Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 57
Ég man fyrst eftir
Dódu frænku á sjö-
unda áratugnum, hún
stóð við vegkantinn
og tók á móti mér úr rútunni. Ég
ætlaði að vera hjá henni, Yngva og
strákunum um helgina, hafði ekki
verið hjá þeim áður. Mikið hlakk-
aði ég til. Hún var litla systir hans
pabba og það var henni og Báru
stórusystur þeirra að þakka að ég
kynntist föðurfjölskyldunni minni.
Hvílík sæla, þessi helgi var frá-
bær í minningunni. Ég fékk að
sofa í öðru herbergi stóru strák-
anna og viti menn, það var snyrti-
aðstaða inni í í skápnum í herberg-
inu, stórkostlegt, hreinlega eins og
í ævintýri. Svona var bara til hjá
Dódu frænku, skemmtilegt, spenn-
andi og ég hlakkaði alltaf til að
hitta hana. Yngvi og strákarnir
voru líka einstakir.
Hún hafði meiri áhrif á líf mitt
en sjálfir Bítlarnir sem allt ætluðu
Þórunn Elíasdóttir
✝ Þórunn Elías-dóttir fæddist á
Davík hinn 11. jan-
úar 1931. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 14. októ-
ber síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði 23.
október.
um koll að keyra á
þessum tíma og öll
ungmenni ærðust yf-
ir. Hvorki Lennon né
McCartney höfðu
tærnar þar sem hún
hafði hælana. Dóda
frænka var mín fyr-
irmynd.
Hún var í fyrsta
lagi fallegasta kona
sem ég hafði nokkurn
tíma séð, með sitt
kolbikasvarta hár og
svarbrúnu augu.
Hláturmild, með góð-
an húmor, skarpgreind, vel lesin,
hlý, áhugasöm, ættrækin og í öðru
lagi var ég afar stolt af því að hún
væri frænka mín. Hlutunum kom
hún vel fyrir, allt var í röð og
reglu bæði á heimilinu og í garð-
inum, enda margverðlaunaður.
Allt sem hún gaf sig að gerði
hún afar vel, hvort sem það var
uppeldi sona sinna, að hugsa um
heimilið, bókasafnsstarfið, tengda-
dæturnar, barnabörnin, vinirnir
eða hitta okkur hin.
Í 50 ár hef ég fengið að vera
samferða þessari frábæru frænku
og af henni hef ég lært margt gott.
Nú lýsir friðarsúla Lennons upp
himininn en Dóda frænka er kom-
in hærra, hún er gengin á vit skap-
arans.
Um leið og ég votta Yngva,
strákunum og öðrum aðstandend-
um mína dýpstu samúð vil ég
þakka af alhug fyrir allt og allt.
Hans vegur
er væng
haf
og geiminn
mér guð
gaf
um eilífð
sem einn
dag
hans frelsi
er faðm
lag
(Ingimar Erlendur Sigurðsson)
Ellen Björnsdóttir.
Þórunn og Yngvi hófu sína sam-
búð mjög ung að árum og settust
fljótlega að í Hafnarfirði.
Ungar byrjuðum við nokkrar
vinkonur saman í saumaklúbb. Ein
í hópnum, Auður Þorláksdóttir,
var þá flutt til Hafnarfjarðar og
bjó þar í námunda við Hellisgerði.
Eitt sinn nefndi hún við okkur að
hún hefði kynnst ungri konu, sem
var nýflutt í Fjörðinn og langaði
að kynnast fleira fólki og vildi
gjarnan vera í saumaklúbb, enda
mikil handavinnukona. Spurði
Auður hvernig okkur hinum litist á
að hún kæmi næst til sín og kom
þá í ljós að Þórunn var frá Dalvík.
Vilborg Tryggvadóttir var ein í
hópnum og var hún líka frá Dalvík,
svo það urðu fagnaðarfundir, því
þær þekktust frá sínum æskuár-
um. Þar með var Þórunn komin í
hópinn okkar og hefur sú vinátta
haldist síðan, enda gott að eiga
slíka vini sem þessa samheldnu og
góðu fjölskyldu.
Nú eru Auður, Vilborg og Þór-
unn allar horfnar af okkar sjón-
arsviði.
Allt fá því þau bjuggu fyrst í ná-
munda við Hellisgerði og hófu svo
að byggja í Lækjarkinninni var
gaman að fylgjast með gangi mála.
