Morgunblaðið - 28.10.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 47
Heimili fasteignasala - Síðumúla 13 - 108 Reykjavík - Fax 530 6505 www.heimili.is
Opið mánud. til föstud. 9-17
Elín D. W.
Guðmundsdóttir
lögg. fasteignasali
Daníel
Björnsson
lögg. leigumiðlari
530 6500
Ragnar
Ingvarsson
sölumaður
heimili@heimili. is
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Einar
Guðmundsson
lögg. fasteignasali
HLÍÐARÁS
FALLEGT PARHÚS
Nýlegt, fullbúið 165 fm parhús á tveimur
hæðum með innbyggðum 28 fm bílskúr.
Húsið stendur á einstökum útsýnisstað á
viðhaldsléttri lóð. Þrjú til fjögur svefnher-
bergi, mikil lofthæð í stofum og eldhúsi,
vandaðar innréttingar og tæki ásamt gólf-
efnum. Stórar svalir til vesturs og norðurs
og mikið útsýni.
ENGJAVELLIR - 5 HERB.
150 fm íbúð í nýju húsi með sér inngangi. 4
svefnherbergi, öll með skápum. Björt stofa
með stórum vestursvölum. Glæsilegt eld-
hús með innréttingu og stórum borðkrók.
Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á
veggjum, innréttingu og baðkari með
sturtu. Þvottahús og geymsla innan íbúðar.
Gólfefni parket og flísar.
Um er að ræða 407 fm einbýlishús (hægt að hafa aukaíbúð) með tvöföldum bílskúr
með geymslulofti ásamt 91 fm hesthúsi fyrir 10-12 hesta, samtals skráðir 498,1 fm, á
einstaklega fallegum stað við Hraðastaðaveg 9 í Mosfellsdal til móts við Bakkakots-
golfvöllinn. Einbýlishúsið og hesthúsið standa á 10.000 fm eignarlóð. Þetta er hrein
paradís fyrir hesta- og útivistarfólk og aðra náttúrudýrkendur og í raun einstakt tæki-
færi til að upplifa kyrrð og ró sveitasælunnar svo skammt frá borginni (15 mín akstur).
Fjórar skipulagðar rútuferðir á dag fyrir skólabörnin í skólann í Mosfellsbæ. Eignin er
ekki fullfrágengin en vel íbúðarhæf og er búið í henni núna. Þetta er eign á góðum
stað sem býður upp á mikla möguleika. Sjón er sögu ríkari. Teikningar af húsinu er
einnig hægt að nálgast á skrifstofu Heimilis fasteignasölu.
HRAÐASTAÐAVEGUR 9 - MOSFELLSDAL
Stórar 4ra herbergja, 155 fm-168 fm íbúðir í
þriggja hæða fjölbýlishúsi með lyftu. Allar
íbúðir eru með sérinngangi og öllum íbúð-
um fylgir frístandandi 25 fm bílskúr. Húsið
afhendist fullbúið að utan, lóð tyrfð og bíla-
stæði malbikuð. Íbúðirnar afhendast fullbún-
ar með flísalögðu baðherbergi og þvotta-
húsi en annars án gólfefna. Vönduð tæki og
innréttingar. Nánar á www.heimili.is undir
nýbyggingar. Öllum íbúðunum sem seljast
fyrir 3. nóv fylgir LCD flatskjár.
HÓLMVAÐ - SÉRHÆÐIR OG BÍLSKÚR
Glæsilegt útsýni - lyfta - stæði í bílageymslu
- frábær staðsetning. 118 fm íbúð á 3. hæð í
Sjálandinu í Garðabæ. 3 herbergi með skáp-
um, stofa og sjónvarpshol með parketi. Eld-
hús, baðherbergi með sturtu og baðkari og
þvottahús flísalagt. Allar innréttingar eru
sérsmíðaðar frá Brúnási. L-laga flísalagðar
svalir. Sjón er sögu ríkari. Verð 42,9 m.
Nánar á www.heimili.is.
STRANDVEGUR - 4RA HERB. MEÐ ÚTSÝNI
Stílhrein og falleg efri sérhæð og bílskúr í
reisulegu tvíbýlishúsi á þessum vinsæla stað
í „litla Skerjó". Björt og góð stofa og 2-3
herbergi.
Verð 41,3 millj.
