Morgunblaðið - 28.10.2007, Qupperneq 76
SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 4 °C | Kaldast -2 °C
Vestlæg átt, 5-10
m/s, norðlægari norð-
vestan til. Víða skúrir
eða él en léttskýjað
SA-lands. » 8
ÞETTA HELST»
Banvænn sjúkdómur
Langvinn lungnateppa er mjög
vangreindur sjúkdómur en í Banda-
ríkjunum deyja fleiri konur úr hon-
um en úr brjósta- og lungnakrabba-
meini samanlagt. Fleiri konur en
karlar deyja úr þessum sjúkdómi.
Læknar skrifa einkenni lungna-
teppu stundum á aðra sjúkdóma og
sjúklingar telja að um eðlilegan
fylgifisk reykinga sé að ræða. Flest-
ir greinast með langvinna lungna-
teppu á aldrinum 55-60 ára, um það
leyti sem þeir fara á eftirlaun. » 4
Hraðar á topp 100
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, segir að háskólinn
verði að vinna hraðar að því mark-
miði sínu að komast í röð 100 bestu
háskóla í heimi. Vísbendingar um að
slakan hagsvöxt Evrópuríkja undan-
farin 30 ár, í samanburði við Banda-
ríkin, mætti rekja til slælegs árang-
urs við uppbyggingu háskólarann-
sókna. Um alla Evrópu væri nú
reynt að snúa taflinu við. » 2
Lax, lax, lax og aftur lax
Mikil laxveiði var í Tungufljóti í
sumar en þar hefur markvisst verið
unnið að uppbyggingu laxveiða und-
anfarin ár. Veiðin hófst 20. júlí og
lauk á mánudag. Höfðu þá um 600
laxar komið á land. » 6
Fjall af rusli
Til þess að rúma allt það rusl sem
kemur upp úr heimilistunnum Ís-
lendinga ár hvert þyrfti 25 Hall-
grímskirkjur. Þá er ótalið það sem
fer á endurvinnslustöðvar grennd-
argáma. » Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Sjálfhverfir
framsóknarmenn
Forystugreinar: Skaðsemi áfengis |
Reykjavíkurbréf
Ljósvaki: Ríkissjónvarpið á Netið!
UMRÆÐAN»
Borgin hækkar launaviðmiðanir
SGS tilbúið til kjaraviðræðna við SA
Samningsmarkmið um loftslagsmál
Enga sumarhúsabyggð í Skálholti
Vantar bara hjúkrunarfræðinga?
Um ljósleiðaratengingar í dreifbýli
Peningana eða börnin?
ATVINNA»
TÓNLIST»
Gengur Robbie kannski í
Westlife? » 69
Sæbjörn Valdimars-
son segir að Nætur-
vaktin sé frábært ís-
lenskt sjónvarps-
efni, og gefur þátt-
unum fullt hús. » 69
SJÓNVARP»
Frábær
Næturvakt
KVIKMYNDIR»
Katie Holmes fékk ekki
draumahlutverkið. » 70
FÓLK»
Crowe gerir stólpagrín
að DiCaprio. » 67
Stúdentaleikhúsið
setur upp alvarlegan
skrifstofufarsa eftir
Hlín Agnarsdóttur í
kjallara Norræna
hússins. » 66
Þegar lífið
liggur við
LEIKLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Banaslys á Holtavörðuheiði
2. 10 ára dómur f. munnmök styttur
3. Tveir sem lentu í bílslysi …
4. Neitað um líftryggingu
„VIÐ þurfum á
annars konar fjöl-
miðlum að halda,
miðlum sem vaka
yfir valdinu en
eru ekki seldir
undir það. Fjöl-
miðlar eiga að
vera fjórða valdið
en ekki hluti af
ríkisvaldinu,“
segir bandaríska fréttakonan Amy
Goodman. Hún stýrir óháða frétta-
þættinum Democracy Now! sem
nýtur vaxandi vinsælda vestanhafs.
Goodman heimsækir Ísland um
næstu helgi og verður einn fyrirles-
ara á opnu afmælismálþingi Blaða-
mannafélags Íslands.
Goodman segir aukna sam-
þjöppun eignarhalds á bandarískum
fjölmiðlum áhyggjuefni. „Þetta er al-
varlegt vandamál. Við erum með
mörg hundruð stöðvar en aðeins
örfáir fjölmiðlarisar eiga þær allar,“
segir hún. | 24
Fáir eiga
fjölmiðlana
Amy Goodman
ÍSLENSKIR að-
alverktakar
(ÍAV) hafa keypt
heila götu í
Garðabæ, Mosa-
götu, og ætla að
byggja þar 77
íbúðir.
