Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 29 REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGIBERG EGILSSON flugvirki, Lækjarsmára 4, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 18. október, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 31. október kl. 13.00. Hrönn Jóhannsdóttir, Jóhann Ingibergsson, Kristín Andrea Einarsdóttir, Anna Ingibergsdóttir, Ari Jóhannsson, Arna Ingibergsdóttir, Eyþór Einar Sigurgeirsson, Elfa Ingibergsdóttir, Elvar Jónsson, og barnabörn. ✝ Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför AÐALBJARGAR PÉTURSDÓTTUR frá Bót, Furuvöllum 5, Egilsstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahússins á Egilsstöðum. Hermann Eiríksson, Gunnþórunn Benediktsdóttir, Björn Eiríksson, Gunnhildur Aðalbergsdóttir, Sigríður Eiríksdóttir, Pétur Eiríksson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Hjartanlegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og stuðning við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, REYNIS GUÐJÓNSSONAR Hlíðargötu 20, Fáskrúðsfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði og á lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir alúð og góða umönnun. Lára Hjartardóttir, börn og fjölskyldur. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA GUNNARSDÓTTIR, Miðstræti 23, Neskaupstað, sem lést þriðjudaginn 23. október, verður jarðsungin í dag, þriðjudaginn 30. október, kl. 14.00. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÖRN GUIDO BERNHÖFT, Hlynsölum 5, Kópavogi, sem lést 22. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 1. nóvember kl. 15.00. Svava Jóhanna Pétursdóttir, Sigurður Örn Bernhöft, Katrín Gunnarsdóttir, og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, POUL ANKER HANSEN, Boðahlein 30, Garðabæ, lést á dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ mánudaginn 29. október. Jarðarförin fer fram í Færeyjum. Sigríður Karlsdóttir, Ása Bech, Kirsten Thomsen, John Ove Hansen, Marin Johannesen, Margit Zachariasen, Ann Hansen, Randi Jakobsen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og frændi, ERLINGUR BERTELSSON, Unnarbraut 13b, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu mánudaginn 29. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Marga Thome, Katrín Erlingsdóttir, Kristján Freyr Einarsson, Erlingur Snær Kristjánsson og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ SKEGGJADÓTTIR, Strandvegi 11, Garðabæ, áður Álfhólsvegi 33, Kópavogi, lést á líknardeildinni í Kópavogi 28. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar, sími 543 1159. Guðmundur K. Ingimarsson, Skeggi Guðmundsson, Katrín J. Sigurðardóttir, Hólmfríður E. Guðmundsdóttir, Úlfar Henningsson, Henning Arnór Úlfarsson, Emilía Lóa Halldórsdóttir, Salka Kristinsdóttir og Kolka Henningsdóttir. Elsku Sigrún, Sævar, Dóra, Linda og fjölskyldur, megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni og hjálpa ykkur að komast í gegnum erfiðan tíma. Góður Guð geymi drenginn ykk- ar. Bylgja Björnsdóttir. Hæ baby. Þannig heilsaði Tóti frændi mér alltaf hvort sem það var í síma eða persónu. Það var sama hve sjaldan við hittumst, ég fann alltaf hversu vænt honum þótti um mig og hvað það gladdi hann að sjá mig eða heyra. Ég var alltaf litla búddakellingin hans sem vildi bara borða grænmeti og hrísgrjón og stundum þegar hann var að passa mig sátum við tímunum saman hlæjandi og borðandi „snakk“ sem var í mínum huga niðursaxaðar gul- rætur og agúrkur. Alltaf nennti hann að skera niður grænmeti ofan í mig. Alla ævi fékk ég bara að kyssa hann á ennið og fannst aldrei neitt athugavert við það – Tóta frænda kyssir maður á ennið – ég fékk seinna að vita ástæðuna, en líka að það voru bara sumir sem nutu þeirra forréttinda. Draumurinn um að verða dansari var nokkuð sem við áttum sameiginlegt og þú gladd- ist alltaf þegar mér gekk vel á þeim vettvangi, en þolinmæðin þín var líka ótrúleg þegar ég lét þig í gegn- um tíðina horfa á ófá dans- og skemmtiatriðin inni í stofu, eða bað um að fá að kroppa í neglur í miðjum bíltúrum. Ég er svo glöð í dag að ég skyldi hringja í þig um daginn, en ég hafði ekki heyrt í þér lengi. Ég er svo glöð, því þú varst Tóti „bróðir“ eins og mamma kall- aði þig Tóti frændi og ég trúi að þér líði betur núna. Hvíldu þig vel, því þú manst að þú ætlaðir alltaf að koma aftur. Þín frænka Steinunn Edda. Ljúfar eru minningarnar frá skólaárunum í Langholts- og Voga- hverfinu. Vinahópar mynduðust. Í einum þeirra voru sjö kraftmikil og lífsglöð ungmenni, þau Ella, Palli, Gunni, Svala, Anna Sigga, Jón Atli og Tóti. Þótt við værum í mismunandi skólum eða á ólíkum brautum innan sama skóla eyddum við frítíma okk- ar saman. Kvöldin og helgarnar voru ávallt tilhlökkunarefni. Þá átt- um við skemmtilegar stundir, þar sem glaðværð, bjartsýni, tilhlökkun og trú á lífið og framtíðina ríkti. Ýmislegt var brallað eins og vera ber og margt barst foreldrunum aldrei til eyrna. Í hópnum ríkti væntumþykja og velvild. Þetta var dýrmæt vinátta. Saman þroskuðumst við úr áhyggjulausum unglingum í fullorð- ið fólk og gerðum okkur grein fyrir að við yrðum að velta fyrir okkur framtíðinni og þeim möguleikum sem stæðu okkur til boða. Áhyggju- leysi unglingsáranna vék fyrir auk- inni ábyrgðarkennd. Eitt var þó víst í okkar huga; að við ættum öll bæði langa og farsæla ævi í vænd- um. Það var að minnsta kosti ein- læg von okkar. Því var það reiðarslag að fá þær fregnir að einn úr vinahópnum hefði kvatt þennan heim. Okkar trausti og kæri vinur Tóti er látinn, aðeins 45 ára. Kveðjustundin kom fyrr en nokkurt okkar hafði séð fyr- ir. En þrátt fyrir sorgina er minn- ingin um Tóta björt. Við minnumst hinna mörgu gleðistunda sem við áttum saman, hlýlegrar nærveru hans, gleði, brosmildi og leiftrandi kímnigáfu. Hann var glæsilegur og góðum gáfum gæddur eins og námsferill hans vitnar um. Við er- um þakklát fyrir að hafa átt hann að vini. Við flytjum ástvinum Tóta okkar innilegustu samúðarkveðjur. Missir þeirra er mikill og sár. Megi minningin um góðan dreng lifa. Æskuvinir úr Langholtshverfi. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Elsku Tóti, innilegar þakkir fyrir vináttuna í gegnum árin. Blessuð sé minning Þóris Þor- lákssonar. Hugrún og Kristján. Fallinn er frá drengur góður og félagi, Þórir Þorláksson læknir. Hann var samstarfsfélagi okkar sl. ár og við minnumst hans með hlýju og þakklæti. Hann var samvisku- samur, velviljaður og vandvirkur læknir, ljúfur og vel liðinn í sam- skiptum. Við samstarfsfólk á end- urhæfingardeildum geðsviðs á Kleppi viljum þakka samfylgdina með virðingu og þökk og sendum fjölskyldu og ástvinum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Halldór Kolbeinsson.  Fleiri minningargreinar um Þóri Þorláksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.