Elías faðir hennar var góður smið-
ur og hann og Friðrikka móðir
hennar tóku mikinn þátt í allri
þessari uppbyggingu og um leið
var fjölskyldan einnig að stækka,
því þau eignuðust 4 mannvænlega
syni.
Þórunn háði mjög hetjulega bar-
áttu við þann erfiða sjúkdóm sem
náði því miður tökum á henni.
Við þökkum Þórunni og allri
fjölskyldunni þá löngu og góðu
vináttu sem við höfum átt í öll
þessi ár.
Við minnumst hennar með hlý-
hug og söknuði og sendum Yngva
og öllum hinum dýpstu samúðar-
kveðjur.
Í Guðs friði,
Dóra G. Jónsdóttir.
Nú kveðjum við Þórunni Elías-
dóttur kæra félagskonu til margra
ára.
Hún var mjög virk og alltaf
tilbúin í að vinna öll tilfallandi
verkefni.
Í mörg ár var Kvenfélagið
Hringurinn í Hafnarfirði með bas-
ar á Aðventu. Voru þar mörg fal-
leg listaverk og annar varningur
unnin af félagskonum seldur,
ásamt heimabökuðum tertum og
laufabrauði sem steikt hafði verið í
litla félagsheimilinu okkar.
Oftar en ekki höfðu langar bið-
raðir myndast fyrir utan, áður en
basarsalan hófst.
Þarna mátti, nær undantekn-
ingalaust, sjá hana Þórunni að
störfum. Hvort sem var í föndri,
saumaskap, bakstri, laufa-
brauðssteikingu, afgreiðslu eða til-
tekt – hún var til staðar og lét
verkin tala.
Allur ágóði rann síðan óskiptur
til góðgerðarmála og þá sérstak-
lega þeirra með börn í huga.
Þórunn átti í nokkur ár við veik-
indi að stríða, en lét það ekki aftra
sér frá að mæta á fundi og í ferða-
lög, að við gleymum nú ekki jóla-
fundunum, þar náði hún að kalla
fram hinn eina og sanna jólaanda
með því að spila undir jólasálm-
unum á píanó. Eitt er víst að stórt
skarð var höggvið í félagsskapinn,
þegar hún Þórunn okkar kvaddi.
Við þökkum Þórunni tryggð og
vinskap í gegnum árin og sendum
eiginmanni hennar, sonum og fjöl-
skyldu þeirra innilegar samúðar-
kveðjur, Fyrir hönd Hringskvenna
í Hafnarfirði,
Karin Gústavsdóttir.
Kæri Bjössi.
Eins og þú veist
byrjaði þetta allt sam-
an fyrir tólf árum
þegar þú komst inn í
líf móður minnar og
ástin blómstraði hjá ykkur. Þegar
ég sá hversu hamingjusöm móðir
mín varð var ekki annað hægt en að
þykja vænt um þig. Ekki leið langur
tími, tvö ár með Mandy, þá fæðist
Atli Rafn og þú hikaðir ekki við að
taka að þér afahlutverkið og tókst
það alvarlega með hlýju og um-
hyggju. Enda varð þitt hlýja og
góða hjarta til þess að Atli Rafn tók
ástfóstri við þig og leit upp til þín.
Þó svo að við Atli Rafn flyttum til
Danmerkur sleit það ekki böndin
ykkar á milli enda hringdir þú
minnst einu sinni í viku bara til að
spjalla við afastrákinn þinn.
Atli Rafn hefur í næstum tíu ár
haft þig, Bjössa afa, í lífi sínu og
saknar hann þín mjög mikið. Atli
Rafn sagðist ætla að kenna litla
bróður sínum, Liam Úlfi, að segja
Bjössi og segja honum allt um þig
svo hann fái að kynnast Bjössa afa.
Liam Úlfur er nú ekki gamall en
leist honum strax vel á þig og brosti
mikið til þín og hló þegar við heim-
sóttum þig í september bæði heim
til þín og á sjúkrahúsið.
Þótt þú bærir tilfinningarnar ekki
utan á þér eða vildir ekki alltaf tala
um tilfinningamál gastu ekki falið
þitt góða hjarta, þitt innra eðli, og
var það óhjákvæmilegt að sjá tárin í
augum þínum þegar við kvöddumst
síðast.
