Morgunblaðið - 28.10.2007, Qupperneq 23
völdum, herinn skiptist eftir þjóð-
arbrotum og smáherir náðu að
miklu leyti völdum í sveitum. Sú
lýðræðislega stjórn, sem þá var við
völd, rétt hélt velli. Í upphafi sjötta
áratugarins komu leifarnar af her
Chiang Kai-shek inn í landið með
stuðningi CIA og á sjöunda ára-
tugnum studdu Kínverjar við upp-
reisn kommúnista, sem breiddist
hratt út.
Í baráttunni við þessi ólíku öfl
varð til öflug hernaðarvél, sem
brátt var orðin öflugri og vopnfim-
ari en allir aðrir í hinu unga ríki.
1962 tók herinn alfarið við. Í for-
ustu hans var Ne Win hershöfðingi,
harðstjóri, glaumgosi, talnaspeking-
ur og fyrrverandi póstafgreiðslu-
maður sem hafði hlotið hermanna-
þjálfun hjá Japönum. Hann talaði af
hörku og átti eftir að vera alvaldur í
landinu næstu 30 árin.
Hann boðaði leið Búrma til sósí-
alisma og var fljótur að kippa fót-
unum undan efnahag landsins, sem
eitt sinn hafði lofað svo góðu. Hann
þjóðnýtti allan iðnað, bannaði al-
þjóðaviðskipti og fjárfestingar, rak
næstum hálfa milljón íbúa af ind-
verskum uppruna úr landi og hætti
að þiggja erlenda aðstoð. Hann lok-
aði Búrma af gagnvart heiminum,
en gerði undantekningu með sjálfan
sig og umgekkst breska aristókrata
í London, keypti inn í Genf (um
tíma, kannski ekki nógu lengi),
ferðaðist reglulega til Vínar til að
hitta þekktan sálfræðing, dr. Hans
Hoff.
Búrma er á stærð við Frakkland
og Bretland samanlagt og í landinu
búa rúmlega 50 milljónir manna.
Landið nær frá austurhluta Hi-
malajafjalla þúsund mílur til sólbak-
aðra stranda Andaman-hafs. Um
tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru
búrmískir búddatrúarmenn. Aðrir
tilheyra tugum annarra þjóða- og
trúarhópa. Meðlimir í hernum í tíð
Ne Win fóru að líta á sjálfa sig sem
bjargvætti Búrma frá erlendum
árásum og upplausn að innan. Þeir
litu aftur til dýrðardaga búrmískra
stríðskonunga og höfðuðu til þeirr-
ar hliðar búrmískrar þjóðernis-
hyggju, sem brýst fram í óvild í
garð útlendinga.
Búrma byrjar að
skríða út úr einangruninni
Landið byrjaði ekki að skríða út
úr einangrun sinni fyrr en í upphafi
tíunda áratugarins. Þá fóru stjórn-
völd loks að opna fyrir erlend við-
skipti og fjárfestingar á ný í landinu
og óska hjálpar við að koma á um-
bótum í efnahagsmálum. Ekki
skipti minna máli að herinn féllst á
vopnahlé við næstum alla hina ólíku
uppreisnarheri. En allt þetta gerð-
ist samhliða því að hin nýja lýðræð-
ishreyfing undir forustu Aung San
Suu Kyi, dóttur hinnar virtu sjálf-
stæðishetju Búrma sem var myrt,
þrýsti af harðfylgi á pólitískar
breytingar. Vestræn ríki gripu þá
til refsiaðgerða henni til stuðnings
og ýttu herforingjunum aftur í skel
sína. Og nú hefur jarðvegurinn ver-
ið búinn undir að jafnvel geti verra
hlotist af í framtíðinni. Við höfum
séð reiðina og örvinglanina á götum
Rangoon (sem herforingjastjórnin
kallar nú Yangon). Vopnahléin eru
brothætt, en alþjóðasamfélagið hef-
