Morgunblaðið - 28.10.2007, Side 62
62 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Barnamyndatökur
enn nokkrir tímar lausir fyrir jól
Hverfisgata 50, 101 Reykjavík, sími 552 2690, www.svipmyndir.is
Kalvin & Hobbes
ÉG VAR AÐ
LESA VÍSINDA
SKÁLDSÖGU
VÁ, ÞETTA HLJÓMAR
EKKERT SMÁ
ÓHUGNANLEGA
HÚN FJALLAR UM ÞAÐ
HVERNIG VÉLAR NÁ
HEIMSYFIRRÁÐUM OG
GERA MENNINA AÐ
ÞRÆLUM SÍNUM
HJÁLP, ÉG ER AÐ
MISSA AF
UPPÁHALDS
ÞÆTTINUM
MÍNUM
Kalvin & Hobbes
VIÐ EIGUM AÐ RÆÐA
MÁLEFNI LÍÐANDI STUNDAR Í
SKÓLANUM Á MORGUN
VIÐ EIGUM AÐ KLIPPA ÚT
BLAÐAGREIN, LESA HANA UPP
FYRIR BEKKINN
OG ÚTSKÝRA HANA
HVAÐA GREIN
VALDIR ÞÚ?
ÞESSA
GEIMVERA
GIFTIST
TVÍHÖFÐA
ELVIS „KLÓNI“
ÞETTA
ÚTSKÝRIR
SIG AÐ
VÍSU
SJÁLFT
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ ER
MARGT SEM MÁ
GERA VIÐ STÓRA
SOKKA!
ÞÚ SETUR EINN YFIR HVERT
EYRA OG SVO EINN
YFIR NEFIÐ Á ÞÉR
VÁ, FÍLL. LÁTTU MIG
HAFA SVONA SOKKA LÍKA
EF ÉG MISSI AF STRÆTÓ,
ÞÁ FÆR EINHVER
AÐ KENNA Á ÞVÍ
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HEY, ÞÚ! STANSAÐU!
FYRSTA VIÐVÖRUN
?
HALLÓ! HALLÓ...
HALLÓ... HÁLLÓ ?
GÚRKA 1 KALLAR Á GÚRKU 5...
SVARAÐU GÚRKA 5
GÚRKA 5 HLUSTAR... TALAÐU GÚRKA 1
ÉG HEF KOMIÐ AUGA Á GAUR SEM ÉG STÖÐVAÐI. HANN VAR Á RÖLTI UM NÁTTÚRUNA Á MJÖG
GRUNSAMLEGAN HÁTT. ÉG BIÐ UM AÐSTOÐ VIÐ AÐ ATHUGA PAPPÍRANA HANS OG LÚBERJA HANN
EF ÞÖRF KREFUR. SVARAÐU!
dagbók|velvakandi
Kverkatak Landsvirkjunar
LANDSVIRKJUN hefur farið mik-
inn upp á síðkastið. Íðilfundir með
meirihlutum sveitarstjórna, leyni-
legar samningagerðir við ríkisstjórn
og kynningarferðir með nefndum af
Alþingi. Það kemur ekki á óvart,
enda ætla forsvarsmenn Landsvirkj-
unar að hefja smíði þriggja virkjana
í Neðri-Þjórsá innan fimm mánaða. Í
slíkum asa ber við að atriði eins og
stjórnarskrá lýðveldisins gleymist.
Samningaumleitanir við landeig-
endur hafa mikið til gengið illa. Þeim
landeigendum sem sérstaklega
harðir eru í horn að taka hefur verið
ógnað með því að Landsvirkjun
muni, ef þeir hætti ekki andstöðu
sinni, fá „bráðabirgðafram-
kvæmdaleyfi“ (sem er ekki til) og
hefja framkvæmdir á landi sem
hvorki hefur verið samið um né tekið
eignarnámi.
Og Landsvirkjun hefur ás í erm-
inni. Þegar minnst er á eignarnám
segja talsmenn hennar að það muni í
raun ekki eiga sér stað, enda séu
landeigendurnir ekki með vatnsrétt-
indi lands síns. Leyndarmálið er að
Landsvirkjun hefur þau.
En bíðum nú við, fékk ríkið þau
ekki fyrir hálfri öld síðan?
Tveimur dögum fyrir alþing-
iskosningarnar 2007 samþykktu fyr-
ir hönd íslenska ríkisins og íslensku
þjóðarinnar Árni M. Mathiesen,
Guðni Ágústsson og Jón Sigurðsson,
og fyrir hönd Landsvirkjunar Frið-
rik Sophusson, fjarri kastljósi fjöl-
miðla eða Alþingis, að Landsvirkjun
skyldi fá vatnsréttindin af bökkum
Þjórsár að láni í 10 ár.
En hví liggur Landsvirkjun þá svo
mikið á að ljúka þessu af?
Stóriðjustjórn Sjálfstæðisflokks-
ins stendur höllum fæti og end-
urtekin misferli og ólukkulegar
starfsaðferðir við Kárahnjúka hafa
valdið því að stuðningur við áfram-
haldandi brölt Landsvirkjunar fer
þverrandi, hvað þá við þrjár virkj-
anir á byggðu jarðskjálftasvæði.
Tveir þriðju svarenda nýlegrar
könnunar visir.is lýstu sig mótfallna
virkjanaáformunum.
Þar að auki er enginn ákveðinn
kaupandi að orkunni, atvinnuleysi á
Íslandi er innan við 1% og raf-
orkuþörf almennings hefur verið
sinnt 2-4falt.
Og eins og það væri ekki nóg hef-
ur meira framboð raforku ekki skil-
að sér í lægra raforkuverði, þvert á
móti.
Svo ég spyr, hvaða ástæðu hefur
þriðjungur þjóðarinnar fyrir virkj-
un?
Benjamín Julian
Plaggenborg,
er nemi og býr í Skaftholti.
Fyrirspurn til borgaryfirvalda
Hvernig verða vistvænir bílar
ennnþá vistvænir ef sett eru undir
þá nagladekk?
Maður á dekkjaverkstæði sagði
mér að það væru eingöngu þrír til
fjórir dagar á ári sem það væri
öruggara að vera á nagladekkjum,
alla hina dagana væri það óþarfi. Því
langar mig að spyrja hvort ekki sé
rétt að skattleggja nagladekkin.
Vegfarandi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Tollhúsið við Tryggvagötu skartar þessari glæsilegu mósaíkmynd. Gerður
Helgadóttir, myndhöggvari (f.1. apríl 1928, d. 17. maí 1975), gerði mynd-
ina, sem var afhjúpuð með viðhöfn 7. september 1973.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Maður og mósaík