Þó svo ég kallaði þig ekki pabba
gegndir þú engu að síður föðurhlut-
verki gagnvart mér. Ég vissi að ég
gæti leitað til þín og þú hikaðir ekki
við að hjálpa ef þess var þörf. Þú
varst alltaf tilbúinn að hressa mig
við eða benda mér á leiðir sem gætu
leyst þau mál sem ég leitaði til þín
með. Þú sagðir oft við mig að ég
gæti borgað greiðann einn góðan
veðurdag, sem sagt þegar ég væri
Guðbjörn
Kristmundsson
✝ Guðbjörn Krist-mundsson fædd-
ist á Stokkseyri 19.
febrúar 1953. Hann
lést 7. október síð-
astliðinn og var út-
för hans var gerð
frá Dómkirkjunni
16. október.
búin með háskólann
og komin í vel launaða
vinnu mynduð þið
mamma koma og ég
fengi að sjá fyrir ykk-
ur þar sem þú ætlaðir
að hætta að vinna og
njóta lífsins!
Ég mun geyma
stundir okkar á góð-
um stað í hjarta mínu
eins og spjöllin okkar,
skemmtilegu símtölin,
stríðnina þína og allt-
af mun pöbbaröltið í
Köben, þar sem
kjánaskapurinn og bullið réðu ferð,
sitja mér nær. Þú gerðir líf mitt ríkt
á svo marga vegu og er ég þakklát
fyrir þann tíma sem ég fékk að hafa
þig sem hluta af lífi mínu.
Þó svo að sjúkdómurinn hafi unn-
ið ykkar baráttu segi ég að það hafi
samt verið þú sem vannst þar sem
þú lést ekkert bíta á gleðinni og allt-
af með húmorinn við höndina.
Mamma missti svo mikið þegar
þú lokaðir augunum í hinsta sinn
svo ég bið þig að koma og gæta
hennar og faðma hana svo hún finni
nálægð þína þrátt fyrir allt.
Þín stjúpdóttir
Kristrún H. Hafberg.
Það er sunnudagurinn 7. október
og klukkan er 16.30, ég að koma
heim af leik Liverpool og Totten-
ham sem endaði með jafntefli og ég
svekktur yfir því og fannst þetta
vera heimsendir í mínum huga, að
tapa tveimur stigum. Ég tek það
fram að ég er mikill Liverpoolmað-
ur og tek það nærri mér ef liðið mitt
tapar.
Klukkan er 19.30 sama dag og
síminn hringir. Soffía systir mín er í
símanum og segir mér að Bjössi
mágur minn sé að deyja, þetta sé
spurning um klukkutíma.
Á þessari stundu stoppaði hjartað
í mér smástund, yfir hverju var ég
að svekkja mig allan daginn, jú fót-
bolta. Eftir þetta símtal frá Soffíu
systur minni sá ég að ég hafði ekki
yfir neinu að kvarta eða neina
ástæðu til að vera í fýlu. Ég missti
tvö stig en Soffía systir mín var að
missa manninn sinn. Ég hét því þá
að fótboltinn skyldi settur á hilluna
og Soffía systir mín fengi hug minn
allan. Mín var þörf annars staðar en
á fótboltaleik. Ég man þann dag
þegar Soffía systir mín hringdi í
mig og sagði mér að hún væri ást-
fangin og maðurinn héti Guðbjörn,
kallaður Bjössi. Þá vildi ég fá að vita
allt um þennan mann, hvort hann
væri nógu góður fyrir systur mína,
og hann stóðst það próf með sóma.
Þegar árin liðu sá ég að Bjössi gerði
hana hamingjusama. Ekki vorum
við Bjössi alltaf sammála um allt
sem við ræddum og stundum skarst
í odda, enda tveir þrjóskir á ferð
sem áttu erfitt með að tjá tilfinn-
ingar sínar opinberlega. Þegar ég
lenti í hremmingum í ársbyrjun
2006 stóð Bjössi við bakið á mér
eins og klettur. Í september 2006
fórum við, ég og Bjössi, með kon-
urnar okkar til Lanzarote. Þá
kynntist ég Bjössa eins og hann var
í raun; fyndinn, stríðinn og prakkari
af guðs náð. Þá var ekki vinnan og
erill dagsins að trufla hann. Þá gat
hann verið hann sjálfur. Þessari
ferð gleymi ég aldrei, hún gaf mér
og Bylgju konunni minni svo margt
og við sáum nýjar hliðar á Bjössa
sem við höfðum aldrei séð áður.
Það var mjög erfitt að horfa upp á
góðan félaga og vin berjast við eitt-
hvað sem maður vissi ekki hvað var
og eina sem maður gat gert var að
vona og biðja. Ég hefði ekki getað
ímyndað mér sársaukann sem fylgir
því að vera svona varnarlaus gagn-
vart einhverjum sjúkdómi og ég
sem hélt að það væri til lyf við öllu.
