Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 30
tónlist
30 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
B
laðamaður er boðaður í
bílskúr í Vesturbæ
Reykjavíkur þar sem
félagarnir í Ný dönsk
hafa komið sér vel fyr-
ir. Þetta er nánar tiltekið bílskúr
Jóns Ólafssonar sem hefur verið
breytt í æfingahúsnæði og hljóðver.
Þar eru samankomnir þeir Björn
Jörundur Friðbjörnsson, söngvari,
bassa- og gítarleikari, Jón Ólafsson
hljómborðsleikari, Stefán Hjörleifs-
son gítarleikari og Ólafur Hólm
trommuleikari. Þá má ekki gleyma
Inga Snæ Skúlasyni sem spilar á
bassa á tónleikum svo Björn geti
einbeitt sér að söng og sviðs-
framkomu.
Þegar blaðamaður kemur í hús
standa mikil fundahöld yfir, en
fljótlega er þó gripið í hljóðfærin.
„Hvaða lag viltu heyra?“ spyr Jón.
„Landslag skýjanna,“ svara ég og
bið um eitt besta lag sveitarinnar.
Óskalagið er spilað, en þó bara til
hálfs. „Við þurfum ekkert að æfa
þetta, við kunnum þetta svo vel,“
segir Jón þegar þeir hætta í
miðjum klíðum.
Gjaldeyrisrokk
Á safnplötunni sem kemur út í
lok vikunnar verða tvö ný lög, og
þeir félagar spila þau bæði fyrir
blaðamann. Hið fyrra heitir „Verð-
bólgin augu“ og hefur heyrst tölu-
vert í útvarpi að undanförnu. Lagið
fjallar um íslensku krónuna, en er
þó enginn lofsöngur. „Við erum að
vorkenna krónunni, þetta er svo-
kallað gjaldeyrisrokk og gæti farið
á safnplötuna Best of currency
tracks,“ segir Björn og uppsker
mikinn hlátur félaga sinna. „Í raun-
inni er krónan gerð að kvenmanni
sem er að reyna að vera jafn flott
og sexí og evrópska módelið,“ bæt-
ir hann við. „Þjóðin virðist nefni-
lega hafa einstaklega mikinn áhuga
á að pína sig með vöxtum og við-
bjóði. Þjóðarsálin endurspeglast í
krónunni því það er ekki bara
gjaldmiðillinn sem er veikur og
áhrifagjarn, heldur er þjóðin líka
mjög lítil og veik, og með lítið
sjálfsálit,“ segir Björn ákveðinn.
Hitt nýja lagið heitir „Afneitum
draumunum“ og er texti lagsins
töluvert hefðbundnari. „Hann
fjallar um lífið og tilveruna, og
samskipti kynjanna,“ útskýrir
Björn.
En að öðru - hvernig tilfinning er
svo að vera „orðnir“ tvítugir?
„Það er rosalega fínt því ég varð
37 ára um daginn og núna er ég
orðinn 20 ára. Mér finnst það mikil
framför, ég er búinn að yngjast um
17 ár tveimur vikum,“ segir Björn í
léttum dúr, en hann og Ólafur hafa
verið í sveitinni meira en helming
ævi sinnar, eða frá því þeir voru 16
ára. Jón og Stefán komu hins vegar
örlítið síðar inn. „Það er alltaf talað
um strákana í Jakobínurínu sem
einhver börn, en Bjössi og Óli voru
yngri þegar þeir byrjuðu,“ segir
Jón. „Þú varst til dæmis bara 16
ára þegar þú samdir „Fram á nótt“
og „Hjálpaðu mér upp“,“ segir
Stefán og beinir orðum sínum til
Björns, sem leiðréttir. „Ég var 15
og 16, enda eru þetta skrítin lög.“
Faðir barnanna
Ólafur segist hafa heyrt það á
fólki í kringum sig að það trúi því
varla að Ný dönsk sé orðin 20 ára
gömul, og að fólki þyki það jafnvel
svolítið ógnvekjandi. „Þegar sveitir
eins og Pelíkan voru uppi fyrir
svona 30 árum þótti gott að ná
bara þremur árum,“ segir Jón. „Ég
spurði Pétur Kristjáns einhvern
tímann út í þetta og hann sagði að
þá hefðu menn auðvitað ekkert ver-
ið að vinna með þessu, heldur bara
verið saman í æfingahúsnæðinu 24
tíma sólarhrings. Eftir þrjú ár var
kvótinn bara búinn. En í dag nenn-
ir maður ekkert að stofna nýja
hljómsveit þegar maður er búinn
að finna hóp sem virkar.“
Björn segist stundum spurður að
því hvort hljómsveitin ætli ekkert
að fara að hætta. „Mér finnst bara
ekki hægt að hætta með hljómsveit
sem er búin að vera til svona lengi.
Það er svo ástæðulaust. Maður
heldur alltaf áfram að vera faðir
barna sinna,“ segir hann ábyrgur.
„Það er nú bara þannig að núna
leyfist hljómsveitum að verða gaml-
ar. Fyrir 20 árum mátti það ekk-
ert,“ segir Ólafur og Jón er greini-
lega sammála. „Þrítugur rokkari
var bara dauðadæmdur. En núna
verða þeir bara flottari með aldr-
Ný danskir dagar á Íslandi
Hljómsveitin Ný
dönsk er án efa ein af
betri hljómsveitum ís-
lenskrar rokksögu,
enda hefur hún notið
mikilla vinsælda allt
frá stofnun árið 1987.
Mikið stendur til í til-
efni af 20 ára afmæl-
inu og verða allar plöt-
ur sveitarinnar
endurútgefnar, auk
þess sem bæði safn-
plata og DVD-diskur
koma út. Þá má ekki
gleyma stórtónleikum
sem haldnir verða
bæði í Reykjavík og á
Akureyri. Jóhann
Bjarni Kolbeinsson
hitti meðlimi sveit-
arinnar og ræddi við
þá um tímamótin og
árin tuttugu.
Morgunblaðið/Ómar
Ný dönsk í dag Frá vinstri: Jón, Ólafur, Stefán og Björn. „Það er nú bara þannig að núna leyfist hljómsveitum að verða gamlar. Fyrir 20 árum mátti það ekkert,“ segir Ólafur.
Yfirvaraskegg Stefán í ógleymanlegu hlutverki í „Landslagi skýjanna“.