Morgunblaðið - 28.10.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 21
»McCartney er þó nokkuðbetri, en ég æfi stíft.
Rúnar Júlíusson hélt í gærkvöldi stór-
tónleika í Laugardalshöll. Hann var
spurður hvor væri betri bassaleikari, Paul
McCartney eða hann.
» Þar ríkir enn drungi, kuldiog fordómar.
Ingólfur Margeirsson , rithöfundur og
sagnfræðingur, gagnrýndi þjóðkirkjuna í
grein og spurði hvort Kirkjuþing 2007 ætl-
aði í heilagt stríð gegn samkynhneigðum.
» Það er segin saga að þegarhaustrigningarnar byrja
rignir hjá Húseigendafélaginu.
Sigurður Helgi Guðjónsson hjá Húseig-
endafélaginu segir að eftir því sem hraði
aukist í framkvæmdum fjölgi kvörtunum
og í úrhelli rigni gallamálunum inn.
»Við klöppum þeim á bakið ensvo höldum við áfram að ráða
karla í toppstörfin.
Lotta Snickare , annar höfundur bók-
arinnar „Það er staður í helvíti fyrir konur
sem hjálpa ekki hvor annarri“, segir að
rannsóknir hafi sýnt að yngstu kven-
stjórnendurnir séu þeir öflugustu, en þeg-
ar á hólminn er komið fái karlar engu að
síður alltaf forgang.
» Í EVE-Online samfélaginuhamlar það ekki framgangi
þínum að vera kona.
Elísabet Grétarsdóttir hjá fyrirtækinu
CCP, sem framleiðir leikinn EVE-Online
og stendur fyrir hátíð áhangenda hans um
helgina, segir að körlum finnist eftirsókn-
arverðara að vera kona í leiknum.
» Það er erfitt, til dæmis, aðokra á Dönum.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráð-
herra tilkynnti á fimmtudag að hann hygð-
ist hefja nýja sókn í neytendamálum og
auka neytendavitund Íslendinga.
»Við verðum að halda okkurniðri á jörðinni.
Cesc Fabregas var lykilmaður í sjö núll
sigri Arsenal í Meistaradeildinni á þriðju-
dag gegn lánlausu liði Slavia Prag.
»Við kunnum alveg að spilakörfubolta í Evrópu en
breiddin er meiri í NBA.
Jón Arnór Stefánsson er í lykilhlutverki
hjá körfuboltaliðinu Lottomatica Róma í
efstu deild á Ítalíu og segir að bilið á milli
Evrópuliða og liða í bandarísku NBA-
deildinni minnki stöðugt.
» Íþróttamenn geta lært aðlosna við ótta og upplifa um-
hverfi sitt í keppni með jákvæð-
um hætti.
Ortwin Meiss , sérfræðingur í dáleiðslu-
meðferð, kveðst geta dregið úr líkum á að
íþróttamenn kikni undan álagi í keppni
með dáleiðslu. Sumir telja að dáleiðsla
geti hjálpað íþróttamönnum að bæta sig
með sama hætti og lyf.
Ummæli
vikunnar
Reuters
Bilið minnkar Jón Arnór Stefánsson í landsleik í körfubolta.
búa – varla hægt að finna við-
kvæmari minnihlutahóp til að ögra
í nafni tjáningarfrelsisins.
Vanhugsað, tautaði Auður áður
en hún stakk upp á því að James
Watson flytti til Danmerkur því
líklega fengi hann að tjá sig
óbældur í Jótlands-póstinum.
Ábyggilega, sagði Þórarinn. En
nú hita Danir upp fyrir kosningar
og að vanda eru innflytjendamálin
efst á baugi. Unga konan Asmaa
Abdol-Hamid er múslimi sem býð-
ur sig fram fyrir Enhedslisten og
skemmtir sér við að ögra dönskum
gildum. Til dæmis spurði Asmaa
Politiken.dk hversu langt hún ætti
að ganga til að friða andstæðinga
sína. Á ég að halda á rauðri pulsu
og bjór? hló hún með rauðköflótta
fótbolta-klapphúfu á hausnum.
Meðan keppist Dansk Folkeparti
við að ýfa upp ósættið í samfélag-
inu með auglýsingaherferð sem
skartar teikningu af Múhameð
spámanni.
Hættu nú þessu dómsdagsrausi,
sagði Auður skyndilega. Á Elpai-
s.es er líka fróðleg grein um að
vísindamenn hafi uppgötvað bjart-
sýnissvæðið í heilanum. Svo virðist
sem mannskepnan sé eina dýrið
fært um að líta björtum augum til
framtíðar.
Höfundar eru heimavinnandi hjón í
Barcelona.
LAND ROVER RANGE SPORT HSE BENSIN
Árg. 2005. Ekinn 28 þús. km. Sjálfskiptur, dökkblár, drapplituð
leðursæti. Vel með farinn bíll, einn eigandi. Ekkert áhvílandi.
Verð 8 milljónir staðgreitt. Engin skipti.
Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160.