Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 72
72 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SAMBÍÓIN - EINA
THE INVASION kl. 8:20D - 10:30D B.i. 16 ára DIGITAL
DARK IS RISING kl. 2 - 4 - 6 - 8 B.i. 7 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
THE KINGDOM kl. 10:10 B.i. 16 ára
STARDUST kl. 5:50D B.i. 10 ára DIGITAL
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
600 kr.M
iðaverð
eee
A.S.
eeee
- V.J.V., TOPP5.IS
eeee
- S.F.S, FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
/ ÁLFABAKKA
STARDUST kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára
NO RESERVATIONS kl. 8 LEYFÐ
CHUCK AND LARRY kl. 10:20 B.i.12.ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 3 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
BRATZ kl. 3:40 LEYFÐ
THE INVASION kl. 5:50 - 8D - 10:20D B.i.16.ára DIGITAL
THE INVASION kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
HEARTBREAK KID kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ LÚXUS VIP
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
H
GA
SÝND Á SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI
NICOLE
KIDMAN
DANIEL
CRAIG
BYGGÐ Á KVIKMYNDINNI „INVASION OF THE BODY SNATCHERS“
FRÁ LEIKSTJÓRA DOWNFALL
OG WACHOWSKI BRÆÐRUM,
HANDRITSHÖFUNDUM MATRIX.
ÞEGAR Á BJÁTAR MÁ TREYSTA Á ÞAÐ AÐ
SANNAR HETJUR GEFAST EKKI UPP!
CHRISTOPHER REEVES (SUPERMAN) ER MAÐURINN
Á BAK VIÐ ÞESSA MYND, ENDA TALDI AÐ BOÐ-
SKAPURINN ÆTTI VIÐ ALLA, UNGA SEM ALDNA.
Hann þarf að finna
sex falda
töfragripi á aðeins
fimm dögum...
til að bjarga
heiminum
frá tortímingu!
Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon.
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAM
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- S.V, MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
„ÞETTA hófst allt árið 2002 þegar ég
gaf út fyrstu geislaplötuna undir
merki Frostrósa með Íslensku dív-
unum og hélt fyrstu tónleikana í kjöl-
farið, þá í Hallgrímskirkju. Síðan þá
hafa Frostrósartónleikarnir verið ár-
legur viðburður og hafa tvær geisla-
plötur komið út í viðbót hérna heima.
Árið 2005 fórum við í fyrsta skipti
með tónleikana í Laugardalshöllina
og slógum þar íslenskt aðsókn-
armet,“ segir Samúel Kristjánsson
sem stofnaði til Frostrósaverkefn-
isins sem hann rekur núna ásamt
bróður sínum Bjarka Rafni Krist-
jánssyni.
„Frá upphafi var ég með þá hug-
mynd að gera alþjóðlegt jólaverkefni
frá Íslandi og virðist það nú verða að
raunveruleika,“ segir Samúel en nú
er svo komið að Jólatónleikar Frost-
rósa með evrópsku dívunum, sem
teknir voru upp í fyrra í Hallgríms-
kirkju, verða sendir út víða um Evr-
ópu jólin 2007 og efnið auk þess gefið
út í hljóði og mynd í samstarfi við eitt
öflugasta útgáfufyrirtæki heims.
„Í fyrra urðu Frostrósir í fyrsta
skipti alþjóðlegt verkefni, þá undir
heitinu Frostroses, og ótrúlegt að við
höfum fengið þessar fimm söngkonur
saman á svið og þar að auki útgáfu-
rétt á efninu. Þeir tónleikar verða
sýndir í sjónvarpi í þremur til fjórum
heimsálfum um þessi jól, á yfir tíu
stórum stöðvum og ná til tugmilljóna
áhorfenda. Warner-útgáfan gefur þá
líka út á mynd- og geisladiski. Þessir
tónleikar verða markaðssettir sér-
staklega á Norðurlöndunum, á Spáni,
Grikklandi og Japan en koma samt út
um allan heim.“
Samningar hafa verið gerðir við
fjölda sjónvarpsstöðva og aðra sam-
starfsaðila víða um heim og má sem
dæmi nefna að 3DD Group – stærsta
dreifingarfyrirtæki tónlistarefnis fyr-
ir sjónvarp í heiminum – hefur tekið
Frostroses upp á sína arma sem sitt
jólaverkefni næstu árin.
„Dyrnar erlendis hafa alls staðar
staðið galopnar. Það eru allir afar
spenntir fyrir verkefninu.“
Ekki eintómar dívur
Frostrósir eru orðnar að al-
þjóðlega vörumerkinu Frostroses og
mun íslenska vetrarríkið skapa mik-
ilvægan þátt í ímynd þess. Miðast
áætlanir hins alþjóðlega verkefnis nú
við að Akureyri verði heimabær
Frostroses. Þegar Samúel er spurður
af hverju Akureyri verði fyrir valinu
segir hann einfaldar ástæður fyrir
því. „Ef við ætlum að nýta þetta fyrir
ferðaþjónustuna er miklu meira að
selja í vetrartengdri ferðaþjónustu
fyrir norðan.
Tónleikarnir verða teknir upp Ak-
ureyri í september eða október á
hverju ári. Þá munu söngstjörnurnar
koma til landsins, ásamt blaðamönn-
um og kynnum frá sjónvarpsstöðv-
unum. Um tveimur mánuðum seinna
verður efnið svo komið út um allan
heim og sjónvarpað um jólin. Þessi
hópur heldur svo jólatónleika víða um
heim í kjölfar útgáfunnar,“ segir
Samúel og bætir við að dívu-þemað
verði ekki viðloðandi alla tónleikana
heldur verði mismunandi hópur tón-
listarmanna settur saman ár hvert.
Stefnt er að því að Frostroses 2008
verði tekið upp á Akureyri að ári og
verði þar eftir árlegur viðburður.
„Þetta verður ekki jólaland á amer-
ískan plasthátt, við munum bara selja
raunveruleikann; glæsilega tónlist og
jól frá Íslandi með ekta íslenskri
veðráttu. Þetta snýst aðeins um að
gera Akureyri að heimabæ Frostro-
ses gagnvart útlöndum og ætti það að
laða ferðamenn að allan ársins hring.
Við erum nú að vinna í því að fá fyr-
irtæki fyrir norðan og ferðaþjón-
ustuna ásamt hinu opinbera til að
standa með okkur í þessu verkefni. “
segir Samúel en Frostroses-
verkefnið verður kynnt hags-
munaaðilum á fundi á Akureyri á
morgun.
Árlegir jólatónleikar Frostrósa hér
á landi verða haldnir áfram í desem-
ber ár hvert. „Erlenda stefnan er
Frostroses en Frostrósir munu halda
áfram að vera íslenskir jólatónleikar
fyrir okkur hér á Íslandi.“ Í anda
jólanna lætur Frostroses gott af sér
leiða en fyrirtækið gefur allar tekjur
af sjónvarpsrétti í ár beint til Unicef á
Íslandi.
Íslenskir jólatónleikar um allan heim
Frostroses í útrás Íslenska vetrarríkið mun skapa mikilvægan þátt í ímyndinni
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Frostroses Evrópsku dívurnar 2006 voru Ragnhildur Gísladóttir, Sissel
Kyrkjebø, Eleftheria Arvanitaki, Patricia Bardon og Eivør Pálsdóttir. Hér
eru þær við upptöku í Hallgrímskirkju, þessir tónleikar verða sýndir út um
allan heim fyrir jólin 2007.