Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 31
inum,“ segir hann, og aldurs-
umræðan heldur áfram.
„Birni fannst ég nú gamall þegar
ég byrjaði í bandinu, og þá var ég
hvað, 24 eða 25?“ segir Stefán og
fer í kjölfarið að velta því fyrir sér
hvenær Ný dönsk hafi nákvæmlega
verið stofnuð - hvort hún sé jafnvel
ekki nema 19 ára. Björn þvertekur
hins vegar fyrir það enda muni
hann eftir því að hafa ekki verið
kominn með bílpróf á fyrstu æfing-
unum, sem fóru fram árið 1987.
Best of, ekki greatest hits
Í lok þessarar viku koma allar
hljóðversplötur Ný dönsk út í veg-
legu „box-setti“, en með í kaup-
unum fylgir plata með öllum „mun-
aðarleysingjunum“, þ.e. lögum sem
komið hafa út á hinum ýmsu safn-
plötum, og víðar. Alls er því um
átta plötur að ræða. Þá kemur
einnig út safnplatan Ný dönsk
1987-2007 sem inniheldur mörg af
bestu lögum sveitarinnar, auk nýju
laganna sem áður voru nefnd. Þeg-
ar sveitin varð tíu ára sendi hún
einnig frá sér safnplötu sem naut
mikilla vinsælda og sumir kunna
því að spyrja hvers vegna önnur
safnplata kemur út nú.
„Þetta eru ekki alveg sömu lögin,
það hafa náttúrlega bæst við lög.
Og þarna eru líka lög sem við vit-
um að eru í miklum metum hjá
fólki, en voru ekki endilega vinsæl.
Þannig að þetta er ekki „greatest
hits“ – þetta er meira „best of“,“
segir Jón.
Kveiktu í gítar
Um er að ræða tvöfalda safn-
plötu, eða í raun þrefalda, því
DVD-diskur með öllum tónlistar-
salnum, að hafa einhverja mynda-
tökumenn út um allt,“ segir Jón.
„Þessi DVD-útgáfa er orðin alveg
rosaleg hérna, maður má ekki birt-
ast uppi á sviði án þess að vera
kominn á einhvern DVD-disk dag-
inn eftir.“
Lifa kynslóðirnar
Þegar þeir félagar eru spurðir
hvort Ný dönsk muni fagna 30 ára
afmæli sínu, eða jafnvel 40 ára,
segja þeir það nokkuð líklegt, enda
sé félagsskapurinn svo góður.
„Pabbi er í svona bridgeklúbbi.
Þeir hittast svona tvisvar í mánuði.
Þetta er svipað hjá okkur, þetta er
okkar bridgeklúbbur,“ segir Ólafur.
„Ef menn geta fengið að gera
það sem þeir eru að gera með
þessu verður þetta alltaf skemmti-
legt. Þetta má ekki verða kvöð
þannig að menn verði að spila fyrir
einhverjum skuldum af því að þeir
eru búnir að fara svo oft til L.A. að
reyna að meika það eða eitthvað
slíkt. Á meðan það er ekki í gangi,
á meðan við erum að gera eitthvað
sem okkur finnst skemmtilegt sé
ég þessa hljómsveit ekki hætta í
nánustu framtíð,“ segir Jón, og
Stefán bætir því við að miklu máli
skipti að hljómsveitin hafi alltaf
notið mikilla vinsælda. „Við höfum
spilað nánast árlega, nema kannski
þegar Bjössi var úti í námi. Við
spilum á skólaböllum á hverju ein-
asta ári sem er svolítið merkilegt,
því það þýðir að við lifum kynslóð-
irnar.“
jbk@mbl.is
Góðir Ný dönsk er ekki að hætta. „Þetta er okkar bridgeklúbbur,“ segir Ólafur. Í upphafi Ný dönsk frá vinstri: Stefán, Jón, Daníel Ágúst, Ólafur og Björn, líklega um 1988.
Ekki er á allt kosið (1989)
Regnbogaland (1990)
Deluxe (1991)
Himnasending (1992)
Hunang (1993)
Húsmæðragarðurinn (1998)
Pólfarir (2001)
„Munaðarleysingjar“ (safn, 2007)
Aðrar plötur
Kirsuber (tónleikaplata, 1991)
Ný dönsk 1987-1997 (safn, 1997)
Freistingar (safn, 2002)
Skynjun (með Sinfó, 2004)
Ný dönsk 1987-2007 (safn, 2007)
Plötur í öskju
myndböndum sveitarinnar fylgir
með í kaupunum. Ný dönsk hefur
nefnilega alltaf lagt mikið upp úr
skemmtilegum myndböndum og
skemmst er að minnast mynd-
bandsins við áðurnefnt „Landslag
skýjanna“ sem hlýtur að teljast eitt
besta tónlistarmyndband sem gert
hefur verið hér á landi.