ÞJÓRSÁRGATA Í SKERJAFIRÐI
Góð íbúð á efstu hæð með miklu útsýni í
litlu fjölbýlishúsi. Þrjú góð svefnherbergi
með skápum. Borðstofa og stofa með stór-
um suðursvölum. Gott eldhús með góðri
innréttingu og borðkrók. Baðherbergi flísa-
lagt með baðkari og glugga. Sérmerkt bíla-
stæði. Snyrtileg sameign. Stór gróin lóð.
Húsið og gluggar eru nýmálaðir. Verð 26 m.
Íbúðin er laus í desember.
ARNARSMÁRI - GÓÐ 4RA HERBERGJA
Einkar falleg 87 fm íbúð á 2. hæð með
glæsilegu útsýni yfir sjóinn og bátabryggj-
una í bryggjuhverfinu. Stæði í bílageymslu
og 17 fm svalir. Íbúðin skiptist í forstofu,
stofu, eldhús, baðh., 2 svefnh. og þvottahús.
Á baði eru dökkar flísar ásamt hornbaðkari,
mjög fallegum innréttingum og upphengdu
klósetti. Eldhús og stofa eru mjög björt og
opin samnýtt rými með fallegum innrétting-
um. Verð 32,9 m. Nánar á www.heimili.is.
NAUSTABRYGGJA - FALLEGT ÚTSÝNI
4ra herbergja - lyfta - stæði í bílageymslu -
hagstæð lán á 4,15% - stórar suðursvalir.
Íbúð á annarri hæð í nýju, góðu og traustu
fjölbýli með góðu útsýni. Mjög stutt er í alla
helstu þjónustu í Spönginni sem er rétt hjá,
t.a.m. Bónus, Hagkaup, apótek, bakarí,
blómabúð og Vínbúð svo eitthvað sé nefnt.
Sjón er sögu ríkari. Verð 26,9 m.
Nánar á www.heimili.is
SÓLEYJARIMI - 50 ÁRA OG ELDRI
Nýjar 3ja og 4ra herbergja íbúðir frá um 100
fm til 130 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flest-
um íbúðunum. Íbúðirnar eru til afhendingar
fullbúnar án gólfefna, nema bað og þvotta-
hús eru flísalögð. Vandaður frágangur.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Heimilis fasteignasölu, s. 530-6500
MARTEINSLAUG - VIÐ KAUPSAMNING
Mjög góð og mikið endurnýjuð íbúð á 1.
hæð. Þrjú góð herbergi. Ný eldhúsinnrétt-
ing. Baðherbergi flísalagt með innréttingu
og glugga. Tvennar svalir. Nýtt parket á
gólfum. Góð sameign. Hús í góðu viðhaldi.
ENGJAHJALLI - GÓÐ 4RA HERBERGJA
Gíslína
Hákonardóttir
ritari
Skrifstofan
er opin í dag
á milli 13-15
FRÉTTIR og greinaskrif hjúkr-
unarfræðinga um skort á hjúkr-
unarfræðingum hafa borið hátt að
undanförnu. Hefur Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga haldið því fram
að það vanti hjúkrunarfræðinga í 450
stöðugildi á heilbrigðisstofnunum.
Helgi Hafsteinn Helgason læknir
veltir því fyrir sér í grein í Morg-
unblaðinu 5. október sl. hvort vanda-
málið sé í raun fyrir hendi. Kemur
fram að síðastliðin 8 ár hafi fjöldi
hjúkrunarfræðinga á hverja 100.000
íbúa aukist um 50%. Helgi fjallar
jafnframt um breytingar á starfs-
sviði hjúkrunarfræðinga og hvernig
það hafi þróast. Væri að hans mati
vert að athuga hvort slík breyting
hefur haft áhrif á meintan skort.
Hörð viðbrögð hafa orðið við grein
Helga og hafa ýmsir hjúkrunarfræð-
ingar skrifað greinar í blaðið og var-
ið starfssvið sitt.
Frá sjónarhóli sjúkraliða leyfum
við okkur að halda því fram að fleiri
hliðar séu á þessu máli en fram hefur
komið í skrifum hjúkrunarfræðinga.
Við könnumst að sjálfsögðu við að
erfitt sé að manna störf við hjúkrun
og umönnun á heilbrigðisstofnunum.
Þetta gildir því miður um flest störf
á þessum vettvangi. Það vantar
starfsfólk í umönnunar- og hjúkr-
unarstörf, bæði
sjúkraliða, hjúkr-
unarfræðinga og ann-
að starfsfólk. Að mati
Sjúkraliðafélags Ís-
lands vantar yfir eitt
þúsund sjúkraliða til
starfa á hjúkr-
unarstofnanir um allt
land, þegar tekið er
tillit til meðal
starfsprósentu sjúkra-
liða.