ur lítið gert til að ýta undir þreif-
ingar í átt að réttlátum og var-
anlegum friði. Landið er í sárri
fátækt og ríkið sjálft er viðkvæmt. Í
Búrma er herinn orðinn að ríkinu
og það er fáu öðru til að dreifa. Og
þó hafa núverandi yfirmenn hers-
ins, sem hafa mótast í einangrun frá
samfélagi þjóðanna, litla tilfinningu
fyrir öðrum kostum og eru ákaflega
tortryggnir í garð umheimsins. Enn
er tími til að afstýra martröðinni,
en ég óttast að það muni þurfa að
kosta mun meiru til en alþjóðasam-
félagið er tilbúið að láta af hendi
rakna. Það mun krefjast athygli
æðstu ráðamanna og skuldbinding-
ar til lengra tíma en þeirra tveggja
vikna, sem Búrma er á forsíðum
dagblaða og sjónvarpsskjám, að
koma í veg fyrir að allt fari á versta
veg. Menn verða að viðurkenna að
fordæmingar úr fjarlægð og vest-
rænar efnahagsþvinganir skipta
herforingjastjórnina, sem setið hef-
ur í hálfa öld, ekki miklu því að hún
hefur verið sátt í sinni einangrun og
þarf aðeins lítilræði af peningum og
viðskiptum við umheiminn. Menn
þurfa að gera sér grein fyrir því að
Búrma er mitt í asíska efnahags-
undrinu og besta leiðin til að bæta
lífskjör í Búrma er að tengja landið
þeim hröðu breytingum og aðgang-
ur að vestrænum mörkuðum og
vestrænum hugmyndum mun
skipta sköpum um það hvort Búrma
getur staðið jafnfætis Kína og Ind-
landi eða eingöngu verða upp-
spretta ódýrs vinnuafls og hráefna.
Ráðamenn í Búrma munu ekki sjá
að þeir þurfa að bæta ráð sitt fyrr
en þeir finna fyrir umheiminum.
Eigi að koma í veg fyrir að allt
fari í kaldakol í Búrma þarf að nálg-
ast málefni landsins af framsýni og
raunsæi og skilningi á því að lýð-
ræði verður ekki til á einni nóttu.
Samstarf milli Bandaríkjanna,
Kína og Indlands verður nauðsyn-
legt, en það má ekki byggjast á
„stjórnarskiptastefnu“. Við þurfum
að sjá stóru myndina í Búrma, ekki
aðeins mótmælin og kúgunina, held-
ur einnig átökin milli þjóðarbrota,
brýna nauðsyn umbóta í efnahags-
lífinu og hina knýjandi þörf á aðstoð
til þeirra sem veikastir eru fyrir,
sérstaklega barna. Stríðið, fátæktin
og kúgunin tengjast innbyrðis og
framfarir á þessum sviðum verða að
eiga sér stað samhliða. Það er ekki
auðvelt að koma mönnum í skilning
um það. Það er auðvelt eftir að hafa
séð myndirnar frá Búrma undan-
farnar vikur að grípa til frekari
þvingana og leita allra leiða til að
lumbra á herforingjastjórninni. Með
nýju raunsæi af hálfu alþjóðasam-
félagsins og ferskrar stefnu, sem
gengur út á að ná árangri, má enn
bjarga Búrma frá martröðinni.
Í HNOTSKURN
»Búrma fékk sjálfstæði fráBretum árið 1949 og var
þá þegar hafin borgarastyrj-
öld í landinu.
»Herinn tók alfarið völd ílandinu árið 1962.
»1988 voru mótmæli íBúrma brotin á bak aftur
með hörku og blóðsúthell-
ingum.
»Aung Sang Suu Kyii hefurleitt stjórnarandstöðuna í
Búrma og hlotið frið-
arverðlaun Nóbels. Hún hefur
setið í stofufangelsi um árabil.
Höfundur skrifaði bókina „River of
Lost Footsteps: Histories of Burma“.
