Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 27

Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 27 að þú ætlaðir að fá þér hund þegar um hægðist í vinnunni, því að Sig- urlaug hefði svo gaman af hundum. Allt vildirðu nú gera fyrir afabörnin. Svo kom litli afastrákurinn sem þú áttir eftir að kynnast betur og von er á fjórða krílinu í vor. Þau munu leika sér í kofanum þínum og heyra allar skemmtilegu vísurnar sem afi kunni. Þú varst alltaf glaður þegar þú komst í mat á Borgarbraut eða til Siggu. Stundum aðeins of seint, þreyttur eftir langan vinnudag. En lundin alltaf ljúf og hláturinn þinn svo smitandi. Við systurnar höfum svo oft rifjað upp eitt skiptið í afahúsi, þú hlóst svo mikið að við lákum niður af hlátri, bara út af því hversu mikið þú hlóst. Það er gott að rifja upp góðar minningar. Að sjá ykkur Ástu ekki eldast sam- an og verða gömul hjón er óraunveru- legt. Við munum passa elsku Ástu þína, styrkja og styðja alla tíð. Því lofum við þér elsku Dóri. Hvíldu í friði. Elín Eir Jóhannesdóttir. Lífið er minningar. Við finnum það best þegar dauða ástvina ber að. Ég á margar minningarnar um Dóra föð- urbróður minn. Hann tók andleg gæði umfram veraldleg og kunni þá list að hafa gaman. Slíkt er góð fyr- irmynd í okkar hraða og á tíðum of- hlaðna samfélagi. Fyrsta minning mín af frænda mínum tengist einmitt gleðistund á gamlárskvöldi. Dóri rað- aði iðulega kampavínsglösum í nokk- urs konar spilaborg og byrjaði að hella efst með miklum tilþrifum og við ákafa hvatningu jafnt ungra sem eldri. Hann hellti þangað til öll glösin geymdu þennan forláta drykk full- orðna fólksins, sem maður fékk að smakka þetta eina kvöld á ári. Kampavínsglasaborgin hans Dóra frænda var sannkallaður viðburður sem sló út alla flugelda. Sem fullorðinn maður kynntist ég Dóra frænda á nýjan leik í gegnum pólitíkina. Ég studdi hann dyggilega þegar hann var í baráttusæti til Al- þingis, dáðist að sannfæringarkrafti hans og skoðanafestu, pólitísku innsæi og réttlátri sýn á þjóðfélagið. Hans sýn var jafn réttur og jöfn tæki- færi fyrir alla. Ég er frænda mínum ævinlega þakklátur fyrir mikið traust og óbilandi trú á störf mín. Það er mér afar mikilvægt. Öll vitum við að duglegri mann en Dóra var erfitt að finna. En hann var líka, eins og margir af hans kynslóð, fús að deila kunnáttu sinni með öðr- um. Hann starfaði lengi sem bifreiða- stjóri, og hef ég engan betri bílstjóra þekkt. Eitt sinn varð hann samferða mér úr Borgarnesi á fund norður í land. Við vorum rétt komnir upp að Svignaskarði þegar þolinmæði hans fyrir aksturslagi mínu brást, og tók hann að kenna mér að skipta um gír, hafa hæfilegt bil á milli mín og næsta bíls og þar frameftir götunum. Ég þóttist nú kunna þetta allt saman, sérstaklega að skipta um gír, en frændi minn var ekki alls kostar sam- mála. Ég sá að við myndum ekki ná saman um þetta mál. Til að forðast fleiri ákúrur frænda míns ákvað ég að leggja til að hann héldi för sinni áfram með Árna Steinari Jóhanns- syni og setti mál mitt fram á þann veg að í bílnum hjá Árna gæti hann reykt að vild. Þetta leist frænda stórvel á. Það leið ekki á löngu þar til ég sá að aksturslag Árna Steinars batnaði til muna líkt og annar bílstjóri sæti und- ir stýri. Það var svo rúsínan í pylsu- endanum að hlusta á lýsingar Árna Steinars á umvöndunum Dóra við sig þegar á áfangastað var komið. Hafði Dóri mest gaman af. Þessar fáeinu sögur, minninga- brot, af Dóra frænda, lýsa miklum mannvini og gleðigjafa. Dóri hafði mjög gaman af öðru fólki og að segja sögur af öðrum. Hann var gæddur þeim góða kosti að hafa húmor fyrir sjálfum sér, og ég veit að hann mun hafa gaman af því að hlusta á sögur af sjálfum sér þarna hinu megin. Dóra frænda verður sárt saknað í fjölskyldunni, í samfélaginu í Borg- arnesi og meðal vina um land allt. Ég minnist frænda míns með söknuði, en geymi margar og góðar minningar um hann. Minningarnar lifa af dauð- ann og eru mikilvægar á kveðjustund og um ókomna tíð. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina. Guðmundur Ingi Guðbrandsson frá Brúarlandi. Með þessum fátæklegu orðum langar mig til að minnast svila míns, Halldórs Brynjúlfssonar. Þó segja megi að þegar kallið kemur sé best að það gerist snöggt eins og það svo sannarlega gerðist með Dóra. Við hin sitjum hins vegar döpur eftir, tíðindi sem við höfðum ekki átt von á. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast Dóra fljótlega eftir að ég flutti í Borgarnes árið 1975. Það voru forréttindi að fá að kynnast Dóra. Ekki skemmdi fyrir að lífsskoðanir okkar fóru saman að mörgu leyti, þó vissulega gætum við alltaf fundið okkur eitthvað til að deila um. Og svo sannarlega var gaman að rökræða við Dóra. En það var aldrei vandamál að deila um þjóðfélagsmálin við Dóra, hann sá alltaf um að það endaði með gríni. Dóri var sannur og trúr skoð- unum sínum. Og aldrei hikaði hann við að halda þeim fram og aldrei lá hann á liði sínu til að vinna að fram- gangi þeirra. Dóri var mikill barnamaður og nutu börnin mín þess svo sannarlega, enda höfðu þau mikla ánægju af að heimsækja Dóra og Ástu á Böðvars- götuna. Þá kom svo sannarlega í ljós hve ljúfur maður Dóri var, sem kom mér ekki á óvart vegna kynna minna af honum. Enda var mér löngu orðið ljóst að þar fór heilsteyptur og góður maður og sem gaf okkur sem þekkt- um hann svo mikið. Það vil ég þakka fyrir. Elsku Ásta, Sigurður, Brynjúlfur og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill. Ég votta ykkur samúð mína. En ég veit það af kynnum mínum af Dóra að minningin um þann góða mann hjálp- ar ykkur í sorginni. Jóhannes Gunnarsson. Traustur félagi og góður vinur er fallinn frá, fyrirvaralaust og langt um aldur fram. Halldór Brynjúlfsson var einn af máttarstólpum hreyfingar okkar Vinstri grænna frá byrjun. Hann tók þeirri áskorun, þegar ýmsir aðrir hikuðu, að leiða framboðslista okkar í fyrstu kosningunum 1999 í Vesturlandskjördæmi og gerði það með glæsibrag. Hann var hársbreidd frá því að tryggja hinni nýstofnuðu hreyfingu þingsæti í kjördæminu og var reyndar reiknaður inn á þing lengst af talningunni á kosninganótt. Niðurstöðunni tók hann með jafnað- argeði og gamanyrðum á vör. „Það var skemmtilegt meðan á því stóð,“ sagði Dóri um sína nokkurra klukku- stunda meintu þingmennsku þessa kosninganótt. Hitt hef ég fyrir satt að margur Borgfirðingurinn og kjós- endur víða um Vesturland hafi nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki lagt sitt af mörkum til að tryggja hér- aðinu og kjördæminu öllu öflugan málsvara í Halldóri þegar í ljós kom hversu sáralítið vantaði upp á, þvert á hrakspár og úrtöluraddir. Frá byrjun var Halldór, vopnaður mannkostum sínum og reynslu, einn af okkar traustustu og ráðhollustu félögum. Síðast á flokksráðsfundi á Flúðum í haustbyrjun hélt hann skemmtilega og snjalla hvatningarræðu. Þar talaði hinn reyndi liðsmaður um málstaðinn og heildina eins laus við sjálfhverfu og persónulegan hégómaskap eins og yfirleitt er hægt að verða. Þannig maður var Halldór, traust- ur og gegnumheill jafnt í leik og starfi, í félagsmálavafstri sínu sem persónulegum samskiptum. Hann tók hugsjónir um jöfnuð og félagslegt réttlæti, frið og frelsi ungur að hjarta sínu, fyrirmyndanna ekki langt að leita í föðurgarði; og þessum hugsjón- um fylgdi hann og lagði allt það lið er hann gat æ síðan. Sem vinur og félagi var Halldór Brynjúlfsson gleðigjafi. Hann krydd- aði mál sitt gamanyrðum, var sögu- maður og fróðleikssjóður. Gegnum störf sín varð hann þaulkunnugur á hverjum bæ í héraðinu, þekkti meira og minna alla þá sem komu að flutn- ingamálum í landinu og meiri háttar framkvæmdum og var virkur í fé- lagsmálum og hagsmunabaráttu þeirra sem hann tilheyrði og gætti trúnaðar fyrir. Nú sakna því margir vinar í stað þar sem var Halldór Brynjúlfsson. Á kveðjustund iðrast ég þess mjög að ekki hafði enn fundist tími fyrir áætlaða og margrædda stórvísitasíu okkar um Borgarfjörð og Mýrar. Til stóð að húsvitja á vel völdum stöðum, ræða landsins gagn og nauðsynjar í bland við þjóðmálin, segja sögur og gleðjast með glöðum. Að sjálfsögðu var ætlunin að snúa nokkrum fráfar- andi