Menntun íslensks
hjúkrunarfólks hefur
tekið miklum breyt-
ingum síðustu áratugi. Samfara því
hefur t.d. starfssvið hjúkrunarfræð-
inga breyst. Nýting upplýsinga-
tækninnar skiptir hér máli og hafa
t.d. verið gerðar auknar kröfur um
greiningar- og skráningarvinnu
hjúkrunarfræðinga. Upplýs-
ingaflæði hefur því aukist til allra
sem að þjónustu við sjúklinga koma
og ætti það að stuðla að betri og
öruggari þjónustu.
Skortur á hjúkrunarfólki hefur
óvíða verið meiri en á sviði hjúkr-
unar aldraðra. Í ljósi þessa settu yf-
irvöld heilbrigðis- og menntamála
árið 2001 á stofn sérnám fyrir
sjúkraliða í hjúkrun aldraðra. Um er
að ræða heilsárs nám, þar sem mikl-
ar kröfur eru gerðar til nemenda.
Hafa um 90 sjúkraliðar þegar lokið
þessu námi. Með hliðsjón af námskrá
höfðu þeir sem lögðu þetta nám á sig
væntingar um víðtækari verkefni og
ábyrgð í starfi í samræmi við
áherslur námsins. Því miður hafa
þessar væntingar oftast ekki staðist.
Hafa stjórnendur heilbrigðisstofn-
ana ekki fært sjúkraliðum með fram-
haldsnám verkefni í samræmi við
þekkingu og færni sem námsbrautin
gefur. Þvert á móti hefur jafnvel
borið á því að hjúkrunarfræðingar
standi á móti því að sjúkraliðar sem
aukið hafa við nám sitt taki á sig
meiri ábyrgð og auki verksvið sitt.
Eru dæmi um að sjúkraliðar með
framhaldsnám hafi hrökklast úr
starfi vegna neikvæðra viðbragða á
vinnustað.
Það er að okkar mati til lítils að
leggja tíma og peninga okkar og
skattborgaranna í námsbraut sem
veitir í raun ekki tækifæri til að nýta
þekkinguna í starfi og mætir þar af
leiðandi ekki vaxandi þörf fyrir
hjúkrun eldri borgara.
Sumir hjúkrunarfræðingar hafa
haldið því fram að þeir þurfi að taka
ábyrgð á verkum sjúkraliða. Þetta er
rangt. Sjúkraliði tekur sjálfur
ábyrgð á sínum eigin störfum og
vinnur undir stjórn þess hjúkr-
unarfræðings sem fer með stjórn
stofnunar/deildar eða einingar – rétt
eins og venjulegum hjúkrunarfræð-
ingi ber að gera.
Sú þörf sem var hvati þess að setja
á laggirnar framhaldsnám sjúkraliða
er enn til staðar og er enn meiri en
ráð var fyrir gert. Hún mun aukast
hröðum skrefum á komandi árum
vegna öldrunar þjóðarinnar. Fráleitt
væri ef hjúkrunarfræðingar ætla að
standa gegn þessari úrlausn á að-
steðjandi vanda. Samstarf lækna,
sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
ætti ekki að vera vandamál í rekstri
stofnana. Alvarlegasta vandamálið
er að á hjúkrunar- og öldrunarheim-
ilum hefur verið gripið til þess ráðs
að ráða í alltof ríkum mæli ófaglært
erlent starfsfólk sem talar litla eða
enga íslensku. Starfskraftar þessa
fólks skulu hér ekki vanmetnir. En
slíku starfsfólki þarf stöðugt að leið-
beina til þess að skjólstæðingar fái
góða þjónustu og ekki er forsvar-
anlegt að fela ófaglærðu fólki heil-
brigðisstörf. Heilbrigðisstéttir ættu
að leggjast á eitt og vinna saman að
lausn þessa vanda. Lykilatriði í
umönnunarstörfum er gott samstarf
allra aðila.
Vantar bara hjúkrunarfræðinga?
Aldís Ingvarsdóttir og Krist-
jana Guðjónsdóttir skrifa um
málefni sjúkraliða
»Hafa stjórnendurheilbrigðisstofnana
ekki fært sjúkraliðum
með framhaldsnám
verkefni í samræmi við
þekkingu og færni sem
námsbrautin gefur.
Kristjana
Guðjónsdóttir
Höfundar eru sjúkraliðar.
Aldís
Ingvarsdóttir