Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 13

Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 13
Morgunblaðið |13 Sem rekstraraðili alþjóðlegrarleitar- og tengslasíðu at-hafnakvenna, Tengjumst.is// Connected-Women.com, stefni ég að því að hafa komið á marg- víslegum tengslum milli athafna- kvenna um allan heim svo um munar þegar aðventan gengur í garð. Það hyggst ég gera með framlagi mínu hér innanlands, t.d. með námskeiðinu „Tengsl og tækifæri“ sem áætlað er að vera með út um allt land í nóv- ember. Námskeiðin hafa það að augnamiði að gefa konum tækifæri til að byggja markvisst upp þróttmikið og áhrifaríkt tengslanet. Þá geri ég einnig ráð fyrir að vera örugglega komin með spennandi al- þjóðleg tengsl eftir þátttöku mína á Heimsþingi kvenna í atvinnurekstri sem haldið verður í Kaíró í Egypta- landi í lok nóvember. Þar ætla ég að hitta og tengjast sterkum og áhrifa- miklum athafnakonum frá öllum hornum heimsins, víkka sjóndeild- arhring minn og skoða ný og spenn- andi tækifæri. Dagsbirtan sofnar snemma og vaknar seint Ég er fús að viðurkenna að ég hef sjaldan hlakkað jafnmikið til að taka á móti myrkrinu í nóvember og des- ember og í ár! Það er auðvitað bara gaman í myrkrinu og fátt jafnast á við töfrana þegar ljóstýrur frá kertum í útiluktum blakta í rokinu. Vetr- arskammdegið hjá okkur er vitanlega alveg magnað. Hægt og rólega tekur maður eftir því að birtan er lengur að teygja úr sér og komast á fætur á morgnana og hún fer vitanlega líka fyrr að hátta. Svo gerist það bara allt í einu að svartnættið breytist í eina allsherjar ljósadýrð á aðventunni, sem hver og einn getur tekið á móti, upplifað og gefið áframhaldandi ljós út frá sjálfum sér. Eftir að hafa rekið heildsölu og verið með sjálfstæðan innflutning á söluvarningi síðastliðna tvo áratugi (þar með talin jólavara) – þar sem innkaupa- og söluferlið telur um 13 mánuði – verð ég játa að tilhugsunin um að geta beint athygli minni í skammdeginu í aðrar áttir kitlar mig verulega í magann. Þrátt fyrir að ég hafi í gegnum fyrra starf mitt átt hlutdeild í að fylla hús landsmanna af alls kyns jólavarn- ingi, þá verð ég sjálf seint talin til þess hóps sem er með ákveðnar hefð- ir á aðventunni. Ég er sannur stuðn- ingsmaður þeirra sem hafa numið þá iðn að baka, þ.e.a.s. bakarí borg- arinnar fá minn stuðning þegar kem- ur að einhverjum bakstri fyrir jólin. Annars er það helst að vinkona mín, hún Betty Crocker, komi mér inn í eldhúsið til að hræra eins og í eina brúntertu. Aðventukransinn minn hefur ein- hvern veginn aldrei náð þeim stand- ard að vera hefðbundinn hringkrans með fjórum jafnlöngum kertum og „tilbehör“. Ég hef gjarnan bara fjög- ur misstór kerti í alls kyns kerta- stjökum og finnst að með þeim hætti sé tilgangi náð. Líklega má rekja ræt- ur þess að aðventukransinn minn er svona afslappaður til þess að hafa verið innan um of mikið af jólaskrauti í vinnunni, á of löngu tímabili.“ – Hverju mælir þú með að gera í myrkrinu framundan? „Þessu sígilda: Njóta góðs matar, lesa skemmtilegar og gefandi bækur og njóta indæls félagsskapar vina og fjölskyldu. Vissulega eru það stund- irnar sem maður nýtur mest og mætti að ósekju hafa þær fleiri á þessum vetrarvikum sem eru und- anfari jólahátíðarinnar. Hlakkar til að taka á móti myrkrinu og kertaljósunum Ljósmynd/Birgitta Rún Sveinbj.d. Að njóta Rúna Magnúsdóttir mælir með hinu sígilda; að njóta góðs matar, lesa skemmtilegar og gefandi bækur og indæls félgasskapar vina og fjölskyldu í aðdraganda jólanna. Framkvæmdakonan Rúna Magnúsdóttir er stofnandi fyrirtækisins Tengjumst.is sem er tengslanet sérsniðið að konum. Hrund Hauks- dóttir komst að því að fátt er Rúnu meira hug- leikið en að konur hafi greitt aðgengi hver að annarri en þó hefur jóla- og rökkurtíðin fram- undan líka náð að fanga huga hennar. Svona á milli tenginga … »„Ég er sannur stuðnings-maður þeirra sem hafa numið þá iðn að baka, þ.e.a.s. bakarí borgarinnar fá minn stuðning þegar kemur að ein- hverjum bakstri fyrir jólin.“ Rúna beinir sjónum í ár að gleðinni, lífsfyllingunni, ár- angrinum og skýrri framtíð- arsýn. Núverandi starf hennar sem markþjálfi (coaching) gef- ur henni allt þetta og meira til. Hún mælir svo eindregið með eftirfarandi:  Brosa enn meira í desem- ber.  Hrósa enn meira í desem- ber.  Knúsa enn fleiri í desember.  Tengjast enn betur í desem- ber.  Rökkri og rómantík í desember.  Koma fram við náungann af þolinmæði, virðingu og áhuga í desember.“ Hafnargata 19 Reykjanesbæ Sími 421 4601 www.rain.is rain@rain.is Úrval hátíðarrétta Skemmtidagskrá Dansað fram á nótt Verð 5.500,- pr. mann Jóla hlaðbor ð í Reykjanesbæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.