„Já það var alveg ferlega vel
lukkað …“ segir Björn, „… enda
var það valið næstbesta myndband
ársins,“ bætir Jón við og uppsker
gríðarlegan hlátur. Í kjölfarið rifja
þeir upp að myndbandið við „Í tíg-
ullaga dal“ með Todmobile hafi
verið valið besta myndband ársins
1991. „Ég varð alveg vitlaus,“ segir
Björn sem hefur greinilega ekki
enn sætt sig við undarlega nið-
urstöðu dómnefndar.
Það var Sigurður Sverrir Pálsson
sem skaut myndbandið en með
einu hlutverkin fóru þeir Stefán
Hjörleifsson og Hilmar Hólmgeirs-
son, þáverandi rótari Sálarinnar
hans Jóns míns. „Ég var rosalega
ánægður með þetta myndband og
þar sem það var ekkert „sink“ í því
kom ég með þá hugmynd að gera
annað lag við það,“ segir Jón við
mikla kátínu félaga sinna.
„Leikstjórinn gerði mér það að
safna yfirvaraskeggi fyrir mynd-
bandið, sem ég og gerði við mikið
frost heimafyrir. Það var ekki mik-
ið í gangi hjá frúnni þegar það
var,“ segir Stefán og hinir veltast
um af hlátri.
Fleiri góð myndbönd hafa verið
gerð við lög sveitarinnar, til dæmis
við lagið „Alelda“ þar sem þeir fé-
lagar dansa í kringum varðeld niðri
við strönd.
„Það voru 30 vindstig, það var
ekki stætt úti þegar við gerðum
það,“ rifjar Jón upp. „Svo má
kannski upplýsa leyndarmál, að í
þessu myndbandi kveiktum við í 25
ára afmælisgjöf Jóns, forláta kassa-
gítar sem hann fékk frá fjölskyld-
unni,“ segir Stefán.
„Já, Stefán úrskurðaði að minn
gítar væri ódýrastur,“ segir Jón
súr í bragði.
Ekki á DVD
Þótt tvö ný lög með Ný dönsk
líti nú dagsins ljós segja þeir fé-
lagar að ekki hafi þótt tilefni til
þess að gefa út nýja plötu. „Ekki
núna, en hún kemur væntanlega á
næsta ári,“ segir Björn. „Við vild-
um prófa hvernig stemningin væri í
tveimur nýjum lögum. Það var al-
veg hrikalega gaman. Við hefðum
líka verið að keppa svolítið við
sjálfa okkur að vera með nýja plötu
samhliða þessum safnplötum,“ seg-
ir Jón.
„Við ætlum að kíkja á plötugerð
á næsta ári, við sjáum til hvenær
hún kemur út, kannski á næsta ári,
kannski á þarnæsta.“
Ný dönsk heldur tvenna tónleika
í Borgarleikhúsinu annað kvöld,
mánudagskvöld, og aðra tvenna í
Samkomuhúsi Leikfélags Akureyr-
ar þriðjudaginn 6. nóvember. Upp-
selt er á báða tónleikana í Borg-
arleikhúsinu og á þá fyrri fyrir
norðan.
Þeir félagar segja ekki stefnt að
því að gefa tónleikana út á DVD
líkt og flestir virðast gera þessa
dagana. „Mér finnst það bara eyði-
leggja upplifunina fyrir fólkinu í
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
W W W. I C E L A N DA I R . I S
Ferðaávísun gildir
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Það er stutt
til Manchester
og jólanna
SPENNANDI TILBOÐSVERÐ
FRÁ 39.900* KR. Á MANN
Í FJÓRAR NÆTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
97
33
10
/0
7
* Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar
og gisting í 4 nætur á Thistle Manchester Hotel með morgunverði.
Prófaðu eitthvað nýtt fyrir jólin. Jólaskapið
í Manchester gerir þessa líflegu borg ennþá
skemmtilegri. Það er ensk hátíðarstemning á
pöbbunum, fjör í tónlistinni, góður matur
á fyrsta flokks veitingastöðum og hagstætt
að líta inn í verslunarhúsin og búðirnar.
Jólamarkaðir í Manchester eru á fjórum stöðum
í miðborginni, á Albert Square og St Ann's Square
og í Exchange Street, New Cathedral Street,
Brazennose Street.
Hugsaðu gott til Manchester og jólanna.
Nýttu þér þetta einstaka tilboð sem gildir
á tilteknum brottfarardögum
í nóvember og desember.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