréttaritari Morgunblaðið/Atli Vigfússon Baulaðu nú ... Gráum kúm hefur fækkað og eru nú einungis um 1% af kúastofninum. burðarás síðustu daga hefur jafnast á við hina bestu kvikmynd þar sem boðið er upp á spennu, ástir, svik og dramatík. Júdasar- auglýsing Símans öðl- ast nýtt gildi og topp- urinn á öllu saman er sms-ið: Til í allt – án Villa! Víkverji telur það mikla synd að Spaug- stofan fái ekki að senda út þátt sinn daglega, lætin í borginni myndu duga þeim spaugurum út árið. Atburðarásin væri einnig frábært efni í kvikmynd eða sjónvarpsþátt. Óttast Víkverji að litlu betra ástand taki við með nýjum meiri- hluta, REI-listanum, Tjarnar- kvartettinum eða hvað má kalla hann, sem þegar er orðinn ósam- mála áður en hann er búinn að fá lyklana að Ráðhúsinu í hendur. Vík- verji er með þá tillögu að hreinsað verði til í öllum þessum flokkum og efnt til nýrra borgarstjórnarkosn- inga. Nánast sami grautur í sömu skál er áfram uppi á borðum. x x x Víkverji hefur til þessa ekki veriðmikill aðdáandi Jóns Gnarr en mikið lifandis skelfing er Næt- urvaktin á Stöð 2 mögnuð. Túlkun Jóns á hinum óþolandi vaktstjóra, Georg Bjarnfreðarsyni, er stórkost- leg. Í þeirri persónu kristallast áreiðanlega margir yfirmenn sem fólk kannast við og hefur þurft að þola; óendanlega kröfuharðir og smámunasamir menn sem hafa ekki snefil af eiginleikum til mannlegra samskipta. Ýkt en yndisleg persóna, Georg Bjarnfreðarson. Pabbi, af hverju erborgarstjórinn hættur? spurði ung og óreynd dóttir Víkverja mitt í öllum látunum sem urðu í Ráðhúsinu fyrir helgina. Víkverja varð fátt um svör en sagði þó á endanum, til að segja eitthvað, að það þyrfti stundum að skipta um borgar- stjóra. Hún lét sér þetta ófullkomna svar duga og sneri sér að Polly Pocket. Víkverji er lítt póli- tískur en hann hefur sínar kenningar um hvernig fór. Sú kynslóð stjórnmála- manna sem er að vaxa úr grasi er af öndverðri svonefndri kókópöffs- kynslóð sem var alin upp á kvik- myndum og myndbandaglápi. At-        víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Þegar Hjálmar Jónsson var aðverða of seinn á fund í Reykjavík orti hann: Á hverri stundu er voðinn vís, varkárnin af mér tálgast. Eins og húsdýr á hálum ís höfuðborgina nálgast. Grétar Haraldsson frá Miðey yrkir: Glaður hugur hlakka fer hvergi efa það þegar létt um lúgu er látið Morgunblað. Íslensk þjóð oft hugsar þá það er alveg víst að vandað efni allir sjá – um hvað málið snýst. VÍSNAHORNIÐ Af húsdýrum og Mogga pebl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.