Reuters
Fundur Herforingjastjórnin í Búrma ásamt Ibrahim Gambari, sérlegum erindreka fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, lengst t.v. við hlið leiðtoga stjórnarinnar, Than
Shwe, á fundi í Rangoon í byrjun mánaðarins.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 23
Málstofa í Landbúnaðarháskóla Íslands
29. október kl. 15 á Hvanneyri
Landheilsa jarðar
Upplýsingar um ástand lands á jörðinni
eru ekki nákvæmar, og ber oft mikið á
milli. Margir vísindamenn telja að jörðin
sé í heild að grænka. Vissulega á það við
um ýmis svæði, s.s. Evrópu, að meðtöldu
Íslandi. Um þessi mál og fleira þeim tengt
fjallar Andrés Arnalds í Málstofu LbhÍ
mánudaginn 29. október kl. 15.
Hin hnattræna mynd af fólksfjölgun,
ástandi vistkerfa og fæðuframleiðslu er ekki
uppörvandi. Eyðimerkurmyndun hefur áhrif
á fjórðung alls lands í heiminum og ógnar
velferð meira en milljarðs jarðarbúa. Önnur
landhnignun er geigvænleg. Í erindinu er
fjallað um stöðu lands og lífríkis á jörðinni
og það mikla hlutverk sem verndun gróðurs
og jarðvegs hefur í því að ná ýmsum
markmiðum alþjóðasamfélagsins, s.s. í
vörnum gegn loftslagsbreytingum, vernd
líffræðilegrar fjölbreytni, vatnsmiðlun og
auknu fæðuöryggi . Einnig verður rætt um
að Íslendingar geta miðlað reynslu og
þekkingu af landgræðslustarfi til annarra
þjóða.
Andrés Arnalds er
fagmálastjóri Landgræðslu
ríkisins. Hann lauk
búfræðikandidatsnámi
frá Bændaskólanum
á Hvanneyri 1971,
meistaragráðu í vistfræði
beitilanda við Washington
State University 1974 og
doktorsnámi í
landgræðslu
og nýtingu
beitilanda
við Colorado
State
University
1984. Andrés
vann að gróður-, beitar- og
landgræðslurannsóknum
hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins 1970 til
1981 er hann hóf störf
hjá Landgræðslunni.
Andrés hefur lagt sérstaka
áherslu á að kynna sér
skipulag landgræðslu og
gróðurverndar í öðrum
löndum og tekið virkan þátt
í alþjóðlegu samstarfi um
þessi mál.
Auglýst er eftir þátttakendum í forvali fyrir lokaða samkeppni um gerð útilistaverks sem
rísa á í maí 2008 á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ.Að verkefninu standa Mosfellsbær
og Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, en tilefnið er 100 ára afmæli hitaveitu
á Íslandi árið 2008, þar sem miðað er við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á
Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli
árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni standa að gerð útilistaverks í bænum.
Ákveðið hefur verið að auglýsa eftir þátttakendum í forvali en að í kjölfarið fari fram lokuð
samkeppni þriggja listamanna sem forvalsdómnefnd velur úr þátttakendum í forvali.
Forvalið er opin samkeppni þar sem öllum myndlistarmönnum er heimilt að senda
inn tillögur. Í lokaðri samkeppni taka þátt þeir þrír listamenn sem forvalsdómnefnd
velur. Í störfum forvalsdómnefndar og dómnefndar lokaðrar samkeppni verður gætt
nafnleyndar listamanna. Haldin verður sýning á öllum tillögum úr lokaðri samkeppni í
Bókasafni Mosfellsbæjar.
Tillögur í forval skal afhenda þann 21. nóvember, fyrirspurnir vegna forvals berist eigi
síðar en 1. nóvember.
Greidd verður þóknun, kr. 200.000, hverjum þeirra þriggja listamanna sem þátt munu
taka í lokaðri samkeppni. Sá listamaður (tillaga) sem fyrir valinu verður fær auk þess
kr. 800.000 í þóknun fyrir að fullvinna módel eða vinnuteikningar þannig að verkið verði
tilbúið til fullvinnslu og við þá greiðslu hafa Samorka og Mosfellsbær tryggt sér rétt til að
nýta vinningstillöguna til að gera eftir því útilistaverk. Loks verða listamanninum tryggð
2ja mánaða laun, sem samsvarar launum bæjarlistamanns Mosfellsbæjar, á meðan á
vinnslu verksins stendur, til að fylgja eftir fullvinnslu verksins, samtals kr. 316.000.