framsóknarmönnum og stöku íhaldsmanni endanlega frá villu síns vegar í leiðinni og festa þá í sessi sem liðsmenn Vinstri grænna. Betri leið- sögumaður var og verður vandfund- inn um Borgarfjarðarhérað. Minn er skaðinn að af þessari síðustu yfirreið okkar varð ekki og við hann bætist söknuðurinn vegna fráfalls góðs vinar og félaga. Fyrir hönd okkar allra í Vinstri- hreyfingunni – grænu framboði og frá mér og fjölskyldu minni persónu- lega flyt ég samúðarkveðjur og þakk- ir. Steingrímur J. Sigfússon. Dóra á Landi kynntist ég í vega- vinnu árið 1960. Hann hafði þá nýlega eignast sinn fyrsta vörubíl en ég hafði þá verið í bílarekstri í nokkur ár. Saman stóðum við í verktakaharkinu næsta áratug eða svo en árið 1974 gerðist Dóri verksmiðjustjóri hjá Borgarplasti hf. og það ár stofnaði ég fyrirtæki mitt Borgarverk. Bæði fyr- irtækin byggðu hús við Sólbakka í Borgarnesi og ætíð hélst góð vinátta og samvinna okkar í milli þó að við værum nú reyndar ekki alltaf sam- mála um alla hluti. Löngu seinna, eða árið 1999, stofnuðum við svo saman fyrirtækið Vöruflutninga Vestur- lands og varð Dóri framkvæmda- stjóri þess. Fyrirtækið seldum við svo árið 2005 og þá réðst Dóri til starfa hjá Borgarverki sem verkstjóri og starfaði sem slíkur til dauðadags. Þessu hlutverki skilaði hann framúr- skarandi vel og var óhemju vinsæll, bæði hjá starfsmönnum sem og verk- kaupum. Hann hafði sérstakt lag á því að umgangast ungt fólk og það kepptist við að fá að vinna í flokknum hans Dóra. Það má líka segja um þennan vin minn að hann var ávallt hrókur alls fagnaðar, lífsglaður og skemmtilegur svo af bar. Hann var mjög pólitískur og hafði yndi af því að rökræða og snúa niður pólitíska and- stæðinga. Það er ljóst að stemningin á kaffistofu Borgarverks sem og í fyr- irtækinu öllu verður ekki söm. Ég votta Ástu og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Sigvaldi Arason.  Fleiri minningargreinar um Hall- dór Brynjúlfsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dög- um. Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR JÓNSSON, áður til heimilis að Langholtsvegi 2, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 27. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elín Jósefsdóttir, Jóna Sesselja Guðbrandsdóttir, Ásbjörn Einarsson, Einar Jón Ásbjörnsson, Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir, Elín Björk Ásbjörnsdóttir, Gísli Hallsson og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, tengdadóttir og amma, KRISTÍN S. KVARAN kaupmaður, Skipholti 15, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnudaginn 28. október. Útförin verður auglýst síðar. Einar B. Kvaran, Bertha G. Kvaran, Jón Þ. Ólafsson, Ragna E. Kvaran, Egill Erlendsson, Thelma Kristín Kvaran, Ingvar B. Jónsson, Guðrún V. Kvaran og barnabörn. ✝ Elskulegur stjúpfaðir, KARL ÁGÚST ADÓLFSSON netagerðarmaður, Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést sunnudaginn 28. október. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Axelsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR ljósmóðir, Blesastöðum, Skeiðum, lést á heimili sínu sunnudaginn 28. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Hermannsson, Elín Árnadóttir, Kristín Hermannsdóttir, Vilmundur Jónsson, Guðrún Hermannsdóttir, Hjalti Árnason, Sigríður Hermannsdóttir, Jónas Jónasson, Hildur Hermannsdóttir, Kristján Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR BENNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR (Lilla frá Ási), Nestúni 2, Hvammstanga, andaðist á sjúkrahúsinu á Hvammstanga föstudaginn 26. október Útförin verður auglýst síðar. Hallgeir S. Pálmason, Helga Jakobsdóttir, Jakob Hallgeirsson, Sandra Guðlaug Zarif, Berglind Þóra Hallgeirsdóttir, Sigurður Flosason, Alex Rafn Guðlaugsson, Ísak Geir Jakobsson. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR HÓLMGRÍMSDÓTTIR frá Vogi við Raufarhöfn, Þorragötu 9, Reykjavik, lést laugardaginn 27. október. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Bragi Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.