Um er að
ræða allar íbúð-
arlóðir við göt-
una sem liggur
miðsvæðis í Urriðaholti. Búið er að
skipuleggja byggð við götuna og
verða þar byggð lítil og lágreist
fjölbýlishús og raðhús með alls 77
íbúðum. ÍAV ætla að hefja fram-
kvæmdir eftir mitt næsta ár og er
gert ráð fyrir að fyrstu íbúar flytji
inn í húsin eftir um tvö ár.
Urriðaholt ehf. hefur skipulagt
rúmlega 4 þúsund manna byggð í
hverfinu öllu og seldi lóðirnar til
ÍAV. Samningsaðilar vilja ekki gefa
upp kaupverð lóðanna.
Gunnar Sverrisson, forstjóri
ÍAV, segist vera hrifinn af skipu-
lagi svæðisins, þar sé lögð áhersla
á nálægð við náttúruna, skóla og
golfvöll. „Svo eru fjölbýlishúsin lítil
og hugguleg með fáum íbúðum. Við
höfum byggt mikið af svona
smærri fjölbýlishúsum og við höf-
um fundið fyrir vaxandi eftirspurn
eftir svoleiðis húsum, sérstaklega
frá fjölskyldufólki.“ Með því að
kaupa lóðir á heilli götu segir
Gunnar að ÍAV nái stærðarhag-
kvæmni í framkvæmdinni, til hags-
bóta fyrir alla.
Keyptu
heila götu
Hús Nóg er að
gera hjá smiðum.
Á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund er stefnt að því
að gera miklar breytingar með það að markmiði að all-
ir sem kjósi einbýli eigi kost á því. „Við erum með mörg
einbýli,“ segir Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri
Grundar. „En við ætlum nú á næstu árum að breyta
stóra húsinu – taka tvö herbergi og breyta í eitt með
snyrtingu. Þetta er gríðarmikil framkvæmd og tekur
einhver ár.“
Guðrún er þriðji ættliður stjórnenda á Grund. Þar
fæddist hún og hefur nú starfað þar í 40 ár. | 34
Einbýli fyrir þá sem vilja
85 ár frá vígslu dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ÞAÐ var upplifun fyrir börnin níu í
Innipúkahópnum á leikskólanum
Tjarnarlandi á Egilsstöðum, þegar
Vilhjálmur Einarsson, ólympíumet-
hafi og fv. rektor Menntaskólans á
Egilsstöðum, fór með þau í skoðun-
arferð um elsta hluta bæjarins.
Hann sagði þeim frá lífinu í gamla
daga, litríkum íbúum, hænsnakof-
um, fyrstu húsbyggingunum í bæn-
um og ýmsum gamanmálum tengd-
um fólki.
Börnin fóru nýlega á Vilhjálmsvöll
og skoðuðu þrístökksspor Vilhjálms
sem þar eru greypt í völlinn og gerðu
hann að silfurhafa á Ólympíuleikum í
Melbourne. Þau hrifust mjög af því
að þessi frækni íþróttamaður væri í
þeirra heimabæ og í kjölfarið slógu
þau á þráðinn til hans og báðu hann
um að segja þeim frá afrekinu.
Þar sem þau hafa nú að verkefni
að kynnast Egilsstöðum fyrr og nú
þótti upplagt að Vilhjálmur færi með
þeim um elsta hverfið í bænum og
segði frá. Börnin enduðu svo í heim-
sókn á æskuheimili Vilhjálms í Lauf-
ási, þriðja elsta húsi Egilsstaða. Það-
an kunni hann margar góðar sögur.
M.a. sagði hann frá þegar Kjarval
sat þar einu sinni sem oftar í eldhús-
inu við skyrdisk og renndi í það fal-
lega mynd úr púðursykri með skeið-
inni sinni. „Það á ekki að leika sér
með matinn, Kjarval,“ sagði þá ann-
ar gestur við eldhúsborðið. Þetta
fannst börnunum, sem hafa verið
frædd um Kjarval í leikskólanum
sínum, stórkostlega fyndið, enda vita
þau að maður á ekki að leika sér að
matnum heldur borða hann fallega.
Vilhjálmur lofaði, í enda samver-
unnar, að ljá börnunum upptöku af
silfurverðlaunastökkinu svo þau
mættu sjá hvert þrístökkið fleytti
honum í raun og sann.
Það á ekki að leika sér
með matinn, Kjarval!
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Samvera Vilhjálmur Einarsson fór með leikskólabörn um gamla bæinn á
Egilsstöðum og sagði frá mannlífinu í gamla daga.
♦♦♦