Nánari upplýsingar um samkeppnisreglur má finna á vefsíðum Samorku (www.
samorka.is) og Mosfellsbæjar (www.mosfellsbaer.is).
Samkeppni um útilistaverk
á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ í tengslum við 100 ára
afmæli hitaveitu á Íslandi
ingur áhorfenda blási honum kjark í
brjóst. „Ég veit að þeir syngja nafnið
mitt. Það er einstök tilfinning og veit-
ir mér mikla gleði þar sem ég ber
djúpa virðingu fyrir félaginu og
stuðningsmönnum þess. Þegar ég var
að leika með varaliðinu fyrir ári flögr-
aði ekki að mér að ég yrði í þessum
sporum nú.“
Bojan hefur skorað mörk í öllum
regnbogans litum um tíðina en segir
ekkert liggja á að sýna heiminum
hvað hann hefur uppi í erminni.
„Framherjar þrífast á því að skora
mörk og ég hef verið svo lánsamur að
skora þau nokkur á ferlinum. Á þess-
um tímapunkti liggur mér hins vegar
ekkert á að raða inn mörkum fyrir
Barcelona. Aðalmálið er að standa sig
vel og tryggja sér með hægðinni sæti í
liðinu. Ef eitt og eitt mark slæðist
með á leiðinni er það bara uppbót.“
Serbi í föðurætt
Bojan Krkic Pérez fæddist í Li-
nyola í Katalóníu 28. ágúst 1990. Móð-
ir hans er Katalóni en faðir hans og
nafni er Serbi sem gerði garðinn
frægan sem knattspyrnumaður hjá
Rauðu stjörnunni í Belgrað á níunda
áratugnum. Eftir að hann gekk að
eiga móður Bojans flutti hann búferl-
um til Spánar og hefur undanfarinn
áratug starfað sem „njósnari“ hjá
Barcelona-liðinu.
Bojan var limaður inn í ungmenna-
akademíu Barcelona níu ára að aldri
og gerði hvorki fleiri né færri en 960
mörk á þeim vettvangi á sjö árum. Sló
öll met í bak og fyrir.
Í fyrra hlaut pilturinn eldskírn sína
með varaliði Barcelona og gerði alls
10 mörk í 15 leikjum með því ágæta
liði. Lagði upp þrjú mörk að auki.
Alþjóðlega athygli vakti Bojan
fyrst á Evrópumóti leikmanna 17 ára
og yngri í Lúxemborg í fyrra, þar sem
hann varð markakóngur enda þótt
hann væri ári yngri en flestir aðrir
leikmenn og léki að jafnaði ekki nema
hluta úr leikjum spænska liðsins. Þá
hafnaði liðið í þriðja sæti en á þessu
ári fór það alla leið og hver haldiði að
hafi skorað sigurmarkið í 1:0-sigri á
Englendingum í úrslitaleiknum?
Enn var Bojan á ferð á heimsmeist-
aramóti leikmanna 17 ára og yngri í
Kóreu í haust en varð þar að gera sér
annað sætið að góðu. Spánverjar lutu
í gras gegn Nígeríumönnum í víta-
spyrnukeppni. Forsvarsmenn Barce-
lona vildu ekki að pilturinn færi til
Kóreu en töluðu fyrir daufum eyrum í
höfuðstöðvum spænska knattspyrnu-
sambandsins.
Á dögunum var Bojan valinn í 21
árs landsliðið og það hlýtur aðeins að
vera tímaspursmál hvenær A-lands-
liðið nýtir sér krafta hans.
»Ég veit að þeir
syngja nafnið mitt.
Það er einstök tilfinning
og veitir mér mikla gleði
þar sem ég ber djúpa
virðingu fyrir félaginu
og stuðningsmönnum
þess.