Að lokum Bjössi: „You never
walk alone“.
Við Bylgja vottum öllum þeim
sem eiga um sárt að binda eftir frá-
fall Bjössa samúð okkar.
Jósep Svanur.
Fallinn er frá drengur góður, fé-
lagi og vinur, Guðbjörn Krist-
mundsson (Bjössi).
Okkar leiðir lágu saman fyrst við
vinnu í byggingu í Hlíðasmára þar
sem Bjössi var við glerjun og tók að
sér ungan múrara nýskriðinn úr
skóla óöruggan mjög sem faldi óör-
yggi sitt á bak við hroka. Bjössi
leiðbeindi honum og kenndi marga
góða hluti sem ungi múrarinn nýtti
sér í faginu og í mannlegum sam-
skiptum við aðra iðnaðarmenn.
Hann Bjössi minn var fagmaður
góður og stóð fastur á sínum skoð-
unum og kom alltaf til dyranna eins
og hann var klæddur, hann kom
alltaf hreint fram og var ávallt
reiðubúinn að aðstoða menn hvort
sem það var við vinnu eða í persónu-
legum málum. Hann var sterkur
persónuleiki sem öllum þótti vænt
um.
Í sumar komst þú, kallinn minn,
til mín þegar við vorum hvor í sinni
byggingunni í Ásakór. Þú hjá fyr-
irtækinu sem þú varst búinn að vera
lengi hjá og hélst tryggð við og
sagðir mér frá þessum veikindum
sem nýlega höfðu komið upp á yf-
irborðið. Þú lést ekki deigan síga
fremur en fyrri daginn og leist á
þennan sjúkdóm sem verkefni sem
þyrfti að leysa, sem sýnir hve sterk-
an persónuleika þú hafðir að geyma.
Þennan tíma í Ásakórnum komstu
oft yfir til mín í vinnuskúrinn, bæði
til að spjalla og einnig til að siða
unga múrarann til, sem þú tókst
upp á þína arma hérna um árið í
Hlíðasmáranum og einnig þegar ég
var starfsmaður hjá JBB. Þú
kenndir mér margt, Bjössi minn, og
þakka ég þér fyrir það og einnig all-
ar þær stundir sem við áttum sam-
an. Ég bið Guð að styrkja ástvini
þína í sorg þeirra, því missir þeirra
er mikill.
Þín verður sárt saknað, Bjössi
minn, og vil ég kveðja þig með þess-
um sálmi.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Þinn vinur
Hermann Hinriksson.
Þegar þau sorgartíðindi bárust
okkur að Bjössi mágur minn og vin-
ur okkar væri látinn var það sem
reiðarslag, þetta gat ekki verið satt
og svo ósanngjarnt að hann væri dá-
inn, maður á besta aldri. Þótt okkar
kynni hafi ekki varað lengi, eða um
það bil 10 ár, finnst okkur að vand-
fyllt verði rúm hans í vinahópi okk-
ar.
Bjössi var einn af þeim sem koma
beint að hlutunum, hreinskiptinn,
blátt áfram, hafði ákveðnar skoð-
anir á hlutunum, og var hrókur alls
fagnaðar í góðra vina hópi.
Það kom okkur skemmtilega á
óvart hvað hann hafði gaman af að
taka þátt í lífinu í sveitinni þegar
þau Sossa Mandý komu norður til
okkar.
Undanfarin ár var það fastur
punktur hjá Bjössa að koma í rétt-
irnar til okkar og lét hann þá ekki
sitt eftir liggja, hvort sem það var
að draga féð eða reka það heim úr
réttunum.
Við hittum Bjössa síðast í rétt-
unum í september í haust, þá lét
hann sig hafa það að koma norður
til okkar, baráttuviljinn og þráinn
báru hann alla leið, því að hann ætl-
aði sér að komast í réttirnar og eng-
inn og ekkert skyldi koma í veg fyr-
ir það.
Okkur þótti vænt um að hann
skyldi geta komið, en ekki áttum við
von á því að þetta væri í síðasta
skiptið sem við myndum hitta hann
eða sjá. Við vonuðum alltaf og ósk-
uðum þess að Bjössi myndi vinna
þessa baráttu en svo fór ekki.
Sossa Mandý, Atli, Drífa og Mar-
grét, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð, megi Guð geyma
ykkur og styrkja í sorg ykkar.
Við viljum kveðja góðan og kæran
vin með þessum orðum skáldsins:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Stella og Jón.