Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 15

Morgunblaðið - 30.10.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 15 MENNING BLÁSIÐ hefur verið til sam- keppni á vegum Samorku og Mosfellsbæjar um útilistaverk sem á að reisa á nýju torgi í bænum. Tilefnið er 100 ára af- mæli hitaveitu á Íslandi á næsta ári og tvítugsafmæli Mosfellsbæjar í ár. Verkið á því að endurspegla mikilvægi heita vatnsins fyrir lífsgæði í landinu og jafnframt er mælt með því að það skírskoti til sögu Mosfellsbæjar. Öllum myndlistarmönnum er heimilt að senda inn tillögur. Skilfrestur rennur út 21. nóvember klukkan 16. Myndlist Heita vatnið fær minnisvarða Heita vatnið fær minnisvarða. UM helgina var opnuð sýning í Listhúsi Ófeigs í tilefni af átt- ræðisafmæli Jóns M. Baldvins- sonar. Sýningin ber yfirskrift- ina Sýnishorn. Skáldskapur um geimskip og furðuhluti. Jón var um fertugt þegar hann sneri sér að myndlistinni. Hann stundaði nám í myndlist árið 1972 á Jótlandi og svo árin 1985-1988 í Kaliforníu. Verk Jóns bera með sér áhuga hans á dulrænum fyrirbrigðum, geimver- um og lífi í öðrum víddum. Hann hefur málað huldufólk, geimför og portrett af geimverum. Sýningin stendur til 14. nóvember. Myndlist Geimskip og furðu- hlutir á striga Af sýningu Jóns M. Baldvinssonar. KRISTJANA Stefánsdóttir djasssöngkona heimsækir Há- skólann á Bifröst annað kvöld og flytur sín eftirlætisblúslög. Með henni í för verður Trega- sveitin, skipuð þeim Agnari Má Magnússyni orgelleikara, Gunnari Hrafnssyni bassaleik- ara og Einari Scheving trommuleikara. Tónleika- dagskráin var flutt á vegum djassklúbbsins Múlans í vor og fékk þá góðar viðtökur. Háskólatónleikar eru haldnir einu sinni í mán- uði á Bifröst í hátíðarsalnum Hriflu og er aðgang- ur ókeypis. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Tónlist Kristjana syngur blús á Bifröst Kristjana Stefánsdóttir Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is LISTALÍFIÐ í Langholtskirkju hefur tekið stakkaskiptum eftir að Björn I. Jónsson tenórsöngv- ari var ráðinn í tímabundið starf við að endurskipuleggja það. Það er ekki þar með sagt að eitt- hvað hafi skort á líf í kirkjunni áður, þvert á móti; starf Björns fólst í því að horfa til vetrarins sem heildar með þann fjölda tón- leika sem jafnan eru í kirkjunni, henda reiður á hvers konar tónleikar það væru, skipa þeim í tónleikaraðir, eftir þema og viðfangs- efnum, til að gera gestum kirkjunnar auðveldara að átta sig á því mikla listastarfi sem þar er unnið og velja sér tónleika eftir smekk og áhuga. „Sú hug- mynd kom upp að stofna listafélag,“ segir Björn. „Listafélag sem sæi um alla listastarfsemi í kirkj- unni. Hlutverk þess er að efla starfið í kirkjunni, ekki síst grasrótarstarfið, en um 300 manns taka þátt í menningarstarfinu í kirkjunni, langflestir í sjálfboðavinnu. Þetta starf er mjög mikilvægt fyrir kirkjuna og fyrir tónlistina á Íslandi, því það skapar grunn að því að tónlistarmenn geti komið fram,“ segir Björn. Hann segir að þegar búið hafi verið að tína allt til hefði verið ljóst að kirkjan stæði fyrir um fimmtán tónleikum í vetur, en þá eru ekki meðtaldir tón- leikar yngstu barnakóranna, og heldur ekki þeir sem tónlistarhópar utan kirkjunnar standa fyrir. „Ég las um daginn tölur sem bentu til þess að um 10% tónleika í Reykjavík væru haldin í Langholts- kirkju. Hún er gott tónlistarhús, og hljómburður er sláandi líkur því sem er í Concertgebouw í Amst- erdam og Musikverein í Vín.“ Fjórar tónleikaraðir standa nú gestum kirkj- unnar til boða. Í dagskrárbæklingi sem gefinn hef- ur verið út ber gul tónleikaröð heitið Jubilate. Þar eru fernir tónleikar, stærstu tónleikar kóra kirkj- unnar, þar á meðal minningartónleikar um séra Sigurð Hauk Guðjónsson sem lengi þjónaði söfn- uðinum, tónleikar með mótettum Bachs, og stór- tónleikar allra kóra kirkjunnar. Í hæstu hæðir er nafn grænu raðarinnar, en þar verða þrennir einleiks- og einsöngstónleikar af- burða listamanna, en þar koma fram Eyþór Ingi Jónsson organisti, Þóra Einarsdóttir sópran- söngkona ásamt píanóleikararnum Alexander Schmalcz og danski trompetsnillingurinn Per Niel- sen. Kirkjujazz er rauð röð, þar sem heyra má djass- spuna þeirra Sigurðar Flosasonar og Gunnars Gunnarssonar, Djassmessu eftir Jan Gunnar Hoff og söng Kammerkórs kirkjunnar með djasstónlist- armönnum. Exaudi er blá röð, en í henni syngja Graduale- kórinn og Graduale nobili þrenna tónleika með ís- lenskri og erlendri tónlist, þar á meðal nýjum verk- um eftir Tryggva M. Baldvinsson og Hildigunni Rúnarsdóttur. Listastarf í Langholtskirkju eflt með stofnun Listafélags Kirkjan er gott tónlistarhús „ÉG ætla að spila verk eftir Buxtehude, en það er 300 ára ártíð hans í ár,“ segir Eyþór Ingi Jónsson organisti á Akureyri, en hann verður með fyrstu tónleika í röðinni Í hæstu hæðir, í Langholtskirkju sunnudaginn 4. nóvember kl. 20. „Ég ætla reyndar að segja sögu með því að spila verk frá Sweelinck, föður norður-þýska orgelskólans, og gegnum nemendur hans til Buxtehude og svo til Bachs, hundrað ár fram í tímann. Þetta verða því verk eftir Buxtehude, kennara hans og þá sem höfðu áhrif á hann, og svo nemendur hans, eins og Bach,“ útlistar Ey- þór Ingi. Þetta verður því músíkættfærsla í tón- um – en ekki bara í tónum, því Eyþór Ingi verður jafnframt með slæðusýningu á stóru tjaldi, þar sem saga tónskáldanna birtist, myndir, tóndæmi og fleira – allt í þeim tilgangi að gera upplifun áheyrenda af tónlistinni dýpri. Sýningartjaldið er reyndar sögulegt að sögn Björns Jónssonar, því það var áður í eigu Hafnarbíós sáluga. Í góðvinahópi tónskáldanna á efnisskrá Ey- þórs Inga eru Johann Adam Reincken, félagi og skólabróðir Buxtehude; Heinrich Scheidemann, nemandi Sweelincks og kennari Buxtehudes og Nicolaus Bruhns, nemandi Buxtehudes, en allir þóttu þeir afburða organistar um sína daga. Eyþór Ingi segir að í gegnum þessi tónskáld megi rekja miklar breytingar. „Orgelin stækkuðu gríðarlega, ekki síst ped- allinn. Mikilvægur orgelsmiður á þessum tíma var Arp Snitger; kóngur orgelsmiðanna, og í dag er enn verið að smíða orgel með sama útliti og hann notaði. Orgelið í Langholtskirkju liti ekki út eins og það gerir, ef Snitger hefði ekki fæðst. Í tónlistinni jókst notkun pedalsins mjög mik- ið. Orgeltónlistin þróaðist frá því að vera oft í einum kafla, kannski tilbrigðaformi, eins og hjá Sweelinck, meðan Buxtehude samdi verk í fimm köflum, þar sem skiptist á sterkt og veikt, dans- ar og fúgur – þannig að jafnvel átta mínútna verk gat verið í fimm mjög fjölbreyttum og ólík- um köflum. Hann vísaði veginn til Bachs. Þróun- in var hröð, og sennilega er þetta mikilvægasta tímabil orgelsögunnar ásamt París í kringum 1900.“ Eyþór Ingi með músíkniðja og framætt Buxtehude NORSKI rithöfundurinn Anne B. Ragde beitti fyrir sig naglaþjöl og greiðslukorti til þess að brjótast inn í Bókmenntahúsið í Ósló um helgina. Þar límdi hún sjö teikn- ingar af sjálfri sér á fimmtán fer- metra listaverk sem sýnir 36 þekkta norska rithöfunda. Mynd af Ragde var ekki að finna í verkinu fyrr en hún bætti úr því sjálf. „Þetta voru nákvæmlega skipu- lagðar skæruliðaaðgerðir sem ég stóð fyrir ásamt fleirum,“ sagði Ragde. Valið á rithöfundunum 36 sem voru heiðraðir með listaverk- inu er mjög umdeilt innan raða norskra rithöfunda að hennar sögn. Ragde hefur átt miklum vinsæld- um að fagna síðustu ár, bæði í heimalandinu og utan þess, sér- staklega fyrir skáldsöguna Berl- ínaraspirnar sem kom út í íslenskri þýðingu á síðasta ári. Norska rík- issjónvarpið sýnir um þessar mund- ir þáttaröð sem gerð er eftir þeirri sögu. Teikningarnar fengu ekki að vera uppi lengi, heldur voru þær fjarlægðar strax næsta dag. Rithöfundur í skæruhernaði Braust inn í Bókmenntahúsið Flott? Anne B. Ragde í uppreisn. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI Tékklands hefur ákveðið að veita rithöfundinum Milan Kundera bók- menntaverðlaun ríkisins í ár fyrir skáldsöguna Óbærilegan léttleika tilverunnar. Bókin var fyrst gefin út í Frakklandi árið 1984, en kom ekki formlega út í Tékklandi fyrr en á síðasta ári. Það hefur andað köldu milli Kun- dera og föðurlandsins síðan hann fluttist þaðan á áttunda áratugnum og hann ætlar ekki að koma og taka við verðlaununum þegar þau verða formlega veitt á fimmtudag- inn. Tékkneski bókmenntagagnrýn- andinn Michal Prochazka segir að Kundera sé tvímælalaust tékk- neskur höfundur. „Rætur hans liggja þar, þó svo að hann hafi flutt til annars lands og tileinkað sér annað tungumál.“ Hann segir yngri kynslóð Tékka vera jákvæðari í garð Kundera en þá eldri. Það skýrist af andrúms- loftinu á tímum kommúnismans. „Þá var litið svo á að rithöfundar hefðu miklum skyldum að gegna við fósturjörðina. Þeir ættu að berj- ast staðfastlega fyrir þjóð sína.“ Prochazka segir að í raun sé til- finningasamband margra brott- fluttra Tékka við heimalandið stirt og sumir líti svo á að þeir hafi svik- ið landa sína á erfiðum tímum. Tékkar verð- launa Kundera Brottfluttur Samband Kundera við föðurlandið hefur verið stirt. MENNINGARSMIÐJAN Populus tremula hefur nú fengið fjárhags- legan bakhjarl, því Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur skuld- bundið sig til að styrkja starfsem- ina næstu þrjú árin. Brynhildur Ólafsdóttir, for- stöðumaður samskiptasviðs Saga Capital, segir að gengið hafi verið til samstarfs við Populus tremula vegna grasrótarstarfs félagsins. „Þaðan sprettur þetta allt saman og þarna er verið að leggja grunninn.“ Höfuðstöðvar Populus tremula eru í kjallara Listasafns Akureyrar og þar hafa meðlimir aðstöðu til listsköpunar af ýmsu tagi. Til- gangur félagsins er þó ekki síður að stuðla að uppgangi menningar og lista í nágrenni sínu í Grófargili og þá sérstaklega að laða þangað ungt fólk. Félagið er rekið í hugsjónastarfi og leggja listamenn fram vinnu sína án endurgjalds. „Það kostar aldrei neitt inn á viðburði, hvort sem það eru myndlistarsýningar, bók- menntakvöld eða tónleikar. Þetta er ekki peningastýrt apparat,“ segir Sigurður Heiðar Jónsson, tals- maður Populus tremula. „En það kostar allt eitthvað. Þó að myndlist- armenn séu tilbúnir til þess að koma fyrir ekkert, þá gildir ekki það sama um rafvirkja eða sendi- bílsstjóra.“ Saga Capital styrkir starfsemi menningarsmiðjunnar Populus tremula í þrjú ár Grasrótin sprettur í Listagilinu Samstarf Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, og Arnar Tryggvason, félagi í Populus tremula, skrifa undir samstarfssamninginn. TENGLAR ............................................................... www.langholtskirkja.is Björn Jónsson Morgunblaðið/Sverrir Organistinn Eyþór